Morgunblaðið - 03.10.1979, Síða 32
^Síminn á afgreiðslunni er
83033
Jfl«r0itnblnt>it>
á ritstjórn og skrifstofu:
10100
3H«r0unbUibtb
UNGUR Reykvíkingur var
úrskurðaður í 15 daga
gæzluvarðhald í gærkvöldi
vegna rannsóknar á
meintu fíkniefnasmygli til
landsins.
Umræddur maður hefur áður
komið við sögu hjá fíkniefnalög-
reglunni, og m.a. var hann fyrr á
þessu ári staðinn að því að
smygla fíkniefnum hingað er-
lendis frá. .
I fyrradag fundust
fíkniefni við húsleit heima hjá
honum.
Rjómabakkelsi í
söltunarsalnum
Höfn, Hornafirði, 2. október.
MIKILLI veizlu, með rjómakökum og bakkelsi af beztu gerð, var
slegið upp i söltunarsal Fiskimjölsverksmiðjunnar i gær. Tilefnið
var að búið var að salta í 10 þúsund tunnur frá því að
sildveiðarnar hófust i haust. Meiri síidarafli hefur borizt á land á
Ilöfn á þessari vertíð miðað við sama tima undanfarin ár og
breytir vikustopp meðan beðið var sildarverðs þar engu um.
Fiskimjölsverksmiðjan hf. voru nokkrir erfiðleikar með
hafði saltað í 10352 tunnur og
Stemma í 8500 tunnur. Frysti-
hús Kaupfélagsins var búið að
heilfrysta til útflutnings 445
tonn, flakað 51 tonn og fryst til
beitu 153 tonn. Jökulfellið lestaði
hér á 5. hundrað tonn í dag af
frystri síld, sem fer til Frakk-
lands og Englands.
Hjá Stemmu voru í haust
♦*>knar í notkun nýjar vélar og
notkun þeirra fyrst í stað. í
aflahrotunni í síðustu viku gekk
vinnslan mjög vel og voru af-
köstin 140 tunnur á klukkustund
af stórsíld, en það er mjög gott.
Bátarnir streymdu út á miðin
síðdegis í dag og allt er nú
tilbúið til að taka á móti síld
eftir törnina um helgina og í lok
síðustu viku.
— Fréttaritarar
Ljósm. Rax
Samdráttur í bensínsölu í ágúst 7.7%
Frá síldarsöltun á Höfn í Hornafirði.
Samsvarar 3600
millj. á heilu ári
Hundahald í Reykjavík
UMTALSVERÐUR sam-
dráttur varð í bensínsölu í
ágústmánuði s.l. miðað við
sama tíma í fyrra. Sam-
drátturinn varð 7,7% að
magni til en það samsvarar
300 milljónum króna ef mið-
Beðið eftir umbrotahrinu
með borun í Bjarnarflagi
UM ÞESSAR mundir eru uppi hugmyndir um að boruð verði ný hola í Bjarnarflagi til frekari gufuöflunar
fyrir Kísiliðjuna. í sumar var boruð þar ein hola og er borinn Jötunn nú í Bjarnarflagi eftir það verk, en
ráðgert er að hefja ekki boranir fyrr en eftir væntanlega umbrotahrinu, sem jarðvisindamenn eiga von á
kringum 10. október.
Karl Ragnars verkfræðingur
hjá Orkustofnun sagði í samtali
við Mbl. að lengi hefði verið í ráði
að bora frekar í Bjarnarflagi þar
sem talið væri ráðlegt vegna
Kísiliðjunnar. Sagði hann að enda
þótt gufuöflun fyrir Kísiliðjuna
hefði verið betur tryggð undanfar-
in 2 ár en áður, sýndist mönnum
rétt að bora enn nýja holu í
Bjarnarflagi. Karl Ragnars sagði
þó að ekki væri enn fullráðið um
boranir. Hinkra ætti við um sinn
þar sem búizt væri við umbrota-
hrinu kringum 10. október n.k. og
væri ekki vitað hvað hún hefði í
för með sér.
Hugsanlegt væri einnig að um-
brotin myndu láta á sér standa, en
Karl kvað þó góða reynslu vera
komna á tímasetningar jarðvís-
indamanna og þær hefðu oftast
verið nokkuð nærri lagi. Gert er
ráð fyrir að kostnaður við að bora
eina holu sé kringum 280-290
milljónir króna og sagðist Karl
ekki vita til þess að neinn ágrein-
ingur væri milli iðnaðarráðuneyt-
is og fjármálaráðuneytis um þess-
ar framkvæmdir, en þó væri ekki
enn fullgengið frá peningahlið-
inni.
að er við 312 króna bensín-
verð og 3600 milljónum
króna á heilu ári.
Árni Ól. Lárusson aðstoðarfor-
stjóri Skeljungs veitti Mbl. í gær
upplýsingar um bensínsöluna. Það
kom fram hjá Árna að samdrátt-
urinn í bensínsölu fyrstu átta
mánuði ársins, þ.e. mánuðina
janúar til ágúst að báðum með-
töldum er 1,5% en undir venjuleg-
um kringumstæðum ætti að vera
3—4% söluaukning á þessu tíma-
bili miðað við fjölgun bifreiða í
umferð.
Fyrstu mánuði þessa árs varð
aukning á bensínsölu miðað við
sömu mánuði í fyrra en eftir hinar
24,5% hækkun á
taxta vörubíla
HÆKKAÐUR hefur verið taxti
vörubila og er hækkunin 24.5% að
því er Einar Ögmundsson iormaður
Landssambands vörubilstjóra tjáði
Mbl.
Eru samningar þessir reglulega
endurskoðaðir og tók þessi hækkun
gildi 1. september sl. en hún hefur að
nokkru leyti áhrif á verðlag þar sem
hún nær til allra flutninga með
vörubílum, m.a. hjá kaupfélögum.
stórstígu verðhækkanir sem orðið
hafa á undanförnum mánuðum
hefur bensínsalan hraðminnkað.
Ríkissjóður fær 56% af bensín-
verðinu í sinn hlut í formi skatta
og verður hann því af umtalsverð-
um tekjum vegna minni bensín-
sölu.
Fengu mink
í línuróðri
Eskifirði, 2. október.
ÞAÐ BAR til í línuróðri hjá mb.
Vetti SU 3 á dögunum, að þegar
Þórir skipstjóri brá sér niður i
lest á skipi sinu mætti hann þar
mink einum heldur illilegum og
var hann ekki eitt af gæludýr-
um áhafnarinnar.
Hófst mikill bardagi milli
Þóris og minksins og urðu lyktir
þær að Þórir skipstjóri vann á
„laumufarþeganum". Er þetta í
fyrsta skipti, sem minkur fæst í
róðri. Kvikindi þessu hefur fjölg-
að mikið hér um slóðir síðustu
árin og sjá menn víða minka þó
lítið hafi náðst af þeim til þessa
— enda lítið til þess reynt.
— Ævar.
I gæslu grun-
aður um smygl
á fíkniefnum