Morgunblaðið - 05.12.1981, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIP, LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981
13
Togaraöldin
eftir Gils Guðmundsson komin út
Bókaútgáfan Öm og Örlygur hf. hef-
ur gefið út bókina TOGARAÖLDIN,
eftir Gils Guðmundsson. Er þar um að
ræða 1. bindi í ritverki er fjalla mun
um mesta byltingarskeið íslenskrar at-
vinnusögu. Ber bókin undirtitilinn
„Stórveldismenn og kotkarlar".
Nú eru nær þrír áratugir síðan
Gils sendi frá sér hið mikla ritverk
„Skútuöldin", en það ritverk var síð-
an endurútgefið fyrir nokkrum árum
í fimm bindum. Togaraöldinni er
ætlað sama hlutverk og mun í þessu
ritverki verða rakin saga togaraút-
gerðar á og við ísland frá upphafi
fram undir okkar daga.
í 1. bindinu „Stórveldismenn og
kotkarlar" er fjallað um það tímabil
þegar erlendir menn, einkum Bretar,
en einnig Þjóðverjar, Frakkar og
Hollendingar tóku að beina togara-
flota sínum á íslandsmið. í bókinni
Dr. Steindór Steindórsson
segir frá hörðum deilum um það
hvort Islendingar ættu sjálfir að
hefja togaraútgerð, og greint er frá
fyrstu tilraunum íslenskra manna í
því efni. Sagt er rækilega frá marg-
víslegum samskiptum Islendinga og
breskra togaramanna, sem stundum
urðu söguleg og ollu miklu rifrildi og
fjaðrafoki. Rakin er saga landhelg-
isgæslunnar í upphafi togaraaldar
og segir bæði frá makráðum varð-
skipaforingjum og harðdrægum
skipherra, sem tók yfir 20 togara í
landhelgi en var rekinn fyrir dugn-
að.
Bókin Togaraöldin er í stóru broti
og hefur mikið verið vandað til gerð-
ar bókarinnar. í henni eru fjölmarg-
ar ljósmyndir og hafa margar þeirra
ekki birst áður. M.a. er í bókinni ein-
stæð myndasyrpa af togi breskra
togara í landhelgi fyrir austan land
upp úr aldamótum.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs hefur
gefíd út ritið íslenska náttúrufræð-
inga eftir dr. Steindór Steindórsson
frá Hlöðum, en það hefur að geyma
yfirlit um líf og störf átján íslenskra
náttúrufræðinga sem allir voru
brautryðjendur hver á sínu sviði allt
frá 16. öld og fram á 20. öld.
Inngangur bókarinnar fjallar um
frumherjana Odd Einarsson bisk-
up, Gísla Oddsson biskup, Jón
Guðmundsson lærða og Þórð Þor-
kelsson Vídalín rektor. Síðan koma
ritgerðir um náttúrufræðingana
Eggert Ólafsson skáld, Bjarna
Annað bindi Togaraaldar er vænt-
anlegt að ári og hefur það hlotið
undirtitilinn: Víkingar nýrra tíma.
Togaraöldin er sett, umbrotin,
filmuunnin og prentuð í Prentstofu
G. Bekediktssonar en bundin hjá'
Arnarfelli. Bókarhönnun er eftir
Steinar J. Lúðvíksson, en káputeikn-
ingu og kápuhönnun annaðist Sigur-
þór Jakobsson.
Pálsson landlækni, Ólaf Olavius,
Svein Pálsson lækni, Odd Hjaltalín
lækni, Jónas Hallgrímsson skáld,
Benedikt Sveinbjarnarson Gröndal
skáld, Þorvald Thoroddsen, Ólaf
Davíðsson fræðimann, Stefán Stef-
ánsson skólameistara, Bjarna
Sæmundsson fiskifræðing, Helga
Jónsson grasafræðing, Helga Pjet-
urss jarðfræðing og Guðmund G.
Bárðarson jarðfræðing. Hverri rit-
gerð fylgir skrá um helstu heimild-
arrit.
íslenskir náttúrufræðingar er 339
bls. að stærð. Bókin er sett, prentuð
og bundin í prentsmiðjunni Odda.
Bók um náttúrufræðinga
- eftir Steindór Steindórsson
Sófi, 2 stólar án borös. Verö frá kr. 1.784.-
Verö samanber mynd án borös kr. 2.213.-
(ef staðgreitt).
OPIÐ TIL KL. 4 í DAG LAUGARDAG
Sendum um land allt.
Vörumarkaðurinn hf.
Sími 86112.
Bambus-sófasett
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Akureyri og nágrenni
HLJOMTÆKJADEILD
Brekkugötu 3, sími 24106