Morgunblaðið - 09.12.1981, Blaðsíða 2
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1981
l>etla kort af hafísnum við ísland teiknaði Þór Jakobsson, deildarstjóri
hafíssdeildar Veðurstofu íslands eftir ískönnunarflug í fyrri viku.
Hafís óvenju mikill
norðvestur af landinu
HAFÍS er óvenju mikill norðvestur af landinu og talsverð hætta á að hann
breiðist út og torvcldi jafnvel siglingar fyrir Horn, að sögn Þórs Jakobsson-
ar, deildarstjóra hafíssrannsóknadeildar Veðurstofu íslands.
Landhelgisgæzla íslands kann-
aði hafíssvæðið mjög vel í gær og
var skyggni gott til ískönnunar og
var Sigurjón Hannesson skipherra
í könnunarfluginu. Isjaðarinn er
nú l&sjómílur norður af Horni, og
20 sjómílur norðvestur af Kögri.
Hann er aðeins 18 sjómílur norð-
vestur af Deild og liggur þaðan í
suðvestur.
Fjarlægðin vestur af Bjargtöng-
um er um 40 sjómílur. Búist er við
vestlægum og norðvestlægum átt-
um næstu dægur, sem eru mjög
óhagstæðar með tilliti til truflana
á siglingum.
■y wh
JAN MATEN
*
Oþægilegt ef karfavinnsl-
an dytti skyndilega niður
- segir Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson
— VÍST yrði það óþægilegt ef
skyndilega dytti niður vinnsla á
karfa eftir að afli hefur farið
stigvaxandi síðustu 2 til 3 árin,
en hins vegar hefur ekkert verið
ákveðið ennþá um að draga úr
sókn í karfa þrátt fyrir að fiski-
fræðingar segi hana vera of
mikla, sagði Eyjólfur ísfeld Eyj-
ólfsson forstjóri Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna er Mbl. innti
Lýst eftir
vitnum
ÞANN 21. nóvember kl. 14.20 var
vörubifreið í Ártúnsbrekku á leið í
bæinn með grjóthlass þegar steinn
féll af palli biísins og skall á annarri
bifreið. Vitni sem kom við á Árbæj-
arstöð lögreglunnar er beðið að hafa
samband við lögregluna.
Þann 27. nóvember skömmu fyrir
miðnætti var árekstur á tengi-
braut að Breiðholtsbraut, gengt
Seljaskóla. Tveir bílar skullu þar
saman, en ökumaður annarar bif-
reiðarinnar stakk af. Talið er að
hann hafi verið á gulri Cortinu
með vinyl-toppi. Vitni sem kunna
að hafa séð áreksturinn og greint
Cortina-bifreiðina eru beðin að
gefa sig fram.
hann álits á hver yrðu hugsanleg
áhrif minnkandi sóknar í karfa.
Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson sagði
að karfavinnsla hefði aukist mjög
mikið síðustu 2 árin og virtist hún
vera kringum 40%. Árni Bene-
diktsson formaður Félags Sam-
bandsfiskframleiðenda sagði að
þrátt fyrir að veiðst hefði meiri
karfi að undanförnu væru sveifl-
urnar ekki mjög miklar og sagði
hann að jafnvel þótt sókn yrði
takmörkuð væri karfinn þó sá
fiskur sem mönnum væri minnst
eftirsjá að. Þá sagði Árni að nú
stæðu yfir í Sovétríkjunum við-
ræður um sölu íslenskrar fram-
leiðslu til Sovétmanna og gerði
hann ráð fyrir að karfabirgðirnar
myndu þá minnka.
Fulltrúar hagsmunaaðila sjávarútvegsins á fundi með sjávarútvegsráðherra.
Ljósm. Mbl. ÓI.K.M.
Fiskveiðistefnan rædd
Steingrímur Hermannsson, sjáv-
arútvegsráðherra, kallaði fulltrúa
hagsmunaaðila sjávarútvegsins á
sinn fund á þriðjudag til að ræða
fiskveiðistefnu næsta árs og stóð
fundurinn í eina klukkustund. Fjall-
að var um frumdrög fiskveiðistefn-
unnar á fundinum og eru menn al-
mennt sammála um hana. Sjálfur
hefur sjávarútvegsráðherra sagt að
stefna næsta árs verði svipuð því
sem er á þessu ári, enda hafa for
svarsmenn sjávarútvegsins sagt, að
Undirbúningsstarf fyrir
kvennaframboð í Hótel Vík
SAMTÖKIN, sem vinna að
kvennaframboði í Reykjavík, hafa
fengið Hótel Vík til afnota fyrir
starfsemi sína. Húsnæðið er hent-
ugt og býður upp á marga mögu-
leika. Stefnt er að því að hafa opið
hús til kynningar starfseminni,
ýmist með fastri dagskrá eða
frjálsum umræðum. I bígerð er að
koma upp barnagæzlu og föndur-
aðstöðu fyrir börn og getur þá öll
fjölskyldan lagt leið sína í húsið á
sama tíma.
Þegar hefur verið hafizt handa
um að koma húsinu í gott horf,
m.a. með því að mála, og eru allir
sem áhuga hafa á málefninu,
hvattir til að koma til starfa. Unn-
ið verður í húsinu eftir kl. 4 á dag-
inn fyrst um sinn.
Þess ber að geta að húsgögn
vantar og er allt sem verða má til
að ráða bót á því vel þegið.
(Kréttatilkynning.)
Myndbandaklúbburinn Keðjan:
Umsókn um kapallagna-
leyfi sett fram í fullri alvöru
MORGUNBLAÐINIJ barst í gær
svohljóðandi yfirlýsing frá Mynd-
bandaklúbbnum Keðjunni, þar sem
ítrekað er að umsókn klúbbsins um
leyfi til kapallagna í Reykjavík, sé
sett fram í fullri alvöru:
„Vegna ummæla í fjölmiðlum
sem höfð eru eftir borgarfulltrú-
um, þess efnis að umsókn Keðj-
unnar um myndbandakapallagnir
í Reykjavík kunni að vera grín
eitt, vill stjórn myndbandaklúbbs-
ins Keðjunnar taka fram að félög-
um klúbbsins er full alvara með
umsókn sinni.
Stjórn Keðjunnar lýsir furðu
sinni á tilraunum borgarfulltrúa
til þess að bendla umsóknina við
ákveðinn stjórnmálaflokk og
grafa þannig undan trausti
klúbbsins.
Stjórnin álítur það lágmarks-
kröfu að umóknin fái málefnalega
umfjöllun án þess að reynt sé um
leið að gera hana tortryggilega
eða skoplega.
Myndbandaklúbburinn Keðjan
harmar að ákveðnir borgarfulltrú-
ar skuli líta á umsóknina sem
skemmtiefni fyrir borgarstjórn —
og telur raunar ýmsa innanh-
ússmenn þar betur fallna til að
búa til slíkt efni.“
fiskveiðistefna þessa árs hafi heppn-
ast að mestu, nema hvað viðkemur
sífelldri fjölgun í fiskiskipaflotan-
um.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins þá munu helztu breyt-
ingarnar á fiskveiðistefnunni
væntanlega snerta loðnuveiðarnar
mest, en sjálf verður fiskveiði-
stefna sjávarútvegsráðherra ekki
lögð fram fyrr en um miðjan des-
ember, þar sem lokatillögur Haf-
rannsóknastofnunarinnar verða
ekki tilbúnar fyrr.
Þing FFSÍ:
Þorskafli miðist við 450
þús. lestir á næsta ári
Á ÞINGI Farmanna og fiskimannasambands íslands sem haldið var fyrir
skömmu, var samþykkt að beina því til stjórnvalda á stjórn og fyrirkomulag
botnfiskveiða verði með svipuðum hætti á árinu 1982 og hefur verið á þessu
ári.
í samþykkt FFSÍ segir, að heild-
arþorskafli skuli miðast við 450
þús. smálestir og skiptast jafnt á
milli báta og togara. Heimild
loðnubáta til þorskveiða verði
svipuð og á yfirstandandi ári, en
afli loðnuskipa, sem hlíti skrap-
dagakerfi, reiknist með hlut tog-
ara í heildarafla.
Þá segir að árinu verði skipt
niður í þrjú jafnlöng veiðitímabil
og við það miðað að þorskafli
bátaflotans fari ekki fram úr 150
þús. smálestum á tímabilinu
janúar-apríl, aflinn verði ekki
meiri en 45 þús. smálestir mánuð-
ina maí til ágúst og verði ekki
meiri en 30 þús. smálestir sept-
ember — desember. Gert er ráð
fyrir að verði afli á veiðitímabili
minni en áætlað er, bætist það
sem á vantar við afla næsta tíma-
bils.
Um togaraflotann segir, að á
tímabilinu janúar — apríl fái þeir
að veiða 80 þús. smálestir, og taki
út 45 daga þorskveiðibann, þar af
15 daga í janúar og febrúar. Á
tímabilinu maí til ágúst fái þeir að
veiða 75 þúsund smálestir, 60 daga
þorskveiðibann komi þar inn í, þar
af 35 dagar í júlí og ágúst.
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsþing leggur einnig til alls
veiði togurum bannaðar þorsk-
veiðar í 150 daga á árinu, en heild-
ar þorskafli í hverri veiðiferð
skiptist þannig að í 40 daga verði
afli þorsks af heildarafla 5%, fari
ekki fram úr 15% í 55 daga og ekki
fram úr 30% í 55 daga.
Þing FFSÍ:
Veðurspár
út á ensku
Á ÞINGI FFSÍ fyrir skömmu var
þeim tilmælum beint til sam-
gönguráðuneytisins og Veður-
stofu íslands, að vcðurspár á
ensku talmáli verði sendar út frá
tveimur til þremur íslenzkum
strandstöðvum, tvisvar á sólar
hring og stormaðvaranir eftir
þörfum. í samþykkt þingsins
segir að hafa beri í huga, að ís-
lenzk skip verði slíkrar þjónustu
hvarvetna aðnjótandi, er þau
sigli erlendis.