Morgunblaðið - 05.12.1981, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981
45
Nýmjólk og léttmjólk:
Hvers vegna er
enginn verðmunur?
Mjólkurþambari skrifar:
„Velvakandi góður!
Nú er blessuð léttmjólkin
komin á markaðinn og er það
vel. Hún virðist ætla að iíá
miklum vinsældum og telur
kaupmaðurinn minn að salan
sé u.þ.b. 15—20% af mjólkur-
sölunni hjá sér.
Eitt finnst mér óréttlátt
varðandi verð á léttmjólkinni;
að það skuli vera það sama og
á venjulegri nýmjólk. Rjóminn
sem fæst þarna umfram í létt-
mjólkinni skilst mér að sé
margfalt verðmætari en létt-
mjólkin sjálf og ætti því að
vera nokkur verðmunur á
venjulegri nýmjólk og létt-
mjólk. Væri ekki hægt að fá
skýringu á þessu misræmi?
Því að þarna fær almenningur
að borga meira en honum ber.
Þakka svo fyrir marga góða
pistla."
Auður Gísla Súrssonar
H.Þ. skrifar:
„Velvakandi!
Eftir að hafa séð hina frábæru
kvikmynd „Útlagann" datt mér í
hug ljóð Sigurðar Sigurðssonar
frá Arnarholti, A'uður Gísla
Súrssonar:
Glæslur jafnan gekk til víga
Císli — sem ad leikamótum:
því var sárl aó sjá hann hníga
svona, fyrir þrælaspjótum.
Vissi ég ei af verðum neinum
að vega hann — nema honum einum.
ilarminn einn að arfi hlaut ég
eftir Gisla skógarmanninn.
Ættarfjötra alla braut ég,
en aldrei þráði ég foðurranninn.
l>á væri fylgdin, Gísli, goldin,
geymdi mig hjá þér saga og moldin."
Audur Gísla Súrssonar
Byrði sorga lyfti Ijóði
lifandi blóði orti Gísli.
Nú má ég bera harm í hljóði
hjartað friða á vcfjarsýsli:
bar ég Gísla byrði hálfa —
ég ber mig naumast lengur sjálfa.
Áður fannst mér oft hann reyna
um of á krafta mína flesta.
Göllunum kunni ei Gísli að leyna,
hann gaf mér allt — sitt versta og
| hesta.
Kg átti hverja hans sorg og syndir,
hvern sæludraum og andans myndir.
— Kinatt skalf ég eins og hrísla,
en æðrulaus, þótt hinir svæfu,
því ekki taldi ég eftir Gísla
ævi minnar draumagæfu.
Þeirri, er átti hann einu sinni,
aldrei Gísli hvarf úr minni.
Kinatt beið ég. Öllu kveið ég.
Kin við sauma sporin taldi.
Að morgni leið, en þögul þrcyði ég —
þerraði margan dreyra á faldi.
I>ann hefði ég yngri þvegið tárum,
en þau voru öll í Gísla sárum.
hans og félaga hans. Því miður held
ég að ég neyðist til að fullyrða að
hann hafi haft orðtakið „að hamra
járnið meðan það er heitt" efst í
huga við þessa færibandafram-
leiðslu sína. Sá sem heldur því fram
að „Ricochet" með the Rollers sé
kópía af „Rollin’" með Bay City
Rollers, ja, hann ætti svo sannar-
lega að halda sig utan við músíkum-
ræðu. (Eitthvað kannast ég nú við
þetta.)
I sambandi við bestu íslensku
plötuna þá vil ég benda Ub 40 o.fl.
sem eru á sömu skoðun og hann að
hlýða á plötuna „Út í kuldann" með
ísfirsku hljómsveitinni Grafík. Hún
er mun betri en „Plágan", þó svo að
ég verði að viðurkenna að Bubbi sé
betri söngvari en sá ágæti maður er
sér um sönginn hjá Grafík.
Þar sem sjónvarpið virðist ekki
ætla að sýna gamla BCR-þáttinn (ég
vona að þetta hljómi ekki frekju-
lega), þá langar mig til þess að
koma með þá tillögu að þeir reyni að
fá til sýninga vídeófilmuna „Rico-
chet“ (The Rollers) sem tekin var
upp í vor sem leið, til kynningar á
samnefndri breiðskífu The Rollers.
Á spólunni eru fjögur eftirtalin lög:
„Ricochet", „Doors, bars, metal",
„Life on the radio“ og „Ride“ (öll á
„Ricochet").
Þökk sé þeim sem lásu.“
Undir
steini
Kiríkur Kiríkssnn yrkir vegna
fréttar í Vísi 24. okt.:
l*ogar hondin hresla ojj fúna,
hrími kólnar, vonir svíkja,
undir stoini uróar frúna,
óólast frid oj» kvinnan líka.
Alúðarþakkir fceri éy öllum />eim sem sýndu
mér vinarhug á SO ára afmæli minu þann 30.
október sl.
Adalsteinn Eiríksson.
Öllum þeim fjölmörgu sem heiöruöu mi</ o</ glöddu
á 100 ára afmœli mínu færi ég mínar innilegustu
kveöjur og Jxikklœti.
Guö blessi ykkur öll.
Jóhanna Egilsdóttir.
Bazar
Bazar KFUK verður laugardaginn 5. des. ’81 kl. 2.e.h. að Amt-
mannsstíg 2B. Rvík. Mikil heimaunnin handavinna, ódýr til
jólagjala, svo sem jóladúkar, löberar, barnaföt, leikföng og
margt fleira. Kaffi verður á boðstólum. Verið velkomin.
Samkoma um kvöldið kl. 20.30.
Bazarnefndin.
Höfum opnað
verslun okkar
Kjólabúðin DÍS
Dalshrauni 13,
Hafnarfirði,
sími 51975.
KJÖTMIPSTÖPIN Laugaiak 2.s.86511
EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AUGLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480