Morgunblaðið - 07.10.1979, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 07.10.1979, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 1979 41 voru krakkar allt frá 10 ára aldri og inn á milli mátti meira að segja sjá roskið fólk, en vel drukkið. Þeir voru í rauninni ósköp fáir sem ekki voru drukknir í kring um mig þetta kvöld, jafnvel yngstu krakkarnir voru ekki síður undir áhrifum áfengis en þeir elstu. Flestir voru þar í gallabuxum og mittisjökkum. Strákarnir voru með hár niður á herðar og stelp- urnar með síðar tjásur. Öll voru þau með sígarettur. „Flestir krakkarnir hér byrja að drekka 12—14 ára gamlir en þeir detta bara í það um helgar," sögðu nokkrar stelpur sem undirritaður talaði við.“ Þeir eru allavega byrjaðir að drekka 16 ára. Hvað geta unglingarnir hér gert á kvöldin? „Það er ósköp lítið. Það er þá helst að fara í Diskótekklúbbinn." í Færeyjum er engin áfengisút- sala, en hvar fá unglingarnir þá áfengið? „Það er barnaleikur einn að verða sér úti um áfengi hér, bara ef maður veit hverjir selja það. En flaskan er dýr, um 3—400 krónur (20—30 þúsund íslenskar krón- ur),“ var svarið. Unglingar í Þórshöfn virðast ekki fara mikið í kvikmyndahús og báru þeir því við að það væri klippt svo mikið úr myndunum sem sýndar væru. Einnig sögðu þeir að aldurstakmarkið væri yfir- leitt mjög hátt og strangt fylgt eftir. Sem dæmi um þetta áhuga- leysi má nefna að diskókvikmynd- in fræga, Saturday Night Fever, fór ósköp hljóðlaust yfir eyjarnar og var aðeins sýnd í nokkra daga í Þórshöfn. Eftir að hafa rætt við stelpurn- ar hélt ég áfram göngunni og inn á svæði sem útbúið hafði verið fyrir Ólafsvökuna. Þar hafði verið kom- ið upp eins konar tívolíi og dans- stað undir berum himni. Þarlend hljómsveit lék og söng öll nýjustu diskólögin og hópur krakka stóð fyrir framan sviðið og horfði á. Þrjú pör inni í miðjum hópnum dönsuðu með miklum tilþrifum. Er þetta alltaf svona, spurði ég söngvarann? „Já, því er nú miður. Það dansa yfirleitt mjög fáir á dansleikjum, fólk stendur og horf- ir á okkur." Síðan tók ég stefnuna til baka. Nokkrum tívolíum hafði verið komið upp meðfram Aarveginum og voru þau opin þrátt fyrir það að Ólafsvakan hófst ekki fyrr en daginn eftir. Hópur unglinga var fyrir utan hvert tjald og ýmsir þeirra voru með hatta, bangsa og annað dót sem þeir höfðu unnið í hinum ýmsu leikjum og þrautum. Er ég nálgaðist Vaglinn var klukkan að ganga þrjú en þar var samt enn sami fjöldinn. „Mótór- Átökin urðu oft hörð og ýmsir urðu sárir. Maðurinn lengst til hægri er aðstoðarlögreglustjórinn í Þórshöfn. 11 ir: . 9 11| - 1 IIL 1 Morguninn eftir. Komið með sópa og hjólbörur og hreinsað upp af götunni. hjólagæjunum" hafði fjölgað og stóðu þeir saman í hópum á Vaglinum og virtust vera að bíða eftir einhverju sem þeir gætu skipt sér af. Gangan upp og niður götuna hélt áfram fram eftir nóttu án þess að til stórtíðinda drægi. Og daginn eftir sem var laugardagur hófst þjóðhátíðin. „Það er ekkert gaman á Ólafsvöku lengur," sagði einn Færeyingurinn. „Hún er bara fyrir unglinga og þá sem hafa gaman af að drekka." Ef dæma má af forsmekknum sem fékkst kvöld- ið fyrir hátíðina er það satt sem hann sagði. r.m.n. >• Oruggur í blandinu! SstÁndard IDEALMix Idealmix blöndunartækið tryggir einstakl oryggi og þægindi An tillits til vatnsþrýstings eða hitastigs á heitu og koldu sér Idealmix um að blanda a eigin spýtur nákvæmlega hið umbeðna hitastig. Idealmix þolir mikinn mismunaþrýsting og sjálKirkur öryggisloki grípur í taumana ef þrystingur dettur oeðli- lega niður. Auðveld ísetning t grunna veggi. ÍSNÍÐl OTNAR Sniðnir eftir yðar þörfum 7 hæðir (frá 20—99 cm). Allar tengdir. I . Margra ára reynsla hér á landi. Henta bæði hitaveitu og olíukyndingu. Sænskt gæöastál. Stenst allar kröfur íslensks staöals. Hagstætt verð. Efnissala og fullunnir ofnar Skipholt 35 — Sími 37033

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.