Morgunblaðið - 03.02.1980, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 1980
41
sinninn Andreas Papandreou, sem
ávallt haföi verið brennheitur
NATO-andstæöingur, krafðist úr-
sagnar lands síns úr bandalaginu.
Honum varð fljótlega að ósk sinni.
Tyrkir vildu ekki vera síðri og
tilkynntu úrsögn sína. Þetta voru
endalokin á langri þróun.
Þegar í þetta óefni var komið,
sendi frú Thatcher orðsendingar
til Francois Mitterand Frakk-
landsforseta og Helmut Schmidt
kanslara Vestur-Þýskalands.
„Ríkisstjórn hennar hátignar leyf-
ir sér að leggja til, að tafarlaust
verði efnt til viðræðna um það
hvernig unnt sé að sameina tækni-
og efnahagskrafta Stóra-Bret-
lands, Frakklands og Sambands-
lýðveldisins Þýskalands í því
skyni að stofna til heilsteypts
varnarsamstarfs, sem mundi ná
til evrópskra kjarnorkuvopna á
grundvelli samhæfingar og end-
urnýjunar á kjarnorkustyrk Breta
og Frakka.“
Mitterand svaraði: „Frakkland
telur sjálfstæði sínu best borgið
með því að standa áfram utan við
allar fjölþjóðlegar herstjórnir."
Nokkrir Frakkar þeirra á meðal
Raymond Aron og Jean Francois
Revel lögðu til, að tillaga Breta
yrði samþykkt. Þeir máttu sín
lítils. í Þýskalandi lögðust ráðandi
öfl í báðum stóru flokkunum gegn
því, að breska hugmyndin væri
samþykkt.
í svari sínu til frú Thatcher
sagði Helmut Schmidt eins og við
var að búast meðal annars þetta:
„Með hliðsjón af þeim breyting-
um, sem orðið hafa í Evrópu vegna
síðustu atburða, er það skoðun
Sambandslýðveldisins, að skyn-
samlegasta stefna þess sé að halda
áfram að rækta þann skilning,
sem skapast hefur milli þess og
Sovétríkjanna á grundvelli Aust-
urstefnunnar (Ostpolitik), er mót-
uð var á áttunda áratugnum."
í Bretlandi voru ekki allir alltof
hrifnir af framtaki frú Thatcher.
Tony Benn í Verkamannaflokkn-
um lýsti hugmyndunum á þann
veg, að í þeim væri „af léttúð
leikið sér að eldi, sem stofnað gæti
í hættu lífi ástvina okkar —
breskum körlum, konum og börn-
um“, Barbara Castle einnig í
Verkamannaflokknum gagnrýndi
tillögurnar harðlega í Evrópu-
þinginu og lýsti þeim „sem svikum
við Evrópuhugsjónina", sem hún
fordæmdi einnig í sömu andrá og
sagði að hefði verið slæm hugsjón
frá upphafi. Enoch Powell sagðist
líta á viðhorf forsætisráðherrans
sem samsæri gegn Stóra-Bret-
landi og írlandi og þau væru í
fullu samræmi við skoðanir þess
flokks, sem hefði fórnað sjálfstæði
þjóðarinnar á altari Efnahags-
bandalags Evrópu — íhalds-
flokksins. Frú Thatcher varð að
viðurkenna, að frumkvæði sitt
hefði reynst árangurslaust, enda
dró nú að þeim kosningum, sem
hún hafði frestað fram á síðustu
stundu vegna stöðugra átaka við
verkalýðshreyfinguna.
Smásprunga i ísnum á Sval-
barða hafði í för með sér stór-
skriðu. Hún rann um alla Evrópu
án þess að hleypt væri af einni
byssu. Þjóðir Vestur-Evrópu njóta
nú enn um nokkurra ára skeið
mun betri lífskjara og meira
frjálsræðis en þjóðir Varsjár-
bandalagálandanna — sömu sögu
var að segja um Finnland á fyrstu
áratugunum eftir síðari heims-
styrjöldina. Nú er svo komið, að
opinberlega er hvatt til þess í
Vestur-Evrópu, að menn hafi ekki
í frammi gagnrýni á Sovétríkin og
er þessum sjónarmiðum haldið á
loft í sjónvarpi, útvarpi og jafnvel
í' „hægri sinnuðum" blöðum og
tímaritum.
Eftir að Atlantshafsbandalagið
leystist upp hafa bandarískar
hersveitir verið kvaddar á brótt
frá Þýskalandi. Bretar, Frakkar
og Þjóðverjar og aðrar fyrrver-
andi NATO-þjóðir viðhalda hver
um sig litlum eigin herafla innan
landamæra sinna — eins og Finn-
land áður — en þessar liðssveitir
mega sín einskis gagnvart Rauða
hernum. Kjarnorkuherafli Breta
og Frakka verður ekki endur-
nýjaður, þar sem ráðagerðir um
það falla ekki einungis Sovét-
mönnum illa í geð heldur einnig
Bandaríkjamönnum, sem telja
þær „leiða til röskunar".
Velmegun Vestur-Evrópu og
frelsi íbúa hennar til orðs og æðis
dvínar smátt og smátt. Sovétmenn
krefjast ósanngjarnra viðskipta-
samninga og hagstæðra lána.
Venjulega eru flóttamenn frá Sov-
étríkjunum sendir aftur til síns
heima. Stjórnmálamennirnir fara
fögrum orðum um nýju „Evrópu-
samstjórnina" og eru á endalaus-
um vináttu-ferðalögum í Austur-
vegi. Enginn heldur því lengur
fram af sannfæringu, að Vestur-
Evrópa geti lengi enn haldið í
síðasta vott sjálfstæðis síns, að
vera laus við herafla frá Varsjár-
bandalaginu. Eins og sakir standa
njóta yfirstéttirnar í kommún-
istaflokkum Austur-Evrópu þess
að nota vesturhlutann sem eins-
konar nægtabrunn þaðan sem þær
geta ausið hvers kyns fríðindum
og dýrum leikföngum eins og
„virðuleika" bifreiðum. Mikil
ásókn er í ferðir til Parísar,
Hamborgar og London. Fyrr en
seinna munu hersveitir Varsjár-
bandalagsins birtast undir ein-
hverju yfirskyni. Aðeins á eftir að
ákveða hvenær.
(Einkaréttur Morgunblaðið
samkv. samningi við
tímaritið NOW!
C — TECH Sonar
fyrir loðnuveiðiskip
Nýjung í fiskileitartækni — Þrautreynd á íslandi
lestir
liafa Bjarni
’ÁK 70 og Pétur Jónsson
' dregið verulega á Sigurð
fLoðnu hafði á laugardags-
verið landað á 11 stöðum.
rskýrsla Fiskifélagsins um afla
^instakra skipa og iondunarstaði
I er miðuð við laugardagskvöld.
Sigurður RE4 — 4493
] Pétur Jónsson RE 69 — 3309
| Júpiter RE 161 — 3253
' Bjarni Ólafsson — 3247
Grindvíkingur GK 606 — 3204
Hrafn GK 12 - 3067
Guðmundur RE 29 — 2930
Hákon ÞH 250 - 2899
Gullberg VE 292 - 2571
Börkur NK 122 - 2506
Þórshamar GK 75 - 2077
Súlan EA 300 - 2070
Víkingur AK 100 - 2042
Húnaröst ÁR 150 — 2013
Fífill GK 54 - 1994
Helga II RE 373 - 1947
Örn KE 13 - 1916
SSÉÖ*!
i
BíM*'*’’
(Ljósm. Mbl. Sigurgeir).
Bjarni Ólafsson AK 70 er meðal aflahæstu loðnuskipanna og var þessi
mynd tekin á dögunum er skipið var á leið tii Akraness með aflaj'
Eftirtalin íslenzk skip eru búin C — TECH Sonar:
Bjarni Ólafsson AK 70 — Eldborg HF 13 — Grindvíkingur GK 606
Húnaröst ÁR 150 — Júpiter RE 161 — Óskar Magnússon AK 177.
Leitið upplýsinga um nýjungar frá C — TECH.
R. SIGMUNDSSON HF
Tryggvagötu 8, — Sími 12238
Vegna mikillar aðsóknar síðastliðna helgi verður nýi salurinn opinn
ídag kl. 13—18.
Sýndar verða flestar 1980 árgerðir Chevrolet.
Enn hefurtekist að fá verðlækkun á Malibu 1979.
Þeir voru að koma til landsins. RB
Nokkrum enn óráðstafað.
Armuéa 3 Reyk/avtk Sim 38900