Morgunblaðið - 05.12.1981, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981
5
Athugasemd frá
Birnu Þórdardóttur
ÓSKA eftir, að Morgunblaðið birti
eftirfarandi athugasemd í tilefni
fréttar blaðsins af umræðum í borg-
arstjórn 3. des. '81, um ráðningu
fulltrúa í húsnæðisdeild Félagsmála-
stofnunar.
í frásögn blaðsins segir:
„Albert Guðmundsson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
sagði, að greidd væru laun sam-
kvæmt 12. launaflokki í starfið.
Hins vegar hefði það komið fram,
að Birna Þórðardóttir vildi fá laun
samkvæmt 17. launaflokki, um-
sækjandinn væri þegar farinn að
gera launakröfur."
Trúlega er borgarfulltrúinn að
vitna í frásögn Gunnars Þorláks-
sonar, húsnæðisfulltrúa Reykja-
víkurborgar, af viðtali hans við
mig. Alltént hefur borgarfulltrú-
inn ekki rætt við mig.
I umræddu viðtali sagði ég
Gunnari Þorlákssyni, að ég hefði
illa efni á lægri launum en ég hef í
dag. Hinsvegar sagðist ég gera
mér grein fyrir, að starf yrði ekki
flutt til um launaflokka nema að
undangengnum breytingum á við-
komandi starfi. Hvort slíkt væri
fyrirhugað um starf fulltrúa í hús-
næðisdeild vissi ég ekki.
Að þessum upplýsingum gefn-
um, kvaðst ég ekki draga umsókn
mína um umrætt starf til baka,
sem húsnæðisfulltrúinn reyndi að
fá mig til að gera.
Aðrar athugasemdir óska ég
ekki eftir að gera á þessum vett-
vangi.
Með þökk fyrir birtingu.
Birna Þórðardóttir
Reyrhúsgögn
Qpið í dag til kl, 4.
Húsgagnasýning sunnudag kl. 2—5
rBíásfeó
Símar: 86080 og 86244
ar
Húsgögn
Ármúli 8
Nú verða „fískidagarniru hátíðisdagar
220 GÓMSÆTIR SJÁVARRÉTTIR — NÝ BÓK KOMIN ÚT
í langan aldur hefur sá
hugsunarháttur ríkt
meðal Islendinga, að
fiskur sé aðeins til
þess að sjóða eða
steikja, og lítil fjöl*
breytni hefur verið í
matargerð hvað fisk-
og sjávarrétti varðar.
En nú á síðustu árum
hefur orðið á þessu
breyting, og fólk hefur
komist að raun um að
fiskur er herramanns-
matur, sé hann rétt
meðhöndlaður og mat-
reiddur. Að auki vita
allir að fiskur er mjög
næringarrík fæða og
ekki fitandi, jafnvel
feitasti fiskur.
Ekki hefur til þessa verið
fáanleg íslensk bók með
uppskriftum úr fisk- og
sjávarréttum, en nú er ný-
komin bók er ber heitið 220
GÓMSÆTIR SJÁVAR-
RÉTTIR, eftir Kristínu
Gestsdóttur. Bætir þessi
bók úr brýnni þörf og verð-
ur kærkomin hverju ís-
lensku heimili og mun
vafalaust gera fiskdagana á
heimilinu að hátíðisdögum,
ef fylgt er leiðsögn bókar-
innar, en Kristín Gests-
dóttir hefur prófað alla
réttina í eigin eldhúsi og
þreifað sig áfram. í for-
mála sínum að bókinni seg-
ir Kristín m.a. að það sé
ekki mikið um dýra og
vandasama rétti í bókinni.
Markmið hennar sé að
hvetja fólk til að borða
fleiri tegundir af fiski og
matreiða hann á fjölbreytt-
Kápa hókarinnar: 220 Gómsætir
sjávaréttir
ari hátt. Þá segir Kristín
einnig að algengt sé að fólk
gengi út úr fiskbúðum og
segir að þar „sé ekkert til“
ef hin hefðbundna ýsa er
ekki á boðstólunum, þótt
margar aðrar tegundir séu
fáanlegar.
Góð ráð um
meðferð á fiski
Auk uppskriftanna eru
fjölmörg góð ráð um með-
ferð á fiski að finna í bók-
inni, og bendir t.d. Kristín
á aðferðir til þess að kanna
hvort fiskur sé nýr þegar
hann er keyptur, hvernig á
að sjóða og steikja fisk, og
einnig eru góð ráð um notk-
un á reykgrilli og útigrilli,
en Kristín segir að mjög
auðvelt sé að matreiða fisk
á útigrilli og greinir frá því
hvernig það sé best gert.
Margar fisktegundir
Margar fisktegundir eru
oftast á boðstólunum í ís-
lenskum fiskbúðum, en í
bókinni 220 GÓMSÆTIR
SJÁVARRÉTTIR eru
uppskriftir úr síld, ýsu,
þorski, saltfiski, hrognum,
rauðsprettu, heilagfiski,
smálúðu, grálúðu, steinbíti,
skötusel, karfa, hrognkels-
um, kavíar, silungi, laxi,
rækjum, humar, hörpu-
diski, kræklingi, loðnu, ál,
kæstri skötu, ferskri skötu,
ufsa,.löngu, smokkfiski og
Opna úr bókinni sem gefur hugmynd um uppsetningu hennar
hafkóngi. Auk þess eru í
bókinni fjölmargar upp-
skriftir af auðveldum sós-
um, brauðum og öðru með-
læti sem nýnæmi er að.
Mikið mynd-
skreytt bók
Bókin 220 GÓMSÆTIR
SJÁVARRÉTTIR er mynd-
skreytt af eiginmanni
Kristínar, Sigurði Þor-
kelssyni, og eru teikningar
hans í samræmi við efni
bókarinnar, auk þess sem
hann sýnir fjölmarga
skemmtilega hnúta, sem
notaðir eru af sjómönnum
en koma þó öllum að not-
um.
Kristín Gestsdóttir
AUGLYSING-