Morgunblaðið - 24.01.1982, Blaðsíða 1
Sunnudagur
24. janúar
Bls. 33-64
Örlögin hljóta að hafa ætlað mér eitthvað mikið
Annar tilgangur í lífínu
— Mig var búið að dreyma fyrir þessu. Ég var búinn að nefna
þetta við vinnufélaga mína, að einhver okkar ætti eftir að fara. —
Manstu drauminn? Mig dreymdi bara að ég færi niður hinum megin
í salnum. I>að er miklu, miklu minna fall. — Ertu berdreyminn? Það
er margt sem kemur mér ekki á óvart. l>að hefur ýmislegt gerst sem
ég gat búist við. Oftast er þetta eitthvert smáræði, stundum að vísu
það sem skiptir máli. Ég hef fundið ýmislegt á mér, t.d. um gang og
úrslit leikja. Ég er ekkert að flíka þessu, ég tek ekki meira en svo
mark á því. Ég er að vísu örlagatrúar, en það er ekki hægt að láta
daglegt líf sitt stjórnast af draumum og hugboðum. — Ég var
slappur og illa fyrirkallaður þennan dag, og vissulega var það mikil
freisting að vera heima, en ég er þannig gerður að ég á bágt með að
hopa af hólmi.
Enginn er hetja í þeim skiln-
ingi, að hann geti umflúið örlög
sín. Hetjuskapurinn er fólginn í
því, hvernig menn bregðast við ör-
lögum sínum. Undirritaður var að
ræða við Steinþór Þórarinsson,
húsasmið og knattspyrnumann.
Honum hefur auðnast óvenjuleg
lífsreynsla, skelfing og kvöl, sem
viðhorf hetjunnar hafa snúið hon-
um til meiri gleði, lífshamingju og
jákvæðara horfs við heiminum.
Lögregluskýrsla Ófeigs
Baldurssonar tekin af Gunnari
Berg Gunnarssyni.
Miðvikud. 9. 12. 1980, kl. 13.30
var tekin eftirfarandi skýrsla af
Gunnari Berg Gunnarssyni, 19 ára
múraranema, til heimilis aö
Skaröshlíð 2g, Akureyri. Gunnari
er kunnugt tilefni skýrslugeröar-
innar, og skýrir svo frá, eftir að
hafa veriö áminntur um sannsögli.
Ég er starfsmaður hjá Híbýli, og
hef unnið hjá því fyrirtæki í tvö til
þrjú ár. Meöal annars hef ég unnið
að byggingu framangreinds
íþróttahúss. Undanfariö höfum viö
verið aö vinna viö þak hússins, og
þar á meöal aö leggja svokallaöar
tréullarplötur.
Þegar þetta slys varö, þá var
búiö að leggja þessar plötur á um
þaö bil helming þaksins. Sam-
kvæmt þeim upplýsingum, sem ég
haföi fengiö, og munu vera frá
framleiðanda, þá eiga þessar plöt-
ur aö þola á milli 300 til 400 kg
þunga. Þaö var því algengt, aö þeir
sem voru að vinna viö þakiö á
þessu húsi, gengju á þessum plöt-
um, eftir að búiö var aö leggja
þær, og ekkert óhapp haföi oröið
af því, og engar plötur brotnaö af
þeim orsökum.
í þessum plötum eru styrktartré,
sem gera plöturnar burðarmeiri,
eftir slysiö kom hins vegar í Ijós, aö
í þessa plötu sem brotnaöi, vant-
aði þessi styrktartré, og þaö er
eina platan sem mér er kunnugt
um, sem var meö þessum galla.
Þegar slysiö varö, þá var ég aö
vinna viö aö leggja þessar plötur,
og var á vesturhluta þaksins,
ásamt öörum lærlingi, en Steinþór
Þórarinsson, var á austurhluta
þaksins, ásamt öörum smiö. Það
var búiö að hífa nokkur búnt upp á
þakið, og ég og Steinþór vorum aö
ræöa saman, um tilhögun þessa
verks, og stóöum því meö ca. met-
ers millibili.
Þaö gerðist svo allt í einu, að
platan sem viö Steinþór stóöum á
brotnaði. Steinþór mun hafa staö-
ið út á miöju plötunnar en óg viö
endann og þá viö buröarásinn,
sem annar endi plötunnar hvíldi á.
Steinþór mun hafa náö í næstu
plötu, en náöi ekki taki, þannig aö
hann gæti haldiö sér, og féll því
niöur um þakiö, og á frosna jörö-
ina neöan viö, sem þó var hulin
snjó, sem ef til vill hefur dregið úr
högginu. Ég féll einnig niöur um
gatiö, en gat náö taki á buröarásn-
um, og hékk þannig, með höfuö og
herðar upp um gatið. Vinnufélagar
okkar, sem þarna voru á þakinu,
komu mér strax til hjálpar, og
drógu mig upp um gatið, og slapp
ég algjörlega ómeiddur frá þessu
óhappi.
Viö Steinþór vorum aöeins
standandi þarna á plötunni og ekki
meö neitt í höndunum, en stóöum
báðir á sömu plötunni. Þaö kom
svo í Ijós síöar, aö viö Steinþór, og
fleiri, sem þarna unnum, vorum oft
búnir aö ganga á þessari plötu, án
þess að hún brotnaöi, en þá hefur
sennilega aðeins veriö einn maöur
í einu, sem hefur staöiö á plötunni.
Við sem þarna unnum, vorum
SJÁ NÆSTU SÍÐU.
Talað við Steindór Þórarinsson húsasmið og knattspyrnumann á Akureyri