Morgunblaðið - 30.09.1981, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1981
Fimleikar Leikfimi Fimleikar
Stúlkur mánud. og fimmtud. kl. 4.20 og 5.10.
Stúlkur þriöjud. og föstud. kl. 5.10.
Stúlkur trampólin þriöjud. og föstud. kl. 5.10.
Drengir þriöjud. og föstud. kl. 4.20 og 5.10.
Drengir trampólin þriöjud. og fimmtud. kl. 6.00.
Einn þjálfari á hverja 10 nemendur.
Æft í Ármannsheimilinu viö Sigtún, sími 38140.
Kvennaleikfimi mánud. og fimmtud. kl. 7.40.
„Old boys“ mánud. og fimmtud. kl. 6.50.
Æft í Breiðagerðisskóla. Innritun í tímunum.
Fimleikadeiid Ármanns.
Framkvæmdir nú
hafnar við Alta
Frá Jan Krik Laure. fróttaritara Mhl. i Osló. 29. septemher.
ORKUMÁLARÁÐUNEYTIÐ í N«re>{i hefur (tefið grænt ljós á hynKÍnKu
veKar til fyrirhuKaðs orkuvers í Alta í N-NoreKÍ- Tæki til veKalaKninKar-
innar hafa þeKar verið flutt til svæðisins ok hafist hefur verið handa um
verkið. bessi ákvörðun ráðuneytisins kom mjöK á óvart ok enKÍr mótmæl-
endur eru nú á svseðinu.
I>eir hjuKKUst við að framkvæmdir ha'fust siðar i vikunni ok er talað um,
að þeir hafi verið teknir í rúminu. Andsta“ðinKar raforkuversins í Alta
hafa hvatt fólk til að halda þegar í stað til hinna umdeildu svæða <>k freista
þess að stöðva framkvæmdir.
Andstæðingar Alta-raforkuvers-
ins halda því fram, að stjórnvöld
hafi ekki hreinan skjöld í þessu máli,
þar sem búist er við að Hæstiréttur
kveði úrskurð sinn um lagalegan rétt
til byggingar raforkuversins í lok
október. Undirréttur hefur þegar úr-
skurðaö að bygging raforkuversins
sé í samræmi við landslög en máls-
meðferð hefur verið harðlega gagn-
rýnd. Búist er við að Hæstiréttur
muni úrskurða að bygging raforku-
versins sé í samræmi við landslög.
Norska ríkisstjórnin heldur því
fram, að í öllu sé farið að lögum og
bendir á, að Stórþingið hafi oftar en
einu sinni samþykkt byggingu raf-
orkuversins í Alta.
Framkvæmdir hafa legið niðri um
nokkurra mánaða skeið svo frekari
rannsóknir á svæðinu gætu farið
fram. Andstæðingar raforkuversins
eru nú á leið til Alta og einnig öflugt
lögreglulið. Búist er við að í odda
skerist, því mótmælendur hyggjast
stöðva framkvæmdir með öllum ráð-
um. Þeir hafa í hyggju að setjast
niður þar sem vegalagning fer fram
og hreifa sig hvergi en jafnan snúa
aftur verði þeir fjarlægðir.
Enn hrakar
Kekkonen
llclsinki. 29. scptomhor. Al*.
IIKILSU Uhro Kekkonen, forseta
Finnlands, hefur farið hægt hrak-
andi síðustu daga, að því er læknar
hans skýrðu frá í dag. Forsetinn
þjáist af minnisleysi og hugsun
hans er óskýr. Hann þjáist af hæg-
fara heilablæðingu. Kekkonen er 81
árs gamall. Þann 11. september síð-
astliðinn fyrirskipuðu læknar hans
mánaðar veikindafri.
•H KOMATSU
Að nýta betur lagerhúsnæði er að spara peninga.
Komatsu FBR raflyftarinn getur athafnað sig
á mjórri göngum en venjulegir lyftarar.
Þetta þýðir í reynd allt að 30% betri nýtingu á
lagerrými vegna mjórri ganga.
VERÐ AÐEINS KR. 118.700 (GENGISSKR. 23/9)
Við veitum sérfræðiaðstoð við val á lyfturum.
Aukin hagræðing og minni KOMATSU á íslandi
tilkostnaður með KOMATSU BÍLABORG III7
Véladeild Smiöshöföa 23. Sími: 81299