Morgunblaðið - 07.05.1982, Blaðsíða 32
Síminn á afgreiðslunni er
83033
Sími á ritstjórn og skrifstofu:
10100
FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1982
Lán til fiskvinnslunnar úr Fiskveidasjóði:
Engin ný lán
greidd í ár
— Upphæð lánsfjárloforða um 65 milljónir kr.
MIKII.I, Tjár.skortur gtrir þaá art verk-
um art Fi.skveiAasjóAur (jetur ekki
Ixiryart út þau lán, sem undir venju-
l<mim kringumstærtum hefrtu komirt
til ureirtslu á þessu ári.
„Oll lánsrjárloTorrt á þessu ári til
fiskvinnslunnar eru mert þeim fyrlr-
vara, art ekki verrti hægt art (jreirta þau
út á þessu ári, erta í þart fyrsta undir
lok ársins," sagrti Svavar Armannsson,
skrirstofustjóri Fiskveirtasjórts, í sam-
tali virt Mbl.
„Astæðan fyrir þessu er einfald-
lejra sú, að lausafjárstaða okkar er
mun verri í ár, en við höfðum gert
okkur vonir um og til þess eru eink-
um þrjár ástæður. Fyrir það fyrsta
var greiðsluflæðið á síðasta ári mun
hægara, en við höfðum gert okkur
vonir um, og lausafjárstaðan í árs-
lok því verri en efni stóðu til. Önnur
ástæðan er sú, að við fengum minni
lán, en við höfðum óskað eftir og
þriðja ástæðan er sú, ríkisframlagið
er skorið nokkru meira niður, en áð-
ur hefur verið," sagði Svavar enn-
fremur.
Aðspurður sagði Svavar, að upp-
hæð þeirra lána, sem um ræddi væri
um 65 milljónir króna.
Svavar sagðist ekki sjá nein teikn
á lofti um betri tíð í þessum efnum.
Mbt: Kmilía Björe Björnsdóttir.
I'art var grannt fylgst með umrærtum um álmálið utan dagskrár á Alþingi í gær. f hliðarsölum og á þingpöllum
mátti sjá marga helstu ráðgjafa iðnaðarráðherra í þessu máli. Lengst til hægri á myndinni er aðalráðgjafi
ráðherrans, Ingi K. Helgason, forstjóri, en hann tók þátt í viðræðunum i gær og fyrradag. Við hlið hans situr
l'röstur Olafsson, aðstoðarmaður fjármálarártherra, Kagnars Arnalds. í ráðherrastólum sitja þeir tveir ráðherrar
sem hvað mest komu við sögu í umræðunum, Steingrímur Hermannsson, samgönguráðherra, og Hjörleifur
Guttormsson, iðnaðarráðherra.
Álviðræðurnar fóru
út um þúftir í gærdag
— Iðnaðarráðherra án umboðs frá ríkisstjórn
— „Sviksamlegt athæfi“ ekki lengur til umræðu
VIÐRÆÐUFUNDI fulltrúa Alu-
suisse og iðnaðarráöherra lauk
laust eftir hádegi í gær án niður-
stöðu. Iðnaðarráðherra lagði
fram málamiðlunartillögu um
lausn deilumála, þar sem krafist
var hækkunar raforkuverðs hið
fyrsta og lagt til að vísa deilunni
í gerð. Alusuisse lýsti því yfir að
fyrst yrði að ganga frá ásökun-
armálefnunum, síðan væri Al-
usuisse reiðubúið að ræða þau
atriði, sem ráðherrann hefði bor-
ið fram, svo sem hækkun rafor-
kuverðs, eignaraöild Islands og
endurskoðun á samningum. Að-
ilar skildu án þess að ákvörðun
væri tekin um annan fund eða
frekari viðræður. Geir Hall-
grímsson formaður Sjálfstæðis-
flokksins og Kjartan Jóhannss-
on formaður Alþýðuflokks fóru í
fyrrakvöld fram á umræður utan
dagskrár á Alþingi um þetta
mál. Umræður þessar fóru fram
síðdegis í gær og var þar hart
deilt á iðnaðarráðherra fyrir
framgang hans allan í þessu
máli.
I umræðunum á Alþingi spurðu
Geir Hallgrímsson og Kjartan Jó-
hannsson m.a. hvernig staðið
hefði verið að undirbúningi þessa
viðræðufundar og einnig spurðu
þeir forsætis- og samgönguráð-
herra sem sæti eiga ásamt iðnað-
arráðherra í ráðherranefnd sem
falið var að annast þetta mál,
hvort þeir teldu að Alusuisse hefði
framið sviksamlegt athæfi, en því
Um byggð á Rauðavatnssvæðinu:
Stærstu mistök í skipu-
lagsmálum á þessari öld
— sagöi Ólafur B. Thors á borgarstjórnarfundi í gær
HAKÐAK umræður urrtu í borgar-
stjórn Keykjavíkur í gærkvöldi, þeg-
ar rætt var um skipulagsmál. Ólafur
B. Thors, borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, sagói, að afskipti vinstri
meirihlutans i borgarstjórn yrðu
lengi í minnum höfð, því að síðasta
kjörtímabil hefði verið tími hinna
glötuðu tækifæra i skipulagsmálum
Keykjavíkur. Sagði Olafur, að yrði
framtíðarbyggð höfuðborgarinnar á
Kauðavatnssvæðinu, væru það
stærstu skipulagsmistök, sem gerð
hefðu verið á þessari öld. Klin
l’álmadóttir (S) hóf þessar umræður
með því að benda á, að aðeins
50—60 m væru á milli sprungna
fyrir norðan Kauðavatn.
Ólafur B. Thors sagði, að í meiri-
hlutatið sjálfstæðismanna hefði
verið komist að þeirri niðurstöðu,
að Rauðavatnssvæðið væri svo
slæmur kostur, að það hefði ekki
verið tilgreint sem byggingar-
svæði. Benti Ólafur á, að þá hefðu
Sjálfstæðisflokkur, Framsóknar-
flokkur og Alþýðuflokkur verið
sammála um þessa afstöðu. Hins
vegar réðu ekki hefðbundin skipu-
lagssjónarmið hjá alþýðubanda-
lagsmönnum og kæmi það gleggst
fram í ákvörðuninni um Rauða-
vatnsbyggðina.
Davírt Oddsson (S) sagði, að í
kosningunum 22. maí væri síðasta
tækifærið fyrir borgarbúa að
koma í veg fyrir skipulagsmistök
vinstri manna með því að hafna
þeim, sem vildu framtíðarbyggð á
Rauðavatnsheiðum. Hann sagði,
að ýmsir vinstri manna væru
greinilega komnir á flótta frá
Rauðavatni, til dæmis framsókn-
armaðurinn Kristján Benedikts-
son, sem sagt hefði í blaðaviðtali,
að lítill vandi væri að hverfa frá
sprungusvæðinu niður að strönd-
inni, eins og sjálfstæðismenn vilja
að gert verði.
Kristján BenedikLsson sagði þó á
fundinum, að ekkert hefði komið
fram, sem ylli því, að hætta bæri
við Rauðavatnsskipulagið.
Albert Guðmund.sson (S) beindi
þeirri spurningu til borgarstjóra,
hver hefði orðið niðurstaða í við-
ræðum hans við ríkisvaldið, eig-
anda Keldnalands, um eignarhald
á landi umhverfis Keldur vegna
framtíðarbyggðar Reykjavíkur.
Egill Skúli Ingibergsson sagði, að
hann og aðrir embættismenn
borgarinnar hefðu lagt tll, að
landið yrði tekið eignarnámi. Al-
bert Guðmundsson og Davíð
Oddsson minntu á, að vinstri
meirihlutinn hefði hafnað þessari
tillögu borgarstjóra meðal annars
með atkvæði Kristjáns Bene-
diktssonar.
hefur verið haldið fram eftir að
iðnaðarráðherra gaf yfirlýsingar
um svonefnda „hækkun í hafi“.
I svörum ráðherranna kom
fram, að ekkert samráð hafði ver-
ið haft við þá fyrir þennan fund.
Steingrímur Hermannsson sam-
gönguráðherra og Gunnar Thor-
oddsen forsætisráðherra lýstu því
báðir yfir, að þeir hefðu fyrst
fengið afrit af málamiðlunartil-
lögum Hjörleifs í gær, en tillög-
urnar lagði ráðherrann á borð
fyrir fulltrúa Alusuisse í fyrra-
kvöld. Geir og Kjartan sögðu allan
undirbúning af hálfu iðnaðarráð-
herra vítaverðan. Hann hefði ekki
haft neitt samráð um þetta mik-
ilvæga mál allt frá því í marzmán-
uði, hvorki við samráðsnefnd,
ráðherranefnd né ríkisstjórn. Geir
sagði þetta enn eitt dæmið um að
Alþýðubandalagið virtist ráða öllu
í ríkisstjórninni, og aðrir ráðherr-
ar létu sér vel líka.
Gunnar Thoroddsen og Stein-
grímur Hermannsson lýstu því
báðir yfir að þeir teldu ekki um
sviksamlegt athæfi að ræða af
hálfu Alusuisse og Hjörleifur
Guttormsson sagði málflutning
ríkisstjórnarinnar ekki byggjast á
því. Inn í umræðurnar fléttuðust
blaðaskrif og ummæli iðnaðar-
ráðherra um hugsanleg kaup ís-
lenzka ríkisins á hluta eða meiri-
hluta íslenzka álversins. Sýndist
þar sitt hverjum, en þeir sem
deildu harðast á iðnaðarráðherra
vegna þess sögðu það vítavert að
svo stórt mái sem kaup á hluta og
jafnvel meirihluta verksmiðjunn-
ar væru lögð fram sem viðræðu-
grundvöllur við Alusuisse áður en
fyrir lægi vilji þjóðarinnar hvað
slíka fjárfestingu varðaði, en
margir þeir sem tóku til máls
töldu hana mjög svo óarðbæra.
Sjá yfirlýsingar frá Alusuis.se og
iðnartarrártuneyti á mirtopnu og
frásögn af umrærtum á Alþingi í
gær á bls. 18 og 19.