Morgunblaðið - 30.09.1981, Side 3

Morgunblaðið - 30.09.1981, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1981 3 Ferðalagi Valla víðförla lokið: Selur tók á móti honum við strönd Grænlands ÆVINTÝRALEGRI ferð Valla rostungs víðförla lauk í gær, er honum var sleppt úr kassa sín- um á ísjaka við strönd Græn- lands. Valli virtist frelsinu feg- inn, teygðí úr stirðum hreifum, demhdi sér siðan í sjóinn oií synti í átt til lands. t>að síðasta sem sást til Valla frá varðskip- inu Tý var að stór skepna, brún að lit, tók á móti honum á leið- inni til lands, en ekki er vitað hvað þeim fór i milli. Er talið að skepna þessi hafi verið selur. Það var kl. 16.40 í gær að Valla var sleppt á stórum ísjaka um tíu sjómílur norður af veðurat- hugunarstöðinni Aputiteq, eða u.þ.b. 228 sjómílur norðvestur af Bjargtöngum. Hann gaf sér um tíu mínútur til að teygja úr sér, enda orðinn stirður eftir langa vist í kassa sínum. Valli dembdi sér siðan í sjóinn og synti áleiðis til lands. Varðskipið Týr hélt að loknu þessu einstæða verkefni sínu í átt til íslands. Landbúnaðarráðherra aðeins að tala til kjósenda sinna segir Þór Hagalín, sveitarstjóri á Eyrarbakka „MAÐUR verður að draga í efa, að landbúnaðarráðherra hafi haft tíma frá öðrum störfum til að kynna sér öll gögn málsins, auk þess sem iðnaðarráðherra kannast ekki við þessar skýringar samráð- herra síns,“ sagði Þór Hagalín. sveitarstjóri á Eyrarbakka og einn forsvarsmanna fyrir byggingu steinullarverksmiðju í borláks- höfn, í samtali við Mbl„ er hann var inntur álits á þeim ummælum Pálma Jónssonar, landbúnaðarráðherra, að öll gögn málsins væru Sauðkrækingum í vil, en eins og skýrt hefur verið frá í fréttum greinir menn á um hvort verksmiðjan skuli staðsett í Þorlákshöfn eða á Sauðárkróki. „Ég efast hins vegar ekkert um, að landbúnaðarráðherra hefur séð þau gögn, sem nægja honum til að halda slíku fram. Annars snýst málið um það í dag, að ríkisvaldið velji sér samstarfsaðila í málinu. Það verður að gera það upp við sig, hvort það vill stýra upp á fram- leiðslu fyrir innanlandsmarkað, sem alfarið byggist á því að ryðja steinullinni braut í samkeppninni við glerull og plast, ellegar að keppa til viðbótar við innan- landsmarkaðinn við steinull á er- lendum markaði," sagði Þór Haga- lín. „Að okkar mati reynir í þessu máli á það, hvort menn vilja hugsa smátt eða stórt, og við telj- um ekkert nýtt hafa komið fram í þessu máli, sem rennir stoðum undir þessar fullyrðingar land- búnaðarráðherrans, öðru nær. Að okkar mati hefur reynslan undan- farna mánuði staðfest okkar fyrri áætlanir og við teljum það aukið öryggi fyrir verksmiðjuna, að keppa við steinull á erlendum markaði. Fyrir hliðstæðan fjárfest- ingarkostnað, þá afsala þeir sér möguleikanum á 12.500 tonna framleiðslu til viðbótar. Við skilj- um því ekki rökfærslur Sauðkræk- inga og reyndar er þetta bara gaspur í landbúnaðarráðherra, sem er einungis að tala til kjós- enda,“ sagði Þór Hagalín, sveitar- stjóri, að síðustu. 0' INNLENT Flugleiðir: Sækja um Glasgow-Kaup- mannahöfn á nýjan leik - British Airways hefur hætt flugi á þessari leið SIGURÐUR Helgason, forstjóri Flugleiða. hefur skrifað sam- gönguráðherra bréf, þar scm hann fer þess á leit, að ráðuneyt- ið hiutist til um að teknar verði upp viðræður milli íslenskra og breskra flugmálayfirvalda, um að Flugleiðir fái á nýjan leik Athugasemd frá landbún- aðarráðherra PALMI Jónsson landbúnaðar- ráðherra hafði samband við Mbl. í gær og óskaði eftir að birt yrði eftirfarandi athugasemd: „Fyrirsögn og undirfyrirsögn um Blönduvirkjun á baksíðu Morgunblaðsins í dag, þriðjudag- inn 29. september, eru ekki eftir mér hafðar og nokkuð villandi. Spurningu blaðamanns um hvort ákvörðun hefði verið tekin í ríkisstjórn um að Blönduvirkjun yrði næsta virkjun landsmanna svaraði ég neitandi og sagði engar ákvarðanir teknar enn þá. Tel ég túlkun blaðsins í áðurnefndum fyrirsögnum hafa verið sterkari en tilefni var til.“ Aths. ritstj.: Vegna athugasemdar landbún- aðarráðherra vill Morgunblaðið taka fram eftirfarandi: Fyrirsögn og undirfyrirsögn á frétt blaðsins um Blönduvirkjun í gær voru ekki innan gæsalappa og þar af leið- andi ekki hafðar beint eftir ráð- herranum. Hins vegar gáfu fyrir- sagnirnar efnislega til kynna, hvað eftir honum var haft og að dómi Morgunblaðsins gáfu þær rétta mynd af ummælum ráðherr- ans, sem birtust í sjálfri fréttinni enda ber hann ekki brigður á, að þau hafi verið rétt eftir höfð. áætlunarréttindi sín á flugleið- inni Glasgow-Kaupmannahöfn. Breska flugfélagið British Airways krafðist þess fyrir nokkr- um árum að fá þetta áætlunar- leyfi og Flugleiðir voru neyddar til að hætta flugi milli þessara staða. Það leið hins vegar ekki nema um ár frá því, að British Airways hóf flug þarna á milli, að þeir hættu því vegna lélegrar nýtni. Sveinn Sæmundsson, blaðafull- trúi Flugleiða, sagði í samtali við Mbl., að Flugleiðir hefðu allt frá árinu 1967 verið með þrjár ferðir í viku milli Glasgow og Kaup- mannahafnar og hefði það komið mjög vel út. Síðan var ferðum fækkað niður í tvær og loks niður í eina undir það síðasta. Sveinn Sæmundsson sagði ennfremur, að það hefði komið vel út fyrir Flugleiðir, að bæta far- þegum við í Glasgow á leið vél- anna til Kaupmannahafnar. Beint flug British Airways hefði hins vegar greinilega ekki gengið upp. V erkalýðsf élögin: Uppsagnir streyma inn Af 226 aðildarfélögum Al- þýðusambands íslands höfðu í gair meira en 100 þeirra sagt upp samningum frá og með 1 október nk. Þegar Morgunblaðið ræddi við Guðlaug Þorvaldsson ríkissátta- semjara síðdegis í gær sagði hann að 105—110 félög væru bú- in að segja upp samningunum. Kvað hann uppsagnarbréfin streyma inn og átti von á enn fleiri uppsögnum fyrir kvöldið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.