Morgunblaðið - 03.10.1979, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1979
15
Byltingin heldur áfram. . .
IRA hafnar
páfaáskorun
Dyflinni, 2. október. AP.
PROVISIONAL-armur írska lýðveldisins (IRA) hafnaði
í dag áskorun Jóhannesar Páls páfa II um frið á
Norður-írlandi og sagði að blóðugri baráttu hans fyrir
því að binda endi á stjórn Breta yrði haldið áfram.
í yfirlýsingu frá
Provisional-arminum kveðst hann
telja að vald væri eina leiðin til að
fjarlægja meinsemdir nærveru
Breta á írlandi. Bretar eru sakaðir
um að kljúfa þjóðina og valda
ósegjanlegum þjáningum í yfirlýs-
ingunni.
Yfirlýsingin var birt í Belfast og
Dyflinni eftir leynifund 12 manna
herráðs skæruliða um áskorun
páfa.
í yfirlýsingunni segja skærulið-
ar að þeir telji að horfur séu á
Þetta gerðist
1977 — Indira Gandhi fv. forsætis-
ráðherra handtekin í Delhi.
1969 — Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
(IMF)) kemur á sérstökum yfir-
dráttarheimildum (fyrsti alþjóða
gjaldmiðill annar en gull).
1958 — Herbylting í Perú.
1966 — Lesotho fær sjálfstæði.
1962 — Bandarískum höfnum lokað
fyrir skipum með farm til Kúbu.
1954 — Aðild Vestur-Þjóðverja að
NATO samþykkt á níu-ríkja-ráð-
stefnu í London.
1952 — Fyrsta kjarnorkuvopnatil-
raun Breta á Monte Bello eyjum.
1944 — Bandaríkjamenn rjúfa
Siegfried-línuna norðan við Aachen
— Kanadamenn sækja að
Maas-fljóti í Hollandi.
1941 — Hitler tiikynnir að Rússar
hafi verið sigraðir og „rísi aldrei
aftur“.
1935 — Italir gera innrás í Eþíópíu.
1932 - írak gengur í Þjóðabanda-
lagið og umboðsstjórn Breta lýkur.
1929 — Júgóslavía fyrst nefnd því
nafni (áður Konungsríki Serba,
Króata og Slóvena).
1924 — Hussein konungur leggur
niður völd í Hejaz.
1918 — Max prins af Baden skipað-
ur kanzlari Þjóðverja — Þýzk-aust-
urrísk orðsending send til Banda-
ríkjanna um Sviss — Ferdinand
Búlgaríukonungur leggur niður
völd.
1904 — Samningur Frakka og
sigri og að brezka stjórnin stefni
að því að útrýma þjóðernissinnuðu
fólki.
Skömmu áður hafði Sinn Fein,
stjórnmálahreyfing IRA, lýst því
yfir á blaðamannafundi í Dyflinni
að lýst yrði yfir engu vopnahléi í
ljósi áskorunar páfa. Hreyfingin
sagði að páfi hefði með yfirlýsing-
um sínum gert deiluna alþjóðlega.
Því var'bætt við að Sinn Fain
mundi fagna tækifæri til beinna
viðræðna við páfa og látinn í ljós
skilningur á áhuga hans á sönnum
friði byggðum á réttlæti.
3. október
Spánverja um sjálfstæði Marokkó
— Uppreisn Hereróa og Hottintotta
í Þýzku Suðvestur-Afríku.
1899 — Deilan um landamæri
Brezku Guyana og Venezúela leyst.
1966 — Stríði Austurríkismanna og
Itala lýkur með Vínarsáttmálanum.
1574 — Vilhjálmur af Óraníu
bjargar Leyden úr umsátri.
Afmæli. George Gordon, jarl af
Aberdeen, skozkur stjórnmálaleið-
togi (1637—1720) — Charles Camille
St.-Saéns, franskt tónskáld
(1835-1921).
Andlát. Heilagur Franz frá Assisi
1226 — Ágúst III af Póllandi 1763 —
William Morris, rithöfundur (og
íslandsvinur), 1896 — Gustav
Stresemann, stjórnmálaleiðtogi,
1929 — Sir Malcolm Sargeant,
hljómsveitarstjóri, 1967.
Innlent. Konungur staðfestir lög
um heimastjórn 1903 — Skjaldar-
merki íslands hvítur fálki 1903 —
Oddgeirshólareið 1473 — Fiskveiði-
samningum við Breta sagt upp 1949
— fellur úr gildi 1951 — Reglur um
aðstoð við sjúka menn af brezkum
togurum 1958 — Brezkur togari
siglir á „Ægi“ 1958 — Þyrla Land-
helgisgæzlunnar hrapar í Skálafelli
1975 — f. Pétur Pétursson biskup
1808 — Björgvin Schram 1912.
Orð dagsins. List er lygi sem gerir
okkur kleift að sjá sannleikann —
Pablo Picasso, spænskur listmálari
(1881-1973).
Veður
v íða um heim
Akureyri 14 skýjaó
Amsterdam 18 heióskfrt
Aþena 28 heióskfrt
Barcelona 24 þokumóóa
Berlln 11 heiöskírt
BrUaeel 16 hefóskírt
Chicago 24 skýjaó
Feneyjar 19 léttskýjað
Frankfurt 19 heiðskfrt
Genf 14 skýjað
Heleinki 8 heióskírt
Jerúsalem 27 heiðskírt
Jóhannesarb. 29 heiðskírt
Kaupmannahöfn 12 heióskírt
Las Palmas 23 skýjaó
Lissabon 26 heiðskírt
London 20 heióskírt
Los Angeles 25 heiöskírt
Madríd 27 heiöskírt
Malaga 24 léttskýjaö
Mallorca 23 léttskýjaó
Miami 29 skýjáð
Moskva 5 skýjað
New York 18 skýjaó
Ósló 9 heiðskfrt
París 18 skýjaö
Reykjavfk 11 skýjaó
Rio de Janeíro 23 skýjaó
Rómaborg 25 skýjaó
Stokkhólmur 12 heiðskírt
Tel Aviv 29 heióskírt
Tókýó 27 skýjaö
Japanir mótmæla
umsvifum Rússa
Tokyo, 2. október. AP.
JAPANIR báru í dag fram form-
leg mótmæli við Rússa vegna
staðsetningar rússneskra her-
manna á þremur litlum eyjum út
af norðurströndum þeirra er
þjóðirnar báðar gera kröfur til.
Japanir kröfðust þess að Rússar
gripu til „skjótra ráðstafana" til
að fjarlægja alla hermenn frá
eyjunum, Otorufu, Kunashiri og
Shikotan út af stærstu eyju Jap-
ans, Hokkaido. Þeir kváðust
harma að Rússar hefðu nýlega
komið fyrir nýju herliði á Shikot-
an þrátt fyrir mótmæli síðan í
febrúar um hernaðarumsvif á
Otorufu og Kunashiri.
I mótmælunum segir að eyjarn-
ar þrjár séu réttilega japanskt
yfirráðasvæði og sovézk hernaðar-
umsvif á þeim brjóti í bága við
friðsamleg samskipti þjóðanna
tveggja.
Mótmælin voru afhent sovézka
sendiherranum, Dmitri Polyanski
sem vísaði orðsendingunni á bug
og kallaði hana lið í „baráttu til
afskipta af innanlandsmálum
Sovétríkjanna."
Samkvæmt bandariskum leyni-
þjónustufréttum sem voru birtar í
síðustu viku eru um 2.000 sovézkir
hermenn á Shikotan, um 64 km
austur af Hokkaido. Samkvæmt
fréttinni eru með tilkomu þessa
liðsauka um 10.000 sovézkir her-
menn á eyjunum þremur eða sem
svarar einu herfylki.
Hiibner efstur
Rio de Janciro. 2. október.
HÚBNER vann Torre frá Filippseyj-
um í sjöundu umferð millisvæðamóts-
ins í Rio de Janeiro og hélt því efsta
sæti sínu á mótinu. Petrossjan fyrr-
verandi heimsmeistari vann Harandi
frá Iran og er nú í öðru sæti ásamt
Portisch sem gerði jafntefli við
Timman í gær.
Vaganian frá Sovétríkjunum vann
Velimirovic frá Júgóslavíu, en aðrar
skákir fóru í bið. Nú eru Balashov,
Sunye og Vaganian jafnir með 3'/2
vinning hver, Smejkal er í 7. sæti með
3 vinninga og eina biðskák, Torre í 8.
sæti með 3, Bronstein, Velimirovic og
Ivkov eru jafnir með 2'k vinning, Sax
er með 2 vinninga og Shamkovich og
Hebert 'k. v.
Bardagar á ey
við Kínaströnd
Peking. 2. október. AP.
BARDAGAR brutust út milli
stuðningsmanna og andstæð-
inga „fjórmenningaklíkunnar"
á eynni Hainan með þátttöku
7.000 tii 10.000 manna snemma
i júní með þeim afleiðingum að
300 féllu og særðust og herinn
neyddist til að bæla bardagana
niður að sögn æskulýðsblaðsins
„Kannanir."
Samkvæmt frásögn tímarits-
ins sem er selt við „Lýðræðis-
vegginn" var tveimur herfylkj-
um, eða 20.000 hermönnum,
skipað að koma á reglu á Hain-
an-eyju sem er á
Suður-Kína-hafi undan strönd
Víetnam.
Margir þeirra sem tóku þátt í
bardögunum hörfuðu til Fimm
fingra fjalla, gamals vígis
skæruliða og kínverska hersins.
Margir þeirra voru sjálfir gaml-
ir skæruliðar í borgarastríðinu
og kunnugir staðháttum.
Ekki var skýrt frá deilunum
sem ollu bardögunum og bardög-
unum sjálfum í einstökum atrið-
um, en orðrómur hefur verið á
kreiki um pólitísk ofbeldisverk á
eynni síðan í sumar.
Sadat sendir
Arafat tillögu
Kairó, 2. október. Reuter.
BANDARÍSKI blökkumannaleiðtoginn Jesse Jackson sagði í dag að
Anwar Sadat Egyptalandsforseti hefði beðið sig að færa Yasser
Arafat, leiðtoga Frelsissamtaka Palestinu (PLO), skilaboð með tillögu
um vopnahlé við ísrael.
Þetta yrði fyrsti boðskapur Sa-
dats til leiðtoga PLO síðan Camp
David samkomulag Eygpta,
Israelsmanna og Bandaríkjanna
var gert í september 1978. PLO og
flest Arabaríki hafa ráðizt á
samkomulagið og friðarsamning-
inn sem Egyptar og ísraelsmenn
undirrituðu í marz.
Jackson hafði eftir Sadat að
loknum öðrum fundi þeirra á
tveimur dögum, að sú afstaða PLO
að beita ofbeldisaðgerðum og
neita að viðurkenna að Israel væri
mikill þröskuldur í vegi fyrir friði.
En Sadat bað Jackson fyrir skila-
boðin til Arafats og sagði að nú
væri rétti tíminn til að koma á
vopnahléi.
Sadat sagði Jackson að áhrif
yfirlýsingar um vopnahlé yrðu
eins mikil og ferðar hans til
Jerúsalem í nóvember 1977.
Byltíng í meðferð
krahba í brjóstí?
Lundónum, 1. október. AP.
TVEIR brezkir vísindamenn við
virtar stofnanir í Bretlandi
sögðu i dag að sennilega hefðu
þeir fundið aðferðir er ættu
eftir að hafa i för með sér
byltingu í meðhöndlun krabba-
meins, einkum brjóstkrabba.
Vísindamennirnir sögðu með-
ferð sína byggjast á því, að
sjúklingum væru gefnir stórir
lyfjaskammtar í einu en í stutt-
an tíma. Það væri endurtekið á
nokkurra vikna fresti. Lyfja-
magnið hverju sinni væri miklu
meira en venjulega gerðist, en
notuð væru þó lyf sem þekkt
væru. Ekki væri þó hægt að
komast hjá því að sjúklingar
gengjust undir skurðaðgerðir
eða hlytu geislameðferð. En
rannsóknir síðustu fjögur árin
gæfu þó tilefni til fyllstu bjart-
sýni á að meðferðin ætti eftir að
valda byltingu, þar sem líkur
væru meiri á að fólk kæmist yfir
krabbann og héldi lífi. Árlega
deyja 12.000 konur úr brjóst-
krabba á Bretlandseyjum. Sautj-
ánda hver kona fær brjóst-
krabba að jafnaði og ein af
hverjum 30 er fá meinið deyja
vegna þess.