Morgunblaðið - 09.12.1981, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 09.12.1981, Blaðsíða 32
DÓRA OG KÁRI eftir Ragnheiði Jónsdóttur er hin þriðja af Dórubókunum vinsœlu sem Iðunn gefur nú út í nýrri útgáfu með nýjum teikning- um eftir Ragnheiði Gestsdóttur. Sögurnar komu út á fimmta og sjötta áratugnum og hafa nú um langt skeið verið ófáanlegar. Ragnheið- ur Jónsdóttir var á sinni tíð einn fremsti ungl- ingasagnahöfundur þjóðarinnar og sögur henn- ar eru hinn ágætasti lestur handa unglingum enn í dag. Dóra í Kaupmannahöfn DÓRA OG KÁRI gerist í lok seinna stríðs og rétt eftir það. Dóra lýkur gagnfræðaprófi og nú fær hún að láta þann draum sinn rætast að komast í ballettskóla. Hún kveður vini sína, Völu og Kára, og heldur til Kaupmannahafnar þar sem ný reynsla bíður hennar og hún kynn- ist nýju fólki. Kára hafði langað mjög til að læra söng enda hefur hann hæfileika á því sviði, en efnahagurinn sýnist ekki munu leyfa Imð. Áður en sögunni lýkur kemur hann þó óvænt til Hafnar og verða þá fagnaðarfundir. LAMBADRENGUR eftir Pál H. Jónsson er þriðja barnabók höfundar. Fyrir fyrri sögumar, Berjabít og Agnar- ögn hlaut hann mikið lof og báðar voru þær sæmdar verðlaunum fræðsluráðs Reykjavík- urborgar sem veitt eru bestu frumsaminni barnabók hvers árs. Enda hafa ekki aðrir um langt skeið samið barnabækur af meira list- fengi og alúð en Páll. Og raunar eru bækur hans, eins og aðrar góðar bamábækur, engu síður við hæfi fullorðinna lesenda. LAMBADRENGUR er indæl saga. Hún gerist í sveit á þeirri tíð þegar enn varfærtfrá á íslandi. Aðalpersónan er ungur drengur, sag- an lýsir samskiptum hans við fólkið á bænum — og ekki s\ður við náttúruna, blómin og dýrin. Sagan er skrifuð á afar fallegu máli, auðugu og blæbrigðaríku, og lýsir djúpri og nœmri tilfinn- ingu fyrir landinu og lífi þess í ýmsum mynd- um. Páll H. Jónsson eykur hróður sinn með þessari sögu. Hún er prýdd myndum eftir Sig- rid Valtingojer. KÁTT ER í KRUMMAVÍK eftir Magneu frá Kleifum er sjálfstætt framhald sögunnar Krakkarnir í Krummavík. Nú er aðalpersónan frændi krakkanna í Krummavík, Danni, sem líka kom við sögu i fyrri bókinni og á heima í Reykjavík. Hann fær að vera hjá frændfólki sínu um sumartíma og sú dvöl reynist mikið ævintýri. Mörg spaugileg atvik gerast, fyrst i ferðinni sjálfri og síðan þegar til Krummavikur er komið. Þar sem eru margir fjörugir krakkar er auðvitað fundið upp á ýmsu, og ekki er full- orðna fólkið alltaf hrifið af tiltækjunum. En víst er um það að enginn dagur í Krummavík er leiðinlegur. Öll einkennist frásögnin af glaðværð, gáska og hlýju, kjörið lestrarefni fyrir böm. Og ekki spilla hinar skemmtilegu myndir sem Sigrún Eldjám hefur teiknað í söguna. EINS OG í SÖGU eftir Sigrúnu Eldjám en hún sendi frá sér í fyrra skemmtilega bamasögu í máli og myndum, Allt í plati! Varð hún afar vinsæl, af ungum lesendum. Nú kemur önnur bók frá Sigrúnu EINS OG í SÖGU! og fjallar um tvo krakka, Eyvind og Höllu og ævintýri þeirra. Þau hitta vini sína, Sigvalda krókófil og Þjóðhildi. En Loftur lyftuvörður sem þau léku grátt í fyrri bókinni er nú kominn á stúfana og hyggur á hefndir. Hann stendur reyndar ekki einn uppi því hann á dreka fyrir vin. Þegar við slíka kumpána er að eiga er betra að kunna eitthvað fyrir sér! GLEYMMÉREI er skemmtileg bók fyrir litlu bömin. Teikningar eftir Sigrúnu Eldjárn, en Þórarinn Eldjárn Ijóðskreytti. Á hverri mynd er sýnt hvemig það að gleyma einhverjum hlut sem þarf að nota i daglega lífinu veldur fólki dálitlum vandræðum, og rímaður texti Þórar- ins skýrir það enn frekar. Og svo er þama líka falin mynd sem sýnir hvað til þarf svo að allt komist i lag! HIMNARÍKI FAUK EKKI UM KOLL eftir Ármann Kr. Einarsson. Simmi er ellefu ára og á heima i Breið- holti. Þangað er hann nýfluttur með foreldrum sínum og yngri systur, og húsið ekki nærri full- búið. Pabbi hans er smiður og vinnur að því i frístundum að innréttá íbúðina. Drengurinn er elskur að pabba sinum, en hann finnur að ein- hver skuggi hvílir yfir heimilislífinu. Pabbi er stundum lengi i burtu og mamma verður þá kuldaleg i viðmóti við hann á eftir. Hvemig stendur á því? Og hvað getur Simmi gert til að bæta andrúmsloftið milli foreldra sinna sem honum þykir svo vænt um? Einn þekktasti barnabókahöfundur þjóðarinnar Ármann Kr. Einarsson hefur hér bætt skemmtilegri sögu við safn bama- og ungl- ingabóka sinna. Hann er einn af þekktustu og mikilvirkustu bamabókahöfundum þjóðarinn- ar. Liggja eftir hann tugir bóka og hafa margar þeirra verið þýddar á erlend tungumál. Þetta er viðburðarík saga þótt hún sé raunsœ, og hún er gædd hlýju og samúðarskiln- ingi. Hinn stóri lesendahópur höfundar mun áreiðanlega taka henni tveim höndum. Myndir í bókina teiknaði Pétur Halldórsson. véste«,ni*»*‘sson íöiaRrlíðxN SÓLARBLÍÐAN eftir Véstein Lúðvíksson er fyrsta bamasaga höfundar sem er löngu kunn- urfyrir bækur sínar handa fullorðnum, skáld- sögur og leikrit. SÓLARBLÍÐAN fjallar um samskipti lítillar stúlku sem nefnd er þessu nafni við yfirstjóra sem settur er til að gæta hennar. Hann vill hafa strangan aga á stúlk- unni en hún reynir að verja sjálfstæði sitt og vera eins og henni er eðlilegt. Verður því spenn- andi viðureign milli þeirra. En Sólarblíðan stendur ekki ein í stríðinu, hún á vini sem sitthvað kunna fyrir sér. Fara brátt óvæntir atburðir að gerast sem koma yfirvöldum úr jafnvægi. Þetta er skemmtileg bamabók prýdd teikn- ingum eftir Malínu Örlygsdóttur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.