Morgunblaðið - 05.12.1981, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981
Uggur í Reagan út af
líbýskri aftökusveit
V\ a.shint;lon, 4. dcsember. Al*.
RONALI) Reagan Banda-
ríkjaforseti sagðist í dag hafa
þungar áhyggjur vegna þess
orðróms um að líbýsk aftöku-
Móðir fyrsta
glasa-
barnsins
á von
á tvíburum
l/ondon, 4. deNember. AIV
FRÚ LESLEY Brown er ól
fyrsta glasaharnið á von á
sér öðru sinni, og er jafn-
vel talið líklegt að hún beri
tvíbura undir belti.
Að söKn brezku fréttastof-
unnar Press Association á frú
Brown von á sér í júlí, eða um
svipað leyti og Louise Brown,
fyrsta glasabarnið, verður
fjögurra ára, en hún fæddist
25. júlí 1978.
Fréttastofan sagði að Leslie
Brown væri fullkomlega heil-
brigð og væri í engu frábrugð-
in börnum sem verða til við
venjulegan getnað. Alls hafa
18 glasabörn fæðst í Bret-
landi, Astralíu og í Indlandi
frá því Leslie Brown fæddist,
og eru 60 börn í vændum á
Bretlandseyjum.
sveit sé komin til Bandaríkj-
anna í þeim tilgangi að aflífa
hann og ýmsa háttsetta emb-
ættismenn.
f Forsetinn fyrirskipaði í dag
öflugan öryggisvörð um þrjá
nánustu aðstoðarmenn sína, og
fregnir frá Hvíta húsinu herma
að öryggisvörður Reagans, sem
efldur hefur verið síðustu vik-
urnar, verði styrktur enn frekar
á næstunni.
Sagði forsetinn fjölmiðla hafa
staðið vel í hlutverki sínu með^
því að ljóstra upp um ferðir Líb-
ýumannanna. Sagðist forsetinn
ekki hafa reynt að ná tali af
Gaddafy Líbýuleiðtoga vegna
þessa máls, en talið er að hann
hafi sjálfur fyrirskipað för af-
tökusveitarinnar til Bandaríkj-
anna.
B-1 smíduð
\Vashinglon. 4. dcst*mb<T. Al*.
ÖLDUNGADEILD Bandaríkja-
þings bjargaði í dag áætlunum
Reagans forseta um MX-eldflaug-
ar og samþykkti smíði B-1
sprengjuflugvélarinnar, en hvort
tveggja var hluti af frumvarpi um
útgjöld til hermála er gerir ráð
fyrir 208,5 milljarða dollara út-
gjöldum. ,
Mordingi
Schleyers
dæmdur
DusM-ldorf. 4. desember. Al*.
STEFAN Wisniewski, félagi í
Baader-Meinhof hryðju-
verkahópnum, var í dag
dæmdur í lífstídarfangelsi
fyrir aðild sína að morðinu á
iðnjöfrinum Hans-Martin
Schleyer og fjórum sam-
starfsmönnum hans árið
1977.
Wisniewski var handtekinn
vorið 1978 og reyndist aldrei
samvinnuþýður við rannsókn
málsins og við yfirheyrslur neit-
aði hann jafnan um allar upp-
lýsingar. Hann lét öllum illum
látum í dómsalnum í dag og
greip oft fram í fvrir dómurum.
Jólasveinar
slást í London
Dmdon, 4. dcHember. AIV
l'EGAR gamli jólasveinninn og
ungi jólasveinninn uppgötvuðu að
þeir a-tluðu sér báðir sama blett-
inn á Kingsway varð lítið um kær-
leika eða bræðralag þeirra á milli.
Jólasveinarnir ákváðu að út-
kljá deiluna um söluhornið með
handalögmálum.
Og meðan forviða mæður og
börn þeirra horfðu á tóku jóla-
sveinarnir að slá til hvors ann-
ars og um síðir veltust þeir í
fangbrögðum á gangstéttinni.
Lögregluþjón bar þar að skjótt
og gekk hann á milli jóla-
sveinanna sem voru orðnir held-
ur óhrjálegir útlits. Voru þeir
teknir á næstu lögreglustöð og
sektaðir um 50 sterlingspund
hvor. Tókust þeir í hendur og
ákváðu að sættast heilum sátt-
um er þeir yfirgáfu stöðina.
Talsverður aldursmunur var á
jólasveinunum, annar 24 ára
leikfangasali og hinn 64 ára
sælgætissali, og þóttust báðir
eiga sama blettinn í milljóna-
borginni.
Nokkrir unglinganna sem létu lífið í Qutab Minar turninum í Indlandi á fostudag. l’eir tróðust undir þegar ótti
greip um sig þegar rafmagnið fór af turninum. Al’-símam.vml.
45 deyja í troðningi
Nýju Dclhí, 4. dcscmbcr. Al*.
FJÖRUTÍU og fimm menn fórust
og rúmlega tuttugu slösuðust er
skelfing greip um sig meðal ferða-
manna er staddir voru inn í hinurn
sögufræga CJulab Minar steinturni
er skyndilega varð rafmagnslaust.
Fólkið tróðst niður stiga
turnsins með þeim afleiðingum
að fjölmargir tróðust undir og
hröpuðu niður stigana.
Að minnsta kosti 27 hinna
látnu voru börn.
Óljóst er í rauninni hvað olli
þessu alvarlega slysi. Fyrst var
frá því skýrt að turninn hefði
skyndilega orðið rafmagnslaus
og fólkið þá rokið til stigans og
troðist niður. Aðrir sögðu
hræðslu fyrst hafa gripið um sig
í rafmagnslausum turninum er
einhver viðstaddur hrópaði að
turninn væri að hrynja.
Samstarf við íslend-
inga kemur ekki í stað-
inn fyrir aðild að EBE
- segir í blaði stjórnarandstöðuflokksins á Grænlandi, Atassut
Julianchaab, 4. dcscmb«‘r, frá llcnrik l.und, frcUaritara Mbl.
STJÓRNARANDSTÖÐUFLOKKURINN Atassut,
sem Lars Chemnitz fyrrum landsráðsformaður veitir for
stöðu, hefur gefið út blað sem helgað er Efnahagsbanda-
lagi Evrópu, en í blaðinu er áréttuð sú skoðun flokksins,
að aðild að Efnahagsbandalaginu (EBE) sé Græn-
lendingum fyrir beztu.
Og nú nýlega lætur blað flokksins samband Islands
og Grænlands til sín taka í grein sem ber fyrirsögnina:
Greinin fer hér á eftir:
„Sjávarútvegsráðherra Islands
var nýlega í heimsókn hjá okkur og
hann fór fögrum orðum um sam-
vinnu íslendinga og Grænlendinga.
Allir tóku boðskap hans vel. Aður
en hann hélt heim á leið sagði hann
það mundi reynast íslendingum
áuðveldara að semja í Nuuk en í
Brussel. Og við óttumst að það sé
rétt!
„Ísland/Grænland — samstarf eða samkeppni“. Grein-
in hefur komið róti á hugi hóps Grænlendinga og vakið
reiði meðal þeirra sem telja hér vera á ferðinni lævísan
og ósannan áróður þar sem reynt væri að gera velviljað
nágrannaríki tortryggið. Og á hinn bóginn hefur hún
vakið menn til umhugsunar um hvort nágrannaríkið sé
jafn trúverðugt og af er látið og hvort það muni reynast
Grænlendingum áreiðanlegt í samstarfi.
íslendingar stunda umfangsmik-
inn útflutning sjávarafurða. Þeir
veiða fjórum sinnum meiri þorsk
en við. Langstærstur hluti útflutn-
ingstekna Islendinga fæst fyrir
sjávarafurðir. Af þessum sökum
kemur samstarf við íslendinga ekki
í staðinn fyrir aðild að Efnahags-
bandalaginu. Mörg vandamál yrðu
samfara samstarfi við íslendinga.
Keppinautur:
1. Sem útflytjendur sjávaraf-
urða geta íslendingar ekki hjálpað
okkur að selja okkar eigin sjávar-
afurðir.
2. I beinni samkeppni við íslend-
inga getum við selt sjávarafurðir
til ríkja Efnahagsbandalagsins og
einnig til Bandaríkjanna, þar sem
Kanadamenn hafa styrkt stöðu
sína verulega og ógna jafnvel út-
flutningi íslendinga þangað.
3. Mikil vandamál hafa komið
upp við skiptingu sameiginlegra
fiskveiða íslendinga og Grænlend-
inga undan austurströnd Græn-
lands. Hér er um að ræða karfa,
þorsk, rækju og loðnu, á svæðum
sem við höfum yfirleitt ekki sótt
mikið á. Það hafa átt sér stað við-
ræður um veiðar á þessum slóðum
og hafa þá fulltrúar Efnahags-
bandalagsins komið fram fyrir
VILHJALMUR HJALMARSSON
Raupað úr ráóuneyti
INNANDYRA "Á HVERFISGÖTU 6 í FJÖGUR ÁR 0G FJÓRA DAGA ~
Þetta er fyrsta bók höfundarins. Hún er ný-
stárleg, því enginn íslenskur ráðherra hefir
áður sett saman bók um ráðuneytið sitt.
Vilhjálmur kemur víða við og ræðir m.a.
stöðuveitingar, írafár á Alþingi, námsmanna-
hasa og kalda stríðið um peningana.
Gamansemi Vilhjálms gægist víða fram. Og
oft er seilst eftir svipmyndum utan dyra þótt
Hverfisgata 6 sé þungamiðja bókarinnar.
Frásögnin er opinská en laus við alla beiskju.
180 myndir eru í bókinni.
Verð kr. 320.00
ÞJÓÐSAGA
ÞINGHOLTSSTRÆTI 27 — SÍMI 13510
Grænlands hönd. Enginn árangur
hefur orðið af þessum viðræðum
sökum þrákelkni íslendinga, sem
hafa haldið fast og þvermóðskulega
á rétti sínum. Islendingar stóðu
fast á því að aflaskipting ætti að
miðast við veiðar þjóðanna og
hlutföllin ákveðin á þeim grund-
velli, en ekki með tilliti til stærðar
efnahagslög landanna. Þannig
buðu íslendingar Grænlendingum
aðeins 17% af karfakvótanum á
meðan samningamenn Efnahags-
bandalagsins kröfðust helmings
aflans, en þau 50% myndu fyrr en
síðar kom í hlut grænlenzkra sjó-
manna. Þetta gátu íslendingar alls
ekki fallizt á.
Hið sama er uppi á teningnum
með tilliti til rækju-, þorsk- og
loðnuveiða. Réttlát lausn þessara
mála er því aðeins möguleg að
Efnahagsbandalagið fái beitt
þrýstingi á íslendinga og tryggi
okkur þannig þann hlut sem við
eigum kröfu til. Það eru engar líkur
á að við fáum sanngjarna hlutdeild
í fiskveiðunum við austurströndina
ef við stöndum utan við Efna-
hagsbandalagið. Einir sér getum
við ekki beitt Islendinga þrýstingi.
Af þessum sökum kjósa íslend-
ingar heldur að semja í Nuuk en í
Brussel!
Islendingar reikna með að það-
verði léttara og sjálfum sér til
ábata, að semja beint við Græn-
lendinga!“
Með greininni var birt mynd af
skreið og var texti með myndinni á
þessa leið: „Á Islandi úldna sjavar-
afurðir þar sem þær eru óseljanleg-
ar. Með aðild að EBE höfum við
öryggan markað fyrir afurðir
okkar."