Morgunblaðið - 08.04.1981, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.04.1981, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1981 Samúðarverkfall- ið hafði lítil áhrif Samúðarverkfallið sem stúdent- ar vuru hvattir til að taka þátt í til stuðnings kjarabaráttu stunda- kennara við Háskóia íslands virtist breyta litlu um ma tinnu stúdenta í gærmorgun. að sógn Guðmundar Magnússonar háskólarektors. Stundakennarar héldu almennan félagsfund í gærkvöldi og voru þar ræddir svokallaðir minnispunktar, sem ráðuneytismenn. rektor og stjórn Félags stundakennara hófðu tekið saman á sameiginlegum fundi Að sögn rektors var vel mætt í viðskipta- og verkfræðideildum í gærmorgun. Hann sagði að kennsla í heimspekideild hefði svo til alveg legið niðri, áður en til boðaðs samúðarverkfalls kom, þannig að mæting þar hefði ekki verið mark- tæk. Þá taldi hann mætingu í öðrum deildum vera svipaða og áður. Rekt- or kvaðst vona að samkomulag næðist á fundinum í gærkvöldi um frestun á verkfalli stundakennar- Verkfræði- og raunvísindadeild HI: I>úsundir kynntu sér starfsemina ÞÚSUNDIR manna kynntu sér starfsemi verkfræði- og raunvís- indadeildar Háskóla Islands sl. sunnudag. Að sógn dr. Ragnars Ingimarssonar voru undirtektir al- mennings mjög g<>ðar og eru hug- Sáttafund- ur í deilu flugmanna »MÁL ERU á mjög viðkvæmu stigi og er ekkert hægt að segja um stóðuna. Ég reikna með að fundir standi nokkuð lengi." sagði Guð- laugur Þorvaldsson ríkissáttasemj- ari í gærkvóldi um stöðu samninga- viðræðna milli Félags íslenzkra atvinnuflugmanna og Flugleiða. Samningafundir hófust kl. 9 í gærmorgun og stóðu fram til 16.30 en þá var gert hlé til kl. 20.30. Hléið var notað til fundahalda milli stjórnar FIA og trúnaðarmanna- ráðs. myndir uppi um að framvegis verði slík kynning á starfsemi deildanna á þriggja ára fresti. Opið hús var í öllum húsakynnum deiidanna og miðstöð kynningarinn- ar í anddyri Háskólabíós, en þar voru einnig fluttir átta fyrirlestrar. Sýndar voru kvikmyndir, framdir voru efnafræðigerningar sem hlutu góðar undirtektir yngstu gestanna. Þá var tölva háskólans í gangi og gátu gestir kynnt sér hinar ýmsu reiknikúnstir og hæfileika hennar í skákíþróttinni og öðrum leikjum. Tugir rannsóknartækja voru í gangi og sýndu oemendur og kennarar gestum, hvernig þau eru notuð við nám og rannsóknarstörf og gafst fólki einnig tækifæri til að reyna kunnáttu sína. Að sögn Ragnars Ingimarssonar hefur nokkuð verið deilt á háskólann undanfarið fyrir að stúdentar ættu erfitt með að velja sér námsbraut. Hann sagði þetta viðleitni við að opna og kynna starfsemi þessara deilda háskólans. Undirtektir hafa verið mjög góðar og yrðu þær til þess að nánari gaumur yrði gefinn að slíku kynningarstarfi framvegis. Ingar Iversen við bryggju á ísafirði í gærmorgun. Ljósm. Mbl. Úlfar Ágústsson Ragnar Arnalds um togarakaup til Þórshafnar: Ríkisábyrgðin gild- ir ekki til nýsmiði Jóhann fann veilu í bók- inni og sigraði höfundinn lega veilu í einni þeirra og notfærði sér það gegn Watson með svo frábærum árangri. VIKTOR Korchnoi sigraði sovézka stórmeistarann Artur Jusupov í sjóundu umferð alþjóðlega skák- mótsins í Lone Pine. Korchnoi er þvi ennþá efstur á mótinu. Hann hefur hlotið sex vinninga af sjö mögulegum, en næstur kemur Bandaríkjamaðurinn Yasser Seir- awan með fimm og hálfan vinning. Þeir Guðmundur Sigurjónsson og Jóhann Hjartarson hafa nú hlotið þrjá og hálfan vinning, en Jón L. Árnason hefur hlotið þrjá vinninga. I sjöundu umferðinni vann Jóhann bandaríska alþjóðameistarann John Watson í aðeins 23 leikjum. Watson hefur ritað margar bækur um byrj- anir en Jóhann hafði fundið alvar- „RÍKISÁBYRGÐIN til kaupa á Ingar Iversen getur ekki gengið sjálfkrafa yfir á nýsmiði togara i Noregi. Hún er bundin við þessi kaup.“ sagði Ragnar Arnalds fjármálaráðherra. er hann var spurður hvort ríkisábyrgðin, sem hann gaf til kaupa á svonefndum Þórshafnartogara, geti sjálf- krafa gengið yfir á nýsmíði togara, en komið hefur fram i Mhl. að hugsanlega náist samn- ingar um nýsmíði togara í Noregi og komi hann til með að kosta svipaða fjárhæð og Ingar Iversen átti að kosta. Ingar Iversen kom til hafnar á ísafirði í gærmorgun með særðan skipverja. Hafði hann hlotið höfuðmeiðsli, sem gert var að í sjúkrahúsinu á ísafirði og fór togarinn að því búnu til veiða á ný með skipverj- ann innanborðs. Ragnar vildi ekki tjá sig frekar um málið á þessu stigi. Hann sagðist ekkert vita um málavöxtu, annað en að einhverjar breytingar hefðu orðið á fyrirhuguðum kaup- um. Þá sagðist hann heldur ekki vita, hvort Framkvæmdastofnun væri tilbúin til að veita sömu fyrirgreiðslu til nýsmíði. Kennarar öldungadeilda í verkfalli: Deilt um álag Ásgeir Ólafsson hættir sem forstjóri Brunabótafélagsins STAÐA forstjóra Brunabótafé- lags íslands hefur verið auglýst laus til umsóknar. Mun nýr forstjóri væntanlega taka við af Ásgeiri ólafssyni núverandi for- stjóra 1. júlí nk„ sem hættir þá störfum þar sem hann hefur náð eftirlaunaaldri. Ásgeir réðst til Brunabótafé- lagsins 1944 sem bókari. Hann var ráðinn skrifstofustjóri þar 1952, settur forstjóri í september 1957 og skipaður 31. desember 1957 og hefur hann gegnt því starfi síðan. KENNARAR við öldungadeildir fjölbrautaskólanna á Akranesi og í Breiðholti eru nú í verkfalli og er krafa þeirra sú. að þeim verði greitt sama álag fyrir kennslu í verknámsgreinum og við kennslu í bóknámsgreinum. Telja kennarar greiða eigi sama álag fyrir kennslu í öldunga- deild. með hliðstæðum samningi og gert er í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Matthías Frímannsson, trúnað- armaður kennara við Fjölbrauta- skólann í Breiðholti, tjáði Mbl., að deilan snerist um það hvort hægt væri að taka verknám á svokallað- ri hraðferð í öldungadeild á sama hátt og bóklega námið. Telja kennarar og skólameistari fjöl- brautaskólans það mögulegt, en ráðuneytið ekki og vill ekki greiða eins hátt álag á kennsluna. Hið ísl. kennarafélag tilkynnti um verk- föll þessi til fjármálaráðuneytis- ins á mánudagsmorgun, en fundir hafa ekki verið boðaðir milli aðila. Ragnar Arnalds um efnahagstillögur Framsóknarflokksins: 99 Vil ekki andmæla þeim — koma vel til greina“ „ÉG VIL ekki andmæla þessum hugmyndum. Þær koma vel til greina. en þeir hafa ekki lagt þessar hugmyndir fram í rikis- stjórn sem er nú vaninn. Þeir hafa fyrst og fremst lagt þetta fyrir i fjolmiðlum," sagði Ragnar Árnalds fjármálaráðherra, er Mbl. bar undir hann efnahags- málatillögur aðalfundar mið- stjórnar Framsóknarflokksins, en þar kemur meðal annars fram, að fresta skuli opinberum íram- kvæmdum, lækka óbeina skatta og auka niðurgreiðslur til að halda framfærsluvisitölunni niðri 1. maí nk. Einnig er þar fjallað um að leita skuli. ef nauðsynlegt reynist, samstöðu með launþegum um hámark á verðbætur launa 1. september og 1. desember nk. og verði þeirri kaupmáttarskerð- ingu sem þvi fylgir bætt á lægri laun með lækkun skatta, tolla eða hækkun fjölskyldubóta. Steingrímur Hermannsson sagði á fréttamannafundi á mánudag, að sér fyndist réttast að skera allar opinberar framkvæmdir niður um ákveðið prósentustig og hann sagði að líklega þyrfti að skera þær niður um 3—4 milljarða gkr. til að ná tilsettu marki, þ.e. að fram- færsluvísitalan fari ekki yfir 8 af hundraði 1. maí nk. Ragnar Arn- alds hafði eftirfarandi að segja um þetta: „Þetta getur vel komið til greina. Við þurfum væntanlega að skera ríkisútgjöld eitthvað niður með þessum hætti og ég hef lengi haft það mál í undirbúningi. Það eru heimildir fyrir þessu í fiárlög- um og efnahagslögunum. Eg hef einmitt verið að undirbúa tillögur í þessu efni. Ég vil ekki nefna neinar tölur í þessu sambandi og það hafa heldur ekki verið teknar neinar ákvarðanir né verið fjallað um málið í ríkisstjórninni. Um hámark verðbóta á laun 1. september og 1. desember sagði Ragnar: „Verðbætur á laun verða reiknaðar út með eðlilegum hætti 1. júní og það fer síðan eftir því hvernig verðmælingin verður. Eina leiðin til að hafa áhrif á þá verðmælingu er sú að auka niður- greiðslur og lækka vöruverð með öðrum hætti. Þá eru óbeinir skatt- ar inni í vöruverðinu og ef menn vilja fara þá leiðina þá er það einnig hugsanlegt." — Telur þú þessar tillögur framsóknarmanna um efnahags- mál aðgengilegar að öðru leyti? „Ég vil ekki andmæla þessum hugmyndum. Þær koma vel til greina." Lóðaúthlutanir Rvíkurborgar: Úrvinnsla tekur um tvo mánuði RÚMLEGA sextán hundruð l<)ðaumsóknir höfðu borist skrifstofu borgarverkfræð- ings í gærmorgun, að sögn Hjörleifs Kvaran. Langflest- ar umsóknirnar eru eftir lóð- um á tveimur stærstu svæðun- um. Öskjuhlið og Fossvogs- svæði. Reiknað er með, að það taki um tvo mánuði að vinna úr umsóknunum. Umsóknir voru enn að ber- ast í pósti í gærdag og sagði Hjörleifur að reikna mætti með að þær yrðu alls upp undir sautján hundruð talsins. Þá sagði hann að það myndi taka um tvo mánuði að vinna úr umsóknunum. „Fyrst send- um við Gjaldheimtunni um- sóknirnar og hún gefur okkur upplýsingar um hverjir eru í skuld og það getur tekið nokkra daga. Þá sendum við borgarráði öll vafaatriði og látum það taka afstöðu til þeirra og það getur einnig tekið sinn tíma. Þá kemur til okkar kasta. Við tökum fyrst einbýlishúsalóðirnar, sem mér sýnist í fljótu bragði að sé mest eftirsókn eftir, og síðan koll af kolli. Úthlutunin sjálf mun áreiðanlega taka heilan mánuð,“ sagði hann að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.