Morgunblaðið - 05.12.1981, Qupperneq 41
fclk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981
41
„Ég er Leonardo Da
Vinci tuttugustu aldar“
„Ég er Leonardo da Vinci tut-
tugustu aldar," segir Gregoric
Sciltian, natúralisti í málaralist-
inni, rússneskur að uppruna en
býr í Róm, er er ekki að skafa
utan af hlutunum:
„Picasso var einungis mesta
bisness-ævintýrið í listaheimin-
um og ekkert annað. Málaralist-
in náði hámarki niðurlægingar-
innar með kommunum hans
Klee og litlu ferningunum hans'
Modrian og öllu hinu abstrakt-
inu. Síðasta orðið átti svo lista-
maðurinn sem sýndi fulla fötu af
eigin saur á sýningu í nú-
tímalistasafninu í Róm.“
Sciltian er frægur af portr-
ett-myndum sínum, svo og
kyrralífsmyndum og táknmynd-
um. Eitt af síðustu verkum hans
er stóra myndin sem hér birtist
og heitir „The Eternal Illusion"
— Hin eilífa blekking. Hún er
2,65x3,15 metrar í fullri stærð og
hefur verið metin á 240 þúsund
dollara. Velþekktur ítalskur
gagnrýnandi, Ugo Ojetti að
nafni, hefur lýst því yfir að
portrett-myndir Sciltians séu
með bestu portrett-myndum
þessarar aldar.
- segir Gregoric
Sciltian
í stuttu spjalli
Þegar Sciltian var ungur mað-
ur átti hann í miklu basli og varð
að vinna hin ólíklegustu störf til
að framfleyta sér, því það leit
náttúrulega enginn við myndum
hans. Þetta var uppúr 1920 í
Parísarborg: „Ég barðist af mik-
illi seiglu gegn Babelsturni mód-
ernistanna", segir Sciltian:
„Markmið málarans er að upp-
hefja fegurð hins sýnilega heims
og ég einsetti mér ungur að
helga líf mitt þessu markmiði.
Hið eina og skilyrðislausa hlut-
verk málaralistarinnar hefur
verið og mun alltaf vera, að sýna
Jslekkinguna í raunveruleikan-
um.“
Sciltian minnist sögunnar af
Titian, s enm hann málaði mynd
af páfa einum, sem var svo lík
manninum, að fólk hélt þar
stæði páfinn sjálfur holdi
klæddur og kraup á kné í lotn-
ingu sinni.
„Þetta voru bestu meðmælin
sem listamaðurinn gat fengið,“
segir Sciltian.
Hann lofar mjög hina banda-
rísku raunsæismenn í málara-
listinni, William Harnett og
Edward Hopper, og bætir við, að
Iistamaðurinn verði að finna og
opinbera þá fegurð sem hin
venjulegu augu greina ekki:
„Konan sem sat fyrir sem Mona
Lisa gekk um götur Florens án
þess nokkur maður veitti fegurð
hennar eftirtekt, enginn áleit
hana fagra, en Leonardo upp-
götvaði hina leyndu fegurð sálar
hennar.
Þetta kraftaverk er aðeins
hægt að þakka hinu einstaka
næmi listamannsins og tækni-
legri snilld hans — honum er
gefin sú gáfa að skynja kjarna
hlutanna, sem hinn venjulegi
maður skynjar ekki. Og sá er
einmitt munurinn á ljósmyndum
og málverkunum mínum“, segir
Gregorio Sciltian.
Klukkan 2 til 4 í dag mun
JÓN SIGURBJÖRNSSON
leikari lesa úr eftirtöldum
bókum:
Raupað úr ráðuneyti, eftir
VILHJÁLM HJÁLMARSSON
Lengivænti vonin,
æviminningar
EINARS KRISTJÁNSSONAR
Horft til liðinna stunda
eftir
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
frá EIÐUM
Höfundar verða í versluninni á
sama tíma og árita bækurnar.
EYMUNDSSON
Austurstræti 18