Morgunblaðið - 05.12.1981, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. DBSEMBER 1981
Kirkjudagur
Árbæjarsafnaðar
Hinn árlegi kirkjudagur Árbæj-
arsafnaðar verður hálídlegur hald-
inn sunnudaginn G. desember (2 sd.
í adventu) í Safnaðarheimili Ár
bæjarsóknar og hátíóasal Árbæjar-
skóla.
Hátíöahöld kirkjudags í að-
ventubyrjun hafa frá upphafi vega
safnaðarins verið árviss viðburður
í safnaðarlífinu og safnaðarfólk
jafnan fjölmennt á dagskrárliði
kirkjudagsins. Er það einlæg von
okkar allra, er að þessum degi
stöndum, að svo verði einnig að
þessu sinni.
Á aðventunni búum við okkur
undir jólin, trúarhátíðina æðstu,
er með svo áhrifaríkum hætti flyt-
ur boðskapinn fagnaðarríka um
föðurást Guðs á barnahjörð. Að-
ventuhátíðin um síðustu helgi,
sem var ákaflega fjölsótt, sýnir
svo eigi verður um villst, að fólk
vill auk hins ytra jólaundirbún-
ings einnig og ekki síður búa huga
sinn undir komu hátíðar lífs og
Ijóss. Til þess er tækifæri á
kirkjudegi. En jafnframt hefur
kirkjudagurinn í Arbæjarsöfnuði
ævinlega verið mikill fjáröflun-
ardagur og menn þannig stutt
stofnunina öldnu, kirkjuna, sem er
okkur kristnum móðir og mikil-
vægastan boðskap hefur að flytja
mönnum í hverfulleikans heimi.
Nú stendur fyrir dyrum að hefjast
að vori handa um að reisa kirkju-
skipið sjálft og gera það fokhelt á
næsta sumri. Þarf því söfnuðurinn
mjög á fjárstuðningi safnaðar-
manna að halda, því að hér verður
um kostnaðarsama framkvæmd
að ræða. Heitið er því á safnað-
armenn, yngri sem eldri að ljá því
málefni virkan stuðning og hefja
þá liðveislu þegar á sunnudaginn
kemur með því að fjölmenn á
dagskrárliði kirkjudagsins og
rétta þannig fram örvandi hjálp-
arhönd til styrktar uppbyggingar-
og safnaðarstarfinu.
Dagskrá kirkjudagsins verður á
þessa leið:
„Kl. 10.30 árdegis: Barnasam-
koma í safnaðarheimili Árbæjar-
sóknar. í lok hennar verður
kvikmyndasýning. Foreldrar eru
Detta er bókin scm getur skiptir máli er ekki á hvað
breytt tilveru okkar. við trúuríi, heldur hvernig við
I henni er boðskapur til lifum sem menn meðal man-
mannkynsins frá yfirskilvit- na, hvort við séum færir um
legum heimi. að bera virðingu hver fyrir
Hún vísar* okkur auðvclda öðrum og fyrirgcfa.
leið að bættu lífi og veitir Lesið |)CSsa bók og dæmið
okkur fnð a jorðu. sjáif Hún eT tij j bóka.
GANGIÐ AÐ LJÓSINU á verslunum á dönsjtu og en-
erindi til allrá. I’að sem sku.
S ZEROWATT
ÞVOTTAVÉLAR OG ÞURRKARAR
ítalskar úrvalsvélar, sem unniö hafa sér stóran
markaðshlut hér á landi sökum góðrar endingar,
einstakra þvottaeiginleika og hagstæðs verðs.
Þvottavél LT-955
Tekur 5 kg. af þvotti.
Sparnaðarkerfi (3 kg.)
9 þvottakerfi.
4 skolkerfi.
1 þeytikerfi (500 sn ).
Hámarks orkuþörf 2300 w.
Hæð 85 cm.
Breidd 60 cm.
Dýpt 48,5 cm.
Þurrkari ES-205
Tekur 5 kg. af þvotti.
10 mismunandi kerti.
Belgur úr ryðfríu stáli.
Hámarks orkuþörf 2400 w.
Hæð 85 cm.
Breidd 60 cm.
Dýpt 52 cm.
Véladeild
Sambandsins
Ármula 3 Reykiavik Simi38900
Aðventuhátíð í
Kópavogskirkju
boðnir velkomnir með börnum
sínum og þá ekki síður afar og
ömmur barnanna.
Kl. 2: Guðsþjónusta fyrir alla
fjölskylduna í Safnaðarheimili
Árbæjarsóknar. Frú Ingveldur
Hjaltested syngur stólvers í mess-
unni og kirkjukór sóknarinnar
syngur undir stjórn Christinu
Cortes. Sérstaklega er vænst
þátttöku fermingarbarna næsta
árs og foreldra þeirra í messunni.
Kl. 3—6 kaffisala á vegum kirkju-
nefndar Kvenfélags Árbæjar-
sóknar í hátíðarsal Árbæjarskóla.
Hafa kvenfélagskonur og aðrar
safnaðarkonur bakað veislukökur
af mikilli rausn fyrir hvern
kirkjudag og enginn efast um, að
enn sem fyrr munu borð svigna í
Árbæjarskóla undan gómsætum
kökum þeirra safnaðarkvenna.
Auk kaffisölunnar efnir kirkju-
nefndin til glæsilegs skyndi-
happdrættis með fjölmörgum góð-
um og gagnlegum vinningum. Þar
á meðal má nefna stóra ljósa
kommóðu, sem Bræðrafélag safn-
aðarins hefur gefið sem aðalvinn-
ing í happdrættinu.
Árbæingar og Selásbúar. Eign-
umst sameiginlega hátíð. Búum
hugi okkar og hjörtu undir komu
jólanna með mikilli þátttöku í
kirkjuhátíð safnaðarins í aðventu-
byrjun. Verið öll hjartanlega vel-
komin á samkomur kirkjudagsins
á sunnudaginn kemur.
Guðmundur Þorsteinsson,
sóknarprestur.
Sunnudaginn 6. desember, hinn
annan í aðventu, efnir Kársnessöfn-
uður til árlegrar aðventuhátíðar í
Kópavogskirkju kl. 20.30.
Að venju hefur verið vandað til
efnisskrárinnar. Organisti kirkj-
unnar Guðmundur Gilsson leikur
og stjórnar söng kirkjukórsins. Þá
munu þeir John Speight söngvari
og Símon Ivarsson gítarleikari
flytja austurrísk jólalög. Tveir
meðlimir sóknarinnar munu sjá
um boðun orðsins. Stefán M.
Gunnarsson form. sóknarnefndar
flytur ávarp og Tómas Árnason
ráðherra flytur hugvekju kvölds-
ins. Þá verður mikill almennur
söngur, ritningalestur og bæn-
argjörð.
Undanfarin ár hafa aðventu-
kvöld safnaðarins alltaf verið vel
sótt og vonum við að svo verði enn.
Annan sunnudag í aðventu er fólk
þegar farið að hugsa til hins ytri
undirbúnings jólanna, en þá má
andlegi undirbúningurinn heldur
ekki gleymast. Allar hátíðir hljóta
að verða innihaldslausar þeim
sem ekki muna tilefni þeirra. Að-
ventukvöldin eru því haldin til
þess að vekja fólk til umhugsunar
um hið sanna innihald jólanna.
Fjölmennum því á aðventuhátíð-
ina nk. sunnudagskvöld.
Árni Pálsson
_ r
Fyrirspurn til fiskifélags Is-
lands frá siglingamálastjóra
í Morgunbiaðinu 27. nóvember
1981 segir í frétt frá Fiskiþingi, að
þar hafi verið samþykkt „að lýsa yfir
óánægju yfir hvað mörg góð mál,
sem varða öryggi sjómanna, virðast
stranda hjá Siglingamálastofnun og
Vita- og Hafnamálastofnun, og segir
að slík mál hafi oft verið þar í
geymslu svo árum skiptir".
Þá er sagt frá því í þessari frétt
í Morgunblaðinu, „að það telji, að
Siglingamálastofnunin eigi að
vera hvetjandi stofnun um örygg-
ismál en ekki eins og verið hefur,
að tillögur um öryggismál sjó-
manna, sem komið hafi fram hjá
hagsmunaaðilum í sjávarútvegi
eins og útgerðarmönnum og sjó-
mönnum, hafi ekki fengið þá með-
ferð hjá Siglingamálastofnun, sem
vænta hefði mátt, og er því skorað
á siglingamálastjóra að breyta
starfsháttum stofnunarinnar til
betri vegar“.
Enginn rökstuðningur fylgir
þessari frétt frá Fiskiþingi.
Hinsvegar kannast siglingamála-
stjóri ekki við, að sú staðhæfing
geti verið á rökum reist, að Sigl-
ingamálastofnun hafi ekki verið
hvetjandi í sambandi við aukið ör-
yggi sjófarenda. Stofnunin hefur
sjálf gert ýmsar tilraunir og gert
margar tillögur um breyttar regl-
ur til aukins öryggis á sjó.
Til að hægt sé að meta hvað
Fiskiþing á við með gagnrýni sinni
á störf Siglingamálastofnunar
ríkisins, vil ég fara þess á leit, að
Fiskifélag íslands geri málefna-
lega nánari grein fyrir þeim atrið-
um, sem þessi ályktun væntanlega
er sögð vera byggð á. Gagnrýni
sem þessi, án nokkurs rökstuðn-
ings í frétt frá Fiskiþingi, og án
nokkuria tiltekinna árásaratriða
á störf Siglingamálastofnunar
ríkisins, er ekki hægt að skoða
sem málefnalega umfjöllun.
Óverðskulduð tortryggni í garð
Siglingamálastofnunar ríkisins til
birtingar í fjölmiðlum, er síst til
þess fallin að stuðla að auknu ör-
yggi á sjó, ef sá hefur verið til-
gangur þessarar ályktunar.
Reykjavík, 2. desember 1981.
Hjálmar R. Bárðarson.
Aðventukvöld
Borðapantanir í síma 22321 — 22322.
Enn einu sinni hófum við í heiðri gamlan og
góðan jólasið að Hótel Loftleiðum og efnum til
Aðventukvölds í Blómasal sunnudagskvöldið 6.
desember n.k.
Fagurlega unnar blómaskreytingar frá Stefáns-
blómum munu prýða salinn og Víkingaskipið
verður skreytt fallegum listmunum frá Rosenthal.
Um kvöldið verður dregið um tvœr jólagjafir úr
skipinu!
Ingveldur Hjaltested óperusöngkona syngur jóla-
lög, sem allir kunna, við undirleik Guðna Þ.
Guðmundssonar píanóleikara.
Að ventumatseðill:
FyUtur Avocado.
Hreindýrasteik Baden Baden
m/Waldorfsalati.
Hrísgrjónabúðingur.
Módelsamtökin verða með sérstaka sýningu á
jólafatnaði á alla fjölskylduna.
Kynmr: Sigríður Ragna Sigurðardóttir.
Allir Aðventukvöldsgestir fá ókeypis happdrœtt-
ismiða við innganginn. Matur er framreiddur frá
kl. 19.00 en skemmtunin hefst kl. 20.00.
Verið velkomin
HÓTEL LOFTLEIÐIR