Morgunblaðið - 30.09.1981, Side 29

Morgunblaðið - 30.09.1981, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1981 29 Stálvaskar og blöndunartæki ARABIA HREINLÆTISTÆKI BAÐVÖRURNAR FRÁ BAÐSTOFUNNl J&aðstofJFI ÁRMÖLA 23 - SlMI 31810 Nýju gíró- seðlarnir hrein afturför - ekki unnt að nota þá sem skuldfærslubeiðni 6535-3849 skrifar: „í nokkur ár hafa verið hér í notkun nýir gíróseðlar og er m.a. prentaður á þá reitur fyrir skuldfærslubeiðni, — en samt neita bankarnir, a.m.k. flestir þeirra, að taka við slík- um greiðslum, og verðum við því að greiða með reiðufé eða ávísun í staðinn. Sama gildir um skuld- færslubeiðni á bakhlið út- sendra gíróseðla/reikninga frá rafmagnsveitunum, Pósti og síma og Ríkisútvarpinu. Gjaldkerar bankanna neita að taka „svuntur" þeirra sem skuldfærslubeiðni á banka- reikninga okkar. Með hvaða rökum lögðu bankarnir niður gamla gíró- kerfið, sem var mjög hentugt fyrir eigendur bankareikn- inga? Nú skiljum við hvorki upp né niður í þessu, fyrst áprentuðum tilþoðum um þjónustu er alfarið hafnað. Hvað segir samstarfsnefnd bankanna um slík vinnu- brögð? Hefur láðst að fræða bankamenn um gírókerfið? Eða voru ekki réttir aðilar hafðir með í ráðum, þegar nýja kerfið var skipulagt? Ef ég ætti fyrirtæki mundi ég ekki kaupa gíróseðla og senda út með reikningunum, fyrst greiðandnn þarf hvort sem er að kaupa ávísanir til að greiða með. Þetta er tvíverknaður og kostnaðarauki, sem gerir bankakerfið aðeins hlægilegt í augum almennings. Með þökk fyrir birtinguna." eislega orðaða umsókn með umbeðnum upplýsingum, ásamt nafni, heimilisfangi og símanúmeri, að hann teljist ekki hæfur í starfið sem augl- ýst hefur verið. I aðeins ör- fáum auglýsingum hef ég séð tilkynnt, að öllum umsóknum verði svarað. Mér finnst það bæði tillits- leysi og ókurteisi að halda manni volgum og bíðandi eft- ir svari sem aldrei kemur. Stundum er auglýst eftir starfskrafti fyrir vissan mán- aðardag, mánaðamót eða „strax" og fái ég ekki svar samkvæmt þeim tímatak- mörkunum, þá get ég farið að huga að nýrri auglýsingu. En oft hef ég sleppt því og bara beðið og vonast eftir jákvæðu svari við seinustu umsókn. Það væri nú líka hálfergilegt að fá kannski 3—4 jákvæð svör við jafn- mörgum umsóknum sama daginn. Ég er ábyggilega ekki eina manneskjan sem hef þessa sögu að segja. Atvinnurekendur, breytið þessu. Svarið okkur líka, þess- um sem þið teljið ekki þæf í störfin. Það er bæði ágætis póst- og símaþjónusta á ís- landi í dag. Virðingarfyllst." Hvar var biskupsfrúin? L.P. hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: — Við lestur Morg- unblaðsins, Vísis og Dagblaðsins, þar sem fjöldi mynda var birtur í tilefni af hátíðarathöfn vegna embættistöku herra Péturs Sigur- geirssonar, hins nýja biskups Is- lands, varð ég fyrir miklum von- brigðum að sjá hvergi minnst á biskupsfrúna, frú Sólveigu As- geirsdóttur. Frú Sólveig er yfir- lætislaus og mjög glæsileg kona, ekki hvað síst á þessum hátíðis- degi þar sem hún skartaði hátíð- arbúningi þjóðarinnar, skautbún- ingnum. Mér finnst þetta mjög óviðeigandi í garð biskupshjón- anna og klaufalega að verki staðið. Öryggisbelti en ekki bílbelti Skúli Sigurðsson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Eg hlustaði á útvarpsþáttinn Um daginn og veginn nú í vikunni og fannst margt ágætt um erindið sem fjallaði m.a. um umferðar- mál. En ekki líkaði mér að höf- undurinn talaði til skiptis um bílbelti og öryggisbelti. Þegar fólk tekur sér far með flugvélum, ám- innir flugfreyjan það um að spenna öryggisbeltin, ekki flugvél- arbeltin, enda hugsunin með belt- unum að auka öryggi farþeganna. Ekki kannast ég við að aðrar þjóð- ir geri greinarmun á hvort örygg- isbelti eru í flugvélum eða bílum, sbr. safetybelts, sikkerhedsbelt o.s.frv. Ég skil ekki þetta rugl um bílbelti. Eru það ekki einhvers konar belti á bílinn, svona eins og snjóbílar nota og önnur torfæru- tröll? Nei, þarna er það spurning um öryggi og ekki annað og því skulum við halda okkur við þetta ágæta orð öryggisbelti. Átti hjólið í f jóra daga íbúi við Skálagerði hringdi og sagði: — Tíu ára gömul dóttir mín eignaðist hjól um miðjan mánuð- Þessir hringdu . . . inn, nýtt Eska-hjól, rautt að lit. Um kl. hálfellefu 18. þ.m. gekk hún frá því í hjólageymslunni hérna í Skálagerði 7, en þegar hún ætlaði að vitja þess morguninn eftir var það horfið. Hún fékk að- eins að eiga hjólið sitt í fjóra daga. Það er frekar slæm reynsla fyrir börn að verða fyrir svona athæfi. Væri það til of mikils mælst að sá sem tók hjólið traustataki skili því aftur hingað heim eða láti vita af því hvar það er að finna? Við eig- um heima á annarri hæð til hægri. SIG6A V/öGA £ 1/LVE&4N Orósending frá Bifreiðum & Land búnaðarvélum hf. Þessir menn fara þjónustuferð um Austuland fyrri hluta októbermánaðar 1981. Anton Olason — deildarstjóri Juri Churbanov — bifreiöatæknifræðingur frá LADA verksmiðjunum og Trausti Pálsson — bifvélavirkjameistari. Komið veröur við á eftirtöldum stöðum: Kópaskeri, Raufarhöfn, Þórshöfn, Bakkafiröi, Vopna- firði, Egilsstöðum, Neskaupstað, Eskifirði, Reyðar- firði, Fáskrúðsfirði, Stöðvarfiröi, Breiðdalsvík, Djúpa- vogi og Höfn, Hornafirði. Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hf. Sadurlinétbrant II • flrjbjatib • SIbú ; Sýning á skrifstofutækjum framtíðarinnar verður haldin í Kristalssal Hótels Loftleiða dagana 2.—4. október kl. 14—20 dag hvern. A sýningunni verður sýndur skrifstofubúnaður, sem ætla má að verði almennt notaður á skrifstofum i framtíðinni, svo sem ritvinnslutæki, myndsenditæki, tölvupóstur, rafeindaritvélar og fleiri tæki sem ekki hafa áöur veriö sýnd hérlendis. Eftirtalin fyrirtæki munu sýna á sýningunni: Aco hf. Einar J. Skúlason Gísli J. Johnsen Hagtala Heimilislæki IBM á íslandi Míkrómiöill Radíóslofan Rafrás Raunvisindastotnun Háskóla íslands S. Árnason & Co. Sameind Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurborgar Tölvubúóin Mikrótölvan Þór hf. Póslur og simi Órtölvutæki Stjórnendum og starfsmönnum tyrirtækja eru hvattir til aö nýta sér þetta einstaka tækifæri til að kynna sér þær nýjungar og breytingar á skrifstofutækni sem framundan eru. SKÝRSLUTÆKNIFÉLAG ÍSLANDS STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS trl XWO A9 \1ÉK/W<dúy\ \fEtfy mvlWlAH^ SL/l-VÍAtí '\mM, S/66A \ VI664- \^I9N/ V//VN\ MAWPf) >1 Vtm BH 'W, cbl66A Vlí/n fcviAúrvW vVÍ/MN'bT W VAir*

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.