Morgunblaðið - 03.10.1979, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1979
29
2) Árið 1977 misnotaði þáttar-
stjórnandi nokkur í eftirmið-
dagsþætti aðstöðu sína til að
koma á framfæri grímulausum
áróðri í langlokusamtali (16
mínútur) við augljósan sálu-
félaga sinn, sem var framá-
maður í svokallaðri „miðnefnd"
Straumsvíkurgöngunnar 1977.
— Heldur kátleg tilraun var
gerð nú til svipaðs samtals í
eftirmiðdagsþættinum „í viku-
lokin", eða nánar tiltekið í kafla
þess þáttar sem var helgaður
bröndurum hlustenda á „beinni
línu“. — Á linuna var nefnilega
allt í einu kominn sami framá-
maður, en fékk nú aðeins tvær
mínútur til umráða. — (Stuttu
síðar kom svo yfirlýsing frá
þáttarstjórnendum, að brand-
ara-kaflanum skyldi hætt hið
snarasta, og ótvírætt gefið í
skyn að brandararnir hefðu
þótt of lélegir!)
3) I fréttatímum útvarpsins
Straumsvíkurdaginn 1977 var
lögð ótrúlega bíræfin áherzla á
„þjónustu" við róttæklinga-
gönguna, og var framvindu
göngunnar lýst sem stórvið-
burði allan daginn í öllum
frettatímum, nema þeim fyrsta,
— eða samtals átta sinnum yfir
þann dag. — Hvaleyrargöng-
unnar nú var minnzt lauslega í
Þessir hringdu . .
Sjöfn og
Guðrún
J.J. sendi Velvakanda eftir-
farnadi vísu um deildur þeirra
Sjafnar og Guðrúnar um Kjar-
valsstaði:
„Við Sjöfn hún notar kergju
og hvoft,
sem komma er þekktur siður.
Gunna á anda og ærið loft,
en andar því öllu niður."
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á skákmóti í Tashkent í Sov-
étríkjunum um síðustu áramót
kom þessi staða upp í skák þeirra
I. Ivanovs, og Katalimovs, sem
hafði svart og átti leik.
39. ..Hxg4! (Því ef 40. fxg4 þá
Dhl mát) 40. Dd3 - Dxh5! (Ef nú
41. fxg4 þá Dhl+ og mát í næsta
leik). 41. De3 — Hh4 og hvítur
gafst upp. I. Ivanov sigraði þrátt
fyrir þessar ófarir á mótinu, hann
hlaut 10 vinninga af 15 möguleg-
um. Þetta er reyndar sá hinn sami
Ivanov og lagði heimsmeistarann
Karpov að velli í sovézku flokka-
keppninni um daginn.
þremur kvöldfréttatímum, eða
m.ö.o. þegar uppákoman var
orðin raunveruleg frétt(!),og þá
aðeins lauslega.
4) En nú kemur að því sem
erfiðara er að skilja. —
Straumsvíkurdaginn 1977 þótti
sjálfsagt að nýta að fullu vett-
vanginn handhæga, þ.e.a.s. lest-
ur úr forystugreinum dagblaða,
— og var ítarleg áróðursþula úr
forystugrein Þjóðviljans lesin,
og var að sjálfsögðu ekki hlut-
leysisbrot. — en nú á Hvaleyr-
argöngudaginn, minnist „mál-
gagnið" ekki á fyrirtækið einu
orði í leiðara. — Og varð einum
útvarpshlustanda að orði þegar
þetta varð ljóst: „Nú þykir mér
týra á skarinu, lagsi“! — En
aðrir spyrja: Er klofningur í
„flokknum" um málefnið??? —
og nú þykir nú sundrungin óg
samt!
5) Nú, þetta var nú það sem
ókeypis fékkst í bæði skiptin, —
en ekkert var til sparað árið
1977, því allan daginn glumdu í
öllum tilkynningatímum út-
varpsins, þar til að göngulokum
kom, linnulausar áróðurstil-
kynningar hernámsandstæð-
inga og voru raunar tuttugu og
fimm talsins. — Nú, Hvaleyrar-
daginn 29. september, heyrðust
hinar keyptu áróðurstilkynn-
ingar aðeins í einum tilkynn-
ingatíma og voru aðeins átta
talsins. — Voru þessar tilkynn-
ingar undirritaðar og væntan-
lega fjármagnaðar af Alþýðu-
bandalaginu í Kópavogi og í
Reykjavík, og er það skiljan-
legt, — en einnig af Stúdenta-
ráði. (Hvers vegna Stúdenta-
ráði, — og hver borgar brúsann
þar?)
Heildarniðurstaða ofangreinds
samanburðar er því þessi:
Árið 1977 fékk gegn-her-í-
landi-gangan, sem kennd var við
Straumsvík, ókeypis þjónustu út-
varpsins sem nam sextíu-og-átta
(68) mínútum af dagskrártíma
dagsins. — Sams konar þjónusta
nú við Hvaleyrargönguna í
fréttatíma og umræddum brand-
aratíma nam samtals þremur (3)
minútum, eða fjórum prósentum
af því sem áður var, og gat varla
minna verið, og verður varla skýrt
með öðru en framangreindu
valdaráni. —
Þannig fór því, Velvakandi
góður, — að valdaránið í ríkisút-
varpinu kollvarpaði nú í fyrsta
skipti nánast öllu því sem ég gerði
ráð fyrir um áróður róttæklinga-
deildarinnar á göngudegi. — Og
harma ég það að sjalfsögðu ekki.
— Mætti mér sem oftast skjátlast
á þennan hátt.
En á öðru sviði skjátlaðist mér
ekki. — Hinn harði kjarni hross-
hausa- og þorskhausaliðsins, sem
þátt tók í Hvaleyrargöngunni,
reyndist samur við sig og
óhagganlegur. Staðfestist þetta af
þeirri staðreynd, að fyrir liðinu
voru bornir að þessu sinni hvorki
meira né minna en ellefu (11)
blóðrauðir fánar Gúlagskipulags
Sovétkerfisins, á meðan einhverj-
um nytsömum sakleysingja hélzt
það að vísu uppi að halda á loft
einum (1), ég endurtek einum,
rifnum íslenzkum fána fyrir lið-
inu. — Sjaldan held ég að svívirð-
ing merkis lýðveldisins íslands
hafi orðið öllu átakanlegri.
Játað skal svo jafnframt, að hin
ellefufalda rauðfánahylling verð-
ur að teljast merki þess að rótt-
æklingaliðinu sé ekki alls varnað,
— því staðreynd þessi verður að
teljast ótvírætt merki um nokkra
hreinskilni þessa vesalings fólks.
— Virðist undirrituðum þó, að
varla sé hreinskilnin fullkomin
fyrr en fólk þetta fæst til að segja
og hrópa fullum hálsi og óhikað
allan sannleikann í vígorðum
sínum, — Þannig: „Úr Nató —
herinn burt“ — og bæti þar við —
„Sovét-ísland-tafarlaust"
Útvarpshlustandi.
HÖGNI HREKKVÍSI
. þ^rrA 32 k<£€> ’t! "
_ ____________fll
Sjúkrahús á ísafirði
Tilboð óskast í aö gera heilsugæslustöövar-
og sjúkrahúsbyggingu á ísafiröi tilbúna undir
tréverk. Hér er um aö ræöa múrverk,
hreinlætis- og vatnslagnir, hitalagnir og
pípulagnir fyrir rafmagn auk vinnuljósalagna.
Byggingin er um 1900 m2, aö mestu 3 hæðir.
Verkinu skal aö fullu lokiö 1. apríl 1980.
Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu vorri
gegn 50.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboö veröa opnuð á sama stað
miövikudaginn 17. okt. 1979, kl. 11.30.
tNNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
DALE CARNEGIE
Kynningarfundur
veröur haldinn í kvöld, 3. október kl. 20.30, aö
Síöumúla 35 uppi.
★ Námskeiðið getur hjálpað þér að:
★ Öölast HUGREKKI og meira SJÁLFS-
TRAUST.
★ Bæta MINNI þitt á nöfn, andlit og staö-
reyndir.
★ Láta í Ijósi SKOÐANIR þínar af meiri
sannfæringarkrafti í samræöum og á
fundum.
★ Stækka VINAHÓP þinn, ávinna þér
VIRÐINGU og VIÐURKENNINGU.
★ Taliö er aö 85% af VELGENGNI þinni sé
komin undir því, hvernig þér tekst aö
umgangast aöra.
★ Starfa af meiri LÍFSKRAFTI — heima og á
vinnustaö.
★ Halda ÁHYGGJUM í skefjum og draga úr
kvíða.
★ Verða hæfari að taka við meiri ÁBYRGÐ
án óþarfa spennu og kvíða.
★ Okkar ráölegging er þvíj Taktu þátt í Dale
Carnegie námskeiöinu. í dag er þitt tæki-
færi.
★ Hringið eöa skrifið eftir upplýsingum í
síma.
82411
Einkaleyfi á islandi
STJÓRNUNARSKÓLINN
DAl.E CAHNF.GIE Konráö Adolphsson
KAMSKF.IDI.K
SIG6A V/öGA £ 1/LVERAW
VlAtltfd VxM L\ÍLA, A)Ól?
'MlíÍÓTíA íALL'bYtöATTANOÍI, 1
■ 11 V\\b\G6A V/áGA, ‘blVl SAÓ^/ST/
- WK/ GITA L\YAV Ati YIÍAJ
^TÓAR V/AWA/ W H//V \
Í-Z
MAW/V Tí? 59RBLL-
[lxawi mm: sa
ÍSáALNtfoW