Morgunblaðið - 30.09.1981, Page 13

Morgunblaðið - 30.09.1981, Page 13
__________13_ Amerísk blús- hljómsveit með tvenna tónleika hér MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1981 hefði valið. Því er ekki að neita að gallar þessarar aðferðar verða enn ljósari í síðari hlutanum, þrátt fyrir nokkur skýr og lifandi dæmi, listræns og sögulegs eðlis. Það er eins og frásagnarefnið verði of viðamikið í höndum stjórnandans og þannig of dreift, ekki nógu eftirminnilegt til að dugi sjónvarpskvikmynd til sig- urs. Betur hefði farið ef stjórn- andinn hefði takmarkað sig, gert fáum atriðum fyllri skil. Yfir því er líka kvartað með nokkrum rétti að það sé varla á færi ann- arra en fræðimanna að setja sig inn í þann heim sem lýst er, of margir komi við sögu, erfitt sé að átta sig á því sem fram er borið. Þetta var meira áberandi í fyrri hlutanum. Hér verður ekki reynt að sannfæra lesendur um að önnur leið hefði verið hentugri, en sú sem Þráinn Bertelsson kaus sér. Dæma verður myndina eftir því IIjalti Rögnvaldsson í hlutverki Gizurar Þorvaldssonar. hvernig hún er, en ekki því hvernig hún hefði getað orðið. Líklega er hér aðeins um byrjun að ræða í lýsingu Sturlungaaldar og eðlilegt að Islendingar sjálfir vilji fjalla um fortíð sína. I heild sinni er myndin þung- lamaleg og stirð. Leikur er góður á köflum, en misræmi mikið í túlkun leikendanna. Sumir eru eins og illa gerðir hlutir og skortir alla þá tilfinningu sem leikarar í sjónvarpskvikmynd þurfa að hafa. Aðrir gera sitt besta þótt sviðsleikur sé þeim greinilega tamari (samanber > Egill ólafsson í hlutverki Sturlu Sighvatssonar. Helga Skúlason og Margréti Helgu Jóhannsdóttur, sem bæði komast þó vel frá hlutverkum sínum). Sigurður Hallmarsson þótti mér vinna á í síðari hluta mynd- arinnar. Egill Ólafsson og Hjalti Rögnvaldsson voru einnig minn- isstæðir. Gunnar Eyjólfsson naut sín ágætlega í gervi Skúla her- toga Bárðarsonar. Um tæknimenn myndarinnar gildir hið sama og sagt var í fyrri umsögn. Þó var á köflum í síðari hlutunum lítt skiljanlegt muldur sem þurft hefði að bæta úr. DAGANA 1. og 2. októbcr mun Jazzvakning gangast fyrir tón- leikuni „The Mississippi Delta Blues Band" á Ilótel Borg og í Félagsstofnun stúdenta. Þetta verður í fyrsta skipti að blús- hljómsveit skipuð svörtum hljóð- fa'ralcikurum spilar á íslandi. The Mississippi Delta Blues Band er frá Jackson, Mississippi. Hljómsveitina skipa eftirtaldir hljóðfæraleikarar: Sam Myers, sem syngur og spilar á munn- hörpu, Big Bob Deance á gítar, Tony Calica á trommur, Craig Horton syngur og spilar á gítar og Calvin Mikel á bassa. Af þessum mönnum er Sam M.vers þekktast- ur meðal blúsáhugamanna. Tónleikar hljómsveitarinnar hér eru upphafstónleikar í Evr- ópuferð hennar. Tónleikarnir fimmtudaginn 1. október verða að Hótel Borg en tónleikarnir föstudaginn 2. októ- ber verða í NEFS-klúbbnum í Fé- iagsstofnun stúdenta. Tæple^a 6 þúsund í mótmælasvelti á Spáni Madrid. 20. septemher. AI*. UM HELGINA fóru fangar í Modelo-fangelsinu í Barcelona í mótmælasvelti. Þeir krefjast „mannúðlegri aðbúnaðar". Mótmælasveltið hefur nú bor- ist til 22 annarra fangelsa og að sögn heimilda, þá eru nú rétt tæplega 6 þúsund fangar í mótmælasvelti, eða 25% fanga í landinu. Manuela Wiesler leikur á Höfn KARLAKÓRINN Jökull í Austur-Skaftafellssýslu gengst fyrir tónleikum með Manuelu Wiesler, flautuleikara, fimmtudaginn þ. 1. október nk. Undirleikari hennar á flygil verður Þorkell Sigurbjörnsson. Á efnisskránni eru verk eftir Mozart, Chopin, F. Doppler, B. Godard, Þorkel Sigurbjörnsson og F. Borne. Tónleikarnir verða í Hafnarkirkju, Höfn í Hornafirði, og hefjast kl. 21.00. nýtt oe betra braeð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.