Morgunblaðið - 19.03.1982, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1982
49
félk í
fréttum
Til minning-
ar um son
+ Sonur Paul Newman, leikarans kunna, Scott að nafni, lést sviplega 28
ára gamall vegna misnotkunar svefnlyfja. Paul hefur nú ákveðið að
leggja fram fé til góðs málstaðar til minningar um son sinn og mun
fyrsta framlagið renna til handritahöfundar sem starfar við sjónvarp í
Bandaríkjunum, og hefur varað mjög við notkun svefnlyfja og deyfilyfja
í skrifum sínum.
COSPER
Magnús, hefurðu séð þessa gáhi sem er flutt inn hér fyrir neðan?
Ur Vogue
+ í Jacquemart-André safninu í Parísarborg
lauk nýverið mikilli sýningu á tískuljósmynd-
um þessarar aldar. Sýningin er haldin í tilefni
af afmæli Vogue, tímaritsins fræga, en þar
hafa flestir mestu tískuljósmyndarar sögunn-
ar birt myndir sínar. Við birtum hér þrjár
myndir af þessari miklu sýningu og allar úr
Vogue og sýna þær ljóslega breytingarnar
gegnum árin. Efst til vinstri er mynd sem
William Klein tók árið 1960, til hægri er mynd
Albert Watson frá 1981 og til hliðar er mynd
sem Adolphe de Meyer, barón, tók árið 1918.
Nú œtlum vlð hjá Flugleiðum að bjóða þér í spennandi íerð. Álanga-
staðurinn er Chicago við Michiganvatn. Þar er að finna saíaríkustu
steikur vestursins, írœgar byggingar eins og Wrigley'shúsið, Sears
Tower og Baha'i hofið, frábœrar verslunarmiðstövar og íleira og fleira.
Dvalið verður á Holiday Inn hótelinu allar nœturnar sjö. Brottfarir
verða vikulega á sunnudögum frá 4. apríl. Verðið er ekki síður spenn-
andi en áfangastaðurinn, en það er frá 5.970,00 krónum, inniialið er
flugfar, gisting, flutningur til og írá ílugvelli, kynnisíerð um borgina og
íslensk fararstjórn.
FLUGLEIDIR
Gott fólk hjá traustu félagi