Alþýðublaðið - 25.03.1931, Blaðsíða 3
AfcíPÝÐUBLAÐIÐ
3
„Verzlun Ben. S. Þórarinssonar
selur hin allra beztu vinnoföt og karlmanna og drengjanærfatnað
með 15% afslætti. Notið tækifærið. — Útsalan heldur áfram“.
Beztu tyrknesku cigaretturnar í 20 stk pökkurn,
sem kosta ks*. 1,2S, eru:
Statesman.
Tssrkssla Westmiisiistei*
Clagffettisr.
A. ,V. I lives'jinm pakka era samskonar fialiegar
landslagsmyndir og f Commander-clgarettupiikkusis
Fást f oIEg9bss vepssIpEaGBiM.
MilllénafeplM
og Tímaflokkarinu.
Undanfarnar vikur hefir blaðið
Tíminn hamast að íhaldsflokkn-
um og einkabröskurunum fyrir
það, að á þeim hafi tapastum33
milljónir á einum einasta áratug.
Hefir blaðið þar tekið í sama
streng og Alþýðublaðið, og er
þaö ekki nema virðingarvert.
En það er mjög oft, að skipu-
lagsleysi og skoðanaringl Tíma-
flokksins kemur skýrt í Ijós.
Þekkjast þess mörg dæmi t. d.,
að ilt er að sameina þingmenn
flokksins um stjómarfrumvörpin
og getur ríkisstjórnin sjaldan
treyst hinum svo nefndu flokks-
mönnum sínum í stærstu al-
vörumálum þingsins.. Þeir hlaupa
til og frá eins og ærðar sauð-
kindur og nudda sér upp við
stórburgeisavaldið þegar þekn
þóknast.
Það er og oft, að kenningar
stjórnarmálgagnsins eru alls
ekki í samræmi við framkomu
þingfulltrúanna og kom þetta
einna skýrast fram á þingi, er
rætt var um frumvarp Alþýðu-
flokksins um heimild handa rík-
isstjórninni til að styðja aÖ út-
flutningi á nýjum fiski. — Sveinn
Ólafsson talaði þá af miklum
móð og tók í sama streng og
fulltrúar einkabrasksins, sagði
hann m. a. að honum væri mein-
illa við, að ríkið færi að hafa
forgöngu í þessu máli — en hins
vegar væri rétt af ríkissjóðnum
að, létta undir með töpunum, sem
á pessu kijnnu að verða.
Framsóknarflokknum finst 6vo
sem ekki nóg komið af milljóna-
töpum og óhamingju, sem dxmið
hefir yfir þessa þjóð frá ábyrgð-
arlausu braski einstakra manna.
— Sveinn í Firði vill svo sem
gjarna eiga frumkvæðið að því
að nýr milljónatapa-áratugur
hefjist nú, svo að að tíu árum
liðnum verði hægt að segja að
ríkisstjórn og þingflokkur hinnar
svb nefndu „Framsóknar" hafi
lagt grundvöllinn að milljónatöp-
unum nýju.
Framsóknarflokkurinn leggur
mikið upp úr ,,agitation“,' en
hvort nokkuÖ er haldbært að
baki vlrðist honum sama um.
En reynslan og verkin verða
þó það að síðustu, er talar skýr-
ast mál um góð afrek eða glap-
ræði.
Milljónatöpin era næg orðin.
Hingað og ekki lengra! Bui*t með
braskið, en skipuleggjum þjóðina
til samstarfs og samvinnu á öll-
um sviðum.
Njður með þá þingflokka, er
ætla að velta nýjum milljónatöp-
um ábyrgðarlausra einkabraskara
yfir á ríkisvaldið — þjóðarheild-
ina!
**
Göbbels svartliöaíorkólfuf.
Berlín, 25. marz.
United Press. — FB.
Ríkisþingið hefir til bráða-
birgða svift Fascistaleiðtogann
Joseph Göbbels sérréttindum
þingmanna til þess að gefa yfir-
völdunum tækifæri til þess að
neyöa hann til að mæta í rétti
til yfirheyrslu, en málshöfðanir
eru fram komnar á hendur hon-
um fyrir meiðandi ummæli trni
ýmsa ráðherrana. — Göbbels
hefir til þessa skeytt .engu um
skipanir þær, sem hann hefir
fengið, um að mæta fyrir rétti.
Kolanemaverkfali
yfirvofandi í Frakblandi.
Paris, 23. marz.
United Press. — FB.
Á fulltrúafundi námumanna í
Lens voru samþykt mótmæli gegn
þeirri neitun kolaeigenda að
framlengja gildandi launasamn-
inga, svo og gegn tilkynningu
þeirra um 5 o/o launalækkun. Sam-
þykt var að bíða, unz útséð væri
um, hvern árangur málamiðlun
stjómarinnar ber, en ef hún ber
ekki árangur verður verkfall haf-
ið 30. marz. Laval forseti veitir
viðtal nefndum beggja aðilja í
dag (mánudag).
Sauðnautin
í Skorradalnum.
— Hvað er að frétta af sauð-
nautunum,. Ársæll? spurði tíð-
indamaður blaðsins.
— Ég var einmitt að fá bréf
ofan að, frá piltinum, sem hirðir
þau, segir Ársæll, og sýnir mér
bréfið. Það ber það með sér, að
bréfritarinn hefir ekki fengið ann-
að en hina nauðsynlegustu barna-
mentun, en það lýsir svo mikilli
einlægni og umhyggju fyrir hin-
um innfluttu munaðarleysingjum
að mér þótti skemtilegast að fá
að birta það eins og það er.
„Sæll og blessaður. Ég ætla að
skrifa þér ofurlítið um sauðnaut-
in. Þeim líður vel, hafa aldrei
fengið klessing í sig né neitt ann-
að. Nú ermn við farin að beita
þeim og beitum þeim fyrir ofan
tún. Vont er aÖ reka þau; það er
varla mögulegt. Helzt er að láta
þau elta sig. T. d. læt ég þau
alt af elta mig á haga, en þau
koma stökkvandi aftur til baka
á eftir niður að girðingu og baula
á eftir mér svolitla stund. Þau
hafa mikið fitnað í vetur, segja
nágrannarnir. Ég hefi verið eins
natinn við þau og ég hefi getað,
látið þau fá nóg hey og vatn —
og stel tuggu handa þeim auka-
lega. Þau eru stundum að leika
sér úti. Þau hafa alt af fengið
haframjöl síðan á nýári, mörk á
dag bæði. Alt af lét ég þau út í
vetur, þegar veður var gott, svo
þau gætu viðrað sig, en ekkert
vildu þau bíta. Þau eru afar-
meinlaus. Mér þykir ansi gaman
að þeim. Aðallega hefi ég hirt
þau síðan G. för í verið. um
áramótin. Svolítil horn eru farin
að sjást á þeim, út úr hárunum.“
StúdentaóeirðiF á Spáni.
Madrid, 24. . marz.
United Press. — FB.
Allmargir særðust, þegar lög-
reglan hóf skammbyssuskothríð
á stúdentahóp, sem hafði komið
af stað óspektum með grjótkasti.
Geirðirnar gerðust fyrir utan
læknadeild háskólans, er stúdent-
ar komu þaðan, en lögreglán
beið fyrir utan, reiðubúin til að
handtaka stúdenta, sem höfðu
orðið valdir að óspektum í gær.
Þegar stúdentar sáu lögregluna,
hófu þeir grjótkast á þá. — Einn-
ig urðu stúdentaóeirUir. nálægt
konungshöllinni, þegar Alfonso
konungur kom frá París.
SCHNEIDER-píanó iyr-
ir 1275 krónur.
(Ðökkbrúnf Mahogni hágíans).
Hlutu Grand Prix og 2 guli-
medaiíur á sýningunni í Bologna
1930. Merkir pianóleikarar mæla
eindregið með þeim.
Elías Bjarnason, Sólvöllum 5.
Oin failegn log
úr
„Jazzkðngurinn“
komin á kr. 2,25 platan.
Agætir grammófónar á
28 krónur.
Útbú HJjóðfærahússins.
Laugavegi 38.
ÚTSAIAN
heldur áfram,
Ennþá er dálítið eftir af;
Skálasettum (5 stk,) nú 2,75
Skálasettum (6 stk.) nú 6,00
Riðfrium hnifum nú 0,68
Alpacpa matskeiðum nú 0,68
Gólfmottum 2 teg. nú 1,10
3 góð sápustk. nú 1,00
3 gólfklútum nú 1,00
3 stórum klossetrúllum nú 1,00
Kaffistellum fyrir 12 nú 20,00
Stórum aluminium pottum nú 6,40
4 bollapörum nú 1,50
4 diskum með bl. rönd nú 1,50
Ávaxtastellum, afarfalleg nú 5,40
4 bollapörum áður 2,50 nu 1,60
6 teskeiðum silfurplett nú 2,00
Nokkrir veggfóðursafgangar verða
seldir. Verðið eftir samkomulagi.
Komið í dag eða á morgun, áður
en alt er búið.
Fg gleymdi að segja ykkur að
nokkur stykki af taurullum seljast
fyrir einar kr. 49.00 stykkið.
Sig. Kjartansson,
Laugavegi 20 B. Sími 830.
xxxxx>o<xxxxx
Nýkomið mikið úrval
af Blóma og Jurtafræi
í verzlun
Klapparstíg 29. Sínri 24.
X>ÖCOOOOOCO<X