Morgunblaðið - 05.12.1981, Page 34
34
MOÍtGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981
Minning - Hermann
ísafirði, Halldór skipstjóri og út-
gerðarmaður á ísafirði kvæntur
Katrínu Gísladóttur, Guðrún
Dóra gift Þóri Þórissyni vélstjóra
og ynnstur Birfjir skipstjóri nú rit-
stjórnarfulltrúi tímaritsins Ægis.
Barnabörnin eru orðin mörg og
barnabarnabörnin farin að koma.
Nutu þau barngæzku afa síns eftir
því sem hann gat komið í heim-
sókn en það gerði hann við öll
tækifæri. Konu sína Salóme
missti Hermann haustið 1977
nokkrum mánuðum eftir lát
Gunnars sonar þeirra. Var þá
mikill harmur að honum kveðinn.
Fagnar hann nú heimkomu til lát-
inna ástvina.
Nú eru látnir allir húsráðendur
sem voru í Ögurvík, Ögurnesi og
Garðstaðagrundum á árunum
fyrir stríðið, nema foreldrar mínir
Kristín og Þórður í Odda komin
fast að áttræðu. Þau biðja fyrir
kveðjur til þeirra systkina frá
Svalbarði með þakklæti fyrir
órofa vináttu og tryggð, sem þau
hafa notið frá þeim eins og for-
eldrum þeirra, Hermanni og Sal-
óme.
Helgi G. Þórðarson
l-a kkar lífdaga sól, lönií er ordin mín ferd,
fauk í faranda skjól, fcj»inn hvíldinni verð.
Já, feginn hvíldinni verð. Þessi
orð komu mér í hug er ég frétti að
tengdafaðir minn, Hermann Her-
mannsson, hefði látist að morgni
26. nóvember sl., og langar mig til
að minnast hans með nokkrum
orðum.
Hann var fæddur á Krossnesi á
Ströndum hinn 17. maí árið 1893.
Voru foreldrar hans hjónin Guð-
rún Bjarnadóttir og Hermann
Þórðarson. Var Guðrún ættuð úr
Múlasveit við Breiðafjörð en Her-
mann var Strandamaður að ætt.
Hermann ólst upp með foreldrum
sínum, en er hann var 8 ára flytj-
ast þau að Djúpi og áttu heima
þar síðan, síðast í Hagakoti í
skjóli Halldórs sonar síns.
Hermann byrjaði snemma að
vinna fyrir sér, var hann við sjó-
róðra á ýmsum stöðum í Djúpinu,
m.a. í Bolungarvík. Síðan réðst
hann vinnumaður í Ögur til Þuríð-
ar Ólafsdóttur. Mun hugur hans á
þessum árum hafa hneigst til
búskapar, því veturinn 1916—17
fer hann til búnaðarnáms að Hól-
um. Ekki átti þó fyrir honum að
liggja að verða bóndi, bæði var nú
að jarðnæði lá ekki á lausu á þess-
um árum, og eins hitt, að sjórinn
átti áreiðanlega meir hug hans en
landbúnaður. Enda fór það svo að
hann snéri sér eingöngu að sjón-
um. Þó hafði hann alltaf er stund-
ir liðu nokkrar skepnur til heimil-
isnota.
Það varð Hermanni mikið gæfu-
spor er hann réðst í Ögur. Þar
kynntist hann konu þeirri er átti
eftir að verða lífsförunautur hans
í nær 59 ár. Hinn 21. des. 1918
kvæntist hann Salóme Rannveigu
Gunnarsdóttur Sigurðssonar frá
Eyri í Skötufirði, hafði hún alist
upp í Ögri frá 7 ára aldri. Þau
Salóme og Hermann settu saman
bú og bjuggu fyrstu 7 árin á háa-
loftinu í Ögurhúsinu og má nærri
geta hversu erfitt það hefur verið
henni að vera þar, því þá höfðu
þeim fæðst 4 börn. En árið 1925
fær Hermann 1 hektara lands nið-
ur í Ögurvíkinni og þar reisti hann
sér íbúðarhús og kallaði það
Svalbarð. A árum sínum í Ögri
réri Hermann á skipi Ögurbúsins
er hét „Ögri“, var formaður á skip-
inu Hjörtur Sæmundsson, en hann
var þá búsettur í Ögri. Heyrði ég,
er þetta rita, Hjört löngu síðar
segja að Hermann hefði verið með
mestu ræðurum er hann hefði
þekkt og fáum tjóað við hann að
etja ef honum hljóp kapp í kinn.
Hermann var með hærri mönnum
á vöxt og þrekinn að sama skapi.
Hann var talinn á yngri árum sín-
um afrenndur að afli, en fór mjög
dult með það.
Ekki unndi Hermann því lengi
að sækja atvinnu sína til annarra,
og fljótlega eftir að hann gifti sig
keypti hann litla skektu og kallaði
„Sæunni", henni réri hann til að
byrja með en svo keypti hann
fimmmannafar „Óla Snarfara" og
honum réri hann margar vertíðar.
Báða þessa báta átti Hermann
' alla tíð þar til hann fluttist úr Ög-
urvíkinni.
Þeim Svalbarðshjónum varð 11
barna auðið og eru 10 þeirra á lífi,
en elsti sonur þeirra, Gunnar, lést
um aldur fram fyrir 4 árum og
varð það þeim mikið áfall sem
vonlegt var, og um sama leyti
kenndi Hermann þess sjúkdóms er
smátt og smátt lamaði þrek hans.
Börnin eru þessi talin í aldursröð:
Kristín Anna, gift Asgeiri Sig-
urðssyni frá Bæjum, búa á ísafirði
og eiga 4 börn. Þuríður, gift Arn-
viði Björnssyni frá Húsavík, búa á
Húsavík og eiga 4 börn. Gunnar
Haraldur skipstjóri, látinn eins og
áður segir. Var kvæntur Kristínu
Önundardóttur frá Neskaupstað.
Þau bjuggu í Garðabæ og áttu 5
börn, en auk þess átti Gunnar son
áður en hann giftist. Þórður Guð-
mundur skipstjóri, kvæntur Vig-
dísi Birgisdóttur frá Húsavík, búa
í Reykjavík og eiga 4 börn. Sigríð-
ur Ragna, býr í Reykjavík, á 1 son.
Var gift Erlingi Magnússyni, þau
slitu samvistum. Karitas Kristín,
gift Steingrími Birgissyni frá
Húsavík, búa á Húsavík og eiga 2
syni. Sverrir alþm., kvæntur
Grétu Lind Kristjánsdóttur frá
ísafirði, búa í Reykjavík og eiga 5
börn. Gísli Jón framkv.stj., kvænt-
ur Jónínu Einarsdóttur frá ísa-
firði, búa í Reykjavík og eiga 3
börn. Halldór skipstjóri, kvæntur
ráðsmaður að Bessastöðum hjá
Skúla Thoroddsen alþingismanni.
Salóme dvaldist með föður sínum
að Bessastöðum í eitt ár, en for þá
í Ögur í fóstur hjá Þuríði Ólafs-
dóttur, sem þá er orðin ekkja í
annað sinn. Þær ástæður liggja
hér vafalaust að baki, að báðar
ömmur Salóme þær Salóme Hall-
dórsdóttir móðir Önnu Kristínar
og Kristín Halldórsdóttir móðir
Gunnars Sigurðssonar voru systur
Hafliða Halldórssonar fyrri
manns Þuríðar í Ögri. Bræður
þeirra voru þá einnig Jón Hall-
dórsson bóndi á Laugabóli og
Gunnar Halldórsson bóndi og al-
þingismaður í Skálavík.
Hermann og Salóme fella hugi
, saman og gengu í hjónaband 21.
desember 1918. Fyrstu 7 hjúskap-
arárin eru þau húshjón í Ögri, sem
kallað var, þ.e. þau höfðu sína íbúð
í rislofti í Ögurhúsinu. Hermann
hafði þó sinn eiginn atvinnuveg
við sjóróðra. Árið 1925 byggðu þau
sér lítið timburhús í Ögurvík
nokkuð fyrir utan túnið í Ögri og
kölluðu Svalbarð. Þar fengu þau
að girða svolítinn túnblett, komu
sér upp 30 ám og einni kú.
Hermann eignaðist fyrsta bát-
inn skektuna „Sæunni" haustið
1917, þá eignaðist hann sex manna
far „Ola Snarfara“ 1919 og tæp-
lega 3ja lesta vélbát „Hermóð" ár-
ið 1930.
Til fiskjar var róið í Djúpið vor
og haust og stundum frá Bolung-
arvík á vorin. Á sumrin var heyjað
handa búfénaðinum. Hermann og
Salóme eignuðust 11 börn. Fjögur
þau elstu fæddust í Ögri. Það var
því snemma þungt í heimili og
varð því víða að leita fanga. Her-
mann hafði þann metnað að sækja
ekki til annarra en hjá sér og sín-
um farborða sjálfur. Með harð-
f.vlgi og dugnaði og samheldni
þeirra hjóna tókst þeim að koma
öllum sínum börnum vel til
manns, og urðu þau öll þekkt
dugnaðarfólk hvert á sínu sviði.
Faðir minn byggði sér hús í Ög-
urvík árið 1928 og kallaði Odda.
Hann hafði mjög hinn sama útveg
til sjávarins og Hermann. Varð
með þeim mikil samvinna um
margt það er útveginn varðaði.
Sérstaklega var það mikilvægt
þegar bjarga þurfti bátum undan
sjó og einnig um fiskflutninga. Af
þessari samvinnu óx vinátta sem
entist æfilangt. Við systkinin í
Odda og yngri systkinin á Barði
urðum leikfélagar og er margs að
minnast frá þeirri æskutíð og skal
þó ekki rakið hér.
h’yrst þegar ég man eftir mér
var farið á sjóinn upp úr óttu á
vorin og verkefnum dagsins lauk
um miðaftansleyti. Þeir sem fóru
á sjóinn gengu þá til náða fyrir
Minning:
Fædd ll.september 1934.
Dáin 27. nóvember 1981.
í dag verður jarðsungin frá
Akraneskirkju Sigfríður Erla Sig-
trvggsdóttir, sem lést á Landspít-
alanum þann 27. nóvember. Hún
var fædd 11. september 1934 og
því aðeins 47 ára, þegar hún dó.
Foreldrar hennar voru Sigríður
Sigfúsdóttir ættuð frá Neskaup-
stað og Sigtryggur Bjarnason frá
Bæjarstæði á Akranesi, en hann
er nú látinn. Þau hjónin, Sigríður
og Sigtryggur reistu sér hús að
Suðurgötu 80, Akranesi og bjuggu
þar allan sinn búskap, eða í rúm
50 ár. Þar óx Sigfríður eða Sissa,
eins og hún var ávallt kölluð, upp
ásamt Þorvaldi bróður sínum í
nágrenni við afa og ömmur og
fjölmennt frændalið.
Eftir gagnfræðapróf vann hún
verslunarstörf, lengst af hjá
Kaupfélagi S-Borgfirðinga.
Árið 1958 kynntist hún Matthí-
asi Sveinssyni, bifreiðarstjóra frá
náttmál. Við börnin tókum þátt í
störfunum eftir því, sem okkur óx
fiskur um hrygg. Á árunum fram
undir 1940 var þó nokkur byggð
kringum Ögurvík frá Garðstaða-
grundum í Ögurnesi og^öfðu
menn aðalframfæri sitt af sjósókn
á smábátum í Djúpið. Á stríðsár-
unum breyttust atvinnuhættir og
fór þá þessi byggð að þynnast því
erfiðara reyndist að manna smá-
bátana. Þegar kom fram í stríðið
reru þeir í Ögurvík með okkur
krakkana um og yfir fermingu
nær eingöngu.
Árið 1945 fluttist Hermann til
Isafjarðar og þaðan reri hann báti
sínum vor og sumar með yngri
sonum sínum þar til yngsti maður
Birgir var floginn úr hreiðrinu.
Árið 1956 seldi hann Hermóð og
hafði þá ráðið sínum farkosti í
nærfellt 40 ár. Hermann hafði háð
harða lífsbaráttu og farið með sig-
ur af hólmi.
Hermann var hreinskiptinn
maður en óáleitinn við aðra. Hann
lét ógjarnan hlut sinn þegar hann
taldi sig eiga rétt en aldrei heyrði
ég honum brugðið um ósanngirni.
Á Isafirði heyrði ég eftir honum
haft, að hann léti ekki sér meiri
menn troða sér um tær en annað
mál væri um þá sem væru minni
máttar. Hann var geðríkur maður,
en stillti oftast vel skap sitt og var
dagfarslega prúður og glaður.
Hann brýndi stundum raustina
við syni sína í daglegri önn, en
aldrei mælti hann styggðaryrði til
okkar systkina sem áttum þó oft
þátt í ýmsum barnabrekum með
börnum hans. Hann var mjög
barngóður og oft mátti sjá hann
með yngsta barnið á handleggnum
þegar hann var að koma af sjó og
gekk neðan við brekkuna að Sval-
barði til málsverðar.
Börn þeirra Hermanns og Sal-
óme eru þessi; Anna Kristín, bú-
sett á ísafirði gift Ásgeiri Sig-
urðssyni vélsmið frá Bæjum, Þur-
íður bæjarfulltrúi á Húsavík gift
Arnviði Björnssyni pípulagn-
ingamanni, Gunnar skipstjóri og
útgerðarmaður á Eldborgu GK 13
kvæntur Kristínu Önundardóttur
frá Neskaupstað, en hann lézt um
aldur fram árið 1977, Þórður skip-
stjóri og útgerðarmaður nú
skrifstofustjóri í Ögurvik hf.,
kvæntur Vigdísi Birgisdóttur frá
Húsavík, Sigríður búsett í Reykja-
vík var gift Erlingi Magnússyni,
Karitas gift Steingrími Birgissyni
trésmíðameistara á Húsavík,
Sverrir alþingismaður og forseti
neðri deildar alþingis kvæntur
Grétu Kristjánsdóttur klæðskera
á ísafirði, Gísli Jón skipstjóri nú
framkvæmdastjóri í Ögurvík hf.,
kvæntur Jónínu Einarsdóttur frá
ísafirði, sem átti eftir að verða
eiginmaður hennar. Þau hófu
búskap á Isafirði, en að tveimur
árum liðnum fluttu þau í risíbúð á
Suðurgötu 80. Þau byggðu sér ein-
býlishús við Bjarkagrund á Akra-
nesi, en það átti ekki fyrir þeim að
liggja að flytja í það, því að um
líkt leyti tók Matthías ásamt öðr-
um manni við sérleyfi á Mosfells-
leið, og fluttu þau þá í Mosfells-
sveit. Þar bjuggu þau um skeið í
leiguhúsnæði, en festu síðan kaup
á fokheldu húsi við Bjargartanga
1, sem þau breyttu í fallegt heimili
og fluttu þangað 1976 og þar hafa
þau búið síðan.
Þau eignuðust tvo mannvæn-
lega syni, Sigtrygg, f. 23.12. 1961
og Svein Eyjólf f. 20.6. 1971.
Ég, sem þessar línur rita,
kynntist Sissu fyrst fyrir 6 árum,
þegar ég kom inn í fjölskylduna
sem eiginkona bróður hennar. Ég
tel mig hafa kynnst henni nokkuð
vel, því að þrátt fyrir fjarlægð
milli heimila okkar var talsverður
samgangur. Hún dvaldi oft hjá
foreldrum sínum á sumrin á með-
an Matthías var í langferðum með
ferðamenn. Sömuleiðis voru synir
hennar hér mikið í sumarfríum,
einkum Sigtryggur, og á hátíðum
komu þau öll á gamlar slóðir og þá
var oft glatt á hjalla á Suðurgöt-
unni.
Einnig var sjálfsagt að koma við
í Mosfellssveitinni að lokinni
Reykjavíkurferð, áður en lagt var
í Hvalfjörðinn, ekki aðeins fyrir
okkur heldur einnig fjölmarga
frændur og vini, og allir voru vel-
komnir, alltaf heitt á könnunni og
öllum velkomið að gista, ef á
þurfti að halda.
Þegar Sigtryggur, faðir hennar
dó, í apríl 1980, kom bezt í ljós
hvern mann hún hafði að geyma.
Gamli maðurinn var 81 árs, en svo
hress og ern að skyndilegt fráfall
hans kom okkur algerlega í opna
skjöldu. Þá var hringt í Sissu og
hún kom með fyrstu ferð. Þá varð
allt auðveldara og við gátum
horfst í augu við það, sem gerst
hafði. En hver hefði trúað því þá,
að þessi myndarlega fallega kona,
sem virtist svo hraustleg, ætti að-
eins um það bil hálft annað ár eft-
ir ólifað, — að aðeins nokkrum
mánuðum síðar ætti hún eftir að
kenna sjúkdóms, sem drægi hana
til dauða á einu ári.
í desember 1980 var hún orðin
mikið veik. Engan grunaði þó, hve
alvarlegt þetta væri, fyrr en hún
var skorin upp í janúar. Þá var
sjúkdómurinn kominn á það hátt
stig að lífi hennar varð ekki bjarg-
að. Eftir þetta var þó allt gert,
sem unnt var til að hjálpa henni.
Þetta voru erfiðir mánuðir. Fram-
an af árinu gat hún verið heima
við og við, en með haustinu fór að
draga af henni. Hún mátti þola
þrjár aðgerðir í viðbót. En aldrei
heyrðist hún kvarta. Alltaf var
hún bjartsýn og frekar hughreysti
hún aðra en að hún þyrfti sjálf á
hughreystingu að halda. Þannig
var hún til hins síðasta. Ég veit að
hún vonaðist lengi eftir að fá
Katrínu Gísladóttur frá ísafirði,
búa á ísafirði og eiga 7 börn. Guð-
rún Dóra, gift Þóri Þórissyni lög-
reglumanni í Reykjavík, búa í
Reykjavík og eiga 4 börn. Birgir
skipstjóri, kvæntur Öldu Sig-
tryggsdóttur frá ísafirði. Búa í
Reykjavík og eiga 4 börn og eru
barnabörnin þá orðin 44.
Eins og áður sagði hafði Her-
mann ávallt skepnur til heimilis-
nota, hafði hann venjulega um 30
kindur og eina kú. Þurfti því að
afla heyja víða því ekki dugði hey
af 1 hektara. Því bjargaði Her-
mann þannig að hann heyjaði
norður á Snæfjallaströnd og víðar.
Ekki lét Hermann líða langt
stórræða milli, því árið 1930 festir
hann kaup á 3V4 tonna trillu úti í
Bolungarvík. Trillan var 2ja ára
gömul en með lélegri vél sem hann
þurfti fljótt að kasta og kaupa
nýja. Bátinn skírði hann „Her-
móð“ og reyndist hann slík happa-
fleyta að orð er á gerandi. Aldrei
hlekktist Hermanni á á Hermóði
og var þó oft fast sótt bæði til
fiskjar og ekki þá síður í læknis-
ferðum. Læknirinn sat í Ögri og
þurfti oft að flytja hann um Djúp-
ið. Kom þar áreiðanlega til einstök
sjóhæfni bátsins og styrk og örugg
hönd er hélt um stjórnvölinn. Her-
mann fékk orð sem afburða
stjórnari meðan hann réri á ára-
bátum.
Árið 1945 fluttu þau Salóme og
Hermann úr Ögurvíkinni til ísa-
fjarðar. Keypti hann húsið Mjó-
götu 3 og átti þar heima ætíð síð-
an. Hermóð seldi hann er hann
gat ekki lengur róið honum sjálf-
ur, en mikil var gleði hans er synir
hans allmörgum árum síðar
keyptu Hermóð og létu smíða
hann upp, og nú flýtur hann á sjó
eins nýr og þegar Hermann fékk
hann 1930.
Árið 1977 lést Salóme kona Her-
manns og fannst honum þá sem
hann væri orðinn hálf vængstýfð-
ur og fannst honum æviferðin orð-
in nógu löng, enda fór nú þrekið
óðum dvínandi. Síðastliðin 2 ár
hefur hann dvalið á Hrafnistu og
unað hag sínum allvel enda ávallt
haft fótavist þar til nú fyrir tæp-
um 2 mánuðum að hann fékk áfall
sem leiddi til sjúkrahúsvistar sem
hann átti ekki afturkvæmt frá.
Að leiðarlokum þakka ég Her-
manni tengdaföður mínum 40 ára
ljúfa samfylgd, þakka honum fyrir
mig og mína fjölskyldu og ég kveð
hann með þessu stefi úr kvæði eft-
ir Davíð Stefánsson, því mér
finnst það lýsa vel lífsferli þeirra
hjóna.
I»eir njalda best sinn gamla arf
si*m gladir vinna þrotlaust starf
til vaxtar vorri þjód.
Far þú í friði, friður guðs þig
blessi, hafðu þökk fyrir allt og
allt.
Ásgeir Sigurðsson
frest, fá lengur að fylgjast með
Matthíasi og drengjunum, sem
henni þótti svo vænt um, fá lengur
að dvelja í nýja fallega húsinu
þeirra, sem átti að verða framtíð-
arheimili fjölskyldunnar, og síðast
en ekki síst hefði hún viljað geta
stutt móður sína lengur. Sigríður
hefur dvalið hjá feðgunum í vetur
og reynt að vera þeim til aðstoðar,
en hún er lengi búin að vera sjúkl-
ingur. Hún vildi líka geta verið
nálægt dóttur sinni og heimsótt
hana þegar hún hafði heilsu til.
Sigtryggur, eldri sonurinn, sem
varð stúdent í vor, hætti við að
fara í framhaldsnám til að geta
stutt móður sína og ömmu, og ekki
má gleyma Matthíasi, sem reynd-
ist konu sinni frábærlega vel og
sat við sjúkrabeð hennar unz yfir
lauk.
Sigríður, móðir hennar hefur nú
á u.þ.b. 18 mánuðum orðið fyrir
þremur stórum áföllum, misst eig-
inmanninn, kæra systur og nú
einkadóttur, en Sigga mín, mundu
hvað hún sagði við þig síðast:
„Hafðu ekki áhyggjur, mamma
mín, þetta fer allt vel, ég fer bráð-
um að koma heim.“ Nú er hún
komin heim. Hún er laus við sárs-
aukann og þarf ekki lengur að
liggja ósjálfbjarga og upp á aðra
komin. Ég trúi því að hún hafi
fengið góða heimkomu.
Ingveldur Sverrisdóttk
Sigfríður Erla
Sigtryggsdóttir