Morgunblaðið - 07.10.1979, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 1979
55
Góðir fjármála-
menn eyða fé án
þess að njóta þess
Asko Sarkola
Borgar Garðarsson
RAGNAR Önundarson er í
fréttunum um þessar mund-
ir, i tilefni þess að hann
tekur við stöðu aðstoðar-
bankastjóra Iðnaðarbank-
ans. Það þykir tíðindum
sæta að hann sest í banka-
stjórastól svo ungur, aðeins
27 ára gamall.
Ragnar er Reykvíkingur,
sonur Önundar Ásgeirssonar
Kristinn uppi i sveit hjá frænda sinum að hjálpa til við heyskap
í sumar TF-AFI i baksýn.
og Evu Ragnarsdóttur.
Snemma beygist krókurinn
og Ragnar sýndi snemma
fjármálahæfileika, að sögn
skólabræðra hans í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð.
Þar rak hann sjoppuna
Sómalíu fyrir skólafélagið
og skilaði góðum ágóða,sem
skólasystkinin eyddu í ferða-
lag til útlanda. Sjálfur sat
hann heima og gerði upp.
Þegar blaðamaður rifjaði
þetta upp við Ragnar, svar-
aði hann í léttum tón, sagði:
Góðir fjarmálamenn eyða
peningum án þess að hafa
ánægju af þeim!
Ragnar hefur starfað í
Iðnaðarbankanum síðan
hann lauk námi og veitt
hagdeild bankans forstöðu.
Þegar hann var spurður
hvort hann hefði nokkur
önnur áhugamál en peninga,
sagði hann að peningar
hefðu raunar verið stór þátt-
ur af lífi hans þessi sl. þrjú
ár. Satt að segja hefði hann
að verulegu leyti eytt tíman-
um í bankanum og annað
orðið að víkja. Ekki væri það
þó svo að hann ætti engar
stundir þar fyrir utan. Og þá
gripi hann helst í bók — og
læsi um hagfræði og banka-
mál.
— Hvað er að frétta?
spurðum við Alfreð
Jónsson, oddvita í
Grímsey.
— Það sem er í frétt-
unum núna er stjórnar-
farið og veðurfarið, og
má ekki á milli sjá hvort
er verra, svaraði Alfreð
um hæl.
8 ára flugmaður flýgur með pabba á Afa
Túlka Hamle t afkaldhœðni
ÍSLENZKI leikarinn Borgar gerðin þykir allfrumleg útgáfa af Filíus Fogg í Kring um jörðina á
Garðarsson, sem í mörg ár hefur Hamlet. Textinn túlkaður af 80 dögum eftir Jules Verne.
leikið með Lillateatern í Hel- nokkurri kaldhæðni, að því er
sinki, var í fréttunum nýlega í íslenzkur leikhúsgestur tjáði okk- Sýningin fær ekkert sérstakt lof í
Finnlandi. Hann er að leika ur. Leikararnir bera grímur og Huvudstadsbladed og ekki heldur
Horatio í Hamlet eftir Shake- fatnaður stundur all rytjulegur, Sarkola. Fyrirsögnin á leikdómn-
speare, sem frumsýnt var 28. að því er virðist. Hamlet Dana um er „En förvirrad Hamlet." En
september. prins leikur Asko Sarkola, sem Borgari Garðarssyni er hrosað
Islendingum er að góðu kunnur, fyrir sitt framlag í túlkun Horat-
Þetta er engin hefðbundin sýn- síðan Lillateatern kom á lista- ios. M.a. sagt að túlkunin sé
ing á texta Shakespeares. Leik- hátíð í Reykjavík og hann lék frábært starf í kaldhæðnum tón.
Ragnar Önundarson með konu sinni Aslaugu Þorgeirsdótt-
ur frá Grund í Skorradal og syninum Þorgeiri, sem er 16
mánaða. Myndina tók ljósmyndari Mbl., Kristján á heimili
þeirra við Dalland.
KRISTINN Guðmundsson er sennilega yngsti flugmaður á íslandi. Hann
er 8 ára gamall, sonur Guðmundar Hilmarssonar fiugmanns hjá
Arnarflugi. Þegar Guðmundur er ekki fljúgandi heimshorna á milli
þolum Arnarflugs, leika þeir feðgar sér á lítilli eins hreyfils Super
Cub-flugvél og fljúga um landið. Kristinn er fullfær um að stjórna
flugvél, en honum er þó ekki leyft að lenda vél eða hefja hana á loft, enda
hefur Kristinn ekki aldur til þess að fá flugréttindi.
Að sögn Guðmundar ferst Kristni stjórnun flugvélar ágætlega úr
hendi, en honum hættir þó stundum til að taka of krappar beygjur sem
eru eftirlæti hans. Hver veit nema Kristinn eigi eftir að sitja við hlið
föður síns í stórum þotum sem aðstoðarflugmaður, þegar fram líða
stundir.
ffólk f
fréttum