Morgunblaðið - 30.09.1981, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 30.09.1981, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1981 CONCORD nýjalínan frá IGNIS Ný sending Nýir litir Tveggja hurða skápar með djúpfrysti. Hæð 139 cm. Breidd 55 cm. Dýpt 60 cm. 0 Sérstaklega sparneytinn,' með polyurethane einangrun. Því meiri afgang í sparigrfsinn. © Möguleiki á vinstri eða hægri opnun á skápnum. © Þú skiptir um lit að vild. 0 Hljóðlátur, öruggur, stílhreinn. 0Breytanlegar hillustillingar (gott fernu- pláss). Verzlið við fagmenn. Viðgerðar- og varahl.þjón Smiðjuvegi 10 Kópavogi Sími: 76611 RAFIÐJAN H.F. Kirkjustræti 8 Sími: 19294 Nú er hagstætt að kaupa >• • ••• /•4k 11V|U K|OllO og nýta frystikistuna fullkomlega Um þessar mundir geturðu gert virkilega góð kaup í nýju og úrvalsgóðu lambakjöti í heilum eða niðursöguðum skrokkum. Vertu á undan verðhækkunum — kauptu gott kjöt á góðu verði og tryggðu þér um leið hagkvæma nýtingu frystikistunnar. Kjötframleiðendur Aðdragandi og morð Snorra Sturlusonar eftir Jóhann Hjálmarsson Handrit: Dr. Jónas Kristjánsson í samvinnu við Þráin Bertelsson — Þulur: Dr. Kristján Eldjárn — Tónlist: Karl J. SÍKhvatsson — Leikmynd: Snorri Sveinn Frið- riksson — Baldvin Björnsson — BúninKar: Snorri Svcinn Frið- riksson — Árný Guðmundsdóttir — Leikmunavarsla: Gunnlaugur Jónasson — Ásta Ólafsdóttir — Förðun: Ragna Fossberí? — Yfirsmiðir: Jón Sisurðsson — Guðmundur borkelsson — Síjí- valdi bór EKjjertsson — Grafik: Anna Th. Rögnvaldsdóttir — Að- stoð við framkvæmdastjórn: Auð- ur Eir Guðmundsdóttir — Að- stoð við upptökustjórn: Ásdís Thoroddsen — KlippinK: Rajfn- heiður Valdimarsdóttir — brá- inn Bertelsson — Hljóðmeistari: Oddur Gústafsson — Kvikmyndataka: Baldur Ilrafn- kell Jónsson — Framkvæmda- stjórn: Hel)?i Gestsson — Kvikm- yndastjórn: bráinn Bertelsson — Myndin cr framleidd af Ríkis- útvarpi-Sjónvarpi, Norsk Itiks- krinukastninK ojí Danmarks Radio. í upphafi síðari hluta myndar- innar um Snorra Sturluson ríður Sturla Sighvatsson um héruð vígalegur á svip með rauðar varir og þvingar menn til liðs við sig. Áhrifamikið er atriðið heima hjá Þorsteini bónda, sem verður að lúta Sturlu til að halda lífi, þótt Snorri sé honum hjartfólgnari. Ruddaskapur Sturlungaaldar er þar sýndur og víðar í myndinni kemur óbilgirni og morðfýsn ald- arinnar í ljós. Bardagaatriðin eru að vísu fremur daufgerð, enda ólíklegt að menn hafi barist af glæsileik á þessum tímum, sú leið valin að sýna lík og hálfdauða menn til að kalla fram óhugnað og grimmd. Mikið blóð flýtur, en lýsing Þráins Berteissonar kemst varla í hálfkvisti við það sem Sturla Þórðarson segir frá í Is- lendingasögu sinni. Síðari hluti myndarinnar snýst að vonum um aðdraganda og morð Snorra Sturlusonar í Reykholti aðfaranótt 23. sept- ember 1241. Enginn hasarbragur einkennir þetta morðatriði og efl- aust munu margir áhangendur nútímalegra glæpamynda hafa orðið fyrir vonbrigðum. I myndinni er lögð áhersla á að sýna hvílíkt fólskuverk morðið á Snorra var. Og ekki er gæfulegur hópurinn sem fer að honum. Snorri er myrtur í pólitísku skyni, það er verið að fara eftir skipunum Hákonar Noregskon- ungs, sem Snorri óhlýðnaðist forðum. Gizur Þorvaldsson verð- ur um leið fulltrúi hins erlenda valds. Stórveldi Snorra voru rit hans, gildi þeirra fyrir íslendinga og ekki síst Norðmenn eins og vikið er að í lokaorðum Kristjáns Eldjárns. En Gizur telur veiga- meira að verða við óskum Hákon- ar konungs en stuðla að því að Snorri riti fleiri bækur og geti helgað sig fræðistörfum í elli sinni. I umsögn um fyrri hluta mynd- arinnar var talað um leið frá- sagnar sem Þráinn Berteisson Hár ’81 á Hótel Sögu FIMMTUDAGINN 1. október næstkomandi verður haldin, af Sambandi hárgreiðslu- og hár- skerameistara, hársnyrtisýning að Hótel Sögu. Þar munu helstu meistarar inn- an sambandsins kynna það nýj- asta í hártískunni. Auk þeirra munu koma fram: Landsliðið í hárgreiðslu- og hár- skurði, en það mun taka þátt í Norðurlandamóti sem fram fer i Finnlandi í nóvember. Torfi Geirmundsson sýnir hártoppa. Dansparið Herborg og Aðalsteinn sýna rokk. Karon-sýningasamtök- in sýna það nýjasta í fatatískunni frá Victoríu og Herragarðinum. Stefánsblóm sér um að skreyta sviðið. Sýningar sem þessi hafa verið fastur liður í starfsemi sambands- ins undanfarin ár. Miðasala verður á eftirtöldum stöðum: Hárgr. Permu Iðnaðar- mannahúsinu, Hárgr. Guðrúnar, Hafnarfirði, Rakarast. Hótel Sögu, Papillu, Laugavegi 24. Sölumadur deyr á fjalirnar á ný Næstkomandi fimmtudag, 1. oktúber, hefjast á ný sýningar bjóðleikhússins á leikriti Arthurs Miller, Sölumaður deyr. Sölumaður deyr, fjallar um farandsalann Willy Loman sem tekinn er að reskjast, en á erfitt með að sætta sig við að lífi hans ljúki án þess að draumar hans nái að rætast. Gunnar Eyjólfs- son leikur sölumanninn, Margrét Guðmundsdóttir leikur eigin- konu hans, Hákon Waage og Andri Örn Clausen leika syni þeirra. í öðrum helstu hlutverk- um eru Róbert Arnfinnsson, Árni Tryggvason, Bryndís Pét- ursdóttir og Randver Þorláks- son. Leikstjóri er Þórhallur Sig- urðsson, leikmyndin er eftir Sig- urjón Jóhannsson, tónlistin er eftir Áskel Másson, en Jónas Kristjánsson þýddi leikinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.