Morgunblaðið - 06.07.1980, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.07.1980, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ1980 17 í ísrael snýst dýrtíðarskrúfan jafnvel hraðar en hér heima ... Þar búa menn við 120% verðbólgu! „Það er fyrst og fremst ríkisstjórnin sem ber þungann af því að ísrael býr við 120 prósent verðbólgu,“ sagði mér bankastjóri í Jerúsalem. „Byrði hins almenna borgara er ekki svo mikil.“ Iiann hefði átt að segja „sumra almennra borgara“. Samyrkjubú Þeim verr settu veitist sífellt erfiðara að láta launin hrökkva fyrir nauðþurftum. í fljótu bragði virðist lítt fýsilegt að eiga viðskipti í ísraelsku efnahagslífi. Á aðra hönd kreppir að sífellt minna svigrúm til hagstæðrar lántöku, en þriggja stafa verðbólga færir allt úr lagi á hina. Vextir af lánum eru u.þ.b. 90 prósent og geta farið upp í 130 á heimild- arlausan yfirdrátt. Verð á nauð- synjavörum hækkar að jafnaði um 10 prósent á mánuði. En þrátt fyrir þetta rekst maður ekki á kröfugöngur hungraðs almúga eða sér verð- bréfasala varpa sér út um glugga háhýsanna í Tel Aviv. Fyrrnefndur bankastjóri skýrði það svo, að jafnan væri reynt að taka mið af framfærslukostnaði í allri efnahagsstjórnun. Til dæmis hafa launþegar þegar fengið uppbætur á laun í tví- gang á þessu ári, og hið öfluga verkamannasamband, Husta- drut, vinnur nú að veitingu þeirrar þriðju í júlímánuði. Uppbæturnar vega á móti 70 til 80 prósentum verðhækkananna. Þrátt fyrir hina gríðarháu vexti af lánum sem fyrr voru nefndir, borgar það sig að skulda. Verðbólgan æðir alltaf skrefinu á undan, og einkalán eru ótengd innbyrðis. Trygging- in minnkar í verðgildi. Og ef einhver á fé til skipt- anna, getur hann fest það í vísitölutryggðum skuldabréfum eða erlendum gjaldeyri, sem er auðveldara að komast yfir nú við stjórn Likud-flokksins en var í tíð hins föðurlandssinnað- ri verkamannaflokks. ísraelsmenn komast því af á einhvern hátt. En þeir sem áður börðust í bökkum eiga í sífellt meiri erfiðleikum. Fjármála- ráðherrann hefur til dæmis dregið úr niðurgreiðslu mat- væla. Fjölskyldur sem áður gátu lítið veitt sér umfram nauðsynjar, verða nú að halda vel um pyngjuna fyrir þeim einum. Það er lægð í sölu nýrra sem notaðra bifreiða. Israelsmaður sem ekki nýtur sérstakra bif- reiðafríðinda vegna atvinnu sinnar, reynir að láta farar- skjótann endast í áratug. Kaup á sjónvarpstækjum eða þvotta- vélum verða að bíða þess að verð á nauðþurftum lækki eilít- ið, ef af slíkum kaupum á að geta orðið á annað borð. Flestar vinnuvélar eru fluttar inn, og er lagður á þær tollur og skattar aðrir, svo nemur 200 prósent- um. Forstjóri stórmarkaðar í einu úthverfanna kvað veltu hafa dregizt saman um 35 af hund- raði frá áramótum. Sala á kjöti hafði minnkað um fjórðung. Hann sagði að húsmæður væru hættar að kaupa osta hvers- kyns, kökur eða dýrt sælgæti, — nú keyptu þær meira brauð og hrísgrjón. Eiginkona háskólakennara nokkurs, sem elur upp þrjú börn og hefur til umráða um 290 þúsund krónur á mánuði, sagði: „Ég er alveg hætt að kaupa kjöt og kaupi aðeins kjúkling fyrir hvíldardaginn í hverri viku. Við borðum ódýran frystan fisk tvisvar í viku og einstaka sinn- um hamborgara drýgða með hverskyns grænmeti. Ég er næstum hætt að kaupa ost, sem er næstum jafndýr og kjöt núna. Við étum mikið af eggjum og salötum, drýgjum mat með baunum og höfum æ oftar spaghetti með tómatsósu. Þrátt fyrir þetta erum við komin í yfirdrátt í bankanum um miðj- an mánuðinn og farin að greiða reikninga með ávísunum dag- settum fram í tímann." Þess eru einnig merki að hin versnandi lánskjör muni orsaka atvinnuleysi, þótt enn sé það minna í ísrael en á flestum Vesturlöndum. Spár fyrir fyrsta fjórðung þessa árs voru þær að 4,5 af hundraði verka- lýðs yrði án atvinnu, sem er helmings hækkun frá síðasta fjórðungi ársins 1979. Ýmsar smærri verzlanir og veitinga- staðir hafa orðið að leggja upp laupana. ísraelsmenn fara ekki út að borða um þessar mundir. - ERIC SILVER þeirra, er sá, að með henni er unnt að leiða hlustandann eða áhorf- andann beint á vettvang og leyfa honum að komast í snertingu við það, sem er að gerast. Svo virðist sem stefna ríkisfjölmiðlanna sé sú að fella allt í eitthvert opinbert mót, sem kemur til dæmis glögg- lega fram í þeirri áráttu, að nauðsynlegt er talið að fara hönd- um um forystugreinar dagblað- anna, áður en þær eru lesnar í útvarp, og laga þær og stytta án nokkurs tillits til höfundar eða réttar hans. Hafi baráttuaðferðir frambjóð- enda í Bandaríkjunum haft áhrif á þá, sem keppa um lýðhylli hér á landi, er augljóst, að áhrifin eru að engu orðin, þegar útvarp og sjónvarp eru annars vegar. Énda er sá grundvallarmunur á, að hér er það hið opinbera vald, sem ræður ferðinni í þessum öflugu fjölmiðlum, en í Bandaríkjunum er það samkeppnin um hylli áhorfenda og hlustenda, sem stjórnar. Þar leggja menn sig fremur fram um að veita þjónustu en segja fyrir verkum. Skoðana- kannanir Af umræðunum um skoðana- kannanirnar og deilur síðdegis- blaðanna um nákvæmni og aðferð- ir, mætti stundum ráða, að þessir aðilar teldu kosningarnar óþarfar. Nægilegt væri, að þeir tækju að sér að hringja í nokkur hundruð manns og þar með lægi vilji þjóðarinnar fyrir. Hefðu menn komist að þeirri niðurstöðu, að með skoðanakönnun mætti spara kostnað og fyrirhöfn við kosn- ingar, hefði sú aðferð vafalaust verið valin fyrir löngu og almenn- um kosningum kastað fyrir róða. Skoðanakannanir eru til margs gagnlegar og um öll lönd, þar sem þær eru tíðkaðar, gilda ákveðnar reglur um það, hvernig þær skuli framkvæmdar. Engar slíkar regl- ur eru í gildi hérlendis. Og kapp- hlaup síðdegisblaðanna á eftir skoðunum manna rétt fyrir kosn- ingar, stafar auðvitað fyrst og fremst af því, að úrslitin þykja forvitnilegt lesefni, sem selur blöðin. Á útgefendur og ritstjóra blaðanna er ráðist með ómakleg- um hætti, ef því er haldið fram, að þeir séu með því að birta niður- stöðurnar að reyna að hafa áhrif á kjósendur. Þá er skammt í það, að menn haldi því fram, að niður- stöðurnar séu samdar á ritstjórn- arskrifstofum blaðanna. En hinu er ekki að neita, að þessi starfsemi getur haft áhrif á það, hvernig atkvæði manna falla. Þess vegna hafa í ýmsum löndum verið settar reglur, sem mæla svo fyrir, að niðurstöður skoðanakannana skuli ekki birtar opinberlega á ákveðnu tímabili rétt fyrir kosningar. Áhrifavaldar í umræðum um úrslit forseta- kosninganna á þeirri viku, sem liðin er síðan þær fóru fram, hafa menn tíundað ýmsar ástæður fyr- ir þeim. Svo virðist sem af ýmsum sé nokkuð mikið lagt upp úr því, að kosning Vigdísar Finnboga- dóttur hafi heimssöguleg áhrif. Og þess gætti einnig í málflutningi fyrir kosningarnar, að menn voru með hugann við álit útlendinga á því, að einstæð móðir væri í kjöri. Óhætt er að fullyrða, að fæstir kjósenda hafi verið með það í huga, þegar þeir settu atkvæða- seðil sinn í kjörkassann, að þar með væru þeir að breyta mann- kynssögunni. Kosningabaráttan bar síst þess merki, að þar toguð- ust á viðhorf manna tii jafnrétt- ismála. Miðað við viðbrögð er- lendra blaða við úrslitunum, hljóta menn að álykta sem svo hér á landi, að hugsunarháttur íslend- inga í jafnréttismálum sé þrosk- aðri en meðal hinna fjölmennari þjóða. En ef til vill vanmeta menn erlend áhrif á skoðanir sínar, þegar þeir ganga til kosninga á Islandi. Til dæmis vakti það at- hygli í viðtali Gunnars Thorodd- sens við fréttamann sjónvarps á kosninganóttina, hve mikla áherslu bæði spyrjandinn og Gunnar lögðu á það, að erlend áhrif hefðu ráðið því, að Gunnar tapaði forsetakosningunum 1968. Þær kosningar fóru fram í lok júní það ár, en í maí höfðu stúdentar í París efnt til víðtækra mótmæla- aðgerða, sem höfðu áhrif bæði þar i landi og annars staðar. Almennt eru menn sammála um, að þessara áhrifa hafi til dæmis ekki gætt í Háskóla íslands fyrr en nokkrum misserum síðar. Nú er því hins vegar haidið fram, að þau hafi verið meðal helstu áhrifavalda í forsetakosningun- um. Söguna má auðvitað skoða í mörgu ljósi og þeir, sem taka þátt í henni, vilja auðvitað gera eigin hlut sem bestan. Síst af öllu ber að fordæma þá mannlegu viðleitni. Það er hins vegar í verkahring sagnfræðinga að reyna að leiða menn með hlutlægum hætti inn í andrúmsloft liðinna atburða og skýra með óvéfengjanlegum gögn- um atburðarásina og það, sem sköpum skipti. Þess er að vænta, að með sífelit stærri hópi sagn- fræðinga, aukist rannsóknir á þeim atburðum, sem nær okkur eru í tíma. Vissulega væri það verðugt viðfangsefni að rita sögu forsetakosninga á íslandi. Reynsl- an hefur sýnt, að bein og óbein áhrif þeirra á stjórnmálaþróunina eru mikil og stundum afdrifarík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.