Morgunblaðið - 05.12.1981, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981
Sjálfstæðiskvennafélagið Vorboðinn Hafnarfirði:
Erna S. Kristinsdótt-
ir kjörin formaður
Arlegur jólafundur á mánudag
ERNA S. Kristinsdóttir var kosin
formaður Sjálfstæðiskvennafélags-
ins Vorhoðinn í Ilafnarfirði á aðal-
fundi félagsins, sem haldinn var 12.
Erna S. Kristinsdóttir
október sl. Erna S. Mathiesen sem
verið hefur formaður félagsins gaf
ekki kost á sér til endurkjörs. Jóla-
fundur Vorboðans verður haldinn
mánudaginn 7. des. sl. Er hann orð-
inn fastur þáttur í starfi félagsins.
Stjórn félagsins skipa nú, auk
Ernu S. Kristinsdóttur: Elín Sig-
urðardóttir varaformaður, Sigríð-
ur Ólafsdóttir gjaldkeri og Val-
gerður Sigurðardóttir ritari. Með-
stjórnendur eru Sólveig Eyjólfs-
dóttir, Margrét Pétursdóttir, Þóra
Magnúsdóttir, Ásdís Valdimars-
dóttir og Ásta Michaelsdóttir.
Gestur aðalfundarins var
Matthías Á. Mathiesen alþingis-
maður og ræddi hann stjórnmála-
viðhorfin.
Jólafundurinn verður haldinn á
mánudag eins og fyrr segir í veit-
ingahúsinu Gafl-Inn og hefst
hann kl. 20.30. Á dagskrá verður
samleikur á þverflautu og hljóm-
borð, flytjendur Gunnar Gunn-
arsson og Kjartan Magnússon. Þá
verður tízkusýning módelsamtak-
anna ’79, stjórnandi Unnur Arn-
grímsdóttir. Þá verða að venju
kaffiveitingar, happdrætti og flutt
jólahugvekja. Jólafundir félagsins
hafa ætíð verið vel sóttir.
Laugarásbíó:
Bandarfska myndin
„Hangar 18“ frumsýnd
í DAG verður frumsýnd bandaríska
bíómyndin „Hangar 18“, eða
Flugskýli 18. Lcikstjóri myndarinnar
er James L. ('onway, en með aðal-
hlutverk fara Darren McGavin, Ko-
bert Vaughan og Gary Collins. Fram-
leiðandi er Charles E. Sellier jr.
INNLENT
Myndin, sem gerð er eftir met-
sölubók eftir þá Robert Wev-
ekerka og Charles E. Sellier jr.,
greinir frá því þegar FFH eða
fljúgandi furðuhlutur rekst á
gervitungl, sem verið er að koma
fyrir í geimnum, og hrapar til
jarðar. Starfsmannastjóri Hvíta
hússins í Washington (Robert
Vaughan) fær vitneskju urti þetta
slys og hann fyrirskipar þegar al-
gera leynd um það. Brak furðu-
hlutarins er flutt í Flugskýli 18 í
einhverri herstöð Bandaríkja-
manna, en svo illa vill til að geim-
farar tveir sáu þegar hluturinn
rakst á gervitunglið og þeir ein-
setja sér að fin.na út hvað í honum
er og hvers vegna öll þessi leynd sé
yfir slysinu.
Finnlandsvinafélagið efn-
ir til fullveldishátíðar
SUNNUDAGINN 6. desember kl.
20.30 mun Finnlandsvinaféfagið
Suomi efna til fullvcldishátíðar á
þjóðhátíðardegi Finna í Norræna
húsinu.
Sveinn Einarsson, þjóðleikhús-
stjóri, mun flytja ræðu, fimm
manna hópur finnskra og sænskra
listamanna („Sá sjunger Finland")
leikur og syngur nokkur lög, og les
ljóð eftir finnska listamenn,
skólahljómsveit Kópavogs mun
leika nokkur lög, auk þess sem
Tapani Brotherus, sendifulltrúi
frá finnska sendiráðinu í Osló,
mun flytja ávarp.
Að lokinni dagskrá verður bor-
inn fram finnskur réttur (Karjal-
an Piirakka) í veitingasai hússins.
Félagar eru hvattir til að fjöl-
menna og taka með sér gesti.
Patricio Fucntes og Björn Tunbáck, starfsmenn mannréttindanefndar El Salvador.
E1 Salvador:
Limlestingar og morð á
börnum daglegt brauð
Mannréttindancfndin í El Salva-
dor, CDHES, hefur safnað gögnum
um fjöldamorðin sem áttu sér stað
í Morazan í El Salvador 17. mars
sl. Hún hefur sýnt fram á að meðal
þeirra sem misstu lífið voru a.m.k.
27 börn. Þau voru á aldrinum 2ja
daga til 12 ára. Veiðihnífum var
stungið milli læra drengjanna,
stúlkum var nauðgað og þær pínd-
ar til dauða en yngsta barnið lést
af völdum sterkrar sýru sem
brenndi húðina svo illa að beina-
grindin ein var eftir.
Nefndin telur kvalræði og
hörmungar þjóðarinnar hafa
aukist mjög á síðustu mánuðum
og nefnir herlið herforingja-
stjórnarinnar og hryðjuverka-
menn öfgasinnaðra hægrimanna
sérstaklega í því sambandi. Hún
hefur nú hafið herferð til hjálp-
ar flóttamannabörnunum í E1
Salvador sem eru mörg hundruð
þúsund talsins. Þau hafa flutt
ein eða í fylgd með foreldrum
eða ættingjum til stórborganna
og leitað á náðir kirkjunnar eða
flúið land og leitað hælis í ná-
grannalöndum E1 Salvador.
Börnin flýja bardaga og ofbeld-
isverk herliða ríkisstjórnarinnar
og andstæðinga hennar.
Fulltrúi nefndarinnar á Norð-
urlöndum, Patricio Fuentes, er
um þessar mundir staddur hér á
landi. Hann hefur aðsetur í Sví-
þjóð en aðalskrifstofa nefndar-
innar er í Mexíkó. Hún hefur
einnig skrifstofur á Spáni og í
Equador. Nefndin starfar að því
að safna gögnum um morð og
hryðjuverk í E1 Salvador. Hún
grefur upp lík til að nafngreina
þau, sjá hvernig farið hefur ver-
ið með þau og hverjir hafa fram-
ið verknaðinn. Nefndin reynir
einnig að hjálpa flóttamönnum í
höfuðborginni. Nú starfa 14
manns á hennar vegum í San
Salvador.
„Stjórnvöld segja að herlið
þeirra berjist aðeins gegn af-
brotamönnum og kommúnistum
en hvernig geta 3000 börn, sem
við höfum grafið upp, verið af-
brotamenn eða kommúnistar?"
sagði Fuentes. Hann hefur
myndir af mjög illa leiknum
fórnardýrum sem sanna að her-
lið stjórnvalda stóðu að baki
hryðjuverkanna. Nefndin vinnur
að því að dreifa upplýsingum um
hörmungarnar í E1 Salvador um
allan heim og reynir að stuðla að
því að þeim ljúki.
Háskólaborgarar í E1 Salva-
dor stofnuðu mannréttinda-
nefndina í San Salvador árið
1978. Fram að byltingunni 1979
starfaði hún sem milliliður milli
stjórnvalda og almennings og
veitti föngum og aðstandendum
þeirra m.a. lögfræði- og efna-
hagsaðstoð. Eftir byltinguna
varð nefndin að starfa neðan-
jarðar þar sem herstjórnin taldi
kommúnista standa að henni og
hana bera út lygar um ástandið í
landinu. Þrisvar var reynt að
sprengja hús nefndarinnar í höf-
uðborginni og að lokum tókst að
gjöreyðileggja það. Nefndin fékk
samastað hjá erkibiskupi lands-
ins en varð að flytja þaðan eftir
húsleit lögreglunnar. Gögn
nefndarinnar voru hins vegar öll
erlendis svo lögreglan fann ekki
það sem hún leitaði að.
Ritari alþjóðadeildar rnann-
réttindanefndarinnar var myrt-
ur einn daginn og gjaldkeri
hennar tveimur dögum síðar.
Nefndin hefur sannanir fyrir því
að herlið herstjórnarinnar hafi
staðið að morðunum. Yfirmaður
nefndarinnar hefur ferðast um
allan heim til að kynna starf-
semi hennar en aldrei þegið boð
kommúnistaríkja. Nefndin
starfar með velferð almennings í
E1 Salvador í huga en ekki út-
breiðslu kommúnismans og vill
ekki gefa stjórnvöldum tækifæri
til að benda á einhver tengsl
milli hennar og kommúnista-
ríkja.
Fuentes segir að ofbeldi í
landinu hafi aukist mjög síðan
Bandaríkjastjórn sendi fyrst
hermálaráðgjafa til E1 Salvador
10. janúar sl. Þá hafi t.d. sýran
sem notuð.var á litla barnið sem
minnst var á í upphafi fyrst bor-
ist til landsins. Hann sagði að
nefndin væri ekki á móti Banda-
ríkjunum og henni bærist mikill
stuðningur þaðan en sagði að
nefndin berðist gegn afskiptum
erlendra þjóða af innanríkismál-
um í E1 Salvador og hún væri því
andvíg utanríkisstefnu Banda-
ríkjastjórnar sem hefur stutt
herstjórnina í baráttu hennar
gegn skæruliðum stjórnarand-
stöðunnar.
Ray Holland sýnir í Djúpinu
Akureyri:
Omar Stefánsson sýn-
ir í Rauða húsinu
LAUGARDAGINN 5. desember kl.
16.00 opnar Ómar Stefánsson einka-
sýningu í Rauða húsinu á Akureyri.
Þetta er önnur einkasýning Ómars,
en hann hefur tekið þátt í fjölmörg-
um samsýningum. Sýningin er sölu-
sýning og eru myndirnar yfir þrjátíu
talsins. Aðstoðarmaður er Björn
Roth.
Tónleikar
KAMMERMÚSÍK-klúbburinn verð-
ur með aðra tónleika starfsársins
1981 —’82 að Kjarvalsstöðum sunnu-
daginn 6. des. og hefjast þeir kl.
20.30. Á efnisskrá eru verk eftir
Franz Schubert og Ludwig van Beet-
hoven.
Kandaríkjamaðurinn Ray Holland
sýnir nú verk sín í Gallerí Djúpinu
og stendur sýningin til fimmtudags-
ins 17. des. og er opin daglega frá kl.
11.00 til 23.00. Ray Holland kennir
desemberiinn sem gestakennari í
málunardeild Myndlista- og hand-
íðaskóla fslands.
Ray útskrifaðist frá „The School
of Visual Arts", í New York 1976.
Að loknu skólanámi vann hann við
kennslu í grafík-aðferðum og auk
þess þrykkti hann grafíkmyndir
fyrir ýmsa listamenn. í stuttu
samtali við Mbl. sagði Ray, að
hann hefði mikinn áhuga á að
vinna á því sviði sem málverk og
skúlptúr tengjast hvort öðru.
Einnig hvernig litir geta skapað
ímynd hreyfingar og innra afls.