Morgunblaðið - 03.10.1979, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1979
19
Bankar sameinist
Ósló, 2. október. Frá (réttaritara Mbl. Jan
Erik Lauré.
TVEIR af stærstu bönkum Nor-
egs, Kreditkassen og Andresens-
banki, verða sameinaðir næsta
vor og starfa upp frá því undir
sama nafni. Bankarnir verða þá
til samans álika stórir og stærsti
95 ára:
Jóhanna er fædd á Siglunesi á
Barðaströnd h. 3. október 1884.
Foreldrar hennar voru hjónin
Margrét Hákonardóttir, f. 6. ágúst
1859 — d. 4. nóvember 1927, og
Kristófer Sturluson f. 17. ágúst
1851 — d. 11. júní 1927. Á fyrsta
ári flyst hún með foreldrum sínum
að Brekkuvelli á Barðaströnd, en
þar bjuggu þau síðan til dauða-
dags og þar ólst hún upp í stórum
systkinahópi.
Árið 1907 h. 21. desember giftist
Jóhanna Teiti Guðmundssyni, f.
19. júlí 1876 — d. 5. janúar 1926.
Sitt fyrsta heimili áttu þau á
Brekkuvelli en síðan á ýmsum
stöðum m.a. Höfðadal í Tálkna-
firði upp úr 1913, þaðan lá leið
þeirra að Hvestu í Arnarfirði og
síðan að Öskubrekku í sama firði.
Þar búa þau er Teitur deyr frá
barnahópnum á ungum aldri og
hélt þá Jóhanna áfram búskap
með börnum sínum um hríð, en
fluttist síðan til Bíldudals og var
bústýra á ýmsum stöðum. Þaðan
flyst hún til Tálknafjarðar og er
um tíma ráðskona hjá Sigurði
Heiðberg á Bakka. Þaðan lá leið
hennar til Reykjavíkur og átti hún
heima á ýmsum stöðum, m.a.
Laufásvegi 8, Langholtsvegi 185
og nú síðast að Hraunteigi 22 en
þangað fluttist hún árið 1968.
Jóhanna og Teitur eignuðust
fjögur myndarleg börn. Þau eru:
Jón, f. 10. júlí 1909 — d. 8. febrúar
1975, hann giftist ekki en átti eina
dóttur, Emelíu, f. 5. apríl 1944;
Baldur, f. 27. október 1910 — d. 15.
mars 1969, með unnustu sinni
Jórunni Ólafsdóttur frá Skálavík
við ísafjarðardjúp átti hann son-
inn Geir, f. 25. júní 1935, Jórunn
dó á ungum aldri og kvæntist
Baldur síðan Ásdísi Elísabetu
Petersen, þeim varð ekki barna
auðið; Hákon Björgvin, f. 19. ágúst
1914, hann býr með Guðrúnu
Elísabetu Jónsdóttur og eiga þau
einn son, Knút, f. 9. ágúst 1942;
Ásta, f. 25. september 1918, hún
bjó með Ásgeiri Þórarinssyni og
eiga þau tvö börn, Ester, f. 17.
mars 1945, og Braga f. 6. mars
banki í Noregi, Den Norske
Creditbank, með liðlega 1300
milljarða íslenzkra króna i
rekstrarfé og 3000 manna starfs-
lið.
Það hefur lengi verið vitað að
Andresens-banki hefði áhuga á að
1950. Dóttur Hákonar bróður síns,
Láru Fjeldsted Hákonardóttur, f.
12. mars 1917, tók Jóhanna í
fóstur er hún var á fyrsta ári og ól
hana upp til fullorðnisára.
Þær mæðgur Ásta og Jóhanna
hafa haldið heimili saman um
árabil. Einnig bjó Jón með þeim á
meðan hann lifði, tel eg að Ástu
beri sérstakar þakkir fyrir að
styðja við bak móður sinnar og
gera henni kleift að vera heima og
sjá um sig sjálf eftir mætti nú
þegar stefnan er að hrúga öllu
eldra fólki inn á stofnanir af því
að enginn telur sig hafa tíma til að
veita því aðstoð, sem oft þarf ekki
að vera svo mikil, til þess að
viðkomandi sé kleift að bjarga sér
sjálfur á eigin heimili.
Mig skortir orð til að lýsa
þessari litlu, fallegu og þrekmiklu
konu. Hún mun hafa hlotið í
vöggugjöf óvenjulega hraustan
líkama og alveg einstakt skap-
lyndi. Starfsorkan og lífsviljinn
geislar af henni, hún er alveg
einstaklega minnug og heill
brunnur fróðleiks um liðinn tíma.
Um árabil hefur hún verið svotil
blind og nú hin síðari ár alveg en
sameinast öðrum banka, en af-
koma fyrirtækisins hefur verið
slæm undanfarið. Á hinn bóginn
hafði Den Norske Creditbank sýnt
áhuga á að kaupa
Andresens-banka og m.a. keypt
hlutabréf í bankanum fyrir hálfan
annan milljarð íslenzkra króna.
fylgist þó vel með öllu, hringir
sjálf um allt og heldur sambandi
við sitt frændfólk og vini meir en
hægt er að segja um marga þá
sem fleygari eru, nú á þessum
tímum stress og hraða á öllum
sviðum.
Jóhanna og prjónarnir eru óað-
skiljanleg og munu þeir oft hafa
stytt henni stundirnar, er hún var
ein heima og aðrir úti við vinnu
sína. Barnabörnin og barnabarna-
börnin hafa notið árangurs
prjónaskaparins í ríkum mæli svo
og margir fleiri kunningjar og
vinir. Óvíða hefi ég séð jafn fallegt
og vel prjónað og það sem hún lét
frá sér fara.
Ætt Jóhönnu er mikil og merk.
Börn þeirra Margrétar og Kristó-
fers voru seytján og hafa þau er
fullorðinsárum náðu flest orðið
háöldruð , nú eru fjögur eftir
lifandi, þau Jóhanna, Kristófer,
Eiríkur og Lilja. Enginn hefur enn
náð eins háum aldri og Jóhanna,
en nálægt því hafa nokkur komist.
Þetta er með afbrigðum hraust og
dugmikið fólk, sem komist hefur
vel áfram í lífsbaráttunni.
Þar sem óvíða mun til heimild í
einu lagi um fæðingar- og dánar-
dægur Brekkuvallarsystkinanna
skulu þau hér upp talin: Hákon
Jóhannes f. 20. apríl 1877 — d. 10.
nóvember 1967, Björg f. 11. októ-
ber 1878 — d. 16. október 1878,
Sturla f. 27. nóvember 1879 — d. 1.
maí 1897, Björg f. 31. ágúst 1881 —
d. 1884, Kristján f. 12. ágúst 1883
— d. 10. september 1969, Jóhanna
Guðbjörg, Hólmfríður f. 27. októ-
ber 1885 — d. 16. janúar 1968,
Björg f. 22. desember 1886 — d. 9.
mars 1971, Jón f. 21. júní 1888 — d.
19. ágúst 1977, Kristófer f. 16.
október 1889, dvelur á Borgar-
sjúkrahúsinu, Jóhannes f. 8. júlí
1891 — d. 16. október 1973, Eiríkur
f. 5. ágúst 1892 hann dvelur hjá
Eiríki syni sínum, Guðrún Marg-
rét f. 28. maí 1894 — d. 7.
nóvember 1978, Gunnlaugur f. 25.
maí 1896 — d. 3. júní 1979, Sturla
Hólm f. 5. júlí 1897 — d. 30.
nóvember 1970, Sigurgarður f. 31.
ágúst 1900 - d. 16. júní 1923,
Guðrún Lilja f. 12. ágúst 1904, hún
er búsett á Patreksfirði.
Ég árna Jóhönnu allra heilla nú
og um alla framtíð. Bið guð, sem
ég veit að hún trúir svo heitt á og
sem oft hefur veitt henni styrk á
erfiðum tímum að gæta hennar og
blessa.
Brldge
Umsjón: ARNÓR
RAGNARSSON
Reykjavíkurmótið
í bridge
Undanrásir fyrir Reykjavíkur-
mótið í bridge, tvímenningi,
hefjast sunnudaginn 14. október
í Hreyfilshúsinu. Síðan verður
spilað laugardaginn 20. október
og undanrásum lýkur laugardag-
inn 27. okt.
Úrslitakeppnin fer svo fram
helgina 3. og 4. nóvember.
Keppnisgjald fyrir parið verður
8000 í undankeppninni og
keppnisstjóri verður hinn síungi
Guðmundur Kr. Sigurðsson.
Þátttaka tilkynnist fulltrúum
bridgefélaganna í Reykjavík á
spilakvöldum. Spilað verður í
Hreyfilshúsinu eins og áður
sagði.
Bridgefélag
Kópavogs
S.l. fimmtudag var spilaður
eins kvölds tvímenningur hjá
Bridgefélagi Kópavogs með
þáttöku 16 para.
Besta árangri náðu:
stig
Erla Sigurjónsdóttir
— Dröfn Guðmundsdóttir 262
Sigurður Sigurjónsson
— Guðmundur Pálsson 249
Matthías Andrésson
— Árni Jónasson 224
Bjarni Pétursson
— Sævin Bjarnason 221
Kristmundur Halldórsson
— Gróa Jónatansdóttir 221
Vilhjálmur Sigurðsson
— Sigrún Pétursdóttir 221
Guðmundur Rigsted
— Jónas Erlingsson 215
Meðalskor 210 stig
Næsta fimmtudag verður spil-
aður eins kvölds tvímenningur
og hefst spilamennskan kl. 20.00
í Þinghól Hamraborg 11.
Bridgedeild Fram
Vetrarstarf Bridgedeildar
Knattspyrnufélagsins Fram
hefst þriðjudaginn 9. október
n.k. kl. 20.00 í Félagsheimilinu
v/Safamýri, með tvímennings-
keppni. Félagsmenn eru kvattir
til að vera með frá byrjun og
taka með sér gesti.
Ákveðið er að spila í vetur
annan hvern þriðjudag í Félags-
heimilinu.
Jóhanna Guðbjörg
Kristófersdóttir
WIKA
Þrýstimælar
Allar stæörir og geröir.
SQtuiiröatyiDMir
<®i (Scq)
Vesturgötu 16,
sími 1 3280.
Fallegir þýskir inni-
skór frá WOSANA úr
Velour með þægi-
legu korkinnleggi.
gráblátt
brúnt
710 352
Cafe/Eierschale
Saftsamt
Stærðir 36—42
Kr. 6060.-.
Póstsendum
Domus Medica og
Barónstíg 18
NAUÐUNGARUPPBOÐ
sem auglýst var í 51., 54. og 57. tölublaði
Lögbirtingablaðsin 1979, á Furugrund 22 —
hluta —, Kópavogi, talinni eign Vilhjálms Þ.
Vilhjálmssonar, fer fram á eigninni sjálfri
miövikudaginn 10. okt. 1979 kl. 12:00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Alþýðuskólinn á Eiðum
Tilboð óskast í að reisa og fullgera
heimavistarhús við Alþýðuskólann á Eiðum,
ásamt frágangi lóöar. Húsið er 2 hæöir, um
2650 rúmm. að stærð.
Verkinu skal að fullu lokið 1. ágúst 1981.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri
gegn 50.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama tíma
fimmtudaginn 25. okt. 1979, kl. 11.00.
MNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Síðasti
innritunardagur
ansskóli
Innritun og uppl. í síma 27613.
rðar
rsonar
Reykjavík - Kópavogur
Kennslustaðir:
Tónabær og Félagsheimili Kópavogs.
Innritun daglega kl. 10—12 og 1—7.
Börn — Unglingar — fullorönir (pör eða einstakl.).
Allir almennir samkvæmisdansar og fl. Kennt m.a.
eftir „ALÞJÓÐADANSKERFINU“ einnig fyrir
BRONS — SILFUR — GULL D.S.Í.
ATH.: Kennarar í Reykjavík og Kópavogi
Siguröur Hákonarson og
Anna María Guönadóttir.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS
Rúna Knútsdóttir.