Morgunblaðið - 05.12.1981, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981
Kjaradeilu sjó-
manna vfsað til
sáttasemjara
KJARADEILU báta- og togarasjó-
manna var á fimmtudag vísað til rík-
SH tekur þátt
í matvælasýn-
ingu í Bahrain
FRÁ ÞVÍ fyrir síóustu helgi hafa far
ið fram hérlendis viórsður milli ís-
lenzkra útflutningsfyrirtækja og full-
trúa fyrirtækis í Saudi-Arabíu um
hugsanlegan útflutning á matvælum
héðan til landa á Arabíuskaganum.
Nú mun vera ákveðið að Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna taki
þátt í matvælasýningu í Bahrain í
byrjun næsta árs, en áður hafði
Búvörudeild Sambandsins ákveðið
þátttöku í þessari sýningu. Þá hef-
ur Búvörudeildin veitt fyrirtækinu
umboð fyrir vörur í eitt ár. Auk
tveggja fyrrnefndra aðila tekur
Sölustofnun lagmetis þátt í við-
ræðunum, sem verður fram hald-
ið, samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins.
issáttasemjara. Fyrsti fundurinn um
sjómannasamningana verður á mið-
vikudagsmorgun klukkan 10. Sjó-
mannasamband íslands semur fyrir
sjómenn við Félag botnvörpuskipa-
eigenda vegna undirmanna á skut-
togurum yfir 500 brúttólestum að
stærð, en við Landsamband ís-
lenzkra útvegsmanna fyrir sjómenn
á minni skuttogurum og bátum.
Til meðferðar hjá embætti rík-
issáttasemjara eru einnig kjara-
deilur mjólkurfræðinga og ASV
við vinnuveitendur, en fundir hafa
ekki verið boðaðir um þessa kjara-
samninga. Þá átti kjaradeild
BSRB og ríkisins að færast til
sáttasemjara 1. desember, en ekki
hefur þótt ástæða til afskipta
sáttasemjara af því máli til þessa,
þar sem aðilar hafa haldið fundi
og rætt málin.
£>
INNLENT
Hin æpandi þögn
iðnaðarráðherra
FÉLAG íslenskra iðnrekenda
hélt almennan félagsfund um
stöðuna og horfur í íslenzkum
iðnaði í gærdag og var boðið til
hans auk félagsmanna, áhuga-
mönnum um iðnaðarmálefni,
svo og alþingismönnum og ráð-
herrum.
I lokaorðum sínum á fund-
inum sagði Davíð Scheving
Thorsteinsson, formaður Fé-
iags íslenzkra iðnrekenda,
m.a. að eitt af því sem hefði
vakið sérstaka athygli við
þennan fund, væri hin æpandi
þögn iðnaðarráðherra, sem
ekki hefði séð ástæðu til að
sitja hann og fræðast um
stöðu hinna einstöku greina
íslenzks iðnaðar.
Kaldasta haust
þessarar aldar
í höfuðborginni
NÝLIÐIÐ haust var það kaldasta,
sem mælzt hefur í Reykjavík á þess-
ari öld samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. fékk á Veðurfarsdeild Veður
stofunnar í gær, en þar eru október
og nóvember taldir haust.
Hiti í Reykjavík mældist -0,4
gráður að meðaltali, en meðalhiti í
Reykjavik þennan mánuð er 2,6
gráðu hiti, þannig að hitastig í
þessum mánuði var þremur gráð-
um undir meðallagi. Urkoma í
Reykjavík mældist 38 millimetrar,
sem er helmingi minna en meðal-
talið. 31 sólarstund mældist í höf-
uðborginni, en það er nálægt með-
allagi.
Á Akureyri var meðalhitinn í
mánuðinum -1,6 gráða, sem er 2,9
gráðum undir meðallagi. Urkoma
mældist 52 millimetrar, sem er
um meðallag. Átta sólarstundir
mældust í höfuðborg Norðurlands
í nóvember, sem er 6 stundum
færra en í meðal-nóvember.
Yfir landið var hitastigið 2,5—3
gráðum undir meðallagi áranna
1931—1960, en hins vegar aðeins
einni gráðu minna en áranna
1971—1980, en nóvember þessi ár
var mun kaldari heldur en fyrr-
nefnt tímabil, sem Veðurstofan
miðar við í viðmiðun sinni.
Ljósm.: Kristján Kinarsson.
Frá afhendingu taugagreinisins nýja á Grensásdeild Borgarspítalans í gær.
Bandalag kvenna í Reykjavík:
Gaf Borgarspítalanum taugagreini
að verðmæti 2 milljónir króna
BANDALAG kvenna í Reykja-
vík afhenti í gær Endurhæf-
ingardeild Borgarspítalans að
gjöf taugagreini, og er hér um að
ræða stærstu gjöf sem Borgar-
spítalanum hefur borist. Er
verðmæti gjafarinnar lauslega
áætlað tvær milljónir nýkróna,
eða tvö hundruð milljónir gam-
alla króna. Taugagreinirinn er
fyrsta tæki sinnar tegundar
hérlendis, og mun tilkoma þess
auka verulega batahorfur og
endurhæfingarmöguleika fjölda
fólks.
Á síðastliðnu vori fór fram
landssöfnun meðal kvenfélaga á
landinu í tilefni árs fatlaðra.
Safnaðist þá mikið fé, sem rann
til þessara tækjakaupa.
Ríkið gerir BSRB gagntilboð byggt á ASÍ samkomulaginu:
Höftium ekki samningi til
skemmri tíma, en viljum
viðræður um fleiri atriði
- segir Haraldur Steinþórsson, framkvæmdastjóri BSRB
„VIÐ HÖFNUM ekki samningi til
skemmri tíma, en við viljum fá við-
ræður um fleiri atriði í kröfugerð
okkar, en fram koma í gagntilboði
fjármálaráðherra, og slíkt er jafnvel
hægt að gera samhliða," sagði Har
aldur Steinþórsson, framkvæmda-
stjóri BSRB ■ samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Á fundi samninganefndar ríkis-
ins og Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja í gærmorgun gerði
fjármálaráðherra bandalaginu til-
boð um framlengingu núgildandi
samnings eða nýjan aðalkjara-
samning. Verði um nýjan samning
að ræða, skal hann byggður á
ASI-samkomulaginu, sem gert var
á dögunum, með 3,25% launa-
hækkun 1. janúar næstkomandi
með gildistíma til 15. maí á næsta
ári.
Haraldur Steinþórsson sagöi, að
þetta gagntilboð hefði verið lagt
fram í gærmorgun og málin hefðu
síðan verið rædd. „Fjármálaráð-
herra flutti þarna ræðu og þar
kom fram, að það væri ekki það,
að ríkissjóður gæti ekki greitt
hærra kaup, heldur gæti hann
Stórfelld brot á höfundarréttar-
útvarps- og fjarskiptalögunum
- segir í niðurstöðu myndbandanefndar
um leigu og dreifingu myndbandaefnis
NIÐURSTAÐA myndbandanefndarinnar, sem menntamálaráðherra skipaði
til að kanna notkun og lögmæti myndbanda hérlendis, er sú, að hér eigi sér
nú stað stórfelld brot á höfundarrétti, bæði með upptöku á myndbönd, leigu
og dreifingu efnis af myndböndum um myndbandakerfi. Einnig kemst
nefndin að þeirri niðurstöðu að undanfarið hafi átt sér stað brot á útvarps- og
fjarskiptalögum í stórum stíl. Nefndin skilaði ráðherra skýrslu í fyrradag.
Nefndinni var einnig falið að at- eigenda, Hjálmtýr Heiðdal frá Fé-
huga hvernig heppilegast væri að
haga myndbandanotkun til fram-
búðar þannig að virtir verði hags-
munir rétthafa og notenda, segir
m.a. í skipunarbréfi hennar.
Gaukur Jörundsson prófessor var
skipaður formaður hennar, en aðr-
ir nefndarmenn eru: Birgir Sig-
urðsson frá Rithöfundasambandi
íslands, Fylkir Þórisson frá Ríkis-
útvarpinu, Gísli Alfreðsson frá
Félagi ísl. leikara, Grétar Hjart-
arson frá Félagi kvikmyndahúsa-
lagi kvikmyndagerðarmanna, Jón
Hermannsson frá Sambandi ísl.
kvikmyndaframleiðenda, Jón
Magnússon frá Neytendasamtök-
unum, Ólafur Haraldsson frá
Verslunarráði íslands og Sigurður
Reynir Pétursson frá STEF. Þá
störfuðu Knútur Hallsson og Erl-
ingur Bertelsson í menntamála-
ráðuneytinu einnig með nefndinni.
í heildarniðurstöðum nefndar-
innar segir að brot þessi séu óvið-
unandi jafnvel þótt búast megi við
breytingum á útvarps- og fjar-
skiptalögum í átt til frálsræðis
ýmissa aðila til útvarpsreksturs.
Við bætist stórfelld brot á höfund-
arrétti bæði við upptöku efnis á
myndbönd og ráðstöfun mynd-
banda, en þó sérstaklega með út-
sendingu efnis af myndböndum
um sjónvarpskerfi. Brýn ástæða
sé til að greiða götu höfunda við
að ná rétti sínum. Hraða verði
starfi að endurskoðun laga á þessu
sviði, m.a. endurskoðun útvarps-
laga og fjarskiptalaga með tilliti
til breyttrar tækni og viðhorfa og
gengur nefndin út frá því að slak-
að verði á einkarétti Ríkisútvarps-
ins á útvarpi og að öðrum aðilum
verði heimilað að annast útvarp.
Þá er lögð áhersla á að flýta við-
hlítandi. ráðstöfunum til að bæta
hið fyrsta úr því ófremdarástandi,
sem nú ríki.
í byrjun síðasta mánaðar lét
nefndin kanna útbreiðslu mynd-
bandakerfa og segir að á höfuð-
borgarsvæðinu séu nú í notkun
55—70 kerfi og í mörgum kaup-
stöðum og bæjum séu 6—100 íbúð-
ir tengdar slíku kerfi. Þá er bent á
að ekki sé áhugi á samtengingu
þar sem mikið sé um tæki í einka-
eign, t.d. í Grindavík þar sem um
70% heimila séu talin eiga mynd-
segulbandstæki og í Siglufirði þar
sem til eru um 100 tæki. Þá segir
að leigusölur myndbanda hafi
margs konar efni á boðstólum, yf-
irgnæfandi meirihluti þess séu
gamlar og nýjar kvikmyndir og
skemmtiefni, dæmi séu um efni,
sem kvikmyndahúsum er óheimilt
að sýna börnum undir vissum
aldri og ekki séu óþekktar löglaus-
ar klám- og ofbeldismyndir.
ekki gefið fordæmi með því að
greiða hærri laun,“ sagði Harald-
ur Steinþórsson.
Síðdegis í gær var haldinn fund-
ur í samninganefnd BSRB og gerð
samhljóða ályktun um stöðu
samningamála og gagntilboð
ríkisins. Þar segir: „Samninga-
nefnd BSRB leggur áherzlu á gerð
aðalkjarasamnings til lengri eða
skemmri tíma og verði viðræðum
hraðað. Samningaviðræður þurfa
að fjalla um einstaka þætti í
kröfugerð bandalagsins og einnig
viðhorf ríkisstjórnarinnar til
þeirra ýmsu atriða, sem BSRB
hefur sett fram. Samhliða breyt-
ingum á kjarasamningum felur
samninganefndin viðræðunefnd af
sinni hálfu að ræða við fulltrúa
fjármálaráðherra um það hvernig
haga skuli samningagerð. Stefnt
verði að því, að könnun viðræðu-
nefndar liggi fyrir eigi síðar en
um miðja næstu viku. Takist ekki
samkomulag um það verði óskað
milligöngu ríkissáttasemjara",
segir í ályktuninni.
Dregið
í kvöld
DREGIÐ verður í hausthapp-
drætti Sjálfstæðisflokksins í
kvöld og eru því síðustu forvöð
að fá sér miða í dag. Skrifstofa
happdrættisins verður opin fram
að kvöldmat, sími 82900. Þeir
sem óska geta látið sækja til sín
grciðslu happdrættismiðanna.
i