Morgunblaðið - 05.12.1981, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 198U/<'
27
Sjötugur:
Sigfús Bergmann
Valdimarsson
Sigfús er fæddur í Húnaþingi 5.
desember árið 1911. Þar sleit hann
barnsskónum og ólst þar upp.
Ættir hans standa um Húna-
vatnssýslur.
Ungur léttir hann heimadrag-
anum, og ræðst sem háseti til sjós.
Var hann við síldveiðar norðan-
lands og önnur sjóstörf er til féllu.
A þessum árum fer hann á
kristiíega samkomu í norska sjó-
mannaheimilinu á Siglufirði. Þar
var þá starfandi meðal annarra
Jóhannes Sigurðsson trúboði og
prentari. Samviska hans vaknaði,
og hann fékk sting í hjartað og
spyr trúboðana hvað sér beri að
gjöra. Fyrir iðrun og afturhvarf
frelsast Sigfús. Hann endurfæðist
og verður nýr maður. Syndalíf er
sem tekið burt frá honum. Hann
kemst í samband við höfund lífs-
ins, og fer nú að ganga í takt við
vilja Guðs og orð hans.
Ut frá því fer hann norðan úr
landi suður til Vestmannaeyja og
lætur skíra sig í vatni eins og Jesú
var skírður. Skeði þetta í Betel-
söfnuðinum í Eyjum. Sifgús tók
svo þátt í fyrsta Biblíuskóla
Hvítasunnumanna hérlendis, sem
haldinn var í Eyjum árið 1935.
Sigfús var áfram heimilisfastur á
Blönduósi, en var á annan áratug
sjómaður á bátum frá Eyjum.
Man ég hann á Ingólfi, Leo og svo
um árabil á Víkingi með Gísla
Jónssyni, og síðar Óskari syni
hans.
Sigfús var mjög góður og
ósérhlífinn iiðsmaður og stóð í
öllu við skyldur sínar. Að öðrum
þræði urðu Eyjaár Sigfúsar svo
mörg, þar sem Betelsöfnuðurinn
var annars vegar. Trú Sigfúsar
var einlæg, og Jesú Kristur var
honum æðstur og mestur.
Trú sína setti Sigfús ekki undir
mæliker. Sýndi hann í verki trú
sína og áhuga, með því að fara út
um landið og vitna fyrir fólki, og
selja kristilegar bókmenntir. I
einni slíkri ferð, er hann gekk inn
Isafjarðardjúpið, varð hann því
láni aðnjótandi að hitta konuefni
sitt Guðbjörgu.
Meiri eða betri „sölulaun" en
Guðbjörgu eiginkonu sína gat Sig-
fús ekki hlotið, er staðið hefur
honum við hlið sem styrkasta stoð
við útbreiðslu fagnaðarerindisins.
Heimili þeirra hefur staðið á Isa-
firði hátt í fjóra áratugi.
Fullyrði ég að enginn ísfirðing-
ur hefir betur borið hróður Isa-
fjarðar um víða veröld, heldur en
Sigfús. A ég þar við hið stórkost-
lega sjómannatrúboð, sem hann
hefur rekið með Hvítasunnusöfn-
uðunum um tugi ára. Um hver jól
dreifir hann hundruðum jóla-
pakka sem systrafélög Hvíta-
sunnusafnaðanna útbúa hvert
haust. Sigfús sér svo um dreifingu
þeirra til íslenskra og erlendra
sjófarenda. Oft eru það einu jóla-
gjafirnar sem þeir fá. Það er sagt
um kærleikann að hann sé góðvilj-
aður. Þegar að austantjalds-skip
koma á ísafjörð og sjómönnum
þeirra er meinað að þiggja fagnað-
arerindið og kristilegt lesmál, þá
stendur Sigfús á íslensku yfir-
ráðasvæði við skipshlið og leikur
af snældum gegnum hátalarakerfi
sitt. Þannig verður Guðs orð ekki
fjötrað.
Eitt sinn vann Sigfús við útskip-
un á frosnum fiski, sem fór austur
fyrir tald. Dreifði hann í plastpok-
um Guðsorði á máli þarlendra í
farminn. Þegar austur var komið
og farminum skipað í land, þá
varð alvarlegt fjaðrafok yfir þvi
að lífsins brauð Nýja testamentis-
ins var þar með. Það var of mikið
fyrir það herveldi er þar ríkir að
taka við brauði lífsins án þess að
segýa nokkuð.
Aðurnefnd dæmi lýsa nokkuð
hugdjörfum lærisveini Jesú
Krists, sem Sigfús er. Lögmál tím-
ans segir að nótin verði að dragast
í land. En meðan stætt er: Haltu
áfram vinur og bróðir. Brátt verð-
ur sagt: „Yfir litlu varstu trúr, yf-
ir mikið mun ég setja þig.“
Hjartanlegustu hamingjuóskir
og þakklæti fyrir samstöðu og
vinsemd tiðinna ára.
Einar J. Gíslason
Bridqe
Arnór Ragnarsson
Bridgefélag
Hornafjarðar
3ja kvölda hraðsveitakeppni
BH lauk sl. fimmtudag. Röðin
var þessi.
íweit Jóns G. Gunnarssonar 1445
Sveit Kolbeins Þorgeirssonar 1368
S ’eit Árna Stefánssonar 1326
Sveit Svövu Gunnarsdóttur 1257
Sveit Skeggja Ragnarssonarl246
Sveit Skúla Isleifssonar 1134
I sveit Jóns Gunnars eru auk
hans Eiríkur Guðmundsson, Jón
II. Pálsson, Jón Guðmundsson
og Ingi Már Aðalsteinsson.
Næstu 3 fimmtudagskvöld verð-
ur 3ja kvölda tvímenningur.
Bridgedeild Barð-
strendingafélagsins
Mánudaginn 30. nóvember
lauk Hraðsveitakeppni félagsins
(5 kvöld, 11 sveitir). Sigurvegari
var sveit Sigurðar Kristjánsson-
ar. I sveit Sigurðar voru auk
hans Hermann Ólafsson, Gísli
Benjamínsson og Jóhannes Sig-
valdason.
Staða efstu sveita:
(4. Sigurður Kristjánsson 2880
Ágústa Jónsdóttir 2824
Gunnlaugur Þorsteinsson 2813
Viðar Guðmundsson 2790
Ragnar Þorsteinsson 2784
Haukur Zophaníusson 2714
Mánudaginn 7. desember hefst
jólatvímenningur (2ja kvölda).
Spilað er í Domus Medica og
hefst keppnin kl. 19.30.
Bridgedeild
Sjálfsbjargar
Mánudaginn 30. nóvember
lauk hraðsveitarkeppni deildar-
innar með glæsilegum sigri
sveitar Jóhanns P. Sveinssonar
sem hlaut 1948 stig. Með honum
voru í sveitinni Theódór A.
Jónsson, Atli ísaksson, Þórður
G. Möller, Sigurður Björnsson og
Lýður Hjálmarsson.
Röð næstu sveita:
Rut Pálsdóttir 1851
Gísli Guðmundsson 1799
Sigurrós Sigurjónsdóttir 1762
Meðalskor 1728
Að öllu forfallalausu hefst að-
alsveitakeppni deildarinnar 11.
janúar 1982 og verður byrjað að
spila kl. 19.30 að venju.
Bridgefélag
Hafnarfjarðar
Síðastliðinn mánudag lauk
Rúbertukeppninni. Spilaðar
voru tíu umferðir eftir Monrad-
kerfi. Sigurvegarar urðu gam-
alreyndir rúbertukappar, þeir
Sævar Magnússon og Hörður
Þórarinsson.
Staða og stig efstu manna:
Sævar Magnússon
— Hörður Þórarinsson 46
Böðvar Magnússon
— Stígur Herlufssen 31
Árni Már Björnsson
— Heimir Tryggvason 30
Ólafur Valgeirsson
— Lárus Hermannsson 17
Jón Sigurðsson
— Sævaldur Jónsson 15
Kristófer Magnússon
— Björn Eysteinsson 12
Næstkomandi mánudag verð-
ur spilað við Bridgefélag kvenna.
Spilamennska fer fram í Domus
Medica og hefst stundvíslega
klukkan hálf átta.
Gestapo í
Þrándheimi
Hörpuútgáfan gef-
ur út nýja bók
eftir Asbjörn
Öksendal
HÖRPllfTGÁFAN á Akranesi hefur
gefid út bókina „Gestapo í Þránd-
heimi" eftir norska rithöfundinn As-
björn Öksendal, en bókin „Þegar
neyðin er stærst“ kom út hér fyrir
síðustu jól. Þýðandi er Skúli Jensen.
Bókin er 204 blaðsíður að stærð
og prentuð og bundin í Prentverki
Akraness hf.
í umsögn útgáfunnar segir m.a.:
Bókin segir frá lífshættulegum
flóttaferðum í stórhríðum og vetr-
arstormum um hálendi Noregs og
Svíþjóðar. Þar er barist við grimm
náttúruöfl. Einnig kvislinga og
Gestapo, sem alls staðar liggja í
launsátri tilbúnir að svíkja og
myrða.
„Persónum er lýst af slíkri ná-
kvæmni og innlifun að okkur finnst
við gjörþekkja þær. Bókin Gestapo í
Þrándheimi er að öllu leyti sam-
bærileg við bækurnar Eftirlýstur af
Gestapo og Þegar neyðin er stærst."
Stórglæsilegt úrval af roccocosófasettum og stólum
waiiisa&iiiawi Í W > ’ón I ílí’fÉ! i -l ■ 'iifíriiSiiii i JHir u 3 - svr,>. 11 ■ | ■Elg ■ ■. BK Rf ■ Ml fl 1 ■ ■■ -'-P Wm ^ í» l i irsti Il | HKI Ilfll - v.va I flHH flBB ■ i MLiumSu O | v /// ■'• W'TT" ■
Ný sending Opiö í da kl. 10-5 Otrúlega hagstætt verð El ]\Æ " húsgögn Langholtsvegi 111, Reykjavík, símar 37010 — 37144.