Morgunblaðið - 06.06.1981, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1981
11
Brúðubíllinn
Brúðubillinn:
Grímur «k þorpið hans.
Brúðujíerð: Helga Stefíenseir.
Ilandrit ok stjórn: Helga Steff-
ensen ok Sigriður Hannesdótt-
ir.
Brúðubíllinn er orðinn fastur
liður í leiklistarlífi borgarinnar
hvert sumar, en hann starfar í
maí og júní og sýnir á öllum
gæsluvöllum Reykjavíkur. Það
er Reykjavíkurborg sem rekur
Brúðubílinn.
Efni dagskrár Brúðubílsins er
einkum við hæfi barna á aldrin-
um tveggja til sex ára og er
ætlast til að þau séu þátttakend-
ur í sýningunum, en allir eru
velkomnir og fer vel á því að
foreldrar og aðstandendur barna
séu með þeim.
Það eru þær Helga Steffensen
og Sigríður Hannesdóttir sem
hafa veg og vanda af Brúðubíln-
um að þessu sinni. Helga býr til
Lelkllst
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
brúðurnar, en Sigríður stjórnar
sýningunni, talar við krakkana
og fær þau til að syngja. Þær
hafa samið handrit í sameiningu
og annast báðar stjórn brúðanna
og túlka hlutverkin í töluðu
máli.
Efnið er Grímur og þorpið
hans. I kynningu segir svo:
„Grímur er alltaf á vakt í
stiganum sínum, þá getur hann
fylgst með öllu sem gerist. Hann
segir krökkunum frá lífinu í
þorpinu og íbúum þess.“
Þótt skemmtunin sé ekki síst
tilgangur Brúðubílsins er lögð
áhersla á að fræða krakkana um
ýmislegt úr daglega lífinu, búa
þau undir lífið og er ekki ólíklegt
að það sé með svipuðu móti og í
leikskólum. Þetta fer ágætlega
saman.
Að þekkja á sér fingurna er
hverju barni nauðsynlegt og það
kenna þær Helga og Sigríður.
Einnig fá börnin leiðbeiningar
um umferðarmál, einkum götu-
ljós.
En ekki er gaman að láta
troða endalaust í sig lærdómi og
reglum. Lífið þarf líka að vera
áhyggjuleysi.
Og það var það líka glaðan
júnídag á leikvellinum við Hlíð-
argerði þar sem fjöldi barna var
samankominn, fóstrur og for-
eldrar.
Við kynntumst misheppnaðri
galdrakerlingu sem átti stóran
galdrahatt. Þegar hún vildi að
upp úr honum sprytti skjaldbaka
kom broddgöltur og óþægir
drekar öngruðu kerlingargreyið
sem var litblind í þokkabót.
Brúður Helgu Steffensen voru
í frekar hefðbundnum stíl, komu
ekki beinlínis á óvart. Þær Helga
mmÞótt skemmtunin
7 sé ekki síst tilgang-
ur Brúðubílsins er lögð
áhersla á að fræða
krakkana um ýmislegt
úr daglega lífinu, búa
þau undir lífið ££
og Sigríður túlkuðu fólk og dýr
sköruglega eins og þeirra var
von og vísa.
Eina sem mætti finna að
Brúðubílnum er það að efnið er
dálítið ófrumlegt. Hvernig væri
að reyna að gera eitthvað alveg
nýtt og höfða til leiks og gáska
ungra áhorfenda, bæði hvað
varðar handrit og brúður.
Þetta er aðeins orðað hér til
umhugsunar fyrir aðstandendur
Brúðubílsins. En dagskráin er
hin prýðilegasta eins og hún er
og fengur börnum.
Sem betur fer hafa flestir
skilið að leikhúsið á að þjóna
þeim eins og öðrum.
Leigja Ljósfara
til rannsókna og
merkinga á hvölum
FYRIRHUGAÐ er, að nóta-
veiðiskipið Ljósfari verði leigt
um tíma í sumar til rannsókna
og merkinga á hvölum vestur
af landinu. Hvalur hf. mun
væntanlega leigja skipið. en
Ilafrannsóknastofnun leggur
til vísindamenn og nauðsynleg
tæki. Ef af þessu verður mun
Þórður Eyþórsson, deildar-
stjóri í sjávarútvegsráðuneyt-
inu, verða skipstjóri á Ljós-
fara þennan tíma. en Þórður
er margreyndur skipstjóri á
hvalhátunum og myndi þá
nota sumarleyfi sitt til þessara
skipstjórnarstarfa. Jóhann
Sigurjónsson mun hins vegar
sjá um rannsóknir og merk-
ingar.
Mörg undanfarin ár hefur verið
unnið að rannsóknum á hvölum
bæði í Hvalstöðinni í Hvalfirði og
merkingum á hafi úti. í fyrra tók
hver hvalbátanna fjögurra 2 daga
í merkingar á hvölum, en oft hefur
hvalbátur verið við merkingar í
vikutíma fyrir upphaf vertíðar.
Margvísleg verkefni eru framund-
an við rannsóknir á hvölum og í
sumar tekur til starfa í Hvalfirði
alþjóðleg rannsóknastöð. Brezkir
vísindamenn verða fyrstir til að
nota aðstöðuna í rannsóknastöð-
inni, en það er Hvalur hf. sem
komið hefur stöðinni á laggirnar.
„Það virðist svo sem
hún hafi fundið nýtt
lögmál þess efnis, að
sumir skattar séu
góðir og aðrir vond-
ir“
setið á hakanum og svo nærri
atvinnuvegunum er gengið, að við
berum nú minna úr býtum sem
heild en efni stóðu til. Á þessu bera
stjórnvöld fulla ábyrgð, en taka því
létt því miður.
Að þessu sinni var óhjákvæmilegt
að búa til nýjan nefskatt vegna
Framkvæmdasjóðs aldraðra, af því
að ríkisstjórnin var ekki til viðtals
um annað. Menn munu ekki telja
eftir þessar 100 kr. Jafnvíst er líka
hitt, að þeir væru óðfúsir að leggja
hálfu meira fram, ef ríkið kæmi þar
hvergi nærri. Það kennir reynslan
frá Kópavogi okkur og raunar
margt annað stórvirkið, sem frjáls-
ar hendur hafa unnið og ekki talið
eftir.
stiginn
Hversvegna aö láta sérsmíöa stiga, þegar
hægt er aö kaupa Ljusdals stiga tilbúinn til
uppsetningar? A myndunum sézt hversu
lítiö fer fyrir stiganum ósamsettum, og
hvernig hann veröur, tilbúinn til notkunar.
Ljusdals stigann getur þú sett upp sjálfur og
þaö á stuttum tíma.
Furulímtré
Ljusdals stiginn er unninn úr massivri furu,
svokölluöu límtré. Furan er límd saman í
bitum sem gefur stiganum mikla mótstööu
gagnvart raka og hitastigsbreytingum.
Furu-límtréö er bæöi fallegt og veitir hlýlega
tilfinningu.
Stadalstærðir
Ljusdals stiginn er framleiddur í 7 geröum,
— „beinir“, — „L“ laga og „U“ laga. Þar aö
auki eru þeir framleiddir í mismunandi
hæöum (240—270 sm). Alls veröa þetta 48
mismunandi geröir stiga svo aö einhver
þeirra ætti aö henta þér.
Uppsetning
í pökkunum er ekki bara stiginn heldur
einnig allt sem þarf til þess aö ganga frá
stiganum á sínum staö, — skrúfur, lím og
tréfyllir. Þaö eina sem vantar er hamar og
skrúfjárn.
Fylgihlutir
Meö Ljusdals stiganum má fá handriö,
rimlaverk og lokanir viö stigapalla, allt úr
límtré.
Allar upplýsingar ásamt myndlista veita,
kajmar
innréttingar hf.
SKEIFUNNI8, SÍMI82011.