Morgunblaðið - 06.07.1980, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ1980 2 5
Gosið í St. Helens skaðar laxagöngur
ELDGOSIÐ í St. Helens í Wash
inKton-fylki i Bandaríkjunum
kann að hafa mjög afdrifarikar
afleiðingar fyrir laxauonKur i
norðvestur-héruðum Bandaríkj-
anna. segir i frétt í júnihefti
breska hlaðsins Fishing News
International. Á fyrstu dögum
gossins gjöreyðilagðist stór.
ríkisrekin klakstöð við Toutle-
ána ok er talið að um 10 milljón
laxaseiði hafi drepist vegna flóða
og skriðufalla.
„Það mun líða á löngu þar til
laxinn gengur aftur upp Toutle-
ána," sagði David Hubert, starfs-
maður Fiskimálastofnunar Wash-
ington-fylkis. Frá því hefur einnig
verið skýrt, að mikill lax hafi
drepist í Cowlitz-ánni og er sagt
að hann hafi hreinlega soðnað í
heitu árvatninu, sem hraun-
straumar höfðu runnið út í.
í fréttum frá Seattle segir dr.
Timothy Jouner, að auk mann-
skaða og mikillar eyðileggingar á
skóglendi sé „ljóst, að gosið mun
hafa mikil áhrif á laxaframleiðslu
í SV-Washington-fylki“.
Dalurinn, sem Toutle-áin renn-
ur eftir, er hulinn heitri leðju og
trén, sem áður stóðu á árbökkun-
um, bárust með Toutle-á út í
Cowlitz-á og Columbia-fljót og
brutu á leið sinni brýr og bakka.
Vatnið hefur hitnað svo mjög, að
jafnvel neðarlega i Columbia-
fljóti er hitinn of mikill fyrir lax
og silung.
„Það mun taka langan tíma að
meta skaðann, en hvort sem litið
er lengra eða skemmra fram á
veginn er hann áreiðanlega mjög
mikill," segir Dr. Timothy enn-
fremur. Eini vonarneistinn er sá,
að öskufallið reynist hættulaust
fiskinum. í eldgosum í Alaska
hefur reyndin orðið sú, að askan
hefur aukið málmsölt í vatninu
Guðfræðideild
og köllun til
prestsþjónustu
í tilefni af ummælum herra
biskupsins, dr. Sigurbjörns Ein-
arssonar, í setningarræðu hans á
Prestastefnu íslands, en ræðan
var birt í Morgunblaðinu þ. 3. júlí
sl., þykir rétt að taka fram
eftirfarandi.
Björn Björnsson. pröfessor.
Biskup lætur þess getið, að í vor
hafi sex guðfræðikandídatar verið
brautskráðir frá guðfræðideild
Háskóla íslands, en enginn þeirra
hafi óskað eftir prestsvígslu. Síðar
í ræðu sinni segir biskup: „Guð-
fræði er skemmtileg námsgrein og
alhliða þroskandi, en það vantar
eitthvað, ef menn skorast undan
því að verða að gagni að námi
loknu á því sviði sem námið miðar
að og helgast af.“
Það er um hina sex nýútskrif-
uðu kandídata að segja, að einn
þeirra, Færeyingur, sá fyrsti af
því þjóðerni sem lýkur embætt-
isprófi í guðfræði frá Háskóla
Islands, hefur þegar sótt um
prestsembætti í Færeyjum. Annar
kandídatanna hefur verið ráðinn
til trúboðsstarfa í Kenya, en sá
þriðji hefur hlotið styrk til fram-
haldsnáms í guðfræði erlendis.
Hinir þrír hugsa nú ráð sitt, en
þess má geta að brautskráning
kandídata fór ekki fram fyrr en
28. júní sl.
Sé litið til lengri tíma og að því
spurt hvort kandídatar frá guð-
fræðideild Háskóla Íslands „verði
að gagni að námi loknu á því sviði
sem námið miðar að og helgast af“
þá má benda á eftirfarandi tölur.
Á áratugnum 1970—1979 voru 52
kandídatar brautskráðir frá guð-
fræðideild. 42 þeirra hafa tekið
prestsvígslu. Af þeim 10 sem ekki
hafa verið vígðir eru 4 í fram-
haldsnámi í guðfræði. Ekkert skal
fullyrt um hvort þeir að loknu
námi óski eftir vígslu, en þó hljóta
líkur þess, að hluti þeirra a.m.k.
geri það, að vera miklar.
Það er vissulega áhyggjuefni, að
ekki fæst skipað í allmörg presta-
köll að sinni, en vart verður séð
með tilliti til ofangreindra upplýs-
inga, að guðfræðideild Háskóla
íslands hafi legið á liði sínu.
Björn Björnsson
forseti guðfræðideildar.
Austurlands-
kjördæmi
ALÞINGISMENNIRNIR Egill
Jónsson og Sverrir Hermanns-
son, verða til viðtals, miðviku-
daginn 9. júli næstkomandi.
klukkan 20.30 til 23 i Höfn í
Ilornafirði. Viðtalsstaður verður
auglýstur síðar.
Þeir boða til almennra stjórn-
málafunda á Djúpavogi, fimmtu-
daginn 10. júlí, klukkan 20.30 í
barnaskólanum og í Breiðdal,
föstudaginn 11. júlí, klukkan 20.30
í Staðarborg.
vatahluW
inöóíegunda
Te9unú'sW7n<lal
uuatsoow
UúaSport 76
N/N/Vt200 76 ^nnn’76
AushhMmDOOO
Skoda^QO 76
peoau "1Z J6
Saaö99t 70
. BMW30-M
Dempari
Spindilkúla,
Bremsuklossar.
Aðalljós,
Framrúða,
Hurðarlæsing,
Stefnuljósapungur,
Kúplingsdiskur,
Frambretti,
Samkvæmt kannun t tímaritinu Samúel á verðmismun á
varahlutum i bila var LADA 1500 i 1. sæti og LADA sport
í 2. sæti.
Rétt erað geta þessað flestirvarahlutireru þeirsömu í allar
gerðiraf LADA.
LADA hefur sannað kosti sína hér á landt með því að vera
söluhæsti bíllinn ár eftir ár og er það bæði af sparneytni og
hve ódýrir þeir eru í rekstri.
(Viðhald og varahlutir).
er ódýr
er sparneytin
ódýrir varahlutir
hátt endursöluverd
BIFREIÐAR & LANDBUNAÐARVELAR
Suðurlandsbraut 14, simi 38600
Söludeild sími 312 36
Varahlutaverslun sími 3 92 30