Morgunblaðið - 05.12.1981, Qupperneq 21
21
— MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981
3 «, » k ’ *' V
* — _
I tilefni af ummælum Alberts Guðmundssonar:
Þáttur
manna
eftir Árna Sigfússon,
formann Heimdallar
FUS
Tveir ungir os skeleggir máls-
svarar sjálfstæðisstefnunnar hafa
nú tekið við forystutaumum í
Sjálfstæðisflokknum. Friðrik
Sophusson hefur verið kjörinn
varaformaður hans og flokksmenn
staðfestu það traust í nýafstöðnu
prófkjöri, sem borgarstjórnar-
flokkurinn hafði sýnt Davíð
Oddssyni, er hann var kjörinn
formaður hans.
Þessir tveir menn eiga það m.a.
sameiginlegt að þá er ekki hægt að
flokka með sanni í þær fylkingar
sem andstæðingar okkar í stjórn-
málum hafa verið hvað ótrauðast-
ir við. Þeir hafa verið málssvarar
sjálfstæðisstefnunnar og gefa
flokkadráttum langt nef. En þótt
áróðursbragð andstæðinganna
hafi ekki heppnast á þessum
mönnum, er ekki þar með sagt að
slíkt hafi lítið verið reynt. Ýmsum
félögum okkar hættir nefnilega
við að taka upp Þjóðviljaáróður-
inn og dreifa honum áfram innan
okkar raða. Róstursamar yfirlýs-
ingar í fjölmiðlum gera flokki
okkar lítið gagn, sérstaklega þeg-
ar bræðravíg eru stunduð.
Sjálfstæðisfólk, sem ekki vill
láta merkja sig í raðir þessa eða
hins er í þann veginn að fá sig
fullsatt á slíku hátterni og finnst
nóg komið þegar enn er haldið
áfram á sömu braut eftir að borg-
arstjórnarprófkjörið er yfirstaðið.
Þáttur ungra
sjálfstæðismanna
Þeir sem slíkt athæfi stunda og
dæma hópa fólks sem stuðnings-
menn eða andstæðinga, ættu að
gera sér grein fyrir því að þeir
væru ekki í sínum trúnaðarstörf-
um fyrir flokkinn ef ekki væri
hinn breiði hópur flokksmanna
sem kýs þá án þess að hafa skipað
þeim í flokka, með eða móti. Þann-
ig veitti t.d. lang stærstur hluti
sjálfstæðismanna í nýafstöðnu
prófkjöri bæði þeim Davíð
Oddssyni og Albert Guðmunds-
syni atkvæði sitt.
í prófkjörsbaráttunni lögðu
ungir sjálfstæðismenn fram sinn
skerf til þess að veita ferskum
anda inn í hana og hindra að öfl
óeiningar og sundrungar næðu inn
í baráttuna. Við boðuðum til fund-
ar með fulltrúum flokksins í borg-
arráði þeim Albert og Davíð. Á
þeim fundi var það ekki verk
ungra manna að draga fram kosti
ungra sjálfstæðis-
f prófkjörsbaráttunni
annars og lesti hins, það vita þeir
er fundinn sátu. Við stóðum einnig
að kynningarfundi með öllum
frambjóðendum, ásamt öðrum fé-
lögum í Reykjavík og við gáfum út
bækling þar sem við kynntum m.a.
frambjóðendur úr röðum ungra
sjálfstæðismanna. Öll var þessi
vinna framkvæmd án þess að
kastað væri rýrð á nokkurn fram-
bjóðanda. Á baksíðu umrædds
bæklings var bent á að fyrrver-
andi borgarstjórar, þeir Bjarni
Benediktsson, Gunnar Thorodd-
sen, Geir Hallgrímsson og Birgir
ísjeifur hafi allir verið á aldrinum
32—36 ára er þeir tóku við emb-
ætti borgarstjóra. Þá var bent á,
til þess að mæta óréttmætri gagn-
rýni um að Davíð Oddsson, for-
„Hér er þörf á að leið-
rétta ýmislegt, en fyrst
og fremst vona ég að Al-
bert Guðmundsson geri
sér grein fyrir því að ung-
ir sjálfstæðismenn, sem
aðrir flokksmenn studdu
hann í borgarstjórnar-
prófkjörinu. lím það þarf
ekki að efast því að öðr-
um kosti hefði Albert
ekki fengið svo ágæta
kosningu sem raun ber
vitni.“
vaxnir, ef við stæðum ekki heils-
hugar að baki kjörnum formanni
borgarstjórnarflokksins úr okkar
röðum og verðum hann ekki gegn
óréttmætum fullyrðingum um
vanhæfni hans.
Notuðum hvergi
ummæli Alberts
En hvað á Albert Guðmundsson
við er hann gefur í skyn að sér
þyki einkennilegt að við notum
mynd af Gunnari Thoroddsen,
Davíð Oddssyni til framdráttar?
Líklega hefur honum þótt ábend-
ing okkar góð, en varla ætlast
hann til þess að þótt við værum
ekki sáttir við þann aðdraganda er
stjórnarmyndun Gunnars hafði,
B|aml Banadiktaaon varð borgaretjóri i Beykja-
vik 8. október 1940. aðeins 32 ára að aldrl.
Gunnar Thoroddaan varö 36 ára gamall
borgarstjóri I Reykjavík, 4. febrúar 1947.
Geir Hallgrimason var 33 ára er hann tók við
embaetti borgarstjóra 19. nóvember 1959
Birglr lalelfur Gunnaraaon varð borgarst jóri
i Reykjavlk 1. desember 1972.34ára að aldri
Lhgir borgarstjórar
i Reykjavik
Árið 1978 misstu sjálfstæðismenn meirihlutann I borgar-
stjórn Reykjavfkur.
Á næsta ári, i mai 1982, verða borgarstjórnarkosningar
I Reykjavík.
Við sjálfstæðismenn verðum að kappkosta að vinna
borgina aftur og forðast pær deilur sem sundrað hafa
flokknum á Alþingi íslendinga.
Til þess mikilvæga verkefnis var borgarstjórnarflokkur
sjálfstæöismanna einhuga um að velja ungan mann. Davið
Oddsson, sem starfað hefur I borgarstjórn slðast liðin 8 ár
Ef litið er á hinn unga hóp borgarstjóra kemur I Ijós, að
Davlö Oddsson verður næst elstur þessara manna ef hann
hlýtur kosningu næstavor. ....
Það hefur veriö gæfa sjáltstæðismanna I Reyk|avlk að hafa
framsýni og hugrekki til pess að fylkja sér undir merki
unara forystumanna i borgarmálum Reykjavfkur
Heimdallur
maður borgarstjórnarflokksins,
væri of ungur í það starf, að hann
væri einmitt á þeim aldri sem allir
þessir mikilhæfu menn höfðu ver-
ið á er þeim var treyst til forystu-
starfa. Á baksíðunni var einnig
ítrekað að sjálfstæðismenn mættu
ekki leiða þá sundrungu er ríkti í
flokknum á Alþingi inn í borgar-
stjórn og til þess verkefnis að
leiða borgina út úr ógöngunum
hafi borgarstjórnarflokkurinn
einhuga valið Davíð Oddsson. Allt
eru þetta hlutir, sem allir sjálf-
stæðismenn ættu að geta tekið
undir.
Athugasemdir
Alberts
Það var því óneitanlega sárt að
lesa ummæli Alberts Guðmunds-
sonar í Morgunblaðinu, miðviku-
dag eftir prófkjör, þar sem hann
gaf í skyn að við, ungir sjálfstæð-
ismenn, hefðum birt ummæli eftir
sér, en slitin úr samhengi, frá því
hann kvaddi Birgi ísleif sem for-
mann borgarstjórnarflokksins.
Hann gefur í skyn að með slíkum
ráðum hafi okkur jafnvel tekist að
færa Davíð í efsta sætið í próf-
kjörinu. Þá þótti honum enn frem-
ur skjóta skökku við að ungir
sjálfstæðismenn birtu mynd af
Gunnari Thoroddsen, Davíð
Oddssyni til framdráttar.
Hér er þörf á að leiðrétta ýmis-
legt, en fyrst og fremst vona ég að
Albert Guðmundsson geri sér
grein fyrir því að ungir sjálfstæð-
ismenn, sem aðrir flokksmenn,
studdu hann í borgarstjórnar-
prófkjörinu. Um það þarf ekki að
efast því að öðrum kosti hefði Al-
bert ekki fengið svo ágæta kosn-
ingu sem raun ber vitni. Við vær-
um hins vegar ekki starfi okkar
hvað þá afkvæmið, að við vildum
stunda sögufölsun og gleyma því
að Gunnar starfaði um árabil sem
borgarstjóri við hinn ágætasta
orðstý. Ungir sjálfstæðismenn
meta Gunnar Thoroddsen mikils,
hann hefur starfað lengi fyrir
flokk okkar og flestir óskuðum við
að hin síðari störf hans hefðu ver-
ið með öðrum hætti. Ekki get ég
túlkað orð Alberts Guðmundsson-
ar á annan hátt en svo að við ung-
ir sjálfstæðismenn höfum notað
ummæli hans í heimildarleysi.
Hér hlýtur að vera einhver mis-
skilningur á ferðinni. Ungir
sjálfstæðismenn notuðu hvergi
ummæli Alberts í þessari próf-
kjörsbaráttu. Hér hlýtur Albert
að misminna.
Þótt aðrir en ungir sjálfstæð-
ismenn hafi orðið til þess að
minna á ræðustúf er Albert flutti
við það tilefni er Birgir ísleifur lét
Árni Sigfússon.
af störfum sem formaður borgar-
stjórnarflokksins og Davíð tók við,
þá get ég á engan hatt séð það
réttmætt að gefa í skyn eða bera
slíkt á okkur í fjölmiðlum. Hins
vegar sé ég ekki að umræddur
ræðustúfur geti verið orsök þess
að Albert hélt sínu sæti í þessu
prófkjöri. En hvaða ummæli á Al-
bert við, sem tengjast ungum
sjálfstæðismönnum, hvar og
hvenær voru þau viðhöfð í nafni
okkar samtaka?
Styrkur okkar byggist
á samstöðunni
I sama blaðr og Albert lætur í
ljós óánægju sína með „öfl“ innan
flokksins, er berjist gegn sér og
miklast af því að hafa nú jafn-
sterkt afl í sínum röðum, skrifar
efnilegur maður úr röðum okkar
ungra sjálfstæðismanna. Hann
hafði hellt sér út í umrætt próf-
kjör, fullur af áhuga með ferskar
hugmyndir. Hann hafði hins vegar
ekki ráð á að hafa í baráttunni
launaða starfsmenn, fjölmarga
skrifstofusíma og annað sem virð-
ist þurfa til þess að tryggja
mönnum kosningu í dag. Hann
hafði aðeins skoðanir sínar að
vopni í þessari prófkjörsbaráttu,
og hann lagði til atlögu í ræðu og
riti. En hann hlaut ekki brautar-
gengi. Hann hlaut hvorki 3. eða 11.
sætið.
Það mætti því ætla að slíkur
maður teldi ýmsa hafa svikið sig
og léti stóryrði fjúka um klíkur,
eða peninga. En hljóðið er allt
annað, það hefur vonina og fersk-
leikann í sér. Hann bendir aðeins
sjálfstæðismönnum á að styrkur
flokks okkar í hálfa öld hefur
byggst á samstöðunni, að sjálf-
stæðismenn verða að snúa bökum
saman, því í vor er það samstaðan
sem dugar til sigurs.
Látum því af bræðravígunum,
tökumst í hendur því með öðrum
hætti munu Reykvíkingar ekki
veita okkur brautargengi. Tökum
heilshugar undir óskir Alberts
Guðmundssonar, að fólk standi
einhuga að baki lista sjálfstæð-
ismanna í vor.
Jakob Jónsson:
SKUGGSJÁ
FRÁ SÓLARUPPRÁS TIL
SÓLARLAGS
Bók, sem þú lest í einni lotu!
Þessi bók sameinar á sérstæöan hátt
skemmtun og alvöru. Sá lesandi er
vandfundinn, sem ekki les hana í einni
lotu, ýmist hugsi og veltandi vöngum,
eöa meö bros á vör, — jafnvel kunna
sumir aö hlæja dátt yfir hinum stór-
fyndnu sögum af samferöamönnum
séra Jakobs. Stutt lýsing hans á atburöi
eöa smámynd af persónu gefur oft betri
hugmynd um lífsferil en langar lýsingar.
BÓKABÚO OUVERS STEINS SF
Jón Auöuns: TIL HÆRRI HEIMA
f >
SKUGGSJÁ
q Fögur bók og heillandi.
JÓN AUÐUNS
Bókin hefur aö geyma 42 hugvekjur, úr-
val úr sunnudagshugvekjum séra Jóns,
sem birtust í Morgunblaðinu. Þaö voru
ekki allir sammála honum í túlkun hans
á sannindum kristindómsins, en flestir
voru sammála um snilld hans í fram-
setningu sjónarmiöa sinna, ritleikni
hans og fagurt mál.
Það er mannbætandi að lesa þessar
fögru hugvekjur og hugleiða í ró efni
þeirra og niöurstöður höfundarins.
BÓKABÚD OLIVERS STEINS SF
I
—
—