Morgunblaðið - 05.12.1981, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981
9
Kirkjudagur
Seljasóknar
á morgun
KIRKJUDAGUR Seljasóknar verður
haldinn á morgun, sunnudag, en nú
hafa verið gerðar nokkrar breytingar á
sal þeim í Ölduselsskóla þar sem
guðsþjónustur hafa farið fram og verð-
ur í tilefni af því hátíðarguðsþjónusta
kl. 14.
Svo sem aðra sunnudaga koma
börnin saman í sunnudagaskólum
sóknarinnar kl. 11 f.h., sem eru í
Ölduselsskóla og við Seljabraut 54.
Við hátíðarguðsþjónustuna kl. 14
prédikar sr. Sigurður Pálsson
vígslubiskup og sóknarpresturinn,
sr. Valgeir Astráðsson, þjónar fyrir
altari. Kirkjukór sóknarinnar syng-
ur og verður altarisganga, en það er
í fyrsta sinn sem það er á þessum
messustað.
Um kvöldið er síðan samkoma í
Ölduselsskóla þar sem hr. Pétur
Sigurgeirsson biskup flytur ávarp.
Af öðrum dagskrárliðum má nefna
einsöng Jóhönnu Möller, kirkjukórs-
ins og sönghópsins Remus, flutt
verður samlestrardagskrá Jóns
Hjartarsonar um Þovald viðförla,
sem samin er í tilefni 1000 ára af-
mælis kristniboðs í landinu og sam-
koman endar með hugleiðingu Gísla
Árnasonar, formanns sóknarnefnd-
ar.
Séra Valgeir Ástráðsson sókn-
arprestur tjáði Mbl. að sóknin væri
nú 1 '/2 árs gömul, en sjálfur hefði
hann starfað þar í ríflega eitt ár.
Nýlega er sóknin búin að festa kaup
á húsnæði í Tindaseli 3 þar sem eru
skrifstofur og í ráði er að innrétta
þar lítinn fundarsal. Kirkjubygging
er í undirbúningi og hefur Sverrir
Norðfjörð arkitekt verið ráðinn til
að teikna.
DJÚPIÐ
Spennusagan DJÚPID er ettir
Peter Benchley, sama höfund
og hinar frægu metsölubækur
Ókindin og Eyjan, en geröar
hafa veriö kvikmyndir eftir öll-
um þessum sögum og þær not-
iö gífurlegra vinsælda. Senni-
lega er DJÚPIÐ besta bók Pet-
ers Benchley — hún er mögnuö
ótrúlegri spennu frá fyrstu til
síöustu blaösíöu. Þaö fer fram
kappphlaup upp á iíf og dauöa
og inn í það fléttast ýmis óvænt
atvik.
A ÖRN&ÖRLYGUR
VT Siðumútan, simi 84866
Philips örbylgjuofnar
eru fyrir þá sem þurfa
að fylgjast með tímanum
Bökuö epll
Imín
ffmín
Frönsk
zmín
t_j
1mín
Kebab
í rauninni er sama hvernig tíma þínum er varið - Philips
Microwave kemur þér þægilega á óvart. Sumir nota
hann vegna þess aö þeir nenna ekki aö eyöa löngum
tíma í matreiðslu. Aðrir matreiða máltíðir vikunnar á
laugardögum og frysta þær til geymslu. Philips sér
síðan um góöan mat á nokkrum mínútum, þegar best
hentar.
Þæglndi: Enginn upphitunartími, fljótleg matreiðsla,
minni rafmagnseyðsla.
Stelkur med/rare
Hraðl: Þfðir rúmlega 3 punda gaddferöinn kjúkling á
20 mínútum. Bakar stóra kartöflu á 5 mínútum.
Nærlng: Heldur fullu næringargildi fæðunnar, sem
tapar hvorki bragði né lit.
Hrelnsun: Aðeins maturinn sjóöhitnar, slettur eða bitar
sjóða ekki áfram - og eldamennskan hefur
ekki áhrif á eldhúshitann.
Hafnarstræti 3 — Sætúni 8.
KYNNING I SÆTUNI 8
í DAG FRÁ KL. 14—16
Einar Árnason yfirmatreiöslumaöur í Nausti matreiöir gómsæta rétti úr hráefni frá Goöa í
PHILIPS örbylgjuofninum. Einstakt tækifæri til þess aö kynnast möguleikum örbylgjuofnsins.
Hausthappdrætti Sjálfstæðisflokksins
DREGIÐ í KVÖLD
Afgreiðslan í Sjálfstæðishúsinu, Háaleitisbraut 1,
er opin í dag til kl. 19.00. Sími
82900
GREIÐSLA SÓTT HEIM EF ÓSKAÐ ER.