Morgunblaðið - 03.10.1979, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1979
23
Skeggi Samúels-
son — Minning
Kveðja til afa.
Trúðu á tvcnnt í heimi
tign sem æðsta ber,
Guð í alheims geymi,
guð i sjálfum þér.
Fæddur 17. október 1897.
Dáinn 24. september 1979.
Þetta var uppáhaldsvísan hans
afa, sem ég ætla að kveðja núna.
Ég var búin að búa mig undir
þetta mikla áfall í margar vikur
og jafnvel mánuði, en samt er
söknuðurinn svo mikill að ég get
varla afborið hann. Afi, sem alltaf
var svo góður og gjafmildur, afi
sem alltaf hugsaði fyrst og fremst
um að skyldfólki hans og vinum
liði sem bezt. Ég get aldrei lýst því
með orðum hve mikið ég sakna
hans. En ég veit líka að þetta er
aðeins hálfgerð eigingirni í mér,
því að honum líður vel núna þar
sem hann er.
Og með þessum fátæklegu orð-
um kveð ég hann nú og þakka
honum fyrir allt sem hann gerði
fyrir mig, meðan hann lifði.
Þórhildur.
Kveðia:
Jón Gunnlaugsson
Öðlingurinn Jón Gunnlaugsson,
fyrrv. stjórnarráðsfulltrúi, hefir
lokið göngu sinni. Fátækari erum
við á eftir, en ríkari að minninguin
og góðu fordæmi.
Dagsins ljós leit hann 8. október
1890. Á því ljósi var fyrirfram
slökkt 23. ágúst s.L Til moldar var
hann borinn hinn 4. september.
Æviferill göfugra og starfs-
samra hugsjónamanna er marg-
þættur. Þannig var og ferill Jóns
Gunnlaugssonar. Spor hans lágu
víða, og eins og títt er um slíka
menn, tróð hann mörgum slóð.
Mega því ótaldir þakka honum
forystu í menningar- og mannúð-
armálum, enda á hann öruggan
sess í hugum þeirra, sem með
honum áttu samleið, og nutu
hugkvæmni hans, velvildar og
forsjár.
Góð skil hafa honum verið gerð
í ágætum eftirmælum, bæði að því
er varðar starf hans í stjórnarráð-
inu, svo og hugðarefnum hans,
Góðtemplarareglunni og málefn-
um vangefinna, og skal ekki farið
út í það hér.
En eitt hugðarefna hans hefir
ekki verið á minnst, sem honum
bera þakkir fyrir svo um munar.
Það er endurreisn Skálholtsstað-
ar.
Sjálfur hefir núverandi biskup,
sem er frumkvöðull og burðarás
þeirrar hreyfingar, látið svo um
mælt, að án liðveislu Jóns Gunn-
laugssonar hefði hann tæplega
haft áræði til stofnunar Skál-
holtsfélagsins, fyrir nú um þrjátíu
árum síðan.
Fyrir framlag sitt til þess máls
hlaut hann Skálholtsorðuna, sem
veitt var í tilefni vígslu Skálholts-
kirkju 21. júlí 1963, svo og gull-
merki Skálholts, sem aðeins 8
menn hafa borið og bera, en það
var honum veitt á s.l. ári.
Allir Skálholtsvinir kveðja
hann með virðingu og þökk, og
biðja honum blessunar á nýjum
vegum.
Sveinbjörn Finnsson.
Kveðjuorð:
Bjarni
ísaksson
Fæddur 9. júni 1960.
Dáinn 15. júli 1979.
Vinur okkar, Bjarni ísaksson,
lést af slysförum hinn 15. júlí sl.
Viljum við hér í fáum orðum
þakka honum fyrir allar þær
ógleymanlegu gleðistundir sem við
áttum saman. í öllum þeim ferða-
lögum sem við fórum með honum
ríkti alltaf gleði og ánægja, og átti
hann ekki síst þátt í því. Það var
honum að þakka að við fórum í svo
mörg ferðalög og lentum í ýmsum
ævintýrum á seinustu árum, ævin-
týrum sem við munum aldrei
gleyma.
Álltaf vorum við og erum enn
velkomnar inn á heimili Bjarna,
hjá foreldrum hans, og áttum við
þar margar góðar samverustund-
ir.
Við fráfall Bjarna höfum við
misst mikið, og biðjum við öll
máttarvöld um að honum megi
líða sem best.
Þessi fáu orð viljum við hafa
sem kveðjuorð til okkar góða
vinar.
Þeir sem guðirnir elska deyja
ungir. Sigga, Bobba, Anna.
t
Útför eiginmanns míns
ÞÓRIS JÓNSSONAR
Eskihlíð 16, Reykjavík,
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 4. okt. kl. 13.30.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna.
Helga L. Júníusdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö vegna fráfalls
INGÓLFS FLYGENRING,
Hafnarfirói
Kirstín Flygenring
Þórunn Ingólfsdóttir Flygenring Magnús Eyjólfsson
Ágúst Flygenring Guóbjörg Flygenring
Páll Flygenring Þóra Jónsdóttir
t
Þökkum Innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og
Jaröarför
GUÐMUNDAR J. SIGURCSSONAR
frá Hælavík.
Systkinin.
t
Þökkum innilega öllum þeim sem auösýndu samúö og heiöruöu
minnlngu
HELGU MARTEINSDÓTTUR,
veitingakonu.
Elfn Guómundsdóttir, Ragnar Magnússon,
Siguróur Guómundsson, Astrid Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
HJartans þakkir færum viö öllum sem auösýndu samúö og vináttu
við andlát og jaröarför eiginmanns míns, fööur, sonar og bróöur
okkar GÍSLA GUÐMUNDSSONAR
Engjaseli 67
Ásdís Þorsteinsdóttir
Guðmundur Júlíus Gíslason
Helga Sigrún Gísladóttir
Guömundur Júlíus Gíslason Sigrún Sveinsdóttir
og systkini.
Birting
afmælis- og
minningar-
greina
ATHYGLI skal vakin á þvi, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast i
síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera í sendibréfs-
formi eða bundnu máli. Þær
þurfa að vera vélritaðar og
með góðu linubili.
Segulstál
— r i „
Vígtar 1 kilo. Lynir eo kiloum.
Stæró 8x9x3 sentimetrar.
Gott til aö „fiska" upp járnhluti
úr sjó, ám, vötnum, gjám,
svelg, tönkum. Líka til aö halda
verkfærum og smíðahlutum.
Sendum í póstkröfu.
Vesturgötu 16, sími 13280
NAUÐUNGARUPPBOÐ
sem auglýst var í 51., 54. og 57. tölublaði
Lögbirtingablaösins 1979, á smiðjuvegi 32—
34 — hluta —, Kópavogi, þinglýstri eign
Sólningar h.f., fer fram á eigninni sjálfri
miðvikudaginn 10. október 1979 kl. 13:00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
NAUÐUNGARUPPBOÐ
sem auglýst var í 51., 54. og 57. tölublaði
Lögbirtingablaðsins 1979, á Auðbrekku 50,
— hluta — , Kópavogi, þinglýstri eign Jöfurs
h.f., fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn
10. október 1979 kl. 11:30.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
BÆNDUR ATHUGIÐ
Skrifstofa Lífeyrissjóös bænda er flutt í útibú
Búnaðarbanka íslands viö Hlemm.
Viðtalstími kl. 10.00—12.00 alla virka daga
nema föstudaga. Sími: 91-25444.
51/2 tonna
trilla
Upplýsingar í símum
96-71472 og 96-71513.
Frá
Hesta-
manna-
félaginu
Geysi
Tamningastöðin á Hellu, er til leigu næsta
vetur, frá áramótum til 1. maí 1980. Umsóknir
berist fyrir 15. október n.k. til formanns
Sigurðar Haraldssonar, Kirkjubæ, sem gefur
nánari upplýsingar, í síma 99-5974.
Stjórnin.