Morgunblaðið - 05.12.1981, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981
+ Móöir okkar, tengdamóðir og amrr.a, SIGRÍÐUR ÖNUNDARDÓTTIR, Víöigrund 8, Sauöárkróki, andaöist í Sjúkrahúsi Sauöárkróks 2. desember. María Sveinsdóttir, Þórarinn Sveinsson, Halldóra Pálsdóttir, Maria Þórarinsdóttir, Ingileifur Einarsson. Sigurbjörg Þórarinsdóttir, Þórarinn Jón Þórarinsson.
+ ELÍS BERGUR ÞORSTEINSSON frá Laxárdal, Álftamýri 12, Reykjavík, andaöist í Landakotsspítala miövikudaginn 2. desember. Guórún Benónísdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.
+ Eiginmaöur minn, GUDLAUGURJÓNSSON fyrrverandi lögregluþjónn, - Hátúni 10, andaöist i Landspítalanum, fimmtudaginn 3. desember. Helga Ingibjörg Kristjánsdóttir.
+ Utför ÓLAFÍU ÓLFSDÓTTUR, Baldursgötu 7, fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 7. desember kl. 13.30. Aöstandendur.
Eiginmaöur minn og faöir, BENJAMÍN JÓNSSON, er andaðist 30. nóvember, veröur jarösunginn mánudaginn 7. desember frá Fossvogskirkju, kl. 3 e.h. Fyrir hönd fósturbarna, hálfsystkina, stjúpsystkina, tengdasonar og barnabarna hins látna, Jakobína Þóröardóttir, Guöbjörg Benjamínsdóttir.
+ Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúö og vináttu viö andlát og útför FANNEYJAR PÁLSDÓTTUR, Hafnarbraut 23, Hólmavík. Stefán Pálsson og börn.
+ Þökkum auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför ÓLAFS GUNNLAUGSSONAR, Melteigi 10, Akranesi. Gyða Halldórsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.
+ Þökkum af alhug auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför sonar okkar og bróöur, DAGS NABILS EOVARDSSONAR, Dalbraut 1, Hnífsdal. Ólafía K. Ólafsdóttir, Eövarð T. Jónsson, Knútur Eövarðsson, Eskil Daöi Eóvarösson, Ólafur Böövar Eóvarösson.
+
Þökkum innilega auösýnda samúð og vinarhug viö andlát og útför
eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
ÞÓRARINS HELGASONAR
rafverklaka,
Ljósalandi 21.
Þóra Rannveig Siguróardóttir,
Sigrún Þórarinsdóftir, Ólafur Þór Kjartansson,
Siguröur Þórarínsson,
Helga Sigrtður Þórarinsdóttir,
Edda Ólafsdóttír.
Kristín Þorkelsdótt-
ir - Minningarorð
Fædd 19. júní 1894
Dáin 25. nóvember 1981
Nú er Stína frænka dáin og kom
það engum á óvart, hún var orðin
87 ára og heilsan mjög hrakleg,
hafði reyndar verið með ýmsu
móti í meir en 30 ár. Hjá mér er
hara til ein Stína frænka, og þó
fleiri Kristínar séu í ættinni mun
enginn bera frænkutitilinn nema
hún.
Ég man fyrst eftir Stínu einn
óveðursaman apríldag árið 1950
en þann dag var jarðsett Þórdís
Þorkelsdóttir systir Stínu og móð-
uramma mín. Ég var þá á fimmta
ári og skildi lítt hverju fram fór,
enda mun dauðinn hafa verið
sjaldgæft umræðuefni á mínu
æskuheimili. Amma dó aðeins 58
ára og mér er minnistætt að allir
voru mjög niðurdregnir. Ég var
hins vegar baldinn og vildi ekki
una því að sitja kyrr. Þá tók mig
upp bróðir þeirra systra Helgi
Þorkelsson klæðskeri og hafði
hann góð áhrif á mig. Mér var nú
orðið ljóst að ég mundi aldrei sjá
ömmu aftur og fannst það mjög
miskunnarlaus staðreynd. Þá leit
ég aftur fyrir mig og sá þá sjón
sem er mér svo minnisstæð sem
gerst hafi í gær. Þar sat stórglæsi-
leg miðaldra kona sem svo var lík
ömmu að vart geta tvær mann-
eskjur verið líkari. Þá ákvað ég
með mér að þessi kona yrði fram-
vegis amma mín. Og þetta hefur
svo sannarlega ekki breyzt ég lít
enn svo á að Stína frænka hafi
gengið í ömmuhlutverkið og
kannski hefur hún litið á mig sem
sinn ömmustrák.
Kristín bjó lengst af á Kolstöð-
um í Hvítársíðu á bæ þeím er
landslýður þekkir nú sem Óðal
feðranna. En árið 1948 kenndi hún
lasleika og leitaði lækninga í
Reykjavík, og þar dvaldi hún
meira og minna á sjúkrastofnun-
um næstu 30 árin, oft mun líf
hennar þá hafa hangið á bláþræði,
en alltaf komst hún til nokkurrar
heilsu aftur og fór að ferðast með
SVR, bjó hjá börnum sínum og
vann á Múlalundi. Annars var
Stína alltaf sívinnandi. Við hugs-
um okkur oft hina klassísku ís-
lensku ömmu, sem gamla lotna
konu með prjónana sína. Stína
frænka skildi hinsvegar aldrei við
sig heklunálina. Handavinna
henfiar dreyfðist um alla lands-
hluta. En hversu langur mundi sá
þráður vera sem fór um heklunál-
ina hennar Stínu, því svarar eng-
inn.
Margir eru þeir sem dvalið hafa
eða starfað á sjúkrastofnunum
sem muna eftir þessari konu sem
var svo stolt í fasi og fram-
gangsmáta og lagði sitt lóð á vog-
arskál íslenskrar alþýðulistar með
hinu einfalda verkfæri heklunál-
inni.
Ef heilsan leyfði dvaldi Stína á
æskuheimili sínu um páska og
töldum við það fastan lið í vor-
komunni. Hún batt alveg sérstaka
tryggð við Skógsnesheimilið en
þar hafði systir hennar verið hús-
freyja í aldarfjórðung, og þar
næst systurdóttir sem er enn hús-
freyja í Skógsnesi.
Eftir að ég óx úr grasi og settist
að á höfuðborgarsvæðinu heim-
sótti ég Stínu alltaf og til og mér
var það sönn ánægja ef ég gat boð-
ið henni í smáferðalag. Stína hafði
mikið yndi af ferðalögum og fyrir
rúmum tíu árum er hún var ný-
staðin upp úr veikindum fór hún
með skemmtiferðaskipi til Evr-
ópulanda.
Seinasta ferðalag mitt með
Stínu var 29. ágúst 1979 og þá var
haldið í Þjórsárdalinn og einnig
stansað á þeim slóðum í Gnúp-
verjahreppi sem Stínu voru kunn-
ar. En einhverntíma á öðrum ára-
tug aldarinnar fóru þær systur
Þórdís amma og Stína frænka
fótgangandi úr Reykjavík og gerð-
ust kaupakonur í Hreppum. Þór-
dís amma hitti þar mannsefni sitt
Magnús Öfjörð frá Fossnesi.
Kristín giftist manni er Bergur
hét en hann lézt eftir mjög
skamma sambúð, þeirra dóttir er
Oddný, búsett á Sauðárkróki.
Seinni maður Kristínar er Sigurð-
ur Guðmundsson frá Kolstöðum í
Hvítársíðu. Hann er nú 93 ára og
dvelur á Dvalarheimili aldraðra í
Borgarnesi. Ég hitti Sigurð fyrst
þegar hann var 87 ára og hef hitt
hann á hverju ári síðan. Mér varð
strax ljóst að Sigurður er mjög
viðræðugóður maður, greindur og
fróður og minnið eins og meitlað í
stein. Hann líkist í þessu ýmsum
frændum sínum.
Börn þeirra Sigurðar og Krist-
ínar eru: Guðmundur á Kolstöð-
um, Bergur á Laugarási, Ásgeir í
Kópavogi, Sigurður, Þorkell og
Ragnheiður í Reykjavík og er
þetta allt myndarfólk eins og það
á ætt til.
Það er alltaf álitamál þegar
svona punktar eru settir á blað
hverju eigi að sleppa og hverju
ekki. En sú fyrsta minning um
mína gömlu góðu frænku þegar ég
sá hana í kirkjunni í Gaulverjabæ
fyrir rúmum þrjátíu árum, það er
líklega eilífðin sjálf.
Erlingur Kristjánsson
Stórateigi 2.
Iðgjaldatekjur SAL-sjóð-
anna 109 milljónir króna
ADALFIJNDHK Sambands almennra
lífevrissjóða, SAL, var haldinn 19.
nóvember sl. í Reykjavík.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa
flutti Ilallgrímur Snorrason, hagfrieð-
ingur hjá Þjóðhagsstofnun, fróðlegt
erindi um lífeyrissjóðamálin.
Samþykkt var að fella niður 20%
afslátt á greiddar verðbætur af
skuldabréfum sjóðfélaga nú um
næstu áramót.
Sambandsstjórn og fram-
kvæmdastjórn SAL var endurkjör-
in til næstu 2ja ára.
Framkvæmdastjórnin er þannig
skipuð:
Frá VSÍ: Gunnar S. Björnsson,
sem jafnframt var kosinn formað-
ur, Barði Friðriksson og Gunnar J.
Friðriksson.
Frá ASÍ: Benedikt Davíðsson, Eð-
varð Sigurðsson og Óskar Hall-
grímsson.
Innan SAL eru nú 25 lífeyrissjóð-
ir á samningssviði ASÍ og VSÍ.
Sjóðirnir búa við samræmdan bóta-
rétt og mynda því eina lífeyrisheild.
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi samþykkt frá bæjar
stjórn Seyðisfjarðar, sem gerð var á
fundi 9. nóvember sl.
„Allir bæjarfulltrúar Alþýðu-
flokks og Sjálfstæðisflokks í bæj-
arstjórn Seyðisfjarðar fluttu eftir-
farandi tillögu sem samþykkt var
Áætlað eigið fjármagn SAL-
sjóðanna nam í árslok 1980 567 m.
nýkr.
Framkvæmdastjóri SAL er
Hrafn Magnússon.
samhljóða með öllum greiddum at-
kvæðum á bæjarstjórnarfundi þ. 9.
nóv. 1981.
„Bæjarstjórn Seyðisfjarðar
fagnar þeirri ákvörðun samgöngu-
málaráðherra að taka upp skrefa-
talningu á innanbæjarsímtöl og
lengja skref á utanbæjarsímtöl, og
telur að það sé stórt spor í þá átt að
afnema þann landbyggðarskatt,
sem mishá símagjöld hafa verið.
Bæjarstjórn vekur athygli á, að
þrátt fyrir þessa nýju reglu á fólk
þess enn kost að tala ótakmarkað í
síma á kvöldin og um helgar og
telur að ástæða sé til að ætla, að
þessu fylgi ekki eins mikil hækkun
á innanbæjarsímtölum og margir
hafa vilja láta í veðri vaka.
Bæjarstjórn skorar á Alþingis-
menn að halda vörð um þessa nýju
reglu símagjalda þannig að á hana
fáist reynsla, og hrinda nú þegar í
framkvæmd því mikla réttindamáli
landsbyggðarfólks, sem er jafn
símakostnaður, ef talað er við
opinberar stofnanir, sama hvaðan
hringt er.““
+ Þökkum af alhug auösýnda samúö við andlát og útför móöur
okkar, tengdamóöur og ömmu,
SIGRÍÐAR EGGERTSDÓTTUR
frá Hvallátrum.
Ragnheiöur Kristjánsdóttir, Gísli Kristjánsson, Þorbjörg Magnúsdóttír,
Ingibjörg K. Kristjánsdóttir, Eggert H. Kristjánsson, Leifur Jónsson,
Hulda Kristjánsdóttir, Knútur Kristjánsson,
Siguröur Á. Kristjánsson, Svala Aðalsteinsdóttir,
Arndís G. Kristjánsdóttir, Valtýr Eyjólfsson,
Hrefna Kristjánsdóttir, Ragnar Þorsteinsson,
Einar S. Kristjánsson, Sólrún Gestsdóttir,
Jóna Margrét Kristjánsdóttir, Höróur Alfreósson,
Sigríöur Karlsdóttir, Einar Kristinsson
og barnabörn.
Bæjarstjórn Seyðisfjarðar:
Fagnar skrefatalningu
á innanbæjarsímtölum