Morgunblaðið - 03.02.1980, Síða 8

Morgunblaðið - 03.02.1980, Síða 8
Þetta er sagan um það sem gæti gerzt FALL EVRÓPU 40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 1980 ..Nýtt Gæöaskór frá Austurríki Teg:D 1234 Litur: Vínrautt Rússkinn frá Panzl“ Stærðir: 37—41 Hrágúmmísólar Verð: 27.040.- Póstsendum samdægurs. S_________________________ Barónsstíg 18 hitakostnaöinn •besaffffTI Þéttiö dyr og glugga meö Tesamoll þéttilistum allar geröir fáanlegar hjá okkur. GRENSÁSVEGI 11, SÍMI 83500 Eins og við var að búast sagði Helmut Schmidt í svari sínu: „Þýskaland verður að halda áfram að rækta þann skilning sem skapast hefur milii þess og Sovétríkj- anna.“ ésku landamærunum en Bretar og þeir vildu gera sem minnst veður út af þessu. Franska blaðið Le Monde birti forsíðugrein undir þeirri tvíræðu fyrirsögn „Mourir pour Spitzberg- en?“ — „Að deyja fyrir Sval- barða?" — (en hún minnti óþyrmi- lega á hina alræmdu grein eftir Marcel Deat, sem síðar varð hand- bendi nasista, er bar yfirskriftina „Mourir pour Danzig?“ og birtist í framsækna blaðinu L’Oeuvre 1939). Að mati Le Monde væri hið mesta óráð að hætta á kjarnorku- stríð vegna jafn ömurlegs land- skika. I forystugrein, sem bar heitið „Hvers virði er Svalbarði?", komst Washington Post þannig að orði, að „þótt viðurkenna verði grundvallarsjónarmiðið um frið- helgi landamæra NATO-ríkjanna og vernda það, sé alls ekki unnt að líta svo á, að Svalbarða-málið gefi tilefni til að láta á þetta sjónar- mið reyna, því að í slíku felast stórkostlegar hættur fyrir allt mannkyn." The Guardian taldi, að norsku lýðræði yrði betur borgið án beinna árekstra við voldugan nágranna sinn í austri og minnti á, að þannig hefði á málum verið haldið í Finnlandi. í þeim vest- rænu blöðum og tímaritum, sem voru enn „framsæknari" mátti lesa hugleiðingar um, að líklega væri Svalbarða-málið til komið fyrir vélabrögð bandarísku leyni- þjónustunnar CIA, hún hefði búið það til. Þessí blöð réðust á ríkis stjórnir landa sinna eins og þau gerðu í Kúbudeilunni fyrir „að fara eftir bandarískum leikregl- um“. Odvar Nordli forsætisráðherra var ljóst, að bandamenn hans vildu ekki leggja neitt í sölurnar. Hlutleysisöfl innan ríkisstjórnar hans og meðal stjórnarandstöð- unnar lögðu hart að honum. Ákvað Nordli loks að taka upp viðræður beint við sovésku ríkis- stjórnina. Berlingske Tidende, sem áður hafði staðið dyggilega á bak við Atlantshafsbandalagið, lét í ljós skilningsríka afstöðu frá Kaupmannahöfn: „Danir hafa alltaf neitað að leyfa staðsetningu kjarnorkuvopna í landi sínu, og nú er ljósara en nokkru sinni fyrr að við megum ekki etja Varsjár- bandalagslöndunum út í nýtt og dýrt vígbúnaðarkapphlaup." Samningaviðræður milli Norð- manna og Sovétmanna sigldu í strand. Sovéskar sveitir höfðu nú komið sér tryggilega fyrir á Sval- barða. Odvar Nordli forsætisráð- herra Noregs sagði af sér. Mynduð var allra-flokka stjórn — þjóð- stjórn. Hún ákvað að segja Noreg úr Atlantshafsbandalaginu í von um að hlutleysi landsins myndi stuðla að bættri sambúð við Sov- étríkin. Hún lagði einnig fram hugmyndir um ríkjasamband við Svíþjóð, sem Norðmenn rufu 1905. En Olaf Palme, sem var aftur orðinn forsætisráðherra í Svíþjóð, hafnaði þessum hugmyndum. Hann var þeirrar skoðunar, að Sovétmenn kynnu að telja fram- kvæmd þeirra ögrun við sig. Þegar ljóst var af reynslu Norð- manna, hve lítils stuðjjjnés ríki gat vænst frá bandamönnum sínum á örlagastundu, hafði for- dæmið skjót áhrif. Gríski vinstri Verður haldin 2.—10. febrúar n.k. í húsnæði okkar við gömlu verksmiðjuna (efst í brekkunni ofan við brúna) [ Mosfellssveit. Eftirfarandi verður selt meðan birgðir endast: OPNUNARTÍMI: Laugardaga kl. 10—18. Sunnudaga kl. 13—18. Mánud.—Föstud. kl. 13—19. /Woss hf HESPULOPI • PLÖTULOPI • LOPI LIGHT • TRÖLL LOPI • EINGIRNI • TWEED HOSUBAND • TEPPABAND • ENDABAND • FATNAÐUR • HOSUR • TREFLAR • GARDÍNUEFNI • FATA- EFNI • ÁKLÆÐI • VÆRÐARVOÐIR VERÐ KR. 3.500,- • GÓLFTEPPI • FALDAÐAR MOTTUR.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.