Morgunblaðið - 05.12.1981, Qupperneq 48
TUDOR
rafgeymar
njá þessir mcð 9 líf M
SKORRIHF
Laugavegi 180, sími 84160
ioröiimltía^ií>
munið trúlofunarhringa
litmyndalistann
#uíl Sc ás>ilfur
Laugavegi 35
LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981
Einingahús:
Innflutningur
hefúr aukizt
stórkostlega
„STAÐA KVKIKTÆKJA í framleiðslu einingahúsa hér á landi er mjög slæm um
þessar mundir og er adalástæðan fyrir því sú gífurlega aukning, sem orðið hefur á
innflutningi á þcssu ári,“ sagði Guðmundur Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Trésmiðju Sigurðar Guðmundssonar á Sclfossi, m.a. í erindi sínu á fundi Félags
Íslen2kra iðnrekenda um ástand og horfur í iðnaði, sem haldinn var í gær að
Hótel I.oftlciðum.
„Sem dæmi um þessa miklu aukn-
ingu má nefna, að fyrstu níu mánuð-
ina á þessu ári hafa verið flutt inn
einingahús, sem eru liðlega 864 tonn,
en undanfarin ár hefur innflutning-
urinn verið á bilinu 300—400 tonn
17.000 tonn
fiskflaka
til Rússlands
SAMNINGAK hafa nú tekist milli
Islendinga og Kússa um sölu á
17.000 tonnum af frystum fiskflök-
um til Kússlands á næsta ári, en
samkvæmt viðskiptasamningi
landanna, er gert ráð fyrir að ls-
lendingar selji mest 17.000 lestir á
ári af fiskflökum til Kússlands.
Samkvæmt þcim heimildum, sem
Morgunblaðið hefur aflað sér, þá
var samið um sama verð í dollur
um og á sl. ári.
Morgunblaðið hefur eftir
áreiðanlegum heimildum, að áð-
ur en ísl. samningamennirnir
fóru til Moskvu, hafi menn talið
gott, ef hægt yrði að semja um
J4—15 þús. tonn af flökum, og
því séu menn innan frystiiðnað-
arins mjög ánægðir með þennan
samning. Samningurinn milli
Rússlands og íslands er þannig
uppbyggður, að íslendingar ráða
hvernig þeir fylla hann, t.d. geta
menn sent karfa, grálúðu, þorsk
eða ýsuflök og er sama verð
greitt fyrir allar tegundir. Miðað
við markaðsástand um þessar
mundir má búast við að Islend-
ingar muni leggja áherzlu á
vinnslu karfaflaka á Rúss-
landsmarkað á næsta ári.
allt árið. Mesti innflutningur, sem
um getur áður, var árið 1975, en þá
var m.a. flutt inn mjög mikið af hús-
um vegna Sigölduvirkjunar," sagði
Guðmundur ennfremur.
I erindi sínu kom Guðmundur
ennfremur inn á það mikla misræmi,
sem ríkjandi er í tollamálum varð-
andi innflutt hús annars vegar og
þau, sem framleidd eru hér hins veg-
ar. — „í dag er mönnum gert að
greiða söluskatt af allri vinnu við
einingahús, sem framleidd eru ef
ekki er um að ræða íbúðarhúsnæði,
en ef þessi sömu hús eru flutt inn,
þarf ekki að greiða af þeim sölu-
skatt,“ sagði Guðmundur. Hann
nefndi sem dæmi um þau hús, sem
greiða þarf söluskatt af vinnunni
við, barnaheimili og húsnæði lil iðn-
aðar.
Guðmundur Sigurðsson sagði það
skoðun sína, að ef ekki yrði breytt
um stefnu hjá stjórnvöldum myndu
innflutt einingahús verða með um
20% markaðshlutdeild hér á landi,
þegar á næsta ári, en væru tekin upp
skynsamlegri vinnubrögð væri hægt
að hlúa að ört vaxandi iðngrein, sem
myndi skapa miklum fjölda manna
atvinnu á komandi árum.
Óðum styttist nú til jóla, og sjást þess þegar merki í höfuðborginni, þar sem jólaskreytingar og jólaljós eru nú
víða komin upp. Þessi mynd var tekin síðdegis í gær á Laugaveginum. Ljósm.: óiafur K. MagnusMin.
Niðurstöður viðræðnanna við Alusuisse:
„Samkomuiag um að
vera áfram ósammála“
- sagði Ragnar Halldórsson, forstjóri ISALs
- Næsti tímapunktur ákveðinn 15. janúar
„ÞGTTA ER í raun samkomulag um
að vera áfram ósammála," sagði
Kagnar Halldórsson, forstjóri ÍSAL,
í lok fundar fulltrúa ríkisstjórnar-
innar og Alusuisse í gærkvöldi, en
viðræðum aðila lauk þá. Ekki tókst
að leysa úr skoðanaágreiningi þeim
varðandi túlkun á ákvæðum samn-
Smjör hefúr hækkað
um 72% á tæplega ári
Hækkun á landbúnaðarvörum yfirleitt um 60% á árinu
Taxtakaup fiskvinnslufólks hefur hækkað um 41,6%
VERÐ á iandbúnaðarafurðum hækkaði síðastliðinn þriðjudag og frá 9. des-
ember í fyrra hefur verð á ýmsum helztu búvörum hækkað um 50—70%.
Reyndar hefur verð á smjöri hækkað heldur meira eða um 72% á tæplega
einu ári. Á sama tíma hefur taxtakaup fiskvinnslufólks hækkað um 41,6^
samkvæmt upplýsingum, sem Mbl. fékk hjá Vinnuveitendasambandi
lands.
í desember í fyrra kostaði hver
lítri af mjólk í pökkum 4,25 krón-
ur, en eftir síðustu hækkun kostar
mjólkin 6,65 krónur. Hækkunin
nemur 56,6%. Hækkun á rjóma er
heldur meiri hlutfallslega, en
rjómi í Vt fernum kostaði fyrir
tæpu ári 7,50 á móti 11,90 kr., en
það er 58,7% hækkun. Kíló af
smjöri kostaði 9. desember í fyrra
46,60 kr., en núna krónur 80,40 og
er um 72% hækkun að ræða eins
og áður sagði. 45% ostur hefur
hækkað um 62% og undanrennu-
duft um 51%.
Hvert kíló af læri og hrygg kost-
aði í desember í fyrra 37,20 kr., en
nú 59,55 og er hækkunin á milli
ára 62,3%.
Verð á kindakjöti hefur
yfirleitt hækkað um í kringum
60% á þessu tímabili. Hlutfalls-
hækkun á nautakjöti er svipuð,
kíló af hakki hefur hækkað um
57,2%, en hvert kíló afturhluta
hefur hækkað um 61,5%. Verð á
íslenzkum kartöflum hefur hækk-
að tiltölulega minnst af þeim vör-
um, sem heyra undir framleiðslu-
eftirlit landbúnaðarins eða um
54% frá 9. desember í fyrra til 1.
þessa mánaðar.
Niðurgreiðslur hafa mikil áhrif
á búvöruverð til neytenda og hafa
niðurgreiðslur á mjólk t.d. hækkað
um 33,5% síðan í fyrra, um 25% á
kartöflum, um 13,7% á 1. verð-
flokki og stjörnuflokki kindakjöts
og um 5,86% á 2. verðflokki nauta-
kjöts. Þær vörur sem eru mikið
greiddar hafa hlutfallslega hækk-
að mest í verði, en ýmsir aðrir
þættir koma einnig til greina.
Verð til bænda hefur ekki
hækkað eins mikið samkvæmt
verðlagsgrundvelli og til neytenda
og er það vegna minna hlutfalls
niðurgreiðslna. Þannig fá bændur
t.d. 5,72 krónur fyrir hvern lítra
mjólkur, en fengu í desember í
fyrra 3,87 krónur. Nemur þessi
hækkun 47,8%.
inganna í sambandi við verðlagn-
ingu á hráefnum, sem varð fundar
efnið að þessu sinni en samkomu-
lag náðist um að leggja þann ágrein-
ing til hliðar í bili. Fulltrúar rfkis-
stjórnarinnar óskuðu svara Alu-
suisse við ályktun ríkisstjórnarinnar
frá í sumar en hún felur í sér að
aðalsamningur og fylgisamningar
við Alusuisse verði endurskoðaðir.
Oskað er svara ekki síðar en 15.
janúar nk.
Fulltrúar Alusuisse hafa lagt
fyrir íslenzk yfirvöld skýrslur
bandarískra og brezkra sérfræð-
inga í álviðskiptum sem þeir segja
að sýni fram á að yfirlýsingar
endurskoðunarskrifstofunnar
Coopers & Lybrand séu ekki rétt-
ar. Sagði Weibel, aðstoðarforstjóri
Alusuisse í lok fundarins í gær, að
Coopers & Lybrand væri eingöngu
endurskoðunarfyrirtæki og hefði
það því ekki sömu þekkingu á mál-
inu og áðurnefndir sérfræðingar.
Vilhjálmur Lúðvíksson, formað-
ur íslenzku samninganefndarinn-
ar og Weibel, aðstoðarforstjóri
Alusuisse, sögðu í viðtali við
fréttamenn í lok fundarins, að
ágreiningur þessi væri í raun um
túlkun samningsins, en ekki um
einhverjar tilgreindar upphæðir.
Ályktun ríkisstjórnarinnar frá 16.
júlí sl. um endurskoðun aðalsamn-
ings og fylgisamninga felur m.a. í
sér að við þá endurskoðun verði
athugað með hækkun raforku-
verðs til ISAL, aukna eignaraðild
íslendinga o.fl. Til slíkrar endur-
skoðunar kemur ekki nema báðir
aðilar samþykki. Óskuðu íslenzku
fulltrúarnir eftir svörum við því
hvort Alusuisse væri tilbúið til
þeirra viðræðna fyrir 15. janúar
nk. og urðu aðilar sammála um að
leggja skoðanaágreininginn sem
nú var til umfjöllunar, til hliðar
þar til svör Alusuisse berast. Sam-
þykki Alusuisse að ganga til við-
ræðna um hugsanlega endurskoð-
un aðalsamnings og fylgisamn-
inga koma aðilar saman til fundar
á ný innan þriggja vikna frá til-
greindum tíma.
í viðtali við Mbl. í gærkvöldi
sagðist Hjörleifur Guttormsson,
iðnaðarráðherra, fagna þessari
niðurstöðu og telja hana þýð-
ingarmikið skref áleiðis. Iðnaðar-
ráðherra var spurður hver afstaða
íslendinga yrði, ef svar Alusuisse
um endurskoðunarviðræður yrði
neikvætt. Hann sagðist ekki efast
um að Alusuisse hugsaði málið vel
áður en það tæki ákvörðun, en ef
svarið yrði nei, myndi mestu ráða
um árangur sú góða samstaða sem
náðst hefði innanlands um mál
þetta. „Við þurfum ekki að kvíða
því að við náum ekki fram rétti
okkar,“ sagði hann.
Áfengis-
verzlun í
Þönglabakka
úyKgingarnefnd Reykjavfk-
urborgar samþykkti nýlega að
heimila ÁTVR og Fósti og
síma að byggja verzlunar og
skrifstofuhús á lóðinni nr. 6
við Þönglabakka í Breiðholti.
Þarna verða í framtíðinni
áfengisverzlun, póst- og sím-
stöð. Byggingin verður tvær
hæðir og kjallari, 841 fer-
metri hver hæð.