Morgunblaðið - 11.05.1982, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ1982
Ný stórátök í
íþróttamálum
eftirJúlíus Hafstcin
Fjölmennustu samtök ein-
staklinga í Reykjavík eru
íþróttafélögin. Skilningur borg-
aryfirvalda á starfi þeirra að
æskulýðs- og menningarmálum
hefur oftast verið góður, og fyrst
og fremst falist í því að hlúa að
aðstöðu til íþróttaiðkana, bæta
hana og laga að þörfum íþrótta-
fólks. Þetta hefur íþróttafólk
kunnað að meta og þakkað fyrir
sig með auknu starfi og þá sér-
staklega gert yngra fólki kleift í
ríkara mæli að stunda sín
áhugamál við viðunandi aðstæð-
ur.
í þessari umræðu hefur það
sjaldan borið á góma, að það eru
fulltrúar stjórnmálaflokkanna
sem taka ákvörðun um það í
hvaða íþróttamannvirki skuli
ráðist á hverjum tíma. Það kost-
ar mikla fjármuni að byggja slik
mannvirki og það fé, sem beint
er inn á þessa braut, verður að
nýtast almenningi og íþrótta-
fólki sem allra best. í þessu sam-
bandi er eftirtektarvert að bera
saman stefnur stjórnmála-
flokka, þegar þeir koma hug-
myndum sínum á framfæri og í
hvað þeir vilja ráðast á hverjum
tíma.
Júlíus Hafstein
Hlutskipti
framsóknarmanna
I tíð núverandi meirihluta-
samstarfs vinstri flokkanna í
Reykjavík hefur Framsóknar-
flokkurinn verið hið leiðandi afl
um íþróttamál. Þegar það varð
ljóst eftir kosningarnar 1978,
var ekki ástæða fyrir áhuga-
menn og konur á þessum vett-
vangi að vera svo mjög uggandi
um sinn hag. Stór orð og fögur
fyrirheit Framsóknarflokksins í
þessum efnum vorið 1978 voru
öll á þann veg. í bæklingnum
„Borgin okkar“, sem Framsókn-
arflokkurinn gaf út fyrir kosn-
ingar segir m.a. í kaflanum um
íþróttir: Að lagt verði gervigras á
Laugardalsvöll, hrundið verið í
framkvæmd hugmyndum um yf-
irbyggt skautasvell (skautahöll),
hætt verði að taka leigugjöld af
íþróttafélögum fyrir afnot af
íþróttasölum, íþróttamannvirkj-
unum í Laugardal verði komið í
endanlegt horf, hafnar verði
framkvæmdir við byggingu bað-
og búningsherbergja við sund-
laugarnar í Laugardal o.fl. o.fl.
Af þessum fimm atriðum, sem
voru megin styrkurinn í stefnu
Framsóknarflokksins 1978, hef-
ur aðeins eitt atriði komist af
stað, en fyrir nokkrum mánuð-
um var hafist handa við bygg-
ingu bað- og búningsherbergja
við Laugardalslaugina sem er
enn stutt á veg komin. Þetta eru
„afrekin" og efndirnar. Þjóðvilj-
inn var í sama farvegi í miðjum
maímánuði 1978 og sagði m.a. að
skautahöll skyldi reist á næstu
fjórum árum, þ.e.a.s. ef Alþýðu-
bandalagið fengi að ráða ferð-
inni. Hvar skyldi skautahöllin
hans Sigurjóns Péturssonar vera
niðurkomin nú? Það er því ljóst
að lítið sem ekkert hefur gerst á
þessum vettvangi, sem er í
sannleika sagt raunalegt miðað
við þá markvissu uppbyggingu
sem Sjálfstæðisflokkurinn stóð
fyrir á árunum þar á undan.
Stefna sjálfstæðismanna
Ekki verður hér frekar fjölyrt
um liðna tíð, þó rík ástæða sé til,
heldur bent á það sem framund-
an er og það sem Sjálfstæðis-
flokkurinn mun gera fái hann
Skautaðfráþví
(Pjóöviljinn 13/51978)
Skautahöll átti aö byggja á næstu fjórum árum.
Þetta var sagt 1978 og ekkert skafið utan at
hlutunum. Sagt var beinlfnis að skautaholiína
ÆTTI að byggja. Frá þessu hafa vínstri menn
skautað því nú er ekki lengra komið en svo að
búið er að velja höllinní stað. Állt hítf er eftir.
„Þá mun Sjálfstæðisflokkurinn beita sér fyrir auknum stuðningi við íþróttafé-
lögin í borginni og leggja áherslu á að gera þeim félögum, sem hafa vilja og
getu, mögulegt að byggja upp iþróttamannvirki á félagssvæðum sínum. Þarna
vill Sjálfstæðisflokkurinn styrkja félögin mun myndarlegar en nú er gert,“
segir Júlíus Hafstein, 15. maður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, í
þessari grein.
aðstöðu til þess. Við íþrótta-
mannvirkjagerð næstu 4 árin
vill Sjálfstæðisflokkurinn skipta
verkefnunum í tvo flokka. í
fyrsta lagi forgangsverkefni, og
verkefni sem stefna ber að, þ.e.
a.s. verkefni sem koma þar á eft-
ir.
Forgangsverkefni skulu vera:
1. Að byggja íþróttahús við
Fjölbrautaskólann í Breið-
holti með áhorfendasvæðum
og löglegri vallarstærð til
handknattleikskeppni. Þörfin
á slíku húsi er gífurleg í borg-
inni í dag og sennilega er
þetta eitt mest aðkallandi
verkefnið.
2. Ljúka bað- og búningsher-
bergjum við sundlaugarnar í
Laugardal. Nú þegar hefur
verið hafist handa við þessa
byggingu en mjög langt er í
það að hún verði tekin í notk-
un.
3. Að Ijúka við heildarskipulag
Laugardalsins sem íþrótta- og
útivistarsvæðis.
Þó að þetta þriðja atriði láti
ekki mikið yfir sér, þá er það
mjög þýðingarmikið fyrir heild-
arsamtök íþróttafólks, að íbúð-
arbyggð verði ekki leyfð í Laug-
ardalnum eins og nú horfir hjá
vinstri flokkunum. Þá hafa í
þessu sambandi komið fram at-
hyglisverðar hugmyndir um ým-
iss konar starfsemi aðra en
íþróttir á svæðinu og þá sér-