Morgunblaðið - 07.05.1982, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 07.05.1982, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1982 Aðeins útflutning- ur, lítill sem eng- inn innflutningur — segir Halldór Blöndal alþingismaður um viðskipti okkar við Nígeríu og Portúgal HALLDÓR Blöndal gerði viðskipti Islendinga við Nígeríu og Portúgal aö utnræðuefni í umræðum um skýrslu um utanríkismál í samein- uðu þingi 27. apríl sl. Hann benti sérstaklega á mismun útflutnings Dollara- verð hefur hækkað um 1% á viku DOLLARAVERÐ hefur hækkað um tæplega eitt prósent á einni viku, eða úr 10.400 krónum hver dollari 28. apríl sl. í 10.499 krónur samkvæmt gengisskráningunni ! gærdag. Hins vegar hefur doll- araverð hækkað um liðlega 6,8% frá 4. marz sl. þegar ríkisstjórnin heimilaði formlegt gengissig ís- lenzku krónunnar. I*á var sölu- gengi Kandaríkjadollars skráð á 9.829 krónur, en 10.499 í gærdag eins og áður sagði. Frá áramótum hefur dollara- verð hækkað um tæplega 28,3%, eða úr 8.185 krónum í 10.499 krónur. Þá má geta þess, að í valdatíð núverandi ríkisstjórnar frá 8. febrúar 1980 hefur dollaraverð hækkað um liðlega 161,3%, en þá var sölugengi dollarans skráð 4.017 krónur. og innflutnings í viðskiptum við löndin, en Nígería hefur síðustu ár verið þriðja stærsta útflutnings- land okkar en Portúgal var á sl. ári fjórða stærsta í röðinni. Halldór benti í ræðu sinni á gíf- urlegan mismun inn- og útflutn- ings í viðskiptum við löndin og sagði, að árið 1981 hefði útflutn- ingur til Nígeríu numið 858 millj. kr. en við keypt þaðan fyrir 188 þúsund krónur. Á sama ári hefði munurinn hvað varðar Portúgal verið sá að útflutningur nam 702 millj. kr. en innflutningur aðeins 135 millj. kr. Aðalskreiðarmark- aður okkar hefur verið í Nigeríu en saltfiskmarkaður í Portúgal. Halldór minnti í þessu sambandi á ályktun aðalfundar Samlags skreiðarframleiðenda þar sem skorað er á ríkisstjórnina að koma sem fyrst á nánari stjórnmála- sambandi við Nígeríu með því að setja upp sendiráð í Nígeríu. Einn- ig minnti hann á að portúgölsk stjórnvöld hefðu borið fram kröfu um að við legðum meiri áherslu á innflutning þaðan og að sendi- herra Nígeríu sem hér var staddur fyrir skömmu hefði ekki farið dult með að honum væri mjög í mun að gagnkvæm viðskipti kæmust á milli landanna. Viðskiptaráðherra, Tómas Árnason, talaði á eftir Halldóri og sagðist geta tekið undir margt af því sem hann hefði sagt um við- skipti okkar við Nígeríu og Portú- gal. Hann lýsti því yfir að sér fyndist tímabært að athuga um það að Island stofni sendiráð i Afríku og þá með staðsetningu í Nígeríu. Flóa- og kökumarkaður KVENFÉLAG Karlakórs Reykjavíkur heldur flóa- og kökumarkað að Freyjugötu 14, 2. hæð (Félagsheimili Karlakórs Reykjavíkur), laugar- daginn 8. maí kl. 14.00. Margir eigulegir munir eru á boðstólum ásamt blómum og afleggjurum. Höfn í Hornafirði: Átta íbúðir í verkamanna- bústöðum afhentar í haust MYNDIN hér að ofan er af verka- mannabústöðum sem nú er verið að reisa á Höfn í Hornafirði. Að sögn sveitarstjórans þar, Sigurðar Hjaltasonar, eru alls átta íbúðir i húsunum og hefur þeim öllum ver- ið úthlutað. „Þessi hús voru byggð ^am- kvæmt nýju lögunum um verka- mannabústaði," sagði Sigurður. „Við hefðum gjarnan viljað hafa íbúðirnar 10 en fengum ekki að byggja nema átta. Það er greini- lega mikil þörf fyrir fleiri svona íbúðir hér. Verkið var boðið út í fyrrahaust og barst lægsta til- boðið frá trésmiðjunni Álmi sf. og er það hún sem sér um verkið. Verkið gengur vel og allar horf- ur eru á að því verði lokið fyrir haustið, en íbúðirnar á að af- henda í september." Oddviti Bólstaðarhlíðarhrepps: Sýnist sem í raun sé verið að semja um 400 gígalítra lón „MÉR sýnist nú sem þarna sé í raun- inni verið að semja um 400 gígalítra lón, enda væru menn varla að gera ráð fyrir stækkun siðar nema af því að þeir telja að þá verði unnt að koma þessu í gegn,“ sagði Jón Tryggvason bóndi i Ártúni og oddviti Bólstaðar- hliðarhrepps í samtali við blaðamann Morgunblaðsins, er hann var spurður álits á því samkomulagi sem virðist hafa náðst um virkjanamál á Alþingi. „Mér finnst nú einhvern veginn alltaf aö framtíðin eigi að fá að ráða sér sjálf," sagði Jón ennfremur, „og hér kann að vera að samið hafi verið um eitthvað sem ekki verður of vel síðar. Ég vil hvorki binda hendur framtíðarinnar með þessu né öðru, skuldasöfnun úr hófi eða slíku. Mér finnst þetta því ákaflega hæpið, enda er 220 gígalitra lón mjög heppileg stærð fyrir okkur, en hér Sinueldar í Kópavogi Annríki var í gær hjá lögreglunni í Kópavogi, vegna sinuelda sem kveikt- ir höfðu verið víða í bænum. Var gróð- ur víða í hættu og jafnvel mannvirki. Kópavogslögreglan bað Morgun- blaðið að koma þeim tilmælum á framfæri til foreldra, að þeir brýndu fyrir börnum sínum hætt- una er stafað getur af sinueldum þannig að koma mætti í veg fyrir stórtjón á gróðri og eignum, og er hlýna tekur er varp fugla einnig í hættu. er fyrst og fremst verið að sam- þykkja tilhögun I sýnist mér. En 220 gígalítra lón væri okkur mjög mikils virði, með hliðsjón af gróðri, ís- myndun og fleiri atriðum. Hér er veðurfar harðara eða síst betra en fyrir sunnan við Þjórsá, og ég óttast afleiðingar þess þegar farið verður að hleypa ísmyndun hér niður fyrir til okkar. En annars er best að bíða og sjá hvað verður, við höfum enn ekki séð þetta samkomulag, aðeins haft af því lausafregnir í fréttum. Þegar þar að kemur mun hreppsnefndin taka til þess afstöðu, nei, ekki á ég von á að þetta fari fyrir almenna atkvæðagreiðslu," sagði Jón að lok- Minningarskákmót um Jón Ingimarsson: Elvar Guðmunds- son í efsta sæti Minningarskákmót um Jón Ingimarsson var haldið á Akureyri um síðustu helgi. Sóttu það 28 keppendur, en það var haldið í nýjum húsa- kynnum Skákfélags Akureyr- Sævar Bjarnason, Jón Viðar Garðarsson og Jón Björgvins- son. ar. Verðlaunafé var 7 þúsund krónur og var það gefið af Iðju, félagi verksmiðjufólks, og fleiri aðjlar á Akureyri styrktu mótið. í efsta sæti varð Elvar Guð- mundsson með fimm og hálfan vinning af 7 mögulegum og næstir og jafnir, með 5 vinn- inga, urðu þeir Halldór Jónsson, Póst- og simamálastjóri um skrefatalningu á hátíðisdögum: Ef breyta á því þarf að koma til reglu- gerðarbreyting frá ráðuneytinu Skrefatalning á síma á höfuðborg- arsvæðinu, er sem kunnugt er í gildi frá klukkan 8 árdegis til klukkan 19, frá mánudegi til fostudags. Laugar- daga og sunnudaga er skrefatalning- in ekki í gildi. Skrefatalningu er á hinn bóginn beitt þá helgidaga árs- ins, sem ekki ber upp á laugardag eða sunnudag, svo sem skírdag, Tóstudag- inn langa, annan í páskum og annan í hvrtasunnu. Kinnig á jólum, 1. maí, 17. júní, nýársdag og fleiri frídögum, sem ber upp á aðra daga en laugar- daga og sunnudaga hverju sinni, að því er Jón A. Skúlason póst- og sima- málastjóri sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær. Að sögn Jóns hefur þetta fyrir- komulag allan tímann verið ljóst, þar sem í reglugerðinni væri skýrt og skorinort sagt, að skrefatalning væri í gildi mánudaga til föstu- daga, á bilinu klukkan 8 til 19. Hér ætti því ekki að leika á neinn vafi. Ef breyta ætti þessu, þannig að aðrir helgidagar yrðu einnig utan skrefatalningarinnar, þyrfti að koma til reglugerðarbreyting frá samgönguráðuneytinu. Póstur og sími gæti ekki breytt því, fyrirtæk- isins væri að fara eftir þeim regl- um er settar væru. Jón kvað það á hinn bóginn augljóst, að ef breyta ætti þessu, myndi það kosta dýran tækjabúnað, sem hefði „minni" til heils árs, þar sem unnt væri að setja inn í þessa daga, eða þá að starfsmenn breyttu þessu hverju sinni, með þeim kostnaði er því fylgdi. Að sögn póst- og símamálastjóra liggur þegar fyrir, að skrefataln- ingin hefur haft áhrif á símagjöld á höfuðborgarsvæðinu til hækkun- ar. Ekki væri þó ljóst hve sú hækk- un væri mikil, því enn væri ekki búið að senda út reikninga fyrir heilt gjaldtímabil. En um leið og ljóst væri að hækkunin hefði orðið á höfuðborgarsvæðinu, væri vitað að lækkun hefði orðið úti í dreifbýl- inu, eins og til hefði verið ætlast. Hjúkrunarfræð- Ingar á Akureyri íhuga lokatilboð Akureyrarbæjar Hjúkrunarfræðingar á Akur- eyri hafa enn ekki sagt upp störf- um vegna óánægju með kjör sín. Að sögn Birnu Sigurbjörnsdóttur, formanns samninganefndar þeirra, eru þeir nú að íhuga loka- tilboð, sem þeim hefur borizt frá Akureyrarbæ. Sagði Birna að lokatilboð bæjarins fæli í sér, að byrjun- arflokkur yrði 14. flokkur BSRB, eftir eins árs starf hækkuðu laun upp t 15. flokk, eftir 4 ár í 16. og eftir 8 ár í 17. Eftir 13 ára starf hækkuðu laun svo upp í 18. launaflokk eins og væri í aðalkjarasamn- ingum. Væri hér um að ræða tveggja launaflokka hækkun og hraðara launaskrið en verið hefði. Sagði Birna að hjúkrun- arfræðingar væru ekki fyllilega ánægðir með þetta tilboð, en það væri þó betra en öðrum hjúkrunarfræðingum hefði boðizt. Því hefði verið tekin ákvörðun um það að ræða til- boðið nánar áður en tekin yrði ákvörðun um uppsagnir eða samninga á grundvelli tilboðs-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.