Morgunblaðið - 03.10.1979, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1979
2.umferðin blasir
við Keflvíkingum
Sporten
Kalmar FF vann hemmnmaldisja
pj Fredriksskans i gár kviill — inen
MATCHHJÁLTEN
— det var Ragnar i
Keflavik!
ÍBK og Kalmar FF mætast i dag
klukkan 17.15 á Keflavíkur
velli i siðari viðureign sinni i 1.
umferð UEFA-bikarkeppninnar.
Sigurmoguleikar ÍBK verða að
teljast nokkrir, þvi að Kalmar
tókst ekki að vinna ÍBK nema
með einu marki í fyrri leik
liðanna i Kalmar fyrir hálfum
mánuði, 2—1. Það þýðir, að ÍBK
nægir að vinna 1—0 til að slá
sænska liðið úr keppninni og
komast áfram. Skori sænska liðið
vandast málið fyrir ÍBK og þá
dugir ekkert minna en 3 mörk á
móti hjá ÍBK til að komast hjá
framlengingu og vítaspyrnu-
keppni.
Kalmar er erfitt lið að átta sig
á, allgott í dag, en mun slakara á
morgun. Nokkru áður en ÍBK lék í
Kalmar, hafði sænska liðið leikið
öster, lið Teits, sundur og saman
og sigrað 6—0. Liðið átti síðan að
sögn sænskra blaða ekki eins
góðan dag gegn ÍBK. Eitt blað-
anna sagði: „ÍBK er alls ekki gott
lið, Kalmar átti einfaldlega svo
ÍBK oft gert
það gott í
Evrópukeppnum
Keflvikingar eru veraldarvanir i Evrópukeppnunum i knattspyrnu
og nokkrum sinnum náð umtalsverðum árangri. Til dæmis má minna
á leiki liðsins i Evrópukeppni bikarhafa, gegn Hamburger Sportver-
ein. ÍBK tapaði aðeins 0—3 á útivelli og náði síðan jafntefli 1 — 1 á
Laugardalsvellinum. Steinar Jóhannsson skoraði mark ÍBK, en af
HSV er það að segja, að liðið sigraði í keppninni það ár. Merk er
einnig frammistaða ÍBK á heimavelli gegn skoska liðinu Hibernian,
jafntefli varð, 1 — 1, og aðeins 0—2 tap í Edinborg. Þá mátti Real
Madrid þakka fyrir 1 —0 sigur sinn á Laugardalsvellinum. Annars má
sjá úrslit Evrópuleikja ÍBK hér að neðan.
EVRÓPUKEPPNI
1965. i Rcykjavík
i Ungverjalandi
1970. í Reykjavik
i Englandi
1972. á Spáni
i Reykjavik
1974. i Júgóslaviu
i Júgóslaviu
MEISTARALIÐA
Keflavik — Frencvaros
Keflavik — Frencvaros
Keflavík — Everton
Keflavik — Everton
Keflavik — Real Madrid
Keflavik — Real Madrid
Keflavík — Hajduk Split
Keflavík — Hajduk Split
EVRÓPUKEPPNI BIKARHAFA
1976 V-Þýskaland Keflavik — Hamburg
i Reykjavik Keflavík — Hamburg
U E F A — KEPPNIN
1971. i Reykjavík
i Englandi
1973. Skotland
í Reykjavík
1975. í Keflavík
í Skotlandi
1979. íSvíþjóð
í Keflavik
Keflavik — Tottcnham
Keflavik — Tottenham
Keflavik — Hibernian
Keflavik — Hibernian
Keflavik — Dundee Utd.
Keflavik — Dundee Utd.
Keflavik — Kalmar
Sviþjóð — Kalmar
1-4
1- 9
0-3
2- 6
0-3
0-1
1-7
0-2
0-3
1-1
1-6
0-9
0-2
1-1
0-2
0-4
1-2
Sitthvað um
Kalmar FF
KALMAR FF er stofnað þann 15. júní 1910 og hét þá IF Göta, en siðan
hefur verið breytt tvisvar um nafn.
Þann 1. ágúst 1927 var nafni félagsins breytt í Knattspyrnufélagið
Kalmar. I félaginu eru nú skráðir 1174 meðlimir. Þar af eru 361 sem
eru yngri en 25 ára.
Innan félagsins eru 19 lið í fullum gangi þ.e. 1 aðallið, 1 varalið, 2
unglingalið og 15 drengjalið.
Völlur félagsins er 105x65 m, flóðlýstur og heitir Fredriksskans.
Mesta aðsókn að leik á heimavelli er 15.093 og var það á móti Malmö
FF þann 4. september 1949.
En mesta aðsókn að útileik var þegar Kalmar FF lék í II. deild og
mættu þeir þá IFK Götaborg þann 11. júní 1975.
Sjö keppnistímabil hefur liðið verið í I. deild, Kalmar FF hefur
aldrei farið neðar en I. deild síðan 1943.
Árið 1963 komst Kalmar FF í undanúrslit sænsku bikarkeppninn-
ar. Árið 1978 komst svo Kalmar í úrslit i sömu keppni en tapaði þá
fyrir Malmö FF 2:0 eftir framlengdan leik.
slakan dag að íslendingarnir virt-
ust mjög sterkir".
Keflvíkingarnir höfðu það að
segja eftir leikinn, að sænska liðið
hefði til brunns að bera spræka
framlínu, sterka miðvallarspilara,
en afleita vörn. íslenskir sjón-
varpsáhorfendur hafa tvívegis
fengið að sjá brot úr leik Kalmar
og IBK og þar sást, að Keflvíking-
arnir löbbuðu inn og út um vörn
Kalmar. Vörn Kalmar er hins
vegar greinilega háð sömu sveifl-
um og liðið sem heild, a.m.k. ef
marka má úrslitin hjá liðinu um
síðustu helgi, en þá steinlá lið
Malmö FF á heimavelli sínum,
0—3! Það er því næsta víst að
Svíarnir verða fullir sjálfstrausts
er þeir mæta ÍBK.
Þess má að lokum geta, að ÍBK
stendur fyrir hópferðum frá Sand-
gerði kl. 16.45 og munu hóparnir
fara í gegn um Garðinn á leið
sinni til Keflavíkur.
Ivi kllg «11 han lánfc'l
rti«r iimirhcn talc fill
iv rig Iriijno.
Un v sr RsjnxrViLn Jö
niln förr rtnici Rjoidr
J—1-niAlrt rl! mlU vom
lr dublKll v ardctulll
för Kcflavik.
• Ragnar Margeirsson, hinn stórefnilcgi ungi miðherji ÍBK, var
maður leiksins í Kalmar. Sjá má af úrklippu þessari, sem er úr sænsku
dagblaði, að Svíum þótti mikið til Ragnars koma.
Margir landsliðsmenn
skipa lið Kalmar FF
HÉR fer á eftir stutt kynning á leikmönnum Kalmar FF, sem mætir
ÍBK í UEFA keppninni i Keflavik klukkan 17.15 í dag. Nokkrir
kunnir kappar skipa liðið og má benda á Benno Magnuson, Thomas
Suneson og Roland Sandberg. Allir eru félagar þessir sænskir
landsliðsmenn og þeir tveir síðastnefndu skoruðu einmitt mörk
Kalmar gegn ÍBK í fyrri leik liðanna ytra.
Leikmenn Kalmar F.F.
Markmenn:
No. 1. Tony Ström, kom til
Kalmar F.F. frá Kalmar Södra IF
árið 1972. Hefur leikið 298 leiki,
skorað 2 mörk. Er með 76 1.
deildar leiki, 2 unglingalandsl.
Prentari.
No. 12 Hans Gustavsson. Er
alinn upp hjá félaginu. 90 leiki
fyrir Kalmar F.F. Nemi.
Aðrir leikmenn:
Stig Andreasson, varnar og
miðsvæðism., kom til Kalmar frá
Alsterbro IF árið 1975. Hefur
leikið 67 1. deildarl. og skorað 13
mörk. Slökkviliðsmaður.
Ulf Olsson, varnarm. kom til
Kalmar F.F. frá IF Trion árið
1975. Hefur leikið 43 1. deildar., 4
drengjalandsl. Bankastarfsmaður.
Tommy Berggren. Nýkominn til
Kalmar F.F. Mjög sterkur mið-
vallarspilari.
Thomas Sunesson, tengil. og
sóknarmaður, kom til Kalmar frá
Mönsterás GOIF árið 1978. Hefur
leikið 18 1. deildarl., 13 unglingall.,
3 drengjall. Nemi.
Benno Magnusson, tengil. og
sóknarmaður, kom til Kalmar frá
Atvidabergs F.F. árið 1977. 122 1.
deildal., 8 landsl., 1 B-landsl., 6
unglingal. og 3 drengjal. Nemi.
Börje Axelsson, varnar eða
tengiliður Kom til Kalmar frá
Fliseryds I.F. árið 1974. Hefur
leikið 78 1. deildarl. Húsvörður.
Johny Erlandsson, tengil. og
miðsvæðism. Kom til Kalmar árið
1973 frá Kosta L.F. Hefur leikið 76
1. deildarl., 2 A-landsl. og 8
U-landsleiki. Eftirlitsmaður.
Alf Nilsson, varnar og miðsvæð-
ism. Kom til Kalmar frá SSG-I.F.
árið 1976. Hefur leikið 44 1.
deildarl. Bakari.
Roland Sandberg, sóknarleik-
maður. Er þeirra þekktasti leik-
maður. Hefur leikið fjölda lands-
leikja og var fastur maður í
landsl. árið 1974
Björn Wigstedt, sóknar og miðs-
væðism. Kom til Kalmar frá
Alsterbro I.F. árið 1977. Hefur
leikið 1 1. deildarl. Nemi.
Mikael Larsson, miðsvæðism.
Kom til Kalmar frá Högsby I.K.
árið 1978. Nemi.
Kjell Arvidsson, sóknarm. kom
frá Páryd I.F.K. árið 1977. Hefur
leikið 7 1. deildarl. Trésmiður.
Jan Áke Lundberg, sóknarm.
Kom til Kalmar frá Kalmar A.I.K.
árið 1970. Hefur leikið 74 1.
deildarl. 2 A-landsl. 7 U-land.
Nemi.
16 leikiamenn IBK
ÝMSIR leikmanna ÍBK
hafa mikla reynslu í Evr-
ópuleikjum og má þar
nefna Jón ólaf Jónsson,
sem lék á sínum ferli 16
Evrópuleiki. Þorsteinn
markvörður Ólafsson mun
í dag leika sinn sextánda
Evrópuleik.