Morgunblaðið - 30.09.1981, Page 16

Morgunblaðið - 30.09.1981, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1981 fttargptn Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 85 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 5 kr. eintaklö. Verðbólgan og talnaleikur Lárus Jónsson, alþm. ritaði athyglisverða grein í Morgun- blaðið sl. sunnudag, þar sem hann færir rök að því, að árangur ríkisstjórnarinnar í baráttu við verðbólguna sé alls ekki sá, sem talsmenn stjórnarinnar vilja vera láta. í upp- hafi þessarar greinar segir Lárus Jónsson m.a.: „Kaldur veruleikinn er sá, að verðbólgan er ekki minni síðari hluta þessa árs en hún var, þegar ríkisstjórnin tók við. Hækkun vísitölu framfærslukostnaðar er nú 9% eftir hverja 3 mánuði, eins og í febrúar 1980. Síðustu 12 mánuði hinn 1. nóv. nk. er hækkunin skv. rauntölum og spá Þjóðhagsstofn- unar 46,6%, en á sama tímabili árið áður 50,8%. Þannig má færa töluleg rök á pappírum fyrir örlitlum slaka í verðhækk- unum frá því í fyrra í kjölfar 7% kaupskerðingar 1. mars, ef borin eru saman 12 mánaða tímabil á sambærilegum grunni." Lárus Jónsson segir, að núverandi ríkisstjórn hafi reynt ýmsar nýjar aðferðir til þess að villa fólki sýn í verð- bólgubaráttunni. Hann segir: „Hún leyfði gífurlegar hækk- anir á öllum vísitöluvörum og þjónustu í nóvember og des- ember í fyrra. Auk þess tilkynnti hún á gamlársdag, að eigin frumkvæði, sérstaka 10% hækkun opinberrar þjónustu. Þessar hækkanir voru allar reiknaðar á almanaksárið 1980. Þetta varð til þess að á fyrsta „niðurtalningarári" verðbólg- unnar náðist nýtt íslandsmet á friðartímum, 60% verðbólga, ef reiknað er frá ársbyrjun til ársloka. Svo sannarlega var hleypt út úr verðbólgugáttinni þennan sögulega gamlársdag. Á árinu 1981 er svo byrjað að reikna á nýjan leik. Þá eru lokurnar aftur settar fyrir stífluna, skollaleikurinn að vísi- tölunni magnaður í slíkan algleyming, að allir atvinnuveg- irnir eru komnir í greiðsluþrot, svo jafnvel Samband ísl. samvinnufélaga sendir frá sér neyðaróp, en vísitalan frá áramótum verður laglegri á pappírnum og þar við situr." Þegar þingmaður hefur í grein sinni gert grein fyrir vinnu- brögðum ríkisstjórnarinnar með þessum hætti segir hann: „Með slíkum reikningskúnstum er samanburður á skolla- blindri vísitölu almanaksárið 1981 við íslandsmet „niður- talningarinnar" 1980 gerður hagstæður fyrir ríkisstjórnina í blekkingaráróðri, en hann er marklaus. Hér er að sjálfsögðu um ósambærilegar tölur að ræða.“ Lárus Jónsson sýnir- síðan fram á með samanburði á milli áranna 1980 og 1981, að verðbólgan er nánast sú sama á þessu ári og hinu síðasta. Á margan hátt hefur verðbólgubaráttan í pólitískum um- ræðum hér verið talnaleikur. Þótt ríkisstjórnin geti sýnt fram á, að verðbólgan frá upphafi til loka ársins verði lægri en verðbógan á síðasta ári sýna tölur þær sem Lárus Jónsson gerir grein fyrir, að í raun og veru hefur enginn umtalsverð- ur árangur náðst, það er einungis þessi eina tala, sem ríkis- stjórnin getur notað í málflutningi sínum. Aðrar tölur svo og röksemdafærsla Lárusar Jónssonar sýna, að við hjökkum enn í sama farinu í verðbólgumálum. Það er líka sá raun- veruleiki, sem hver einasti launþegi finnur frá degi til dags, þegar fólk þarf að láta enda ná saman. I umræðum manna á milli heyrist oft sú rödd, að það sé erfit að skilja hvar þessi minnkandi verðbólga sé, sem ríkisstjórnin talar um, af þeirri einföldu ástæðu, að verðlag hækki stöðugt og lífskjörin rýrni. Á þessu ári hafa skilyrði verið óvenju góð til þess að ná árangri í baráttu við verðbólguna. Dollarinn hefur hækk- að stöðugt, sem þýðir meiri tekjur fyrir fiskinn. Evrópu- gjaldmiðlar eru veikari, sem þýðir hagstæðara innflutnings- verð. Olían hefur fremur lækkað en hækkað. Þrátt fyrir þetta blasir við sú mynd, sem Lárus Jónsson dregur upp í umræddri grein. Til lengdar verður ekki komizt fram hjá þeim veruleika með blekkingum og talnaleik. „Hverjir hafa skap- að þessa fjármuni Sjávarafurðadeildar? Eru það ekki við- skiptaaðilarnir, sem hafa skipt við Sjávar- afurðadeildina lengri eða skemmri tíma? Eru það ekki hrað- frystihúsin og fisk- vinnslustöðvarnar innan Sambands ís- lenskra samvinnufé- laga, sem hafa mynd- að þetta f jármagn? Ilverjum er nær að fá aftur úthlutað en þessum sömu frysti- húsum og vinnslu- stöðvum, þegar þau eru nú í miklum erfið- leikum?“ Undanfarnar vikur hafa orðið nokkur blaðaskrif í sambandi við kaup Sambands íslenskra sam- vinnufélaga á hlutabréfum í Matthías Bjarnason lenskra samvinnufélaga, sem hafa myndað þetta fjármagn? Hverjum er nær að fá aftur út- hlutað en þessum sömu frysti- húsum og vinnslustöðvum, þegar þau eru nú í miklum erfiðleik- um? Og nú vil ég leyfa mér að spyrja forstjóra Sambands ís- lenskra samvinnufélaga, Erlend Einarsson, um þessi atriði. Hann er maður sem hefur talið, að málefni Sambandsins eigi að vera til umræðu á opinberum vettvangi. Hann er málefnalegur maður, sem vill ræða málefni og störf síns fyrirtækis á opinberum vettvangi. Því spyr ég hann: Tel- ur hann eðlilegra að því fjár- magni, sem Sjávarafurðadeildin hefur komist yfir af afrakstri hraðfrystihúsa og vinnslustöðva, sem skipt hafa við Sjávarafurða- deildina, verði varið til kaupa á nýjum frystihúsum og ganga framhjá því að styrkja fyrirtæk- in innan Sambandsins sem eiga nú mörg hver í miklum fjárhags- erfiðleikum? Við borð liggur að sum þeirra stöðvi rekstur sinn á næstu dögum eða vikum. Ég vil nefna aðeins eitt dæmi. Hrað- frystihús Keflavíkur hf. hefur verið í viðskiptum við Sjávar- afurðadeild Sambandsins frá því að sambandsmenn hófu þann Nokkrar spurningar til Erlends Einarssonar, forstjóra SÍS fiskiðjunni Freyju á Suðureyri. Það er ekki óeðlilegt að slíkt mál sé fréttaefni blaða og annarra fjölmiðla og umræðuefni manna á milli. Þessi kaup sýna nokkuð þá stöðu, sem fiskvinnsla nú er í og hvernig að henni hefur verið búið. Margir forustumenn einka- rekstrar í sjávarútvegi kvarta nú sáran yfir hvernig að atvinnu- greininni er búið af hendi stjórn- valda. En sárast af öllu hlýtur að vera, að stjórnvöld skella skolla- eyrum við öllum erfiðleikum, og meira að segja sjálfur sjávarút- vegsráðherrann hefur í flimting- um stöðu fiskvinnslunnar í land- inu og segir, að það sé vani að vera alltaf að kvarta og kveina. Erfiðleikar fiskvinnslunnar og sérstaklega frystingarinnar eru þeir að hækkun framleiðslu- kostnaðar innanlands er meiri en breytingar á söluverði útflutn- ingsvörunnar á erlendum mörk- uðum. Þetta iiggur í raun og veru ákaflega Ijóst fyrir, og þarf eng- an að undra, sem eitthvað setur sig inn í þessi mál, að hagur og staða fiskvinnslunnar, og þá sér í lagi frystihúsanna, er með þeim hætti, að menn geta ekki haldið áfram þessum rekstri við óbreyttar aðstæður. Menn spyrja því: Hvernig fer Samband íslenskra samvinnufé- laga að því að færa út kvíarnar á sama tíma og einkareksturinn er að gefast upp? Eru fyrirtæki inn- an Sambands íslenskra samvinnufélaga betur rekin en þau fyrirtæki, sem eru innan Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna? Ég held að svarið við þessu sé neitandi. Ég hygg, að fyrirtækin innan veggja þessara samtaka séu eins og jafnan áður misjafnlega vel rekin og mis- jafnlega í stakk búin að mæta erfiðleikum, en að fyrirtæki inn- an annarra þessara sölusamtaka séu betur stödd en í hinu, tel ég að sé ekki fyrir hendi. I Sambandsfréttum, sem komu út 9. september sl., er vitnað í blaðamannafund, sem haldinn var með framkvæmdastjórunum Arna Benediktssyni og Kjartani P. Kjartanssyni þar sem þeir voru spurðir að því, hvort það skyti ekki skökku við, að Sam- - eftir Matthías Bjarnason, alþm. bandið væri að leggja fé í þessi kaup á Suðureyri á sama tíma og farið hefði verið fram á aðstoð ríkisins við rekstrarerfiðleika Iðnaðardeildar. Þeir svöruðu því til, að hér væri um alls óskyld mál að ræða, annars vegar væru á ferðinni hugmyndir um að nýta fé í höndum sjávarafurðadeildar til að tryggja atvinnu á annað hundrað manns í fiskvinnslu á Suðureyri og hins vegar væri verið að fara fram á, að hið opinbera skapaði iðnrekstrinum í landinu eðlilegan rekstrar- grundvöll. Ég er sammála þessum mönn- um um það, að eðlilegur rekstr- argrundvöllur fyrir iðnrekstur- inn í landinu er ekki fyrir hendi og það er vegna þess, að núver- andi ríkisstjórn hefur ekki skilið, eða réttara sagt ekki viljað skilja, að iðnreksturinn þurfi eðlilegan rekstrargrundvöll. Sama er að segja um eðlilegan rekstrargrundvöll fyrir sjávar- útveginn, og þá alveg sérstaklega fyrir frystiiðnaðinn í landinu. — Én hvers vegna þurfti Sjávar- afurðadeild Sambandsins að tr.Vggja atvinnu á annað hundrað manns í fiskvinnslu á Suðureyri? Hafði fyrirtækið ekki séð vel fyrir atvinnu á þessum stað? Hafði þetta fyrirtæki ekki greitt skilvíslega verkafólki á staðnum og sjómönnum sín laun, sem og öllum öðrum? Ég held að það sé ástæðulaust fyrir þessa fram- kvæmdastjóra Sambandsins að hnýta á þennan hátt í þetta fyrirtæki. Þá er það hitt atriðið sem þeir segja, að hér væru á ferðinni hugmyndir um að nýta fé í hönd- um Sjávarafurðadeildar. Er það eðlilegt að nýta þessa fjármuni til þess að færa út kvíarnar og kaupa ný fyrirtæki? Hverjir hafa skapað þessa fjármuni Sjávaraf- urðadeildar? Éru það ekki við- skiptaaðilarnir, sem hafa skipt við Sjávarafurðadeildina lengri eða skemmri tíma? Eru það ekki hraðfrystihúsin og fiskvinnslu- stöðvarnar innan Sambands ís- rekstur og má búast við rekstr- arstöðvun hjá þeim hvenær sein er ef ekkert er að gert. Hefði ekki verið eðlilegra að styrkja stöðu þessa fyrirtækis, sem og annarra innan Sambandsins sjálfs, sem nú eiga í erfiðleikum? Telur for- stjóri Sambands íslenskra sam- vinnufélaga að rekstrargrund- völlur hraðfrystiiðnaðarins í landinu sé með þeim hætti, að þeir sem við þessa atvinnugrein vinna geti vel við unað? Er hann sammála sjávarútvegsráðherra, sem jafnframt er formaður Framsóknarflokksins, um það, að hér sé bara um ástæðulausan barlóm að ræða, eins og hann hefur látið eftir sér hafa við fjöl- miðla að undanförnu, þegar fréttamenn hafa náð sambandi við hann, þegar hann hefur drep- ið niður fæti á fósturjörðina á tíðum ferðalögum til margra landa á tiltölulega skömmum tíma? Getur forstjóri Sambands íslenskra samvinnufélaga, Er- lendur Einarsson, ekki verið mér sammála um það, að það sé hörmulega búið að rekstrar- grundvelli sjávarútvegsins á Is- landi nú þessa mánuði? Getur forstjóri Sambands ís- lenskra samvinnufélaga, Erlend- ur Einarsson, ekki einnig verið mér sammála um það, að það sé hörmulega búið að iðnrekstrin- um í landinu? Getur forstjóri Sambands íslenskra samvinnufé- laga, Erlendur Einarsson, ekki einnig verið mér sammála um það, að hér þurfi að breyta um stefnu? Ríkisstjórnin og þeir ráðherrar, sem í henni sitja, eru svo uppteknir af því að hæla sjálfum sér fyrir það, að þeim hafi tekist að draga úr hraða verðbólgunnar í þessu landi með því að færa vandann yfir til at- vinnuveganna og svelta fram- leiðslufyrirtækin á þann veg, að nú er stefnt í hættu atvinnu þús- unda Islendinga. Ríkisstjórnin vill ekki játa staðreyndum, að hún hefur ekki skapað höfuðat- vinnuvegum þjóðarinnar rekstr- argrundvöll, en ráðherrarnir sitja þó áfram í stólum sínum.- Mér þætti vænt um það, að Erlendur Einarsson léti frá sér fara svar sem allra fyrst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.