Morgunblaðið - 05.12.1981, Side 1
48SÍÐUR OGLESBÓK
267. tbl. 68. árg.
LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981
Prcntsmiðja Morgunblaðsins.
Haig vitnar til
Rkr-sáttmálans
('afllries, St. Lucia, 4. desember. Al*.
ALEXANDER HAIG, utanríkisrád-
herra Bandaríkjanna, iýsti því yfir í
dag að Kandaríkin væru reiðubúin að
taka þátt í því með öðrum að „gera
það sem er nauðsynlegt til að koma í
veg fvrir að nokkurt land í Mið-
Ameríku verði stökkpallur hermdar
verka og ófriðar í heimshlutanum".
Hann vitnaði í Rio-varnarsátt-
mála Ameríkuríkja frá 1947 og
sagði á þingi Samtaka Ameríku-
ríkja (OAS) að það ætti að ræða
hvernig koma ætti í veg fyrir inn-
flutning þungra árásarvopna til
Mið-Ameríku. Hann tók fram að
hann ætti við ásakanir Reagan-
stjórnarinnar um að Kúba og Nicar-
agua eigi að miklu leyti sökina á
ólgunni í Mið-Ameríku.
Háttsettur embættismaður sagði
að það væri ekki ætlun Haigs nú að
biðja þing OAS að beita Rio-sátt-
málanum, sem segir að árás á eitt
Ameríkuríki verði skoðuð sem árás
á þá öll — hann hefði vitnað í anda
en ekki bókstaf sáttmálans — en
ummæli hans væru fyrsta skrefið í
þá átt.
Diplómatar segja að ræða Haigs
hafi verið endurskoðuð í ljósi heitra
umræðna hans og utanríkisráðherra
Nicaragua, Miguel D’Escoto
Brockmans, sem Haig kvað ekki
hafa viljað lofa því að Nicaragua-
stjórn hætti íhlutun í E1 Salvador.
Sakharov-hjónin
flutt í sjúkrahús
Moskvu, 4. desember. AP.
SOVÉSK yfirvöld fluttu Andrei Sakh-
arov nóbelsverðlaunahafa og konu
hans Yelena Bonner á sjúkrahús í dag
samkvæmt frétt í Izvestia, málgagni
stjórnarinnar. I»au hafa verið í hungur
verkfalli síðan 22. nóvember. Blaðið
sagði að hjónin hefðu verið flutt á
sjúkrahúsið til að koma í veg fyrir
„erfiðleika í sambandi við heilsu
þeirra". Sakharov er hjartveikur og
sagði í skeyti sem hann sendi til
Moskvu í síðustu viku að heilsu hans
hefði hrakað síðan sveltið hófst.
Hjónin eru í hungurverkfalli til
að mótmæla ákvörðun stjórnvalda
að neita tengdadóttur þeirra, Lizu
Alexeyeva, um brottfararleyfi frá
Sovétríkjunum. „Þeir hljóta að
mata þau gegn vilja þeirra," sagði
Alexeyeva sem býr í Moskvu. „Það
getur verið stórhættulegt og ég
óttast um líf þeirra." Hún sagðist
ætla að reyná að komast til Gorky
þar sem Sakharov hefur verið í út-
legð síðan í jánúar 1980.
Vinum fjölskyldunnar hefur
tvisvar verið neitað um leyfi til að
heimsækja Gorky í þessari viku.
Izvestia tiltók hvorki hvenær Sakh-
arov hjónin voru lögð inn á sjúkra-
hús né undir hvaða meðferð þau eru
þar. Ekkert hefur heyrst frá hjón-
unum síðan á þriðjudag en þá fékk
Alexeyeva skeyti frá þeim.
Kurt Waldheim framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna
eftir að hann dró nafn sitt til baka úr framboði til fram-
kvæmdastjóra fyrir næsta kjörtímabil sem hefst 1. janúar.
Ekki er fullljóst hvort Waldheim hefur endanlega tekið
ákvörðun um að sækjast ekki eftir embættinu í þriðja
sinn en hann er fyrsti framkvæmdastjóri stofnunarinnar
sem hefur gert það. Jeane Kirkpatrick sendiherra Banda-
rikjanna hjá Sameinuðu þjóðunum kemur á hæla Wald-
heims á myndinni. Al’ símamynd.
Danir fordæma
fangelsun Ecevits
Kaupmannahnfn, 4. desember. AP.
DANSKA ríkisstjórnin fordæmdi í dag fangelsun Ecev-
its fyrrum forsætisráðherra Tyrklands og sagði vest-
ræn ríki beinlínis tilneydd til að hætta efnahagsaðstoð
við herforingjastjórnina í landinu.
I tilkynningu danskra yfirvalda sagði að fangels-
unin væri gerð þrátt fyrir mikla andúð og mótmæli
um heim allan, og bæri hún vott um aukna harðýðgi
af hálfu yfirvalda í Tyrklandi.
Framkvæmdastjórn Efnahagsbandalagsins lýsti í
dag yfir áhyggjum sínum af fangelsun Ecevits og
tilkynnti að ekki yrði hvikað frá fyrri ákvörðun um
að fresta ófyrirsjáanlega fyrirhugaðri efnahags-
aðstoð við Tyrkland.
n
Bulent Ecevit með konu sinni Kahaan skömmu áður en
hann yfirgaf heimili sitt og var fluttur í fjögurra mánaða
fangeísi í Ankara fyrir að gagnrýna herstjórnina í Tyrk-
landi.
Samstaða setur pólsku
stjórninni úrslitakosti
Varsjá, 4. desember. AP.
„HÆTTA á blóðsúthellingum hefur
aukist og hinn þögli meirihluti bíður
eftir áhrifaríkum aðgerðum pólskra
stjórnvalda til að koma aftur á lög-
um og reglu í landinu,” var haft eftir
Tadeusz Grabski, háttsettum harð-
línumanni í pólska kommúnista-
flokknum í viðtali í dag. „Við vitum
að vandinn er ekki leystur, að erftð-
leikarnir hafa margfaldast og hætt-
an sem steðjar að þjóðinni, þar á
meðal á blóðsúthellingum, hefur
ekki minnkað heldur aukist,” sagði
Grabski.
Heilsíðuviðtalið við Grabski er
birt á sama tíma og samband
Samstöðu og stjórnvalda hefur
versnað til muna. Samstaða hót-
aði á fimmtudag að fara í allsherj-
arverkfall ef stjórnvöld reyndu að
banna verkföll eftir að lögreglulið
réðst inn í skóla brunavarnar-
manna í Varsjá á miðvikudags-
Umfangsmikil starfsemi KGB í Noregi:
Fjórum sendiráðsmönn-
um vísað af landi brott
OnIó, 4. des4‘mber, frá Jan Erik Uurc, fréttaritara Mbl.
Nll ERIJ ÞEIR orðnir fjórir, diplómatarnir við sovézka sendiráðið í
Osló, sem norska leynilögreglan vill að vísað verði úr landi fyrir
njósnir í Noregi, en samkvæmt norskum fjölmiðlum virðist einn af
æðstu mönnum sendiráðsins, Leonid Markov, hafa stjórnað starf-
semi KGB í Noregi.
Það var í síðustu viku að blaðið
Verdens Gang gerði njósna-
hneykslið opinbert, en þá sagði
blaðið frá því að Stanislav Tsjebot-
ok fyrsti sendiráðsritari og starfs-
maður sovézku verzlunarskrifstof-
unnar í Osló hefðu orðið uppvísir
að njósnum og hefði leynilögreglan
krafist þess að þeim yrði vísað úr
landi. Tsjebotok mun m.a. hafa
orðið uppvís að því að hafa boðið
norskum ríkisborgurum þóknun
fyrir að skrifa lesendabréf til
norskra blaða. í lesendabréfunum
átti að setja fram ákveðnar full-
yrðingar er vörðuðu kjarnorku-
laust svæði-á Norðurlöndum.
Fyrst eftir að málið kom upp var
því m.a. haldið fram, að hér væri
um samsæri leynilögreglunnar og
nokkurra blaða að ræða er ætlað
væri að koma höggi á norsku frið-
arhreyfinguna. Opinberir embætt-
ismenn þvertóku einnig fyrir að
eitthvað væri hæft í orðróminum
um meiriháttar njósnahneyksli.
Norska sjónvarpið skýrði hins
vegar frá því í gærkvöldi, að
njósnamálið væri miklu um-
fangsmeira en látið var í veðri
vaka í fyrstu, og að ákveðið hefði
verið að vísa fjórum sovézkum
diplómötum úr landi vegna máls-
ins.
Verdens Gang segir frá því í dag,
að Leonid Makarov sé í hópi dipl-
ómatanna fjögurra sem vísað verð-
ur úr landi. Markarov, segir blaðið,
var helzti tengiliðurinn við norska
njósnarann Gunnvor Galtung
Haakvik, sem flett var ofan af
fyrir nokkrum árum. Hún var í
lykilstöðu í utanríkisráðuneytinu í
Osló og hafði orðið Rússum úti um
upplýsingar um norsk utanríkis-
mál allt frá því árið 1945.
Haakvik felldi hug til sovézks
hermanns og píndu Rússar hana til
að njósna fyrir sig ef hún vildi
halda sambandi við hann eftir
stríð.
Uppljóstrunin um njósnastarf-
semi Rússa í Noregi kemur á
einkar óhentugum tíma fyrir norsk
stjórnvöld, því nú er ráðuneytis-
stjóri utanríkisráðuneytisins í
opinberri heimsókn í Moskvu. Með-
al annars mun hann leggja grunn-
inn að samningaviðræðum Rússa
og Norðmanna um mörk efnahags-
lögsögu í Barentshafi, en þær við-
ræður hefjast seinna í þessum
mánuði. Þegar Norðmenn hafa vís-
að rússneskum njósnurum úr landi
hafa Sovétmenn jafnan hefnt fyir
það með því að óska eftir því að
einn eða fleiri norskir sendiráðs-
menn í Moskvu taki pjönkur sínar,
og sagði starfsmaður í norska
utanríkisráðuneytinu, að sendiráð-
ið í Moskvu væri nú þegar of fálið-
að og mættu Norðmenn ekki við
því að þeim fækkaði.
kvöld þar sem nemendur voru í
verkfalli.
Kröfur Samstöðu voru birtar á
föstudag. Samtökin hóta að koma
ekki til móts við stjórnvöld nema
þau hætti meintri kúgun, sam-
þykki ný lög um verkalýðsfélög,
efnahagsumbaetur og lýðræðis-
legri kosningar, endurbæti matar-
eftirlit, komi á óháðri nefnd sem
fylgist með efnahagsmálum og
samþykki aðgang samtakanna að
útvarpi og sjónvarpi.
Kröfur sem þessar hafa verið
ræddar en þær hafa aldrei fyrr
verið settar fram sem úrslitakost-
ir. Málgagn hersins sagði í dag að
Samstaða myndi einangrast ef
hún neitaði að koma til móts við
stjórnvöld til að byggja upp þjóð-
areiningu. Dagblaðið Trybuna
Ludu fór einnig hörðum orðum um
Samstöðu og sagði samtökin halda
áfram að ógna stjórnvöldum með
„verkfallsbyssunni".
Talsmenn Samstöðu sögðu að
um 100.000 nemendur í 71 af 91
háskóla í Póllandi væru enn í setu-
verkföllum. Setuverkföll bænda í
Lublin hófust á föstudag og frek-
ari verkfallsaðgerða má vænta frá
bændum á næstu dögum.
Fréttaskýrendur sögðu að upp-
slátturinn á viðtalinu við Grabski
gæti bent til að hann hefði hug á
frekari frama í flokknum. Hann
hefur starfað mikið með Stefan
Olszowski sem er harðlínumaður
og á sæti í æðsta ráði flokksins. Á
sínum tíma reyndi Grabski að ná
embætti flokksleiðtoga af Stan-
islaw Kania.