Morgunblaðið - 24.05.1981, Blaðsíða 31
Páfinn á
batavegi
Róm. 22. maí. AP.
JÓHANNES PÁLL II gekk um
ganga í sjúkrahúsinu i dag og
snæddi hádegisverð með Sandro
Pertini Ítalíuforseta. Siðustu 14
saumarnir voru fjarlægðir eftir
aðgerðina og læknar sögðu að
hann væri á góðum batavegi þótt
hann væri með smáhita.
„Það var mér mikil ánægja að
hans heilagleiki var vel á sig
kominn, miklu betur en í tveimur
fyrri heimsóknum mínum," sagði
Pertini. „Við áttum skemmtilegar
viðræður, eins og gamlir vinir.
ítalska lögreglan viðurkenndi
að hún vissi ekki hvort tilræðis-
maðurinn, Mehmet Ali Agca, hefði
verið einn að verki eða fengið
borgun fyrir árásina.
14 látnir
af óþekktum
sjúkdómi
Madrid. 21. mai. AP.
FJÓRTÁN manns hafa látist
á Spáni af völdum sjúkdóms,
sem ekki hefur tekist að sjúk-
dómsgreina þrátt fyrir víð-
tækar rannsóknir. í gær lót-
ust fjórir og 1100 manns eru
nú meðhöndlaðir við sjúk-
dómnum, sem hefur verið kall-
aður „da migcrð lungnabólga“
en er þó ekki lungnabóiga.
Sjúkdómseinkenni eru höfuð-
verkur, brjóstverkur, hiti og
ákafur hósti.
Yfir 100 læknar rannsaka nú
sjúkdóm þennan og eru skiptar
skoðanir um hvað í raun sé á
ferðinni. Sumir segja að vírus
valdi sjúkdómnum, aðrir bakt-
ería. Veiki þessi stakk sér fyrst
niður í Torrejon de Ardoz,
skammt frá Madrid.
Heilbrigðisyfirvöld segjast
vongóð um, að takist að hefta
útbreiðslu sjúkdómsins en
heimildir segja, að ferðamála-
yfirvöld hafi nú þungar
áhyggjur vegna þess, að talið
er að ferðamenn kunni að leita
annað en til Spánar af ótta við
að smitast. Reiknað er með, að
35 milljónir ferðamanna komi
til Spánar í ár.
Grunaðir um
ólöglega til-
færslu fjájr-
muna frá Italíu
Ludi. ftaliu. 22. mai. AP.
SJÖ þckktir italskir fjármála-
mcnn. sem handteknir voru fyrr í
vikunni í hamum Lodi. skammt
frá Milanó, vcgna gruns um
ólöglega tilfærslu fjármuna úr
landi. hafa allir ncitað sakargift-
um við yfirheryslur. Handtaka
fjármaálamannanna olli miklu
fjaðrafoki á ítaiiu og verðbréf
féllu í vcrði cn að sögn, hefur
markaðurinn jafnað sig.
Meðal hinna handteknu eru
Roberto Calvi, formaður Banco
Amrosiano, sem er mjög öflug
bankasamsteypa á Ítalíu og Carlo
Bonmi, forstjóri fjárfestingafé-
lagsins Miralanza. Hinir eru einn-
ig velþekktir. Réttarhöld yfir
mönnunum sjö hefjast í næstu
viku.
Ef þeir verða sekir fundnir um
ólöglega tilfærslu fjármuna úr
landi, þá eiga þeir yfir höfði sér
sex ára fangelsi. Varasaksóknar-
inn í Mílanó, Gerardo D’Ambrosio
heldur því fram, að fjármála-
mennirnir sjö hafi komið nokkr-
um milljónum dollara ólöglega úr
landi árið 1975.
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1981
71
Nýjungamar fylgja
DAMIXA
Örugg og tæknilega fullkomin.
Ódýr, stílhrein og audstillanleg.
Glæsileg i nýja baöherbergiö og eldhúsid
og auötengjanleg vid endurnýjun á gömlu.
Leitiö upplýsinga. Biöjiö um myndlista.
Kaupfélag Rangæinga
eKKiefnon^nY^ Ba«el
'...
aðeins
4>\U"U',fina
Heðdsö'udre^ð
S. 85742 09'