Morgunblaðið - 05.12.1981, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐID^LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981
17
Gauksegg í
þrastarhreiðri
eftir Pétur
Péturssoon þul
Samninganefndir verkalýðsfé-
laga hafa nýverið undirritað
samninga við samtök vinnukaup-
enda. Það vakti athygli hve lítil-
látir og nægjusamir forvígismenn
reyndust er sest var að samninga-
borði. Fyrir þá er kunnu að lesa
milli línanna á nefndum samningi
mátti greina fingraför tvímenn-
inganna Kjartans Ólafssonar'
Þjóðviljaritstjóra og Þorsteins
Pálssonar framkvæmdastjóra
Vinnuveitendasambandsins.
Kjartan ritstjóri hafði af tölvísi
sinni og sóknarhug komist að
þeirri niðurstöðu að „þjóðarbúið"
þyldi 2% launhækkun. Birti hann
vísdóm sinn í forystugrein Þjóð-
viljans á liðnu sumri. Naumast
hafði Kjartan kveðið upp kjara-
dóm sinn en Þorsteinn Pálsson tók
undir orð hans og lýsti fylgi sínu.
Sé rakið lengra má sjá hagspeki
aðstoðarráðherrans, Þrastar
Ólafssonar, er sett hefir fram
kenningu um „róttækt jafnvægi" í
félagsmálum.
Nú liðu fram tímar og rösklega
6% gengislækkun kom til fram-
kvæmda. Niðurstaða er lýðum
ljós. Samið er um 3,25%
kaup„hækkun“. Hvernig hægt er
að túlka það sem kauphækkun er
raunar torvelt að skilja þar sem
vísitölubætur voru skertar um 7%
hinn 1. marz og ofaná þá skerð-
ingu gengislækkun.
Nú standa yfir samningar opin-
berra starfsmanna. Ragnar Arn-
alds heimsótti BSRB í húsakynn-
um samtakanna í gær (föstudag).
Þar flutti hann boðskap sinn um
„róttækt jafnvægi" Þrastar að-
stoðarráðherra. Kvað hann ríkis-
sjóð vel aflögufæran til kaup-
hækkunar og væri það eigi af þeim
ástæðum að eigi væri gert ráð
fyrir launahækkun. Hinsvegar
yrði að halda jafnvægi og við það
yrði staðið.
Þá varð ráðherranum tíðrætt
um versnandi viðskiptakjör og
reyndi að rökstyðja nauðsyn þess
að Ólafsvísitala tæki gildi á ný.
Þeim er þekkja til í sundurleit-
um samtökum Alþýðubandalags-
ins kemur eigi á óvart þótt „ráð-
herrasósíalismi" þeirra félaga sé
beiskur á bragði þótt þeim
forvígismönnum sé það auðvelt að
éta ofan í sig öll stóryrðin um
„samningana í gildi".
Fyrr á árum deildu félagar
Kommúnistaflokksins mjög um
það hvort sósíaldemókratar væru
„höfuðstoð borgarastéttarinnar"
innan þjóðfélagsins. Voru þeir
reknir úr flokknum er ekki vildu
fallast á þá kenningu. Nú kemur í
ljós að vinnukaupendur og for-
svarsmenn borgarastéttarinnar á
Islandi eru mjög ánægðir með
nýgerða kjarasamninga. Enda
skyldi enginn lá þeim það.
Ritstjóri Þjóðviljans stígur í
vænginn við forvígismann Vinnu-
veitendasambandsins. Síðan para
þeir sig. Arangurinn er gauksegg
Vinnuveitendasambandsins í
þrastarhreiðri Fjármálaráðuneyt-
isins. Og forvígismenn ASÍ og
annarra launamannasamtaka
fallast á að liggja á egginu og
unga því með þeim árangri sem
alþjóð þekkir.
Hver var að tala um „höfuðstoð
borgarastéttarinnar"?
Kór Kennara-
háskólans
heldur tónleika
KÓR Kennaraháskóla Islands
heldur fyrstu opinberu tónleika
sína í Ytri-Njarðvíkurkirkju
sunnudaginn 6. desember kl. 16.00,
og aðra í Háteigskirkju þriðjudag-
inn 8. desember kl. 20.30.
Á efnisskránni eru jólalög frá
ýmsum löndum, m.a. eftir Jan Pi-
eters Sweelinch, Bach, Mozart, Di-
etrich Buxtehude, Britten o.fl.
Stjórnandi kórsins er Herdís H.
Oddsdóttir og er þetta þriðja
starfsár kórsins.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
Allir í fullu
fjori i
á pið
% dag I kl. 1 1
!FDDB! DAini
Tepprlrnd
Grensásvegi 13, slmar 83577 — 83430
Frá Artek, Finnlandi.
Hönnun Alvar Aalto.
Stólar af ýmsum gerðum
ásamt fleiri nytjahlutum í
miklu úrvali.
ALVAR
AALTO
artek
AOGÖIS»tóAS83»WMF.«i
S«sk88ií'rnessof»BSi