Morgunblaðið - 05.12.1981, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981
Góð byrjun í Portúgal!
• l'orgils Ottar Mathiesen var markahæstur, skoraði 7 mörk.
- 6 marka íslenskur sigur gegn Portúgal
eftir að gestgjafarnir höfðu yfir í hléi
ÍSI.KNSKA landsliðið í handknatt-
leik skipað leikmönnum 21 árs og
ynf'ri, sigraði Portúgal í fvrsta leik
sínum á HM-unglinga sem fram fer í
Portúgal þessa dagana. fsland er í
riðli með Sovétríkjunum og Hol-
landi og steig í gærkvöldi mikilvægt
skref í átt að milliriðlakeppninni
sem tvö efstu liðin úr þessum riðli
komast í. í hálfleik leit þó vart út
fjrir íslenskan sigur, staðan var þá
13-12 fyrir Portúgal. íslensku pilt-
arnir sneru dæminu síðan við í síðari
hálflcik, skoruðu þá 19 mörk gegn
12 og tryggðu sér öruggan sigur.
Frekar illa gekk að ná sambandi
við íslenska liðið, en tókst þó og
varð fararstjórinn, Olafur Aðal-
steinn Jónsson, fyrir svörum.
Ólafur sagði: „Það var eitthvert
kæruleysi í þessu i fyrri hálfleik,
kannski svolitill taugaslappleiki
einnig, en það var strax skorað
mikið og jafnt á flestum tölum
framan af. Upp úr miðjum hálf-
leiknum náði íslenska liðið síðan
ágætum leikkafla og virtust leiðir
ætla að skilja, staðan var orðin
12-8 fyrir ísland, er allt hrökk í
baklás. Portúgalirnir, sem voru
margir hverjir stórskemmtilegir
leikmenn, náðu þá hverju
hraðaupphlaupinu af öðru og
næstu fimm mörk urðu þeirra.
Staðan í hálfleik var því 13-12
fyrir Portúgal.
ísland jafnaði strax í síðari
hálfleik, en þá kom að mínu viti
vendipunktur leiksins, Portúgal-
irnir fengu þá tvö dauðafæri í röð
til þess að ná forystu á ný, en fyrst
varði Gísli Felix Bjarnason víta-
kast og síðan aftur glæsilega, er
Portúgalir náðu hraðaupphlaupi.
Island náði síðan forystu og smá-
jók hana allt upp í 6 mörk og þeg-
ar upp var staðið skildu sex mörk,
31-25. Það má segja, að Portúgal-
irnir hafi ekki haft úthald nema í
einn hálfleik. Þeir freistuðu þess
að taka Kristján Arasor. úr um-
ferð í heilar 40 mínútur, Páll
Ólafsson var einnig með yfir-
frakka annað veifið, en allt kom
fyrir ekki, þegar líða tók á leikinn
opnaði þetta bara fyrir öðrum
leikmönnum," sagði Ólafur Aðal-
steinn að lokum.
Mörk Islands: Þorgils Óttar
Mathisen 7, Kristján Arason 6, 4
víti, Brynjar Harðarson 4, Guð-
mundur Guðmundsson 4, Páll
Ólafsson 4, Gunnar Gíslason 4 og
Valgarður Valgarðsson eitt mark.
Gísli Felix Bjarnason stóð
lengst af í marki Islands og stóð
sig vel, varði 15 skot í leiknum, þar
af eitt víti eins og áður hefur kom-
ið fram.
Ljóst virðist, að slagurinn um
annað sætið í riðlinum verður
milli Hollands og íslands, nema að
Portúgai fari að gera óvæntar rós-
ir. Rússarnir sigruðu Holland ör-
ugglega í gærkvöldi. — gg.
Island - Portúqal
31-25
• Kristján Arason var lengst af tek-
inn úr umferð
Njarðvík rauf 100 stiga
múrinn og er enn í slagnum
Stórleikur f 2. deild
karla er ÍR mætir UBK
Kftirtaldir leikir fara fram á ís-
landsmótinu í handknattleik um
helgina.
I>augardalshöll — laugardagur 5. des.
Kl. 14.00 2. d. ka.
Fylkir — Þór V. Arni Sverriss. —
Magnús Arnars.
Kl. 15.30 3. d. ka.
Ögri — Selfoss. Lúðvík Halldórss.
— Haukur Halls.
Kl. 17.00 3 d. ka.
Armann — Dalvík. Einar Sveinss.
— Helgi Gunnarss.
Vestmannaeyjar — laugardagur 5. des.
Kl. 15.00 2. d. kv.
IBV — Haukar. Þorgeir Pálss. —
Guðm. Kolbeins.
Seltjarnarnes — sunnudagur 6. des.
Kl. 14.00 3. d. ka.
Grótta — Skallagr. Daníel Þóriss.
FKKKAR róleg helgi er framundan
hjá körfuboltamönnum. Aðeins einn
leikur fer fram í úrvalsdeildinni.
Fram leikur gegn Val í íþróttahúsi
Hagaskólans og hefst leikurinn kl.
14.00. Aðrir leikur eru þessir:
Akranes — laugard. 5. des.
kl. 14.00 2. fl. IA - KR
Hagaskóli — laugard. 5. des.
kl. 14.00 Ú Fram — Valur
3. fl. Fram — Haukar
— Alexander Þóriss.
Kl. 15.30 J.fl.ka.
Grótta — Ármann. Árni Rúnarss.
— Örn Jensson.
Laugardalshöll — sunnudagur 6. des.
Kl. 14.00 2. d. ka.
ÍR — UBK. Karl Jóhanns. —
Björn Kristjánss.
Kl. 15.30 1. fl. ka.
KR — Fram. Stefán Hjálmarss. —
Árni Friðriks.
Kl. 16.30 1. fl. ka.
Fylkir — Valur. Heimir Gunnarss.
— Grétar Árnas.
Einn stórieikur fer fram í 2.
deild. Lið ÍR og UBK leika á
sunnudag en bæði liðin eru í
toppbaráttunni í deildinni og þar
sem baráttan er jöfn og hörð í 2.
deild má búast við hörkuleik.
3. kv. KR - IBK
5. fl. KR — Fram
Hellissandur — laugard. 5. des.
kl. 14.00 2. d. Víkingur — UBK
Hagaskóli — sunnud. 6. des.
kl. 14.00 2. d. Bræður — ÍA
3. fl. KR - ÍBK
4. fl. KR - Fram
Njarðvík — sunnud. 6. des.
kl. 14.00 1. d. UMFG — Haukar
2. kv. UMFG - ÍR.
NJAKDV ÍKINGAK sigruðu KR inga
örugglega í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik í Njarðvíkunum í gær
kvöldi og rufu eitthundrað stiga
múrinn í leiðinni, skoruðu 100 stig
gegn 75 stigum KR-inga. Að vísu
voru áhöld um það hvort teljarar
hefðu talið rétt, því samkvæmt papp-
írum blaðamanna fór leikurinn
98—76 fyrir UMFN. Kkki er ótrú-
legt að teljurum hafi orðið á mistök í
hita leiksins, því þeir stöðvuðu m.a.
skeiðklukkuna einmitt um sama
leyti og blaðamenn töldu stigin á
töflunni, sem hafa misritast. Kn
hvort talan er rétt gildir einu, því
þetta hafði engin áhrif á gang leiks-
ins.
Fyrsta korterið var leikurinn í
járnum, stigin jöfn oft á tíðum og
KR-ingar höfðu frumkvæðið ef
eitthvað var. Bæði liðin ætluðu sér
greinilega stóran hlut, sýndu
sókndirfsku og léku hratt og
ákveðið, stundum þó ef til vill of
hratt. En síðustu mínútur fyrri
hálfleiks sigu Njarðvíkingar ró-
lega fram úr og á sama tíma
misstu KR-ingar Ágúst Líndal út
af fyrir villur, en hann hafði þang-
að til átt heilsteyptan og ágætan
leik, bæði í vörn og sókn.
Staðan í hálfleiknum voru 48
stig gegn 40, Njarðvíkingum í vil.
Bjuggust áhorfendur vafalaust við
sömu baráttunni áfram í seinni
hálfleik og ekki laust við að beyg-
ur væri í heimamönnum, því
KR-ingar reyndust harðir í horn
að taka.
En það var eins og KR-ingar
hefðu ekki úthald nema fram i
hálfieik, því þeir voru ekki svipur
hjá sjón í seinni hálfleik og Njarð-
víkingar voru von bráðar komnir
með 20 stiga forustu, komust í
69—48 eftir um fimm- mínútna
leik. Munaði þar einna mest um
stórgóðan leik þeirra Danny
Shous og Jóns Viðars Matthías-
sonar, sem átti stórleik.
Það var því aðeins formsatriði
fyrir Njarðvíkinga að ljúka leikn-
um og síðustu mínúturnar skiptu
þeir mörgum varamönnum inn á,
fyrir sína betri menn. KR-ingar
gáfu leikinn, að því er virðist,
fljótlega í seinni hálfleik og bar-
áttuviljinn var í lágmarki. Áðeins
einn og einn í liðinu barðist, þ.á.m.
Bjarni Jóhannsson, Eiríkur Jó-
hannsson og Páll Kolbeinsson,
sonur Kolbeins Pálssonar hins
kunna körfuknattleiksmanns. Þá
hitti Stewart með eindæmum illa
á köflum, og ýmsir fyrrum mátt-
arstólpar liðsins, svo sem Garðar
Jóhannesson og Jón Sigurðsson
beinlínis hurfu í seinni hálfleikn-
um eftir ágætan fyrri hálfleik.
En þrátt fyrir allt, þá var leik-
SIGTKYGGUR Jónsson var kjörinn
formaður Knattspyrnudeildar Vals á
aðalfundi deildarinnar, sem haldinn
var nýlega, en fráfarandi formaður,
Jón Gunnar Zoega, gaf ekki kost á
sér til cndurkjörs. Voru Jóni þökkuð
frábær störf í þágu deildarinnar á
fundinum, bæði af nýkjörnum for
manni og af formanni Vals, Pétri
Sveinbjarnarsyni.
Auk Jóns Zoega ganga nú all-
margir úr stjórninni, sem þar
hafa sumir starfað mörg undan-
farin ár: Baldvin Jónsson, Helgi
urinn oft á tíðum skemmtilegur á
að horfa, einkum fyrri hálfleikur,
og oft sáust skoraðar skemmtileg-
ar körfur. Stigin skoruðu annars:
UMFN: Valur 11, Gunnar 10,
Danny 42, Jónas 11, Árni 4, Jón
Viðar 14, Júlíus 4 og Ingimar 2.
KR: Stewart 31, Agúst 8, Garðar
9, Jón 11, Eiríkur 8, Bjarni 6, Páll
3.
íslandsmet
F.DVARÐ Kðvarðsson úr Njarðvík,
setti í gærkvöldi nýtt og glæsilegt
íslandsmct í 200 metra baksundi á
NM unglinga sem haldið var í
Tysted í Danmörku. Kðvarð, sem er
aðeins 14 ára, synti á 2:14,6 og setti í
leiðinni pilta- og drengjamet. Þá
setti Guðrún Fema Ágústsdóttir úr
Ægi telpnamct í 200 metra bringu-
sundi, synti á 2:47,8 mínútum.
Magnússon, Þorvaldur Mawby,
Ingvi Hrafn Jónsson, Harry
Sampsted og Eðvard Skúlason.
I stjórn nú voru á hinn bóginn
kjörin, auk formanns, Sigtryggs
Jónssonar: Knútur Sigmarsson
varaformaður, Jónas Guðmunds-
son ritari, Sigurgeir Jónsson
gjaldkeri, Björn Hermannsson,
Vilhjálmur Kjartansson, Jóhann
Albertsson, Anders Hansen, Hel-
ena Albertsdóttir, Sigurjón Sig-
urðsson, Guðmundur Svavarsson
og Helgi R. Magnússon.
Tekst Val að stöðva
sigurgöngu Fram?
Sigtryggur Jónsson
kjörinn formaður