Morgunblaðið - 06.07.1980, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ1980
31
Flugleiðir:
31 flug-
freyju var
sagt upp
Mornunblaðinu hefur borizt eft-
irfarandi fréttatilkynning frá
Flugleiðum:
Þær flugfreyjur starfandi hjá
Flugleiðum, sem fengu tilkynningu
um starfslok um síðustu mánaða-
mót voru allar í sumarstarfi, og
ráðningarbréf þeirra hljóðaði ein-
göngu upp á það.
Nauðsynlegt er að þetta komi
fram til að leiðrétta misskilning
vegna bréfs frá stjórn og trúnað-
armannaráði Flugfreyjufélags ís-
lands, sem birtist í fjölmiðlum í gær
og í dag.
Flugfreyjurnar 31, sem fengu
tilkynningu um starfslok nú í haust
höfðu allar áður fengið uppsagnar-
bréf, en verið boðið sumarstarf hjá
félaginu. Þeim var jafnframt því
boði sagt að þeim yrðu tilkynnt
starfslok með góðum fyrirvara. Með
þeirri tilkynningu, sem send var 31
flugfreyjum sl. mánaðamót var svo
gert.
Það er því misskilningur að með
þeirri tilkynningu, sem að ofan er
getið hafi verið um raunverulegar
uppsagnir að ræða, þar sem upp-
sagnir höfðu áður farið fram.
það, að sjávarútvegsráðherra
skipaði Eyþór sem náttúruvernd-
arfulltrúa ríkisstjórnarinnar til
að sitja fundi hvalveiðiráðsins.
Við teljum hinsvegar, að Nátt-
úruverndarráð eigi sjálft að velja
umræddan fulltrúa og lýsum yfir
því, að hann eigi samkvæmt eðli
hlutverks síns að vera fylgjandi
friðun hvala og þannig skapa
mótvægi við hagnýtingarsjónar-
mið þau, sem ráðið hafa stefnu
íslendinga til þessa.
Virðingarfyllst,
Helgi Hallgrimsson,
Formaður Sambands íslenzkra
náttúruverndarfélaga
bórunn Sörensen,
Formaður Sambands dýravernd-
unarfélaga íslands
Geir Viðar Vilhjálmsson,
Formaður Náttúruverndarfélags
Suðvesturlands
Edda Bjarnadóttir,
f.h. Skuldar, félags hvalverndun-
armanna.
Vilja að sérstakur full-
trúi Náttúruverndar-
ráðs sitji fundi Alþjóða-
hvalveiðiráðsins
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi bréf, sem sent hefur
verið til Náttúruverndarráðs, um
skipan fulltrúa ráðsins til að
sitja fundi Alþjóðahvalveiðiráðs-
ins:
Við undirrituð leyfum okkur hér
með að fara þess á leit við
Náttúruverndarráð, að það reyni
af fremsta megni að afla sér
heimildar til að útnefna fulltrúa
til að sitja fundi Alþjóðahvalveiði-
ráðsins með öðrum fulltrúum Is-
lendinga þar. Ástæður fyrir þess-
ari beiðni eru sem hér segir:
Á aðalfundi Sambands ís-
lenzkra náttúruverndarfélaga,
þann 20. júní í fyrra, var sam-
þykkt að skora á ríkisstjórnina að
skipa náttúruverndarfulltrúa í
sendinefnd íslands á fundi hval-
veiðiráðsins. Var ráðagerðin sú, að
slíkur fulltrúi væri vísindamaður,
sem hefði sérstaka þekkingu á
hvölum og gæti, líkt og aðrir
þesskonar fulltrúar annarra
þjóða, skoðað veiðiáform hval-
veiðimanna frá vísindalegum og
náttúruverndar-sjónarmiðum.
Á almennum fundi um hvala-
vernd, sem haldinn var þann 25.
júní í fyrra, lýsti Eyþór Einars-
son, grasafræðingur, yfir þeirri
skoðun sinni, að nýta bæri hval-
ina, rétt eins og sauðkindina, og
var frá þessu sagt í dagblöðum
daginn eftir. Er ekki að orðlengja
UTSÖLUSTAÐIR Karnabær Laugavegi 66 - Karnabær Glæsibæ
Eyjabær Vestmannaeyjum - Hornabær Hornafirði -Eplið Akranesi - Eplið Isafirði -Cesar Akureyri.
fomponent (ar Stereo ■ ■
■ kilometrum a undan
iX
Þegar kemur að hljómgæðum
hafa PIONEER bíltækin þá yfirburði,
að við getum fullyrt að þau eru mörgum
kílómetrum á undan öðrum bíltækjum.
HMJ20
•'. •'" . ''••■' ■’ 5
(tóPIOMCEŒJR
1‘itmfioiu'nl UiirHlrmi
HLJÓMTÆKJADEILD
KARNABÆR
LAUGAVEG 66 SÍMI 25999
Fjölmenni á
Kaldármelum
FJÓRÐUNGSMÓT hestamanna á
Vesturlandi er haldið um helgina á
Kaldármelum á Snæfellsnesi og
hófst mótið á fimmtudag. Veður
hefur verið gott á mótsstaðnum og
um miðjan dag á föstudag voru
mótsgestir orðnir um 2000 en fjölg-
aði mjög á föstudagskvöld og laug-
ardagsmorgun. Er talið að milli
4000 og 5000 manns séu nú á
mótinu. Mótinu lýkur i dag með þvi
að kynnt verða úrslit i hinum
einstöku greinum og fara fram
úrslit í kappreiðum. Á mótinu eru
sýnd um 300 hross, ýmist sem
kynbótahross. gæðingar, i ung-
lingakeppni eða þau taka þátt i
kappreiðum.
Þorkell Bjarnason, hrossarækt-
arráðunautur, sagði í samtali við
Mbl. í gær, að honum litist ágætlega
á sýningu kynbótahrossanna á mót-
inu í heild og um greinilega framför
væri að ræða frá fjórðungsmótinu á
Faxaborg 1975. Þá hefðu stóðhestar
verið fáir og ekki sérlega góðir, en
nú væru þeir fleiri og yfirleitt
efnilegir. Sagöist Þorkell sjaldan
hafa orðið eins afgerandi var við
framfarir á einu svæði eins og milli
þessara tveggja móta. Framfarirnar
hefðu ekki einungis orðið í kynbót-
um heldur einnig í fóðrun og með-
ferð hrossanna. Þorkell sagði, að af
afkvæmasýndum stóðhestum á mót-
inu væri Ófeigur frá Hvanneyri í
sérflokki og lýkur væru á að hann
hlyti 1. verðlaun fyrir afkvæmi.
á tréverk í garöi og húsi.CUPRINOL viöarvörn þrengi
sér inn í viöinn og ver hann rotnun og fúa.
I S/ippfé/agið íReykjavík hf
Má/ningarverksmiðjan Dugguvogi
Símar 33433og 33414