Morgunblaðið - 05.12.1981, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981
7
OG
*SS
GEGNUM
HOLT
OG HÆÐIR
SKEMMTILEG SAGA
Gegnum holt og hæöir eftir Herdísi Egilsdóttur kennara er
skemmtileg ævintýrasaga um mennska menn, tröllastráka,
tröllskessu og álfa. Tröllastrákarnir í sögunni eru uppátekta-
samir og láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna og tröllskessan,
mamma þeirra, á oft í erfiöleikum meö aö hemja þá, rétt eins
og foreldrar krakkanna í sögunni, eiga stundum i erfiöleikum
meö aö fá þau til aö hlýöa sér.
Bókin er mikiö myndskreytt og geröi Herdís sjálf allar teikn-
ingarnar og auðveldar lesendunum aö kynnast hinum
skemmtilegu persónum sínum.
EINSTÆÐ HLJÓMPLATA
Gerö hefur veriö hljómplata meö söngvum
úr GEGNUM HOLT OG H/EÐIR og eru bæöi lög og textar eftir
Herdísi Egilsdóttur. Margir kunnir listamenn flytja lögin á
hljómplötunni, en útsetningu og stjórn upptöku annaöist
Ragnhildur Gísladóttir. Þetta er bráöskemmtiieg og fjörug
barnaplata, þar sem krakkarnir taka undir fyrr en varir.
ÞALÆT
ÉG SLAG
Bókin ÞÁ LÆT ÉG SLAG STANDA, er saga ævintýramanns-
ins Lofts Einarssonar, sem oft hefur veriö kallaöur „Loftur ríki“,
og er bókin skráö af Magnúsi Bjarnfreðssyni. Fáir núlifandi
islendingar hafa lifaö öðru eins ævintýralífi og Loftur Einars-
son, en segja má aö ævintýrin hafi komið til hans, þegar hann
leitaöi þeirra ekki. Einn daginn var hann varðskipsmaöur, hinn
daginn landhelgisbrjótur. Hann velti sér upp úr peningum og
heimsins listisemdum í erlendum borgum einn daginn en hinn
næsta svaf hann örsnauöur á bekkjum í almenningsgöröum og
liföi á appelsínum eöa mjólk einum mata í langan tíma. Hann
stofnaöi fyrirtæki bæöi heima og erlendis og gekk á ýmsu í
rekstri þeirra og átti þaö jafnt viö nagiaverksmiöjuna í Borg-
arnesi sem stórhótelið á Spáni. Og jafnvel á efri árum halda
ævintýri Lofts Einarsonar áfram og hann ræöst í þaö sem yngri
og hraustari myndu hika viö. Hann lætur einfaldlega SLAG
STANDA og hefur ekki teljandi áhyggjur af morgundeginum.
ÞÁ L/ET ÉG SLAG STANDA er einstæö bók — frásögn
manns, sem á fáa sína líka, og fáa sem hafa frá eins mörgum
ævintýralegum atburöum aö segja.
Menntahroki
l>orbjörn Broddason, lekt-
or í félagsvísindadeild llá-
skóla fslands, lét gamminn
geysa í borgarstjórn
Reykjavíkur á fimmtudag-
inn um það, að borgarfulF
trúar skyldu átta sig á því,
að Samvinnuskólapróf
jafnaðist ekki á við BA-
próf frá félagsvísindadeild-
inni og véfvirki væri van-
hæfari en stjórnmálafræð-
ingur til að verða aðstoðar
maður húsnæðisfulltrúa
Reykjavíkurborgar. Sátu
fulltrúar alþýðunnar,
flokksbræður Þorbjörns {
Alþýðubandalaginu, með
alvörusvip undir ræðu
hans, enda var mikið í húfi:
Alþýðubandalagið barðist
fyrír því með öilu sínu afli,
að Birna Þórðardóttir, sem
hin síðustu ár hefur verið
kunnust fyrir stjórnmála-
störf sín vinstra megin við
Alþýðubandalagið, í Kylk-
ingunni, fengi fulltrúastarf-
ið hjá húsnæðisfulltrúan-
um.
Gerður Steinþórsdóttir,
fulltrúi Kramsóknarflokks-
ins og formaður félags-
málaráðs, sem ekki vildi
fallast á sjónarmið Alþýðu-
bandalagsins, sagði, að
starf það, sem hér væri til
umræðu, fælist einkum í
þessu þrennu: 1) Að fylgj-
ast með viðhaldi og um-
gengni í leiguhúsnæði
borgarinnar. 2) Að hafa
eftirlit með búslóðum og 3)
Að sjá til þess, að flutn-
ingstilkynningar berist
Manntalsskrifstofunni.
Jafnframt kom fram hjá
Gerði, að fyrir lægju hug-
myndir um endurskipu-
lagningu Kélagsmálastofn-
unar, hugmyndir félags-
fræðings, sem miðuðu að
því, að hinn mannlegi þátt-
ur húsna'ðisvandans, ef
þannig má að orði komast,
verði falin fjölskyldudeild
stofnunarinnar til umfjöll-
unar, og húsnæðisdeildin
einbeiti sér að tæknilegri
og verldegri hlið málsins.
Saltbaukurinn
Atturhaldssemi Alþýðubandalagsins og
menntahroki einkenna störf fulltrúa þess í
borgarstjórn Reykjavíkur, eins og nánar er
lýst í Staksteinum í dag. Hingað til hefur
Hjörleifur Guttormsson þótt halda þessu
merki hæst á loft. Við kynningu á Sjóefna-
vinnslunni hf. á dögunum lyfti Hjörleifur,
iðnaðarráðherra, saltbauk hátt á loft og
sagði: Þetta er íslenskt salt af Reykjanesi
— síðan við fengum þaö, höfum viö ekki
notað annað hérna í ráðuneytinu. Þá vita
menn það: Hin „íslenska atvinnustefna"
Alþýðubandalagsins felst í því að salta öll
mál í iðnaðarráðuneytinu með íslensku
salti.
Davíð Odd.sMon, oddviti
borgarstjórnarflokks
sjálfstæðismanna, vísaði í
ræðu sinni til þeirra orða
Imrbjörns Broddasonar, að
yrði Birna l*órðardóttir
ekki ráðin, væri í senn um
„starfsbannsáráttu" eða á
þýsku „Berufsverbot" og
kvenfyrirlitningu að ræða.
Taldi Davið, að þessi stór
yrði lektorsins sönnuðu,
hve mikilvægt honum
þætti, að stjórnmálafræð-
ingur kæmist i stöðu að-
stoðarmanns húsnaslisfull
trúans. Velti Davíð þvi
jafnframt fyrir sér, hvernig
það gengi fyrir sig í
kennslustundum lektors-
ins í félagsvísindadeild Há-
skóla íslands, þegar nem-
endur vörpuðu fram þeirri
spurningu til hans, hvað
þeir gætu tekið sér fyrir
hendur að námi loknu, og
lektorinn svaraði: Ja, þið
getið orðið aðstoðarmenn
húsnæðisfulltrúa í Reykja-
vík eða annars staðar.
Sigurður Tómasson,
borgarfulltrúi Alþýðu-
handalagsins, taldi ástæðu
til að vekja sérstaklega
máls á því í ræðu, að auð-
vitað mætti rökstyðja það,
að bifvélavirki væri eins
hæfur til að skrifa beiðni
um Ijósaperu og stjórn-
málafræðingur.
Alþýðubanda-
lagið undir
í atkvæðagreiðslu um
ráðningu fulltrúa í hús-
næðisdeild, sem hefur í
þrjá mánuði vafist fyrir
vinstri meirihlutanum í
borgarstjórn, varð Alþýðu-
bandalagið undir. Ráðinn
var Birgir Ottósson, sem
fulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins höfðu stutt í félags-
málaráði, en hann er gagn-
fræðingur og með sveins-
próf í velvirkjun — auðvit-
að með öllu óhæfur að
mati „gáfumannahópsins"
í Alþýðubandalaginu.
Ef marka má orð Þor
björns Broddasonar, lekt-
ors, á borgarstjórnarfund-
inum hefur það nú gerst í
borgarstjórninni, þar sem
kommúnistar segjast hafa
tögl og hagldir, að gengið
hefur verið frá mannaráðn-
ingu, sem byggist á
„starsfbannsáráttu" og
kvenfyrirlitningu. llvað
ætlar Alþýðubandalagið að
gera við þessar aðstæður?
/Ktlar það að éta ofan í sig
stóru orðin til stuðnings
Birnu l>órdardóttur eða
hefja lögsókn til dæmis á
hendur Sigurjóni l’éturs-
syni, forseta borgarstjórn-
ar, til að fá borgarstjórnina
vítta fyrir atferli sitt? I>að
væri svo sem í samræmi
við aðra starfshætti vinstri
meirihlutans í borgar
stjórninni, að hann stefndi
forseta borgarstjórnar,
oddvita sjálfs Alþýðu-
bandalagsins, og sakaði
hann um „starfsbannsár
áttu“ og kvenfyrirlitingu,
af því að borgarstjórnin
féllst ekki á þá skoðun
lektorsins í félagsvísinda-
deild, að stjórnmálafræð-
ingur, nemandi hans væri
best hæfur til að gegna
stöðu aðstoðarmanns hús-
næðisfulltrúa Reykjavík-
urborgar.
TseKiíaeris
Kr.]_
/XFStAliy^r'
LAUGAVEGI 66 SIMI 25999
LITASJÖNVÖRP meö
„Linytron Plus“
myndlampa er
japönsk tækni
í hámarki.
Utsölustaðir:
Karnabær Glæsibæ — Fatt al Keflavík
— Portiö Akranesi — Patrona Patreks-
firöi — Epliö ísafiröi — Álfhóll Siglufiröi
— Cesar Akureyri — Rad " >r Hú'avík
— Hornabær Hornafiröi M.M.h/f.
Seltossi — Eyjabær Vesi •; ,um.
VANTAR ÞIG VINNU
VANTAR ÞIG FÓLK
9
M UM YSlR I M \( 1 X
LAM) ÞEt.AR Þ! Alt,
l.YSIR í MORtH NBi.AOINl