Morgunblaðið - 05.12.1981, Side 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981
25
Lltgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 6 kr. eintakið.
Avextir
Tímaritstjórans
Ritstjóri Tímans heldur áfram að tína ávexti af afrekstré ríkis-
stjórnarinnar í ieiðara blaðs síns sl. föstudag. Niðurstaða hans
í lok uppskerunnar er einkar athyglisverð: „Þörf er fyrir áframhald-
andi niðurtalningu, sem nái til skatta, vaxta, afurðaverðs og verð-
bóta.“
• Hvern veg hafa skattar verið taldir niður á valdatíma núverandi
ríkisstjórnar, sem hefur verið hugmyndaríkari og frekari til skatt-
heimtunnar en nokkur önnur? Er ekki nýr skattur í burðarlið, sem
kemur ofan á verð orku, sem fer um stofnlínur? Er ekki ný hækkun
söluskatts á athugunarstigi?
• Hvern veg hafa vextir, eða fjármagnskostnaður, verið taldir
niður á valdatíma stjórnarinnar?
• Hefur ekki afurðaverð haldið sína hækkunarleið, þrátt fyrir
niðurgreiðslur á vísitöluvörur, sem sóttar eru með margvíslegri
skattheimtu á neytendur vörunnar, er þannig borga niður verðbæt-
ur á eigin laun?
• Hvers vegna hefur ríkisstjórnin ekki beitt þeim vopnum til niður-
talningar verðlags, sem hún hefur í höndum, lækkun tolla, vöru-
gjalds eða söluskatts? Hafa þessir verðþættir ríkisvaldsins í al-
mennu vöruverði máske farið fram úr öðrum þáttum verðbólgu-
skriðsins?
Ritstjóri Tímans stendur á öndinni, leiðara eftir leiðara, yfir
verðhjöðnun og verðbólguhemlum meintrar niðurtalningar. Heimil-
in í landinu, sem þessa dagana eru í nánari tengslum við verðþróun-
ina en í annan tíma ársins, vegna komandi Jólahátíðar, verða hins-
vegar lítið vör við niðurtalninguna. Það er helst að hún segi til sín í
kaupmætti launa, skerðingu nýkrónunnar og áliti ríkisstjórnarinn-
ar.
Benzín er afgerandi kostnaðarþáttur í útgjöldum flestra heimila í
landinu. Verð þess er að 56 hundraðshlutum skattheimta ríkisvalds-
ins. Hver hefur verið niðurtalning ríkisstjórnarinnar á eigin verð-
þáttum þessa útgjaldaþáttar? Ríkið hefur einkasölu á tóbaki og
áfengi, sem eru umdeildar vörur, en verðiagning þeirra er alfarið í
höndum fjármálaráðherra Alþýðubandalagsins. Verð þeirra hefur
hækkað um 82% á síðustu 12 mánuðum á sama tíma og launahækk-
un verkafólks, í krónum talin, hefur verið innan við 42%. Þessi tvö
dæmi eru nefnd vegna þess, að þau eru mestpart verk ríkisstjórnar-
innar, en hún hefur að sjálfsögðu áhrif á alla verðþróun með tollum,
vörugjaldi og söluskatti. Það er eftirtektarvert að forystumenn
BSRB telja kaupmátt launa hafa minkað um 20% frá 1977, síðasta
heila ári þeirrar ríkisstjórnar, sem Svavar, Ragnar og Hjörleifur
kölluðu „kaupránsstjórn"! Og ritstjóri Tímans má ekki vatni halda
yfir árangri niðurtalningarinnar!
Niðurstaða Tímaritstjótans er „áframhaldandi niðurtalning".
Hann nefnir sérstaklega verðbætur — og mun þar eiga við verðbæt-
ur á vinnulaun. Formaður Alþýðubandalagsins, sem stóð að afnámi
viðskiptakjaraviðmiðunar verðbóta, meðan viðskiptakjör gátu þýtt
hækkun þeirra, en afturkomu slíkrar viðmiðunar, þegar niðurstað-
an var gagnstæð, segir hinsvegar i Þjóðviljanum 3. desember sl., að
ekki megi hrófla frekar við forsendum kjarasamninga, þar með
töldum verðbótareglum. Hér mætast stálinn stinn, strákurinn og
kerlingin, í málefnalegri mótsögn.
Formaður Alþýðubandalagsins heldur því einnig fram, að fella
eigi niður olíugjald, sem tekið er af aflaverðmæti til að mæta
áhrifum mikillar verðhækkunar olíu fyrir útgerðina. Núverandi
ríkisstjórn hækkaði þetta gjald úr 2% í 7,5%! Framsóknarmenn
virðast heldur betur á annarri skoðun, enda telja þeir afnám olíu-
gjaldsins verðbólguhvata við núverandi aðstæður. Forsvarsmenn
fiskvinnslunnar telja afnám olíugjaldsins einfaldlega þýða þeim
mun hærra fiskverð. Hér skal enginn dómur lagður á þetta gjald,
sem verið hefur þyrnir í augum sjómanna. Þessi tvö dæmi eru
nefnd, þ.e. annarsvegar ágreiningur um verðbætur á laun og hins-
vegar um afnám olíugjalds, sem sýnishorn af því ósamkomulagi,
sem nú fer vaxandi í ríkisstjórninni — í kjölfar lélegs stjórnar-
árangur, bæði varðandi verðþróun og rekstrarstöðu helztu atvinnu-
vega þjóðarbúsins.
Ritstjóri Tímans er nánast eini íslendingurinn, sem virðist trúa
því staðfastlega, að ríkisstjórnin sé á þröskuldi þess að ná verð-
þróun hér á landi niður á sama þróunarstig og í helztu viðskipta-
löndum okkar, en því marki skyldi náð 1982. Hann bregst og hinn
versti við þegar rekstrarstaða atvinnuvega okkar er gerð að umtals-
efni eða stöðnun þjóðártekna, sem lífskjör okkar grundvallast á.
Hann flaggar enn í leiðurum með „stöðugu gengi“ og „niðurtaln-
ingu“! Dag eftir dag reynir hann að bera ljós í hrip inn í myrkur
stjórnarsamstarfsins. Slík þrákelkni er út af fyrir sig lofsverð — og
ekki síður hitt að vekja bros á vör í skammdeginu.
Starfsfólk Tryggingamiðstöðvarinnar ásamt stjórnarformanni. Frá vinstri: Guðfinnur Einarsson, Ásgerður Halldórsdóttir, Birna Sigurðardóttir, Gísli Olafson, Áslaug
Jóhannsdóttir, Klara Þórhallsdóttir, Helga Hafsteinsdóttir, Ingibjörg Júlíusdóttir, Gísli Jón Magnússon, Helga Ólafsdóttir, Ágústa Harðardóttir, Hörður Felixson, Hafdís
Guðmundsdóttir, Þráinn Viggósson, Ástrós Guðmundsdóttir, Gísli Guðlaugsson, Kolbrún Gísladóttir, Ingimar Sigurðsson, Edda Kristfinnsdóttir, Sonja Georgsdóttir,
Sigurður Einarsson, Gunnar Felixson, Haukur Jónsson og Guðmundur Pétursson, en á myndina vantar Sigurð Ingibergsson, Árna Ásgeirsson og Maríu Kristjánsdóttur.
Ljósmyndir Mbl. Kaj»nar Axelsson.
25 ára afmæli Tryggingamiðstöðvarinnar:
Yfir 70% af tryggingum fyrir-
tækisins tengdar sjávarútvegi
Frá afhendingu gjafar Tryggingamiðstöðvarinnar til SVFÍ í húsi félagsins á
Granda í gær. Stjórnarmenn SVFÍ og Tryggingamiðstöðvarinnar, frá vinstri:
Hörður Friðbertsson, Baldur Jónsson, Sigurður Einarsson, Ingólfur Þórðar
son, Guðfinnur Einarsson, Hörður Felixson, Jón Ingvarsson, Hannes Haf-
stein, Egill Júlíusson, Haraldur Sturlaugsson, Gísli Olafson, Gunnar Felix-
son, Haraldur Gíslason og Haraldur Henrysson, varaforseti SVFI.
Gísli Olafsson, forstjóri, Guðfinnur Einarsson, stjórnarformaður, og Gunnar Felixson, aðstoð-
arforstjóri.
Mesta tjón sem Tryggingamiðstöðin hefur orðið fyrir er þegar flutningaskipið Mávur strandaði fyrir botni
Vopnafjarðar í haust. Hér er Mávur í brotsjóunnum og verið er að bjarga síðasta skipverjanum í land, en
björgunarsveitin Vopni á Vopnafirði bjargaði áhöfn skipsins. I.jósm. (iunnar ÁsgoirsNon.
Tryggingamiðstöðin hélt upp
á 25 ára afmæli sitt í gær og í
tilefni dagsins afhenti stjórn fé-
lagsins Slysavarnafélagi Islands
að gjöf kr. 100 þúsund við at-
höfn í húsi SVFÍ á Grandagarði.
Gísli Olafson, forstjóri Trygg-
ingamiðstöðvarinnar, afhenti
Haraldi Henryssyni, varaforseta
SVFÍ, gjöf fyrirtækisins og kvað
fjárhæðina viðurkenningarvott
til SVFÍ fyrir mikil og gifturík
björgunarstörf slysavarnafólks
um allt land, en gjafaféð er til
frjálsrar ráðstöfunar SVFÍ til
slysavarna og björgunar úr sjáv-
arháska. Haraldur Henrysson
þakkaði hina höfðinglegu gjöf
og kvað SVFÍ og Trygginga-
miðstöðina eiga sameiginlegt
markmið í öryggismálum þótt á
sitt hvorum vettvangi væri unn-
ið.
Tryggingamiðstöðin er í
hópi þriggja stærstu trygg-
ingafélaga landsins, en stærst
er Samvinnutryggingar af
þeim sjö tryggingafélögum
sem eru með almennar trygg-
ingar á sinni könnu.
Tryggingar í sambandi við
skip og farm skipa eru stærsti
þátturinn í starfi Trygg-
ingamiðstöðvarinnar eða um
65%, en alls eru tryggingar
tengdar sjávarútvegi yfir 70%
af tryggingum félagsins.
Tryggingamiðstöðin tryggir
t.d. um 45% af öllum fiski-
skipum landsmanna sem eru
yfir 100 tonn að stærð, en
minni bátar hafa sem kunn-
ugt er skyldutryggingu hjá
bátaáby rgðarfélögu m.
Endurtryggingar Trygg-
ingamiðstöðvarinnar eru mest
á London-markaði, en einnig í
Japan og Bandaríkjunum, en
hér innanlands endurtryggja
tryggingafélögin einnig í rík-
um mæli hjá hvert öðru þar
sem áhættudreifing trygg-
inganna er þungamiðja í ör-
yggi rekstursins.
A blaðamannafundi hjá
Tryggingamiðstöðinni í gær
kom það fram að hæsta tjón
sem Tryggingamiðstöðin hef-
ur greitt út varð á þessu ári er
vöruflutningaskipið Mávurinn
strandaði og eyðilagðist með
saltfiskfarm. Farmurinn var
tryggður hjá Tryggingamið-
stöðinni og greiddi félagið 20
milljónir kr. (2000 millj. g.kr.)
i bætur innan mánaðar frá því
að farmurinn var dæmdur
ónýtur. Á blaðamannafundin-
um kvað Gísli verðbólguna
skapa mikil vandræði í rekstri
félagsins eins og í öllum at-
vinnurekstri á íslandi og
nefndi sem dæmi að ekknalíf-
eyrir sem félagið greiddi árið
1973 vegna skips sem fórst
nam þá 1,2 millj. kr., en nú
væri upphæðin komin í 13
millj. g.kr.
Upphaflegt hlutafé var g.kr.
962.000 en fyrstu stjórn fé-
lagsins skipuðu Elías Þor-
steinsson, forstjóri, Keflavík,
formaður (lést 1965), Einar
Sigurðsson, útgerðarmaður,
(lést 1977), Jón Gíslason, út-
gerðarmaður, (lést 1964),
Olafur Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri, (lést 1975) og
Sigurður Ágústsson, alþingis-
maður, (lést 1976).
Félagið rekur alhliða vá-
tryggingastarfsemi nema líf-
tryggingar, sem dótturfélag
þess Líftryggingamiðstöðin
hf. annast, en samkvæmt lög-
um má ekki reka líftryggingar
með öðrum tegundum vá-
trygginga. Líftryggingamið-
stöðin hf. var stofnuð 22. maí
1971 og varð því tíu ára fyrr á
þessu ári.
Fyrsta starfsár Trygg-
ingamiðstöðvarinnar hf. árið
1957, voru bókfærð iðgjöld fé-
lagsins g.kr. 4 milljónir en það
samsvaraði U.S.$ 251 þúsund.
Síðasta rekstrarár, 1980, voru
bókfærð iðgjöld g.kr. 5.521
milljón en það samsvarar um
U.S. $ 11.500.000 miðað við
meðalgengi ársins.
Eigin áhættuiðgjöld félags-
'ins 1980' voru g.kr. 1.825,7
milljónir. Eigin trygginga-
sjóðir í árslok g.kr. 3.825,5
milljónir. Tekju- og eignar-
skattar ársins 1980 námu g.kr.
111.817.495, aðstöðugjald g.kr.
86.196.695, launaskattur og at-
vinnurekendagjöld g.kr.
7.934.976 eða samtals beinir
skattar tæpar g.kr. 206 millj-
ónir vegna rekstrar ársins
1980.
Eigið fé félagsins í árslok
1980 nam g.kr. 727.729.843 þar
af útistandandi hlutafé g.kr
291.012.000. í júní 1981 var
hlutafé tvöfaldað með útgáfu
jöfnunarhlutabréfa, en það
breytir að sjálfsögðu ekki eig-
infjárstöðunni.
Félagið rekur starfsemi
sína í eigin húsnæði í Aðal-
stræti 6. Umboðsmenn eru
víða um land. Umboðsskrif-
stofur eru á Akureyri og
Blönduósi en auk þess er
Bátaábyrgðarfélag Vest-
mannaeyja með umboð fyrir
félagið í ákveðnum trygg-
ingagreinum.
Stjórn félagsins skipa Guð-
finnur Einarsson, forstjóri,
formaður, Haraldur Sturl-
augsson, forstjóri, varafor-
maður, Jón Ingvarsson, for-
stjóri, Sigurður Einarsson,
forstjóri og Haraldur Gísla-
son, forstjóri, og í varastjórn
eru Jóakim Pálsson, forstjóri,
Ólafur B. Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri og Svavar B.
Magnússon, framkvæmda-
stjóri.
Gísli Ólafson hefur verið
forstjóri félagsins frá stofnun.
Gunnar Felixson er aðstoðar-
forstjóri og Hörður Felixson
skrifstofustjóri. Fastir
starfsmenn eru alls 27.
- á.j.
Bjartara framund-
an hjá norskum
nótaveiðiskipum
Osló, 3. dcsombcr, frá Jan Krik-Laurc, frcltaritara Mbl.
NORSKIR nótaveiðisjómenn vona að nú séu bjartari tímar framundan og
byggja þeir þessa bjartsýni á spám fiskifræðinga um betra ástand loðnu-
stofnsins í Barentshafi og loforðum um takmarkaða síldveiði í hringnót.
Ahugi útgerðarmanna hefur
greinilega aukist á því að kaupa
hringnótabáta, en smíðakostnaður
er hins vegar það mikill að ekki er
útlit fyrir að slík skip verði byggð
fyrir Norðmenn á næstu árum.
Þess í stað reyna menn að komast
vfir eldri nótaskip, en mörg und-
anfarin ár hafa norsk stjórnvöld
styrkt úreldingu og eyðileggingu
slíkra skipa.
Þrátt fyrir bjartsýnina eru enn
of mörg nótaveiðiskip í Noregi.
200 slík skip eru á skrá, en þeir
kvótar sem nú eru leyfðir eru ekki
meiri en svo að 75 skip gætu auð-
veldlega veitt leyfilegan afla.
Kreppa þessa hluta flotans byrj-
aði árið 1978, minnkandi afli, mik-
il útgjaldaaukning, sérstaklega
hærra olíuverð, og litlar verð-
hækkanir á hráefni, hafa verið
helztu orsakir þessa ástands.
Loðnustofninn í Barentshafi:
Virðist gefa U/2
milljón tonn á
ári að meðaltali
EKKI ERU mörg ár síðan loðnuveiðar voru leyfðar í Barentshafi án þess að
sérstakur kvóti væri settur á hvert skip. Að því kom, að afli minnkaði mjög
og óttuðust ýmsir algjört hrun loðnustofnsins. Var þá gripið til þess ráðs að
takmarka verulega loðnuveiðar í Barentshafi og hefur árangurinn verið sá,
að fengist hefur um 1500 þúsund tonna ársafli að meðaltali, en Norðmenn og
Rússar skipta þessum afla á milli sín.
Morgunblaðið spjallaði í vik-
unni við Hjálmar Vilhjálmsson,
fiskifræðing, um loðnustofninn í
Barentshafi og framkvæmd veiða
þar. Sagði Hjálmar að ekkert
samband væri á milli norska og
íslenzka loðnustofnsins svo vitað
væri. Loðnan í Barentshafinu
verður t.d. einu ári eldri og hefur
fleifi hryggjarliði en sú íslenzka.
Hjálmar sagði að aukin bjartsýni
loðnusjómanna í Noregi kæmi sér
á óvart því við mælingar í haust
hefði nokkru minna fundist en
menn hefðu átt von á.
— Fyrir nokkrum árum veiddu
sjómenn í Barentshafinu mælda
stofnstærð nánast alveg upp og
útkoman varð mjög lélegur ár-
gangur, svo lélegur að hans gætti
nánast ekkert í veiðinni þegar að
því átti að koma, sagði Hjálmar.
— Þá var brugðist við á þann hátt,
að hafrannsóknastofnanirnar í
Bergen og Murmansk náðu sam-
komulagi um að stærð stofnsins
skyldi mæld að haustlagi. Síðan
yrði tekin frá ákveðin tonnatala
til hrygningar, gert ráð fyrir
ákveðnum afföllum frá náttúr-
unnar hendi og mismuninn yrði
síðan leyft að veiða.
— Á þeim tíma þegar veiðarnar
fóru úr böndunum var aflinn kom-
inn langleiðina upp í þrjár millj-
ónir tonna á ári. Ef aflalínurit eru
hins vegar skoðuð 10—15 ár aftur
í tímann þá virðist stofninn í Bar-
entshafi geta gefið af sér um 1 '/2
milljón tonna að meðaltali á ári og
sá hefur aflinn nokkurn veginn
verið síðustu árin, sagði Hjálmar
VTlhjámsson.
Bókauppbod Klausturhóla:
200 númer boð-
in upp í dag
BOKAUPPBOÐ verður haldið hjá
versluninni Klausturhólum í
Reykjavík í dag, og hefst það
klukkan 14 miðdegis. Alls eru 200
númer á uppboðsskránni að þessu
sinni, þar af margar bækur og rit
sem ekki sjást oft á bókamarkaði
hérlendis né erlendis.
Meðal rita á uppboðinu í dag
má nefna bók Magnúsar Steph-
ensen, Kort Beskrivelse over den
nye Vuleans Ildsprudning, sem
gefin var út í Kaupmannahöfn
árið 1785. Einnig má nefna Bisk-
upasögur Jóns prófasts Hall-
dórssonar í Hítardal, útgefnar í
Reykjavík 1903 til 1915, I —II.
Kvæðakver Laxness frá 1930 er
einnig á uppboðinu, Hvítir
hrafnar Þórbergs Þórðarsonar
frá 1922, Þjóðtrú og þjóðsagnir
eftir Odd Björnsson frá 1908,
Þjóðsögur og munnmæli Jóns
Þorkelssonar, útgefið í Reykja-
vík 1899, íslenzkir sagnaþættir
Brynjólfs frá Minna-Núpi, út-
gefnir á Eyrarbakka 1911 til
1913, og margt fleira mætti
nefna af uppboðinu. Blöð og
tímarit eru allmörg að þessu
sinni, svo sem ljósprentaðar út-
gáfur af Fjölni og Ármanni á
Alþingi, Tónlistin 1. til 5. ár-
gangur, Húnvetningur frá 1857,
Frón 1. til 3. árgangur o.fl.
Grjót í Ár-
túnsbrekku
- vitni vantar
ÞANN 21. nóv. sl. kom maður á
lögreglustöðina á Draghálsi í
Reykjavík, og tilkynnti að hann
hefði orðið vitni að því, að stór
steinn hefði fallið af vörubifreið
neðst í Ártúnsbrekku. Þar sem
lögreglunni láðist að taka nafn
mannsins niður, er hann vinsam-
legast beðinn að hafa samband við
lléðinn Skúlason hjá umferðar-
deild lögreglunnar, í síma 10200.