Morgunblaðið - 07.05.1982, Síða 17

Morgunblaðið - 07.05.1982, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1982 17 l>etta er hluti af korti Jóns Jónssonar. Þar sést meóal annars að austustu sprungurnar á yfirborðinu, sem fundist hafa, eru rétt vestan við Elliðavatn, en að sprungusveimurinn þar fyrir austan heldur áfram í norður. Sprungurn- ar norður af Rauðavatni á þessu grófa korti eru mjög áberandi, og hefur nú við nánari skoðun komið í Ijós að kringum þær er bergið mikið upp brotið. bætt við á kortin því sem hann hefur séð í viðbót. Þegar Þróunarstofnun Reykja- víkurborgar tók að undirbúa skipulag á nýjum svæðum var byrjað á könnunum, og 1973 birt náttúrufarslýsing með sprungu- korti Jóns og gerð grein fyrir jarðfræði þessara svæða, byggð m.a. á rannsóknum hans, og það var einn þátturinn sem notaður var við ákvarðanatöku um á hvaða svæði skyldi beina athyglinni á skipulaginu frá 1977. — Ég hefi kortlagt þessi svæði í grófum dráttum, sagði Jón. Mín kortlagning á sprungum á Rauða- vatnssvæðinu er því miklu grófari en Halldórs Torfasonar jarðfræð- ings nú. Við það að nú loks er farið að skoða þetta sprungusvæði nán- ar og í alvöru hefur komið í ljós og passar við það sem ég hefi haldið fram, að svæðið kringum svona sprungur er meira og minna mölv- að — sprungurnar eru miklu fleiri en sjást á yfirborðinu. Kosninga- útvarp og sjónvarp: Reykjavík í út- varpi og sjónvarpi — Kópavogur, Hafnarfjörður og Akureyri aðeins í sjónvarpi KOSNINGAÚTVARP og sjónvarp vegna sveitarstjórnakosninganna 22. maí næstkomandi verður með hefð- bundnum hætti, að því er Hjörtur l’álsson, dagskrárstjóri útvarps, og Þétur Guðfinnsson, framkvæmda- stjóri sjónvarps, sögðu í samtali við Morgunblaðið. Kosningabaráttan í sjónvarpi hefst á sunnudaginn kemur, hinn 9. maí, með tveggja klukkustunda þætti er hefst klukkan 16. Þar verða fluttar ræður í 30 mínútur. Full- trúar flokkanna, einn eða fleiri, verða spurðir af fréttamanni, og síð- an verða aftur umræður í hálfa klukkustund. Stjórnandi þessa þátt- ar verður Helgi E. Helgason, frétta- maður. Laugardaginn 15. maí verða síðan framboði í Kópavogi gerð skil, ræð- ur fyrst og síðan hringborðs- umræður eins manns frá hverjum lista. Sunnudaginn 16. maí kemur svo röðin að Hafnfirðingum milli kl. 14 og 16, sem hafa sams konar fyrir- komulag og Reykvíkingar, ræður, viðtöl og ræður. Akureyringar eru svo milli klukkan 16 og 18 sama dag, og er ætlunin að þar verði sama fyrirkomulag og í Kópavogi, ræður og hringborðsumræður. Kosninga- baráttunni í sjónvarpi lýkur svo með hringborðsumræðum fulltrúa listanna við borgarstjórnarkosn- ingarnar í Reykjavík, samtals 90 mínútur. í útvarpi verða frambjóðendur í Reykjavík „á beinni línu“ þar sem hlustendur geta komið með fyrir- spurnir. Þátturinn verður á dagskrá fimmtudaginn 13. maí milli kvöld- frétta, í umsjá þeirra Vilhelms G. Kristinssonar og Helga H. Jónsson- ar. Framboðum í öðrum kaupstöðum verða ekki gerð skil í útvarpi, en Hjörtur Pálsson sagði, að ef óskir kæmu fram um slíkt væri mönnum bent á að sækja um leyfi til að út- varpa þáttum á sérbylgjum í sinni heimabyggð. Vegna kosninganna verður svo sent út á stuttbylgju 22. maí, frá klukkan 18.30 GMT þar til talningu lýkur, á 13.797 kHz, og á sunnudeg- inum 23. maí einnig á milli klukkan 12 og 14 GMT. Rætt við hjúkrunarfræðinga á 3 spítolum Fólk fæst ekki til starfa á þessum lágu launum „ÉG HKK þá trú, að nú reyni á það hvað við stöndum vel saman, og við munum hætta hinn 15. eins og við höfum sagt,“ sagði Auður Ragnars- dóttir hjúkrunarfræðingur á Landa- koti í spjalli við blaðamann Morgun- blaðsins í gær. „Svipað átti sér einnig stað árið 1977, en þá guggnuðum við og við hættum við uppsagnir, en til þess kemur ekki nú, samstaðan er geysimikil, og kjörin verri en þau voru 1977. Aðalmálið er þó ekki að við fáum hærri laun, það er ekki eins mikið atriði og það, að á meðan launin eru ekki hærri en þau eru nú, fáum við ekki hjúkrunarfræðinga til starfa. Það er skortur á hjúkrunar- fræðingum við spítalana, þó nóg sé til af menntuðu starfsfólki. Það fer bara í önnur störf, sem eru betur launuð. Þessi lágu laun eru ástæð- an fyrir því slæma ástandi sem er í sjúkrahúsmálunum hér, eða að minnsta kosti stór hluti ástæðunn- ar. Það er verið að tala um B-álmu Borgarspítalans til dæmis, og á Borgarspítalanum eru stofur ekki nýttar vegna skorts á hjúkrunar- fræðingum, og hér hafa verið auð- ar stofur á lyfjadeild af sömu ástæðu. — Nei, við förum ekki frá nein- um sjúklingum, sem okkar þurfa með, við höfum skipulagt neyðar- þjónustu, og því á engum að vera hætta búin vegna aðgerða okkar. Eg held hins vegar að enginn sé farinn að hugsa svo langt að fara í aðra vinnu, við trúum ekki öðru en ráðamenn láti sér segjast áður en lýkur." Auður kvaðst vera með um 10 þúsund krónur á mánuði. Þar að baki er þriggja ára hjúkrunarnám, sex ára starfsreynsla, og hún gegn- AuAur Ragnarsdótlir: „Það er nóg til af menntuðum hjúkrunarfræðingum, en launin gera það að verkum að lærðir hjúkrunarfræðingar fara i önnur störf.“ ir starfi deildarstjóra og er því á hærri launum en almennir hjúkr- unarfræðingar. Ekkert bendir til annars en að við hættum hinn 1. júní „Við hjúkrunarfræðingar á Borg- arspítalanum höfum sagt upp störf- um frá og með I. júní, og eins og er bendir ekkert til annars en að þá leggjum við niður vinnu," sagði Jón Karlsson hjúkrunarfræðingur á Borgarspítalanum í samtali við blaða mann Morgunblaðsins í gær. „Kn þessi mál eru þó öll í deiglunni núna, og verða rædd á fundi á mánudag- inn, og þá verður meðal annars rætt um hvað við gerum ef þau á ríkisspít- ulunurn fresta aðgerðum um þrjá mánuði. Kg á þó ekki von á að svo fari, það er góð samstaða innan stétt- arinnar um kjarabaráttuna, og þann hálfa mánuð sem líður frá því að hjúkrunarfræðingar á hinum spítul- unum hætta og þar til við hættum, munum við ekki ganga inn í þeirra störf. Þessi tveggja launaflokka hækk- un sem kjaradómur úthlutaði okkur er hvergi nærri nóg, það þarf meira til að koma, enda höf- um við dregist það langt aftur úr í launum. Þessi lágu laun hafa svo meðal annars leitt tii þess að fólk skortir í störf hjúkrunarfræðinga á spítulunum, þótt nægilega marg- ir hafi lært til hjúkrunarfræðings. Hér á Borgarspítalanum eru þess jafnvel dæmi að heilu deildirnar séu reknar á aukavöktum, það er að segja, ef við hættum að vinna yfirvinnu, þá verður að loka sum- um deildum spítalans. Þetta sýnir ástandið í hnot- skurn, en yfirvinnu hafa flestir tekið, meðal annars vegna þess hve launin eru lág. Ég er til dæmis með Tveggja launaflokka hækkun var hvergi nærri nóg, við erum orðin það langt aftur úr í launum. 7.839 krónur á mánuði, eftir árs starf og þriggja ára hjúkrunar- nám. Það þykir ekki mikið úti á hinum almenna vinnumarkaði," sagði Jón að lokum. Sýnir að ekki er ætlun- in að semja við okkur „Ég hef ekki fengið í hendur til- kynningu um að uppsögnum okkar hafi verið frestað af ríkisvaldinu, en ef svo er, þá verður vitaskuld að skoða það," sagði Sigríður Guð- mundsdóttir hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum í samtali við Morg- unblaðið í gær. „Það liggur hins veg- ar Ijóst fyrir," bætti hún við, „að það er ákaflega erfitt að fara að ha'lta baráttunni nú, enda erum við þegar byrjuð að skipuleggja starfið sam- kvæmt neyðaráætlun. Þetta mál var lítillega rætt á fundi fyrr í vikunni, og þar voru uppi háværar raddir um að við ættum ekki að sinna óskum eða fyrirmælum um framlengingu á ráðningartíma okkar. Slík tillaga núna sýnir líka, að ráðamenn ætla sér ekki að semja við okkur og að þeir taka okkur ekki alvarlega, enda hafa þeir ekki rætt við okkur. Þeir eru að reyna að splundra sam- stöðu okkar með þessu, en sem kunnugt er, hætta sumir hjúkrun- arfræðingar 15. maí, hvað sem gert verður á rikisspítölunum. En stemmningin hjá okkur er góð i þessari baráttu, við stöndum allar saman sem ein. Hér er ríkjandi neyðarástand í hjúkrunarmálum, 350 hjúkrunar- fræðingar eru ekki í starfi vegna launa og mikils vinnuálags, svo sem á Borgarspítala og Kleppsspít- ala, þar sem fólk er nánast skyldað til að vinna yfirvinnu. Þetta hent- ar fæstum, fjölskyldufólki til dæmis yfirleitt illa, og dæmi eru mörg um að hjúkrunarfræðingar hafa flust til Skandinavíu af þess- um ástæðum, þar sem vinnu með hóflegu álagi og betri launum er að fá. Það þarf að bæta úr þessu ástandi núna, það má ekki bíða hausts.“ Sigríður kvaðst hafa 9.062 kr. í Sigríður Guðmundsdóttir: „VIÐ KORl'M fram á 5 launaflokka ha'kkun, en kjaradómur veitti okkur 2. Okkur vantar því enn 3, og þeim hyggjumst við ná með aðgerðum okkar." mánaðarlaun, sem grundvölluðust á þriggja ára hjúkrunarnámi, sex ára starfsaldri og eins flokks hækkun vegna starfa sem aðstoð- ardeildarstjóri. Sé engin merki um samninga fyrir 15. mal og þá hættum við „Við göngum út héðan hinn 15. maí, eins og við höfum boðað, hafi ekki tekist samningar, og eins og er sé ég engin merki þess að búið verði að semja þá,“ sagði Rikka Mvrdal, hjukrunarfra'ðingur á Landakotsspít- ala, í gær er blaðamaður hitti hana að máli við störf á spítalanum. „Hvað okkur hér snertir, eru engin lög sem geta framlengt ráðn- ingu okkar, eins og á við um ríkis- spítalana,“ sagði Rikka ennfremur, „svo það kemur ekki til álita hér. Einnig hef ég haft af því fréttir, að hjúkrunarfræðingar á Landspítal- anum ætli ekki að fara að fyrir- mælum um framlengingu, heldur muni þeir ganga út um leið og við, hinn 15. Það er mjög góð samstaða um þessar aðgerðir innan stéttar- innar, þar sem allir hjúkrunar- fræðingar hafa sagt upp nema þar sem veikindafrí, barneignarfrí eða eitthvað slíkt hefur sett strik í reikninginn. Þá styðja sjúkraliðar okkur einnig, og læknar segjast gera það einnig. Nei, ég hef ekki ráðið mig í vinnu annars staðar, og veit ekki til að aðrar hafi gert það. Við vonum og trúum því, að þetta verði ekki mjög langur tími, þegar ráðamönnum skilst, að okkur er full alvara. Þeir hafa hins vegar sýnt ótrúlega stífni, og ekki einu sinni boðað okkur til fundar um málið. — Launin, nei, það er ekkert leynd- armál hver þau eru, um 8 þúsund krónur eftir þriggja ára nám, það er nú ekki nteira,“ sagði Rikka að lokum. Rikka Mýrdal á Landakotsspítala: „ÞAD KR vissulega erfitt að ganga héðan út, enda finnst okkur sem við berum nokkra ábyrgð á sjúklingun- um. Það verður þó vel séð um alla, og hráðatilfellum verður sinnt.“ Myndirnar tók Kmilía Björg Björnsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.